Stefnir - 24.03.1899, Síða 1

Stefnir - 24.03.1899, Síða 1
Argang. 24 arkif. Verð 2 kr.. er-j lcndis 2 kr. 50 a. Borgist fyrirj lok júlím. Uppsögn ógild r.ema! komin sjo til útsolumann* 1. okt. >Tr. 4. Sýslufuiidur Eyflrðinga. var settur á Akureyri 13. þ. m. Sýslunefnd- armennina úr Arnarness- og Hrafnagilshreppi vantaði, en Stefáni bónda í Fagraskógi var Veitt málsfrelsi ,og tiliögurjettur á fundinum, pað heizta, er gjörðist þar, og í frásögur þykir færandi, er þetta: Lesið var brjef nokkurra búfræðinga í Kvík um, að veita að minnsta kosti einum búfræðingi styrk til, að mæta á búfræðinga- fundi í Keykjavík í sumar. Nefndin sá sjer eigi fært, að 'sinna þessari beiðni. Samþykkt var, að leggja niður Garðsár- rjett, og byggja aðalrjett hjá p>verá. Út af endurskoðun á skýrsluformi um fjárskoðanir, gjörði nefndin svohljóðandi sam- þykkt: «|>ar eð sýslunefndinni erkunnugtum, að lög þau, spm hjer er um að ræða, (horfellislögin) hafa vakið almenna óá- nægju, bæði að því er snertir fram- kvæmd þeirra óg væntaniegan árangur, virðist nefndinni æskilegast, að þeim yrði breytt liið allra fyrsta, eða afnumin. Sýsluvegagjaldið þetta ár var haldið að mundi verða 1200 kr. og í sjóði voru 126 kr. Samþykkt er, að verja þessu fje þannig: Til hreppavega: í Öngulsstaðahreppi 50 kr., í Saurbæjarhreppi 50 kr., í Glæsibæjarhr. 50 kr., í Skriðuhr. 80 kr.; til sýsluvegagjörða: í Arnarneshr. 300 kr., í Svarfaðardal 200 kr., í Hvanneyrarhr. 200, til brúargjörðar á Hörgá 300 kr., til brýnustu aðgjörða á sýsluvegum 126 kr. = 1326 krónur. Sýslunefndin gaf oddvita sínum fulltum- boð til, að taka 2000 kr. lán handa spítalan- um á Akureyri. í nefnd, til að semja reglugjörð handa spítalanum, voru þeir kjörnir Magnúsá Grund og Eggert á Tjörnum (af bæjarstjórnarinnar liendi voru kosnir í þá nefnd amtm. P. Briem og verSlunarstj. Eggert Laxdal, í þeirri nefnd eru og sjálfkjörnir sýslumaður og læknir). par sém breytingar á fiskiveiðasamþykkt- inni, er gjörðar voru í fyrra, náðu eigi sam- þykki amtsins fyrir formgalla, var nýtt frum- varp til fiskiveiðasamþykkta samþykkt nú í syslunefndinni, gjörir það hinar sömu breyt- ingar á hinni giidandi samþykkt, og farið var fram á í fyrra, og að auki var nú breytt tímatakmarkinu, sem lína rná ekki liggja i sjó, þannið, að frá 1. maí til 1. september, mogi lína ekki liggja í sjó frá kl. 8 að kveldi, til kl, 1 e. m. þ>essari breytingu var fært það til meðmælis, að Svarfdælir, og jafnvel Ólafsfirðingar, sem eiga langróið, þurfi á sumr- um að róa út meöan næturlognið sje, og vera búnir að draga línurnar þegar hafgolan kem- ur, einkum þar sem útvegurinn sje nú að S T E F NIR. Sjöundi árgangur. Akureyri, 24 marz. færast í það horf, að hafa færri menn á hverj- um bát, línur styttri og að leggja þær optar en einu sinni yfir daginn. Samþykkt var ailítarleg reglugjörð fyrir kvennaskólann, og var hennar hin brýnasta þörf. Stjórnarnefnd skólans var kosin : Sýslumaður, Eggert Davíðsson og Stefán kennari Stefáns- son. Samþykkt var, að veita '80 kr. til sund- kennslu, í von um jsvipaðan styrk úr lands- sjóði. Hafliða Guðmundssyni á Siglufirði var veitt veitinga leyfi. Sýslunefndin fól oddvita sínum, að ann- ast um, að nægilegt bóluefni til bólusetning- ar á sauðfje yrði til næsta haust, enn frem- ur skoraði sýslunefndin á þá hreppa, í hverj- um bráðapest er vön að gjöra vart við sig, að annast um, að einn eða tveir hreppsbúar lærðu sem fyrst aðferðina við bólusetningu sauðfjár. Samþykktir voru reikningar tóvjelanna fyrir árið sem leið. Kom það í ijós, að hús, vjelar og vatnsleiðsla eru komnar upp á hátt á 18 þús. kr„ upp í það liefir verið fengið að láni um 17 þús. en af vinnuarði vjelanna gengið til þessa um 800 kr. Um áramótin áttu þær þó um 400 kr„ en nú fara í hönd árlegar afborganir á láninu og vaxtagreiðslur, og virtust litlar líkur til, að vjelarnar einar fengju reist