Austri - 01.06.1901, Blaðsíða 2

Austri - 01.06.1901, Blaðsíða 2
tfífc. 20 AUSHI. 64 þeir sjálfir sitja á alþingi — nema bæjarfógeti Jóh. Jóliannes- s o n, er hefir einmitt það embættið, er a 11 r a þessara embætta sízt má vera yfirvaldslaust nokkurn bluta árs; en út yfir ttkur það þó um hásumar- tímann, þar sem hér ernálega á hverjum degi meiri eða minni umíerð af útlend- um gufuskipum og fiskiskútum með misjöfnu fólki á, og mörgu nokkuð sukksömu, en eignarrétturinn því miður ekki í sérlegum hávegum hafður hér í vetur, svo par ofaná er engu bætandi. Auk þess eru mörg mál hér fyrir rétti, er málsaðilar hafa fulla heimt- ingu á, að fram verði haldið með hæfilegum hraða; og þá ekki sízt hið stóra og umþrætta bú, Garðarsfélagið, sem er undir skiptum, þar sem hver krafan eptir aðra er gjörð á hendur félaginu eða stjórn þess og mjög mikill vafi leikur á, hvort réttiiega hafi verið framselt til skiptameðferðar, en fram- kvæmdarstjóri 0. B. Herrmann lýsir stórsökum á hendur félagsstjórninni, er allt krefst fullkomins jurista í dómarasætinu. pað var nú á orði, að herra cand. juris Björgvin Yigfússcn gegndi em- bættinu hér í fjærveru bæjarfógetans, en hann neitaði því við oss, þá er hann var hér nýlega, og kvaðst hafa lofað sér herra sýsluraanni A. Y. Tuliníus. Allra síðast höfum vér nú heyrt þá fjærstæðu, að sýslumaður Steingrímur Jónsson á Husavík ætti að gæta emhættisins hér í sumar, en sitja þó að staðaldri á Húsavík. Yér getum eigi trúað því, að háyfir- völdin samþykki þvílíka heimsku og ójöfnuð. |>ví hvaða not höfum vér af þeim bæjarfógeta og lögreglustjóra, er situr á öðru landshorni; eða á að skylda okkur bæjarmenn og sýslubúa til að sækja yfirvaldið þangað norður með ærnum tilkostnaði, ef vér þurfum á því að halda, sem enginn vafi er á að muni verða opt og tíðum í sumar? Er þetta réttur skilningur á hinum vel meintu fyrirskipunum íslands ráðgjafa um, að hinir kosnu bæjarfógetar og dómarar setji fullgildan lagamann í sinn stað meðan þeir sitja á alþingi ? Hún amma mín! (Sbr. „Kirkjuhvoll11 nr.3 í sönglögum sr. B. þ.) (:o:) Hún amma m í n það sagði m é r: „Sjá eitt er allra fyrst: Af öllu hjarta trúðu’ á Guð og son hans Jesúm Krist; J>ú heilög boð hans halda skalt, og hvergi víkja frá; Og er þú neínir nafnið hans í neyð, hann þér er hjá. Og englar Guðs þig sætum söng svæfa munu’ á kvöldin“. Hún trúði þessu’, hún amma mín; jeg efaði ei það, J>ví orðum sínum fann hún glöggt í Bitningunni stað. Um árin mörg, þau orðin jeg hef innst í hjarta geymt, Mín huggun, vernd, og hjálp í neyð æ hefur þaðan streymt. Og ennþá vaggast andi minn englasöng á kvöldin. * Útlendar fréttir. (Ná til 26. mai.) —o— Danmörk. Á meðan krónprinz Priðrik var i kirkju á uppstigningar- dag, hafði kviknað í höll hans á Amalienborg og var eldinum þegar að slá út, er hann kom að. En með því slökkviliðið kom þegar að og þetta var um hábjartau dag, þá tökst að slökkva eidinn, þó eigi fyr en eptir 2 tíma. Eldurinn hafði komið upp í klæða- herbergi, og björguðu þeir synir krónprinzins, Kristján og Haraldur, þaðan með harðfengi og snarræði nokkrum dýrgripum, er þar höfðu verið lagðir, Fjárskaðinn er ekki mjög mikill. Svíþjóð. J>ar varð nýlega í hænum Grenna í Skáney sá voðaatburður, að maður nokkur, að nafni Axel Nehr- mann, er varð brjálaður með köflura og bafði því komið sér fyrir á geð- veikrahæli baronsekkju v. Dúben, varð allt í einu óður, sleit af sér böndin, mölvaði sig inn til frú v. Duben og þriggja dætra hennar, náði þar í eldús- inu í stóra sveðju og veitti þeim öllum ólífissár. Síðan brauzt hinn óði út á götur bæjarins og rak sveðjuna í hvern sem mætti honum, þar til hann