Stefnir - 24.03.1899, Qupperneq 3
15
Árið 1899 hinn 13. (lag marzmánaSar
var nefnd sú, er kosin var að Fagraskógi I.
febr. þ. á. austan Eyjafjarðar til þess, að velja
hina beztu leið til þess, að bvaladráp við
strendur íslands hætti framvegis, saman kom-
in í Höfða í Höfðahverfi.
Á fundinum voru mættir alliv hinir kjörnu
roenn, og kusu þeir pórð Gunnarsson í Höfða
fvrir fundarstjóra og Sigurð lækni Hjöreifsson
í Grcnivík fyrir skrifara nefndarinnar.
þetta gjörðist á fundinum:
1. Til viðauka við nefndina voru kosnir
síra Árni Jóhannesson í Grenivík og Vilhj.
porsteinsson óðalsbóndi í Nesi
2. Lesin upp fundargjörð nefndar þeirrar, er
hafði mál þetta til meðferðar vestan Eyjafjarð-
av, og eptir nákvæma yfirvegun fjellust allir
nefndarmenn á gjörðir og ttílögur þess fund-
.ar, og samþykktu þær í einu hljóði.
fó þykir nefndinni sjálfsagt, að drepa
megi hvali þá, sem fastir eru í ísvökum, eða
hamlaðir á annan hátt við strendur landsins.
Enn fremur þykir nefndinni ástæða til, að
brýna fyrir næstkomandi Aiþingi, að sjá um,
að lög þau, sem nefndirnar fara fram á, geti
öðlast gildi sem fyrst á næstkomandi ári.
3. Fundurinn telur æskilegt, að áskorun sú,
er nefndirnar liafa komið sjer sarnan um,
verði undirskrifuð af sem flestum kjósendum
til Alþingis, og leyfir sjer því, að leggja það
til við hina háttvirtu sýslunefnd í Suður-
pingeyjarsýslu, að hún taki mál þetta að sjer,
og greiði fyrir því á þann hátt, er henni þykir
heppilegastur.
4. Fundurinn 'skorar á öll blöð landsins, að
taka mál þetta til meðferðar, og veita því
sem bezt fylgi.
Fundargjörð lesin og fundi slitið.
fórður Gunnarsson Sigurður Hjörleifsson
fundarstjóri, skrifari,
Vilhjálmur þrorsteinsson, Geirf. Tr. Friðfinnss.
Helgi Laxdal, Arni Guðmundsson,
Arni Jóhannesson.
Frjettir.
Thyra kom hingað hinn 16. þ. m. í stað
Vestu. Sama dag kom Vaagen. Nokkuð
kom hingað af vörum til kaupmanna, og von
á msiru með skipi Tuliniusar þessa dagana.
Með Thyru var Skúli Thoroddsen á heimleið
frá útlöndum. Skapti Jósefsson var með
Vaagen snöggva ferð hingað. Merkustu frjettir
frá útlöndum eru: 16. febr. andaðist lýð-
veldisforseti Frakka, Felix Faure, í hans stað
var kosinn forseti efri deildar þingsins Loubet.
að nafni. A Frakklandi þokar allt af að því,
að útlegðardómur Dreyfusar verði ónýttur, en
fjöldinn af foringjunum í liði Frakka er því
mjög mótfallinn. Ætlun manna er, að þessi
nýi forseti sje Dreyfus meir hlynntur en fyr-
irrennari hans, æsingar urðu því miklar í
París út af kosningunni, og fjöldi manyia
settur í varðhald, en við sjálft lá, að upp-
rtistin brytist út.
Vöruverð erlendis. íslenska ullarverðið
í sama hrakinu, pundið stóð í 50 aurum
Slld seldist á 15—16 krónur, prjónasaumur
var fallinn, kornvara stigín, þar af leiðandi
hæklcar tunnan um 1 kr. lijer á Akureyri.
Verð á íslenzku saltkjöti kring um 40 kr. tn.
Taugaveikin er enn í bænum, en fleslir
á batavegi, hún kvað eigi hafa útbreiðst til
muna um bæinn, síðan veikindahúsin voru
auglýst; veiki þessi kvað liafa stungið sjer
niður út á pelamörk og Svalbarðsströnd og
fram í Grundarsókn.
Spitaians nýja verður víst orðin fyllsta
þörf 14. maí, þegar ætlast er til, að hann
verði. tekinn til afnota, því nú er gamli spí-
talinn fullur af taugaveiki og taugaveikissjúk-
lingum, svo aðrir fá þar eigi inngöngu, en
hvaðanæva koma menn bæði að austan og
vestan og hjeðan úr nágrenninu, til að fá
lækningar með skurðum hjá Guðm. Hannes-
syni. Vigfús gestgjafi Sigfússon kvað hafa
haldið nokkra slíka sjúklinga um lengri eða
skemmri tíma fyrir væga borgun, og er slíkt
þakkavert, eins og nú á stendur. Forstaða
spítalans var nýlega veitt Jónatan Jóhannes-
syni á Akureyri.
Brunnið er nýlega vörugeymsluhús á
Seyðisfirði, eign Tostrups verslunar þar.
