Framsókn - 01.09.1900, Síða 4

Framsókn - 01.09.1900, Síða 4
3Ó grun í, að móðir sín hefði litið réttari augum á hann en hún sjálf. Það var hart að þurfa að slíta ástar- og vonarblómin úr hjarta sér, eitt á fætur öðru og skilja þar eptir opin sárin, er nístingskuldi næddi um. Rn voru ekki blómin orðin saurguð, útötuð, fótum troðin, svo þau gátu ekki lifað. Það gengu ósköpin öll á í S., þegar það vitnaðist þar, að Sigrún hafði rofið heit sitt við Einar, því þótt trúlofunin hefði ekki verið opinber, þá sagði Einar nú hverjum, sem hafa vildi, frá þessu öllu. Að eins sagði hann engum frá, af hverju Sigrún hefði brugðið heit við sig; yfir því gat hann þagað, og Sigrún sagði það engum heldur, hún vildi ekki gera honum vanvirðu eða spilla áliti hans hjá fólki. Hún sagði ekki einu sinni foreldrum sínum orsök- ina til þess, því að hún var svo hrædd um að móðir hennar kynni að segja frá þessu, en hún vildi ekki að það breiddist út. Um vorið kom hún ekki heim, því að foreldrar hennar létu hana fara suður til Reykjavíkur, svo að hún væri ekki heima fyrst í stað. — Enginn gat í þessu skilið, en öllum bar saman um að þetta væri óstaðfestu Sigrúnar að kenna, og álösuðu henni fyrir að hafa svikið jafngóðan og sketmmilegan pilt og Einar, en einkum var það þó Aslaug, hreppstjóra- konan á Hóli, og Björg dóttir hennar, sem aldrei þreytt- ust á að tala um það. Einar hafði danzað mikið við Björgu um veturina og hafði henni eins og öðrum þótt hann „ógn skemmtilegur". Næsta vetur fyrir jólin heimsótti Aslaug prestskon- una, og meðan þær sátu við kaffidrykkju segir Aslaug: „Eg ætla að segja þér dálítið í trúnaði, því að eg veit að þú segir engum frá því. Hún Bagga mfn er trúlofuð honum Einari Ofeigssyni, en þau ætia ekki að opinbera fyr en á afmælisdaginn hennar, sem er á þrettándanum. Hann hefur sagt Böggu, að honum hafi alltaf litizt bezt á hana, en hann þorði ekki að hugsa til hennar, því að honum fannst hún vera svo langt fyrir ofan sig; svo sagði hann, að Sigrún hefði farið að sækja eftir sér og þá lét hann til leiðast, af því hann hélt að hann fengi aldrei Böggu, en eiginlega er það Bagga, sem honum hefur alltaf litizt á“. „Það var þá gott að þau náðu saman á endanum, sagði prestskonan". „Já, hamingjunni sé lof fyrir það. Einar er góður og staðfastur piltur og það er fyrir öllu“. * * * Sigrún er enn ógift. Hún hefur strengt þess heit, að ef hún trúlofist aftur, skuli hún ekki gangast fyrir lit. --------►♦Q»< ■ ■ Móðir D. L. Moody. Faðir D. L. Moodys var gjaldþrota, þegar hann dó. Móðir Moodys stóð uppi allslaus að heita mátti með 7 börn öll í æsku. Nágrannar hennar réðu henni að koma börnunum frá sér og buðust til að útvega þeim góða staði, en hún svaraði: „Meðan guð gefur mér þess- ar tvær hendur, læt eg börnin ekki frá mér fyr en þau geta unnið fyrir sér sjálf". Nágrannarnir sögðu, að það gæti aldrei farið vel fyrir einstæðings kvenmanni að ætla að ala upp 7 drengi, það sannaðist að þeir lentu á end- anum í hegningarhúsinu eða á sveitinni. Enhúntreysti guði og fór sínu fram, og allir drengirnir hennar kom- ust til manns, þó enginn þeirra yrði jafnmikill maður eins og D. L. Moody, sem hefur verið talinn mestur pré- dikari af leikmönnum eftir daga postulanna. Moody sagði jafnan, að enginn staður á jörðunni hefði brosað bjart- ara við sér, en heimili móður sinnar, og þegar hann væri á leið til hennat fyndist sér vegurinn aldrei taka enda. Yfir gröf móður sinnar sagði hann, að ef allar mæður væru líkar henni, þá þyrfti engin hegningarhús í heim- inum. Smávegls. Það er ljótur ósiður, er ætti sem bráðast að hverfa, að væta fingurinn i munnvatni sínu um leið og blöðum er fiett 1 bók. Sé sá, er þetta gerir, berklaveikur, getur veikin breiðzt út áþennan hátt. Það ætti líka að gæta meiri varúðar, en gert er, við meðferð peninga, því að þeir fara svo margra á milli. Það er t. d. altítt hér í Rvík að láta smápeninga ofan í mjólk- urílát, þegar mjólk er keypt, en það ætti enginn að gera, því að mjólkin, sem svo er lá}in í ílátið, getur fengið 1 sig sótt- kveykjuefni úr peningunum. Bezt er að þvo sér úr karbólvatni um hendurnar hafi menn handleikið peninga. Rdð við bruna. Hrárri eggjarauðu er gott að rjóða á bruna, sé hann ekki svo mikill að læknis þurfi að leita; öllu betri er þó eggjaolía, hún fæst í lyfjabúðum. Nýtt rdð. Það hefur hingað til þótt óskaráð, að ná blettum úr silki og fötum með benzíni, en þó hefur sá hængur verið á því, að rönd hefur komið kringum blettinn, sem vættur er í benzíninu. Til þess að komast hjá því, hafa verið gerðar ýmsar tilraunir og nýlega hefur mönnum tekizt það, með því að láta dálítið af kartöflumjöli saman við benzinið, sem á að verða þykkt eins og grautur. Þessum graut er síðan roðið um blettinn og þegar hann er orðinn þur, er hann fyrst nugg- aður með voðfeldri tusku og síðan burstaður með varúð; er þá bletturinn horfinn, án þess að nokkur rönd sé eftir á fatn- aðinum. En það eru að eins óhreinindi, sem nást á þennan hátt, en ekki blettir eftir lit, vín eða meðui. Ohreinum blettum má ná úr karlmannsfötum og peysuföt- um með tusku vel vættri í salmiakspiritus, sem fæst á lyfjabúð- um. Hvað eftir annað er tuskan vætt og bletturinn nuggaður þangað til hann hverfur. En tappann skal fljótt láta aftur í salmiak- og benzinglös, því annars gufar það burt. Benzin má ekki koma nálægt eldi, því að það er svo eldfimt. ,FRAMSOKN‘ kostar 1 kr. hver árgangur (12 tölubl.) erlendis 1 kr. 50 a. Nýir kaupendur að þessum yfirstandandi árgangi geta fengið sem kaupbæti allan drganginn 1899 fyrir að eins 50 aura, eða fyrir I kr. 50 a. bdða árgaugana, er borgist um leið og pant- að er. Nýir kaupendur gefi sig fram sem fyrst. Ungfrú Ólafía Jóhannsdóttir, sem nú dvelur erlendis, mun halda áfram að rita í blaðið. Allir vinir »Framsóknar« eru beðnir að styðja að útbreiðslu hennar. Utgefendur: Jarþrúður Jónsdóttir. Olafía Jóhannsdóttir. Glasgow-prentsmiðja,

x

Framsókn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn
https://timarit.is/publication/151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.