hafði felida 5 menn, þá fór æðið af honura, og hann féll niður, grátandi yfir ógæfu sinni og voðaverkum. Axel Nehrmann hefir gengið á há- skólann í Lundi, en neytti þar svo mikils tóbaks, að hann varð sinnisveikur af; hann er 33 ára að aldri. Soregur. Norðmenn hafa með mikilli viðhöfn haldið hátíðlegan stjórn- frelsisdag sinn, 17. mai einkum þó í Björgvin og Kristjaníu. í Björgvin var afhjúpaður minnisvarði fiolins- snillingsins mikla 0 1 a B u 11 s, sem er látinn standa undir fossi og hlusta á „Nökken“, er við fætur honum spilar á hörpuna, sem fossinn fellur um. Myndin af Tordenskjold, sjóhetjunni frægu, er reist í Kristjaníu, og horfir hann með þrá út á ræinn. J>ar var viðstaddur krónprinz G u s t- a f, er bæjarbúar héldu síðan ágæta veizlu, og talaði hann að henni svo hlýlega til Noregs ogNorðmanna sem landa sinna og vina, að öllum líkaði hið bezta, og er vegur Gústafs krón- prinz nú all- mikill þar í landi. Að þessari veizlu átti prinzinn langt samtal við Björnstjerne Björnsson og féll vel á ineð þeim, en áður hefir skáldið verið nokkuð harðort í garð krónprinzins og Svía. England. I>ar var Edward VII. nær drukkDaður á kappsiglingu á hinu nýja skipi Liptons rika, Shamrockll, er átti að vinna Ameríkubikarinn. Kappsiglingin fór fram á milli eyjar- innar Wight og lands, og kom allt í einu á þá ofviðri svo mikið, að brotnaði mastrið á Shamrok II. og flest kapp- siglingaskipin sakaði meir eða minna, en konungi, fylgd hans og ski pverjum varð oauðlega bjargað. Ítalía. Yiktor Emanuel II. Ítalíu- konungur hafði nýlega nær beðið bana í lyptivél í höll sinni, er konungur ætlaði út úr, en vélin hélt áfram og hafði nær klippt höfuðið af konung- inum. Serbía. I>ar hefir Alexander kon- ungur fyrir löngu boðað þjöðinni, að að hún ætti von á rikiserfingja hjá drottningu D r a g a. Bússakeisari, sem er mikill vin Serba, sendi sinn frægasta læknir til þess að taka á raóti krakk- anum. En læknirinu er nú farinn heim aptur fjúkandi vondur, og hefir saet Alexander konungi og keisara að drottning sé alls eigi barnshafandi; og lítur út fyrir að Draga hafinarrað Aloxander konung til að giptast sér með því að segjast vera þunguð eptir hann;ogvekur þetta hið mesta hneyxli alstaðar og ríður m'áske konungdómi Alexanders að fullu. Kina. J>að lítur út fyrir að Bússar vilji eigí láta Mantsjuríið laust aptur, en hafa fært sig það upp áskaptið, að þeir heimta nú hafaarstað á Kórea, og gjöra Japanar sig all- líklega til a.3 þola þeim eigi þann yfirgang, hvað scm svo fleiri fylgja þeim að því raáli af störveldunum;1 en fullyrt er, að I>jóðverjar dragi saman mikið lið á landamærum Bússlands; og nýlega hefir hermálaráðgjafi Frakka sagt, að þeir væru nú í hvívetna búm'r. Lítur þetta eigi friðarlega út. Buar hamast nú að Englendingum þar syðra, og vinna sigur á þeim í mörgum smá orustum og hafa sprengt roargar járnbrautarh stir í lopt upp; enda hafa Búar nú meira lið en í vet- ur, og er De Wet aptur kominn með töluverðu liði suður á Kaplandið, og sú fregn gekk staflaust í parlamentinu í Lundúnum þ. 25. maí, að Kitchener hafi hótað ráðaneytínu að höifa úr öll- um herstöðvum fyrir norðan Prætoria ef honum væri eigi þegar sendur drjúg- ur liðsafli. pað er sannað, að Boberts lávarður hefír boðið Botha 900,000 kr. til þess að leggja niður forustuna fyrir Búum og 190,000 kr. í árslaun til dauða- dags, en Botha haft tilboð hans í háði einu við sína menn. Allir þar syðra hældu þsim Ellefsen og Bull tyrir höfðingsskap og örlæti og álitu báða hina beztu gesti þar. „Albatros“ kom svo hingað aptur með ferðafólkið um kvöldið. Ljúka allir samferðamenn upp einum munni um það, að þeir hafi