rönd við þeim útborgunum, þó allt gengi vel. Samþykkt var því, að fá af- borgunarfrestinn lengdan úr 15 árum í 25 ár. Samþykkt var ný reglugjörð fyrir vjelastofn- unina, eptir lienni hefir vjelastjórinn mesta framkvæmd milli sýslufunda, en sýslunefndin velur honum 1 meðráðamann og einnig velur bún tvo reikningsskoðara. Meðráðamaður var kosinn Friðrik kaupmaður Kristjánsson. f tilefni af uppástungu frá oddvita, var gjörð svohljóðandi samþykkt: nSýslunefndin og bæjarstjórnin álíta mjög æskilegt, að fullkomnar ullarvinnu- vjelar komi hjer upp sem fyrst, og áiykt- ar, að skora á landsstjórnina, að leggja fram allt að því helming af því fje úr landssjóði, sem til þess þarf að koma slíkum vjelum upp, — að minnsta kosti 50,000 krónur — en veita hinn lielm- ing fjárins að láni með sem vægustum kjörum, ef sýslurnar í Norðuramtinu fara þess í sameiningu á leit, að fá þetta fje.» Allmargar útsvarskærur frá jarðeigna- mönnum í Skriðuhreppi komu fram á fundin- um, ogvoru lesin upp löng brjef þeim viðvíkj- andi. Engu breytti nefndin af útsvörum á þessum fundi, en hvatti þá dalamenn til sam- vinnu og samkomulags. Stefán á þverá var Augl.kosta 75a.hver þuml. dálks eða 12 a. línan af vanalegu letri tiltölulega meira af stærra letri. þuunl. 90 a. á 1. síöu, 15 a. línan 1899. á fundinum, og færði fram varnir fyrir hrepps- nefndina, er Stefán vel máli farinn, og varn- argögnum sínum beitti hann svo, að færri oddvitar mundu liafa betur leikið. Hinsvegar voru og sóknarskjölin sum mikið vel stíluð, og varð því einum á tilheyrendabekkjunum að orði, er skjöl þeirra voru upplesin: »Fleiri gjörast nú pennafærir í Skriðuhreppi, en jeg hugði«. Hinsvegar ætlum vjer, að með lagi mætti jafna þessar mismunandi skoðanir þeirra dalamanna, einkum með því, að fá þá til, að líta á fleiri gjaldþolsgjörendur en nettó arð af fasteign og lausafje, væri hægt að benda þeim á gjöranda, er hefði meiri þolrif en þeir tveir, sem þeir deila nú mest um, myndi ef til vill betur semjast, því munur er á, að flytja jafn þungt á þremur eða tveimur. Bj argráð. pað er óhætt að fullyrða, að hvergi í heiminum drukknar eins margt fólk að til- tölu og hjer við ísland. Að vísu mun þessi mikli mannskaði stafa nokkuð af því, að veð- urlag er hjer harðara en víðast annars staðar, þar sem sjór er sóttur, en með fram á hann rót sína að rekja til þess, að menn gera ekki það, sem í þeirra valdi stenflur, til þess að forðast dauðann í sjó og vötnUm. þmð er ávallt. hryggilegt, þegar menn farast vofeifiega, en þeim mun liryggilegra er það, þegar þetta á sjer stað um menn á bezta reki, eins og optast, er um sjómenn, og út yfir tekur, þeg- ar slysin eru sjálfskaparvíti. Eins og kunnugt er, gekk sjera Oddur Gíslason, sem nú er kominn til Yesturheims fyrir nokkrum árum, vel fram í því, að benda sjómönnum á ýms bjargráð. Hann gaf út blaö í þessu skyni, Sæbjörg, og ýmsa ritlinga, en menn hafa látið ráð hans eins ög vindum eyrun þjóta, að minnsta kosti hjer á Norður- landi, og voru þau þó vel þess verð, að þeim væri gaumur gefinn. Jeg ætla að fara hjer nokkrum orðum um tvö af bjargráðum sjera Odds, sundnám og notkun lýsis eða olíu í sjávarháska. Sundið er gömul list og göfug, og hefir tíðkazt hjer á landi frá alda öðji, eins og víða sjest á fornsögum vorum. 'Svo lagðist sundiistin mjög niður í nokkrar aldir, en er nú farin að breiðast út aptur upp á síðkast- ið, þótt hægt fari. I>að er hægt, að telja sundinu margt til gildis, en ekkert til ógildis. Uað er fögur list og heilsusamleg, hressandi bæði fyrir sál og líkama, og auk þess á marg- ur maður sundinu það að þakka, að hann hefir lialdið lífi, þótt hann hafi fallið í vatn eða sjó. £>að er hart á hinn bóginn, að sjá Alnavara allskonar, er nú komin, og með næstu gufuskipaferðum von á miklu meira í verslan J>orv. Davíðssonar Oddeyri.

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.