Stefnir - 06.06.1900, Blaðsíða 2

Stefnir - 06.06.1900, Blaðsíða 2
34 \ ✓ spítalabrautin fjekk uppfy]lingarhl,ífina fyrir framan sig.-‘ En pað eru mörg fleiri hand- arvikiu í bænum á vorin, og eigi sízt nú. þau eru ekki fá dagsverkin við að búa undir og sá í upp undir 20 dagsláttur af kurtöplu- og rófugörðum, sem þeir eiga, og auk þess aðryðjaog girða um 2 dagsláttur, sem þeir hafa bætt við í vor, ogþettaþarf allt að vera klappað og klárt um fardaga, eigi allt að þykja í lagi, og nágrannarnir eigi að stinga saman nefjum um slóðaskap þeirra, er aptur úr dragast. Eigi veiður heldur á svipstundu lokið vorverkum að þeim 130 dagsláttum af túni. sem bæjar- menn hafa til ræktunar. Svo verður og mótekja með meira inóti i vor, og tekur hún upp allmikla vinnu. Atvinnuleysinu er því ekki að kvíða í bænum á vorin meðan þessu íur fram og fólkið er eigi fieira, en það enn er. J>ess ber og að gæta, að allmargt af vinnufærum mönnum fer á þilskipin strax í apríl, fiskiverkun er hjer og nokkur. fyrirdrættir fyrir sild og kola og si. '.veiði í lagnet að vanda, þótt þorskveiðin sje eun því nær engin. II. Fjölmenn samkoma var á Möðruvöllum í flörgórdal 26. f. m. Var það 20 ára minningarsamkoma um tilveru skólans þar, og hafði verið fyrirhuguð og ákveðin af skólapiltum fyrstu ár skólans. Samkomu þessa sóttu yfir hundrað gamlir og riýir Möðruvi llingar. Voru þar kvæði sung- in eptir sira Matth. Pál barnakennara o. 11., ljósmyndir voru teknar af samkomunni og ákveðið að gefa út minningarrit um liana. Margir sem þar voru sögðu að samkoma þessi liefði farið prýðsvel fram. III. Heybirgðir voru almennt í sveitum með mesta móti í vor, og sumir fyrna. Skepnu- höld eru víðast góð, og sauðfje hefir verið í hærra verði en í fyrra. Kýr eru og dýrari og ekla á þeim, Ýmsir hafa skipt um bústaði í vor: Sigtr. Jónsson á Espihóli fiutti á Akureyri. • 1 ósep Helgason fór að Espihóli, Jón í Peykliúsum að Syðra-Laugalandi, en Jón í HvassaíeÍli í Reykhús, Arni á Skugga- björgum í Hvassafell, en J>orst. þorsteins- son í Skuggabjörg. IV. \mist í ökla eða evru vill vaðallinn stundum veiða á framfarabrautinni hjá mönnum. Á árunum var tiest ódýrara i reikninga hjá kanpmönhum, og þá var eigi sjerlega glæsilegt að standa með peninga við búðarborðið, sízt ef um lítið var að ræða, en svo komu tímar og nýir kaup- menn komu til sögunnar, natnir við að tína upp smápeningana og aurana hjá fólki fyr- ir ivið lægra verð en aðrir, síðan var farið í rammasta prósentureikning móti pening- um, þó helzt eigi hjá þeim stærri nema fiinm krónur væru í boði eða meira, komst sá reikningur mjög í tízku, og þótti eitt af lifsskilyrðum tóvjelanna og ábyrgðarfjelags- ms ábyrgðarlausa; en uú í sumar hættu þeir stærri við allan hundraðs reikning og kváðu upp úr með ákveðið verð á mörgum vörum gegn peningum, og það svo lágt oð jafnvel sjálfum Thomsen hvað hafa þótt nóg ura, en livað er svo orðið af reikninga og vöruverðinu, sem einhver sagði að væri sitt hvað. Af því fara færri sögur, en er að sögn í öðru eða þriðja veldi fyrir ofan pen- ingaverðið. Eigi er þess getið að Sigvaldi eða aðrir Jónsvíkingar sjeu enn þá flúnir af verslunarmarkaðinum, þótt upp á þessu hafi nú verið tekið, og eigi lasta þeir þetta sem auraráðin liafá. Mjer, sem þetta skrifa, datt í hug gamall bóndi, sem jeg varð einu sinni samferða úr kaupstað, þeg- ar jeg heyrði þessa verðlækkun gegn pen- ingum, hann hafði einn hest undir reiðingi og var kornhálf'tunna öðru megin, en ts.ll- margir skjattar samanbutulnir hinu megin, reiðingurinn fór ílla, aptasta gjörðin var aptur í nára en laustgirt, alltaf var áhalli á hestinum, var svo að sjá fvrst lengi, sem hálftunnan væri þyngri, og bóndi var að smá taka í, en allt fór á sömu leið, þar til hann hljóp af baki, tautaði eitthvað