aldrei skemmt sér betur en þennan dag, og munu með hlýjum huga þakka Imslands- familíunni og Mannæs skipstjóra fyrir allan höfðingsskapinn. Yfirlýsing. Yfirlýsingu þá, sem stendur í 12. tbl. Bjarka þ. á„ og stíluð er af sýslu- manni Jóh. Jóhannessyni, undirskrifaði eg í íhugunarleysi og fljótræði, því greinina í 8. tbl. Austra þ. á. með | yfirskriptinni: „Stórþjófnaðurinn á j sýslumannskontórnum og rannsóknirnar út af honum“, skrifaði herra ritstjóri Skapti Jósepsson eptir minni beiðni og'fyrirsögn. Einnig sf:al það tekið fram, að eg hefi alls eigi beðið Bjarkaað birta umgetna yfirlýsingu, sem eg hér- með apturkalla. Seyðisfirði, 28. maí 1901. Elieser Sigurðsson. Yitundarvottar: Einar Helgason. Gísli Gíslason. Yið sýslumaður erum þá báðir orðnir ritarar hjá Elieser Sigurðssyni, með þeim eina mismun, að Elíeser viil uú eigi kannast við ritsmíði sýslnmanns, : sem hans velborinheit skrásettu, að sögn Eliesers, á skrifstofu sinni. Verði yður að góðu, herra sýslu- maður! Bitstj. Voðalegt manntjón varð nýlega við Vestmannaeyjar, þar sem drukknuðu 27 manns, karlar og konur. Skemmtiferð. |>eir feðgarnir I m s 1 a n d og skip- stjóri M a n n æ s sýndu fjölda bæj- arbúa þá kurtoisi að bjóða þeim í skemmtiferð með gufuskipinu „Alba- t r o s“ til Mjóafjarðar og Norðfjarðar á fyrsta hvitasunnudag. Allir, sera gátu því viðkomið, notuðu sér þetta höfðinglega boð; enda var veður hið inndælasta, er hélzt allan daginn, og skipið sjálft hið glæsilegasta, ágætlega hraðskreytt, rúmgott á þilfari og vel útbúið. A skipinu var öllum veitt bið bezta. „Albatros“ fór fyrst til hvalveiða- störvarinnar á Sveinseyri í Hellisfirði, þar sem B u 11 hvalaveiðamaður hefir byggt og þegar fengið 26 hvali á 2 veiðiskip. Yar ærið störfenglegt að skoða hér hinar ýmislegu vélar og annan útbúnað, er eigi er hægt hér frá að skýra. Siðan var haldið til Norðíjarðar og þar heilsað upp á kunningjana, og þaðan til Brekku í Mjóafirði, par sem Kon- ráð kaupraaður Hjálmarsson og frú hans tóku á móti mönnum með venju- legum höfðingsskap og gestrisni. J>aðan hljóp „Albatros“ snöggvast inn að Asknesi til hvalveiðastöðvar herra Ellefsens, sein þar hefir reist mikil og falleg hús; hefir hann þegar fengið 43 hvali á 7 skotbáta,- en hann byrjaði veiðina seinna en Bull. Ellefsen kvaddi gesti sína með 6 fallbyssuskotum. Seyðisfirði, 1. júní 1911. Tíðarfar er nú sem stendur fremur kalt og rosalegt; í nótt töluverð rigning, og er þa"ð ágætt fyrir gras- sprettuna oían á hitann vndanfarandi; enda oru tún nú þegar orðin falleg ’nér í firðinum. p i s k i a f 1 i alltaf nokkur. F i skiveiðagufuskip þeirra Imslandsfeðga eru nú öll þrjú komin bingað: „Albatros11, skipstj. Mannæs, „Atlas“, skipstj. Kaavig og „Brem- næs“, skipstj. Hjemgaard. Með „Brem- næs“ kom hingað herra Albert Han- sen, mágur Imslands. Skipin „Albalros" og „Atlas“, sem eru nýsmíðuð, eru bæði af sömu gerð, hin fríðustu skip og ágætlega hrað- skreið. „Hólar“, skipstj. Öst-Jakobsen, komu í dag að norðan. Farþegjar voru: frökenarnar Snjólög og Vilhel- mína Sigurðardætur og Margrét Jó- sepsdóttir frá Akureyri, J. Davíðsson, G. Daníelsdóttir, Karl Nikulásson dýralæki’ir, Páll Jónsson verzlunarm., kaupm. Fr. Möller, skraddararnir H. Andersen og Fr. Eggertsson, og síra Halldór Bjarnarson. Frá Borgarfirði komu: frk. Sigfrid Dahl, Karl Ey- mundsson og Eirikur Sigfússon. N ý d á-n a r eru hér á sjúkrahúsinu úngfrúrnar f> o r b j ö r g W i i u m og Stefanía Sigurðardóttir. Fineste Skaíidmavisk Export Kaffe Surrogat F. Bjorth & Co. Köbenhavnn.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/141

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.