Dagskrá

Issue

Dagskrá - 09.07.1896, Page 1

Dagskrá - 09.07.1896, Page 1
Verð árg. (minnst 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir janúarlok; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bundinvið 1. júlí komi til útgefanda fyrir októberlok. DAÖSKEA. j^ Iteykjayík, Hmiiitudaginn 9. júlí. 1896. Sjá auglýsing Dagskrár á seinustu síðu þessa Iilaðs. Auður og arður. Þegar menn eru loksins farnir að sjá, að hjer væri hægt að iifa bæði af landi og sjó, ef hvorttveggja, eða jafnvel aðeins annaðhvort væri notað, og þegar menn að síðustu, flesta hverja, er farið að ráma í að hjer sje víst heldur fámennt, til þess að gjöra, með 70,000 hræðum á nær því tvö þúsund ferhyrningsmílum — er erfiðasta þrautin eptir, sem sje að láta sjer skiljast, að auðmagn vantar aldrei, getur aldrei vantað til lengdar, sje auðs- uppsprettan sjálf fundin, og siðaðra manna stjórn ráði lögum í landi. Það dugar ekki fyrir oss að firtast eða hrista höf- uðið, þó vjer getum nú ekki sjálfir lengur dregið að opna augun fyrir því, að dauð hönd liggur hjer yfir öllu atvinnulífi, þótt þjóðin þræli baki brotnu ár út og ár inn, og sýni hæfileika bæði að andlegu og líkamlegu at- gerfi, til jafns við hverja aðra þjóð í heimi. „Hver er svo orsökin til þessa?“ spyrja menn. — „Auðmagnið vantar“, svara menn. En þetta er hin háskalegasta villukenning, sem nokkurntíma hefur haldið nokkurri þjóð á klafa fátækt- ar og ráðaleysis. íslendingar eru nær að segja hin einasta þjóð í Norð- urálfu heims, sem á fje inn í ríkis- eða landssjóði. Skatt- ar, tollar og álögur keyra hjer fram úr hófi, og allt af eru fundnar upp nýjar og nýjar Ieiðir til þess að næla saman fje úr vösum einstakra manna, til þess að halda innstæðu hins opinbera sjóðs við. Menn Ieigja út fjenað fátækum bændum, fyrir blóðuga okurvexti, um allt land, en þing og stjórn keppist við að leggja hönd á peninga borgaranna, og draga þá saman í arðlausan aurasekk. Því getum vjer ekki fengið meginið af öllu því fje, sem landssjóður á nú inni, að viðbættu öllu þvi, er láus- traust landssjóðs gæti útvegað, til þess að ejia p-am- leiðslu í landinu? Látum það vera svo, að oss sje lífsnauðsynlegt að hafa embættling á hverri þúfu, halda við æfagömlum 8kriffinnskustofum, sem ekki gjöra annað en tefja fyrir brjefum á rjettri póstleið, og setja upp alla þessa her- fylking af bráðónýtum opinberum starfsmönnum, nefnd- um og ráðum í eina þvögu. En hvað er gjört við hitt sem eptir verður, þegar búið er að launa öllum vinnu- lýðnum í víngarði vorrar ötulu pappírsstjórnar. — Yæri ekki afsakanlegt þótt borgarar landsins vildu sjá ein- hvern arð af þessum auði, sem dregin er saman með af- arkostnaðarsamri innheimtu, eitthvað annað en bitlinga og vanhugsað samgönguflan. Samgöngur eru að sönnu nauðsynlegar, en þær eru ekki hið fyrsta lifsskilyrði þjóðarinnar. Hið fyrsta er framleiðslan, og fyrir hana hefur verið sáralítið gjört tiltölulega, sje rjett litið á. — En svo sýnistsem menn blíni sig starblinda á það eitt, að auka verslun og sam- göngur; en hinu virðast menn of mjög hneigðir til að gleyma, að fyrst verður eitthvað að vera til að reka verslun með og eitthvað til að flytja, hvort heldur er á eimskipum eða akbrautum. Menn kunna að segja á móti þessu, að mikið fje sje lánað út gegnvenjulegum vöxtum af opinberufje til ein- stakra manna, er þannig ættu að geta notað fjeð til framleiðslu, eða hvers annars sem þeim þóknast. En það er ekki nóg. — Stjórnin á að hvetja til ankinnar framleiðslu með því að veita lánin með sjerstökum vil- kjörum, öllum þeim sem taka lánin til framleiðslufyrir- tækja, auðvitað með hæfilegum skilyrðum, svo ekki sje hægt að misneyta þessara hlunninda í öðrum tilgangi. En af ráðstöfunum hins opinbera í þessa átt um undanfar- in ár, verðurekki annað talið, en nokkrar litlar og lje- legar tilraunir, sem hafa komið að litlu sem engu haldi. Það þarf meira fje til þess að reka litla atvinnu með skaða sínum, en að ráðast í stærri fyrirtæki sem gefa af sjer mikinn arð. 0g hjer eru nóg ráð til þess að skipta um. — Sameining kraptanna og hyggileg meðferð á því fje sem er fyrir hendi hjá íslendingum sjálfum, væri út af fyrir sig nægilegt til þess að breyta atvinnuvegum vorum stórvægilega í betra horf; en þess utan stendur það opið fyrir landssjóði að margfalda auðs- afl sitt með lánum, hvenær sem stjórn vorri og löggjöf innanlands þóknast að beygja við inn á þá vegi, sem verður að ganga, ef einstaklingunum á að verða íhlut- unarsemi hins opinbera til hjálpar, en ekki til tjóns og niðurdreps. Vjer verðum að efla landbúnað og sjáfarútveg fljótt og vel, ef duga skal. Vjer megum ekki berja því einu við, að hjer vanti auðmagn — svo lengi sem hið opiubera og einstakir menn, beita ekki því afli sem fyrir er.

x

Dagskrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.