í hljóði og þreif svo rækilega í skjatta megin, að nærri því snaraðist af, og eptir það var á- hallinn allt af þeim megin. Mörgum hefur eigi þótt fara vel á verslunarreiðingshesta- lestinnni, og áhallinn allt af vera reikriinga- mönnum og vörubjóðum í vil, en nú hafa lcaupmenn tekið svo i krónu- og auramanna megin, að varla verður áhallinn á hina síðu fyrst um sinn. Kaupfjelagsstjóri Pjotur Jónsson kom úr utanferð sinni með Yestu síðast. Jón Vidalín, annar umboðsmaður kaupfjelag- anna, var og á ferð með Yestu. J>eir segja þau tíðindi. að nú sjeu allir þeir sauðir, sem kaupfjelögin sendu út í haust seldir fyrir hærra verð, en átt hafi sjer stað, síð- an brezka innfiutningsbannið komst á. Eru þetta góð tiðindi fyrir bændur, því eptir því sem út leit í vetur, voru þeir að tapa trúnni á því, að serida lifandi fje til Eng- lands. Er það ætlun margra, að Pjetur •lónsson muni hafa átt mikinn og góðann þátt í því, að verðið þokast nú upp, (og er vonandi, að ekki verði höíð brögð í tafli eins og í Erakklandi um haustið), erida hlýtur það að vera lifsspursmál fyrir kaup- fjelögin, eigi framtíð þeirra að verða borg- ið, að hafa trúa og kunnuga erindsreka og sendiherra að öðru liverju erlendis, en eiga ekki allt undir lánardrottnum siuum. Gufuskip fermt timbri er nýkomið til Snorra kaupm. Jónssonar. Mannalát. -j- Sigfús Bergmann bóksali, góðkunnur gamall Eyfirðingur, andaðist í vor í Dakota í Bandaríkjunum, á sjötugsaldri. •j' Nýlega er dáin hjer í bænum öldruð kona (Juðrún Jónsdóttir, nærri sextug, raóðir Gruðmundar Einnbogasonar fagur- fræðings, Ásgeirs bakara og þeirra systkina. Ljósmyndir tek jeg nú hjer eptír í sumar hvern rirk- nn dag frá kl. 11—4 og á suunudögum frá kl. 2-4. Jeg mun láta mjer umhugað um, að afgreiðsla verði fljót og myndirnar vandaðar. Akureyri. 31. mai 1900. Anna M. Magnúsdóttir. Nú í dag opnaði jeg nýju vörubúðina mína og sel jeg þar meðal annars þessar vör- ur: Kaffl, sykur, export, munntóbak, reyktó- bak, vindla, sódavatn, limonaðe, limonaðepúl- ver, 3 sortir súkkulaði, sígarettur, rúgmjöl, hveitimjöl, flórmjöl, haframjöl, brísgrjón, baun- ir, gráfíkjur, rúsínur, sveskjur, kanel pipar, gerpúlver, 2 sortir af osti, sardínur, ansjósur, skonrok, tvíbökur. kringlur, fínakex, smjörsalt, borðsalt, fínt silfurpletttau, alskonar leirtau, postullín og krystal, bolsíur, margsk. blómst- urpotta, kort og skriffæri, hálstau, nærföt, sirz, hvítt Ijerept, bukskin, sjöl og slipsi, margsk. lissur og kantabönd, tölurog tvinna, allskon- ar járnvörur, barnagull og margt fleira. Sem borgun tek jeg allar íslenzkar vör- ur og gef 10% afslátt móti peningum ef tekið er fyrir 5 kr. eða meira, annars 6 °/0. Oddeyri, 5. júní 1900. Bergsteinn Björnsson. Ljósmyndir. Um miðjan næsta mán. byrja jeg nncl- irritaður — að forfallalausu — að taka myndir í myndahúsi Arnórs sál. Egilssonar. þar eð jeg hefi verkfæri og efni af nýustu og beztu tegundum get jeg lofað góðum myndum. p. t. Akurevri, 28. maí 1900. Grfsli Benediktsson. Á Akureyri fæst til leigu 1 eða fleiri íbúðarherbergi, búr, eldhús og geymsla í kjallara. Góð ibúð fyrir litla fjölskyldu. Enn fremur sjerstakt herbergi fyrir einblevpan mann. Bitstj. vísar á. (xiillliringnr nokknð slitinn hefir fundist á Akureyrar- götum. Hjer meö vil jeg vinsamlega áminna þá sóknarmenn mína, sem skulda mjer prests- gjöld fyrir þetta ár eða frá fyrra ári, að þeir borgi mjer eða semji við mig fyrir n. k. fardaga. Að öðrum kosti verð jeg að fela bæjarfógetanum innheimtun skulda minna, eins og lög standa til. Akureyri 1. niaí 1900. Matth. Jocbumsson. Undirskrifaður kaupir gegn peningum í sumar æðardún og lainbskinn, og 1 haust gærur og velskotnar rjúpur. Oddeyri, 30. apríl 1900. M. Jóhannsson.

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.