Eimreiðin kom með Thyru með dóma-
dags innlegg í stjórnarskrármálinu frá útgef-
andanum, sem væri hin fyllsta þörf á, að
gjöra nokkrar athugasemdir víð.
Veðrátta. Stillingar nú á hverjum degi,
allmikil frost og alsnjóa jörð. Pollurinn er
ísi þakinn, en enginn afli upp um hann.
Sinjör og tólgSjft^JaE
Rúgur, bankabygg, hrísgrjón, sago, kart-
öflumjel, sagómjel, hveiti, Nr. 1 og 2, kaffi,
sykur, tóbak og brennivín fæst hjá
þ>orv. Daviðssyni, Oddeyri.
Nýjar vorur!
— Með gufuskipunum «Thyra« og
»Vaagen« komu til undirritaðs miklar birgðir
af allskonar álnavöru úr silki, ull og bóm-
uil svo sem:
Kjólatau ogsvuntutau mikið úrval, og
enn fremur silkitreflar, ýmiskonar klútar, háls-
tau, dúkar og m. o. fl. Allt er, eins og vant
er með hinar alþekktu góðu vörur mínar,
selt með mjög vægu verði sjerstaklega gegn
p e n i n g u m.
Auk þessa komu flestar nauðsynjavörur
og ýmislegt annað.
Oddeyri, 21. marz 1899.
J. V. Havsteen.
Rúsínur, sveskjur, fikjur, döðlur, kirsi-
ber, kúrennur, möndlur, sætar og beiskar,
múskat, kardemonnnur. sítronolía nýkomið
i verslan þorv. Davíðssonar, OJdeyri,
Ljósmyudir
tekur undirskrifuð hvern virkan dag frá kl.
il f. m. til kl. 3 e. m., og á sunnudögum
frá kl. 2—4 e. m. — Akureyri, 2i/3 ’99.
Anna M. Magnúsdóttir.
Bókhaldari YiHijálmur Þorvaldsson
á Oddeyri kaupir allskonar brúkuð islenzk
frimerki hæsta verði til aprílmánaðar loka
næstkomandi og ef til vill lengur, sem nánara
verður auglýst síðar.
Leirvörur: skálar, diskar og bollapör,
hvergi ódýrara en hjá
þorv. Davíðssyni Oddeyri.
í verslun
Sigfúsar Jönssonar á Akureyri
fæst, auk matvörn, tóbaks, kaffi, sykurs og
vínfanga: Barnakjólar tvær tegundir, brjóst-
hlífar fleiri tegundir, karlmanna- og kvenn-
mannaslips margskonar, stórt úrval af karl-
mannakrögum (fiibbum), brjóst með viðfest-
um flibba, manchettur og manchettuhnappar,
7 Legundir af hvítnm Ijereptum bleiktum og
óbleiktum, tvær tegundir flonel, bómullar- og
silkiflauel fleiri tegundir, tvær teghndir milli-
skyrtutau, 11 tegundir af kjóia- og svuntu-
tauum mjög vönduöum, baðmullarstrigi, sæng-
urdúkur, ullarklútar, kvennhanzkar, mislit
borðteppi, hvítir borðdúkar, strammi, javatau,
drengjahúfur, hattar handa stúíkubörnum,
styttubönd, sokkabönd, tevgjusnúrur sívalar
og flatar, tvinnakefii, hörtvinni svartur og
hvítur, karlmanna alfatnaður mjög ódýr, tö'sk-
ur, barnatottur góðar, njarðarvettir, peninga-
buddur, hnífapör, vasahnífar, fílabeinskambar,
tóbakspungar, bryddingabönd, skúfa- og hnep-
slu tvinni, skæri, vasabækur, postulínsbollapör
margar tegundir, kökuföt, sykurker og rjóma-
könnur og smádiskar úr postulíni; allt mjög
vandað, og þess utan margar tegundir af öðru
mjög ódýru leirtaui, og margt fleira"; stumpa-
sirtsin eru væntauleg með næstu ferð.
Málvörur og málarapenslar hvergi bet-
ra en í verslan þorv. Davíðssonar.
Að þar til fengnu leyfi amtsins heldur
Hvítabandsfjelagið hjer tombólu fyrsta sum-
ardag n. k. þeir, sem góðfúslega vilja styrkja
þetta fyrirtæki með gjöfum, eru vinsamleg-
ast beðnir að snúa sjer til undirritaðra, sem
veita gjöfum móttöku.
Oddeyri, 15. febrúar 1899.
Aðalbjörg Einarsdóttir, Ragnhildur’Jónsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir, Stefán þórarinsson,
Pjetur Hafliðason.
Fiskugarn, glimmergarn og allskotiar
anuarskonar garn og tviuni er á boðstólum
hjá þorv. Davíðssyni.
Kaupið Whisky og viudla hjá *
þorv. Daviðssyni.
1 bókaverslun Frb. Steinssonar verðtir
Sálmabókin í vönduðu bandi seld með mjög
vægu verði fyrst um sinn fram yfir sumar-
mál. Nýkomin er Eimreiðin V. ár 1. hepli
verð kr. 1,50. — í bókaversluninni eru birgðiv
af Fjallkonunni, Kvennablaðinu og Barnablað-
inu handa nýjum kaupendum með góðuiu
kjörum.