Dagskrá

Útgáva

Dagskrá - 13.07.1896, Síða 1

Dagskrá - 13.07.1896, Síða 1
Verð árg. (minnst 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir janúarlok; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bundin við 1. júll komi til útgefanda fyrir oktðberlok. D A G S K R A. Reyhjavík, mámulagiim 13. júlí. Fyrsti nagliim negldur. Samkvæmt hinu langa launungarbrjefi dr. Yaltýs er „aannleikurinn sá, að það er tvísýnt, hvort nokkrum er annara um stjórnarmálið en honum“. En mundi það ekki einnig vera sannleikur, að það sje meira en tvísýnt, hvort Yaltýr er maður til þess að takast á hendur milligöDgu milli þings og stjórnar í slíku máii. Hann játar sjálfur í brjefinu, að til þessa þurfi bæði þekkingu og hyggindi; en hann hefur sýnt ótvírætt og óafmáanlega með þessari tilraun sinni, að hann hefur hvorugt. Þetta er sá besti skilningur, sem lagður verður í atferli dr. Valtýs. Það virðist sem sje ekki næg ástæða til þess að ætla, að Yaltýr vilji hafa framtíð íslands og stjórnar- baráttu alla um undanfarin ár að leiksoppi. Svo grát- lega hægilegar endemisumbætur á stjórnarhögum landa- ins sem Valtýs-brjefið flaggar með gæti enginn nema landráðamaður sett fram i alvöru, ef hann skildi sitt eigið mál. Og það er ekki rjett að halda um dr. Val- tý, að hann hefði viljað vera landráðamaður — þó hann hefði getað það, þó svo mikill kraptur hefði fyigt til- ræði hans, að það hefði getað leitt til nokkurs annars en undrunar eða hláturs meðal hugsandi manna á íslandi. Nei, dr. Valtýr segir það sjálfsagt satt, að honum er „annt“ um málið — upp á sinn hátt. En hann ætti að vera varkárari í því að hafa sig frammi í máli, sem honum er annt um. Hann ætti að vita, að það er vanda- verk að semja fyrir þjóð sína í herbúðum óvinanna, og þegar maður les langa brjefið hans, sem er fullt af mis- skilningi á hinum allra einföldustu atriðum þessa máls, finnst manni svo mikið heimtandi, að hann ætti einnig að finna, að slíkt verk er honum ofvaxið. íslendingar hafa nú að vísu að undanförnu horft á það með miklu langlundargeði, að menn hafa risið upp, hver um annan þveran, með velviljaðar ráðleggingar í stjórnarmálinu, og fallið svo jafnharðan aptur frá þeim nauðugir, viljugir, af því að þeir hafa orðið berir að því síðar, að þeir báru ekki minnsta skyn á málið, þegar þeir gerðust til að tala um það opinberlega. En svo má brýna deigt járn að bíti um síðir. Sá tími getur komið, að mönnum Ieiðist slíkir postular nýrra öfug- króka og ringulreiðar í því máli, sem þjóðinni ríður mest á og hún hefur lagt mest kapp á að vinna. — Látum það vera víst og ekki dragandi í efa, að þessir menn || 1896. vilji hið allra besta, sem þeir hafa vit á. En það er ekki nóg. — Þjóðin hefur rjett til þess að menn hug- leiði einnig, hvort þeir hafi þá „þekking og hyggindi" til að bera sem dr. Valtý vantar, áður en þeir ráðast í að gjörast erindrekar íslands gagnvart Danastjórn i stjórnarmálinu, á þingi eða utan þings. Af öllum breytingum eða miðlunartillögum, er tafið hafa fyrir því, að íslendingar fengju stjórnarbót, siðan endurskoðunarmálinu fyrst var hreift, er Valtýs-uppá- stungan berust að því, hve óhæf hún er í alla staði.— Það er óþarfi að fara út í einstök atriði. Enginn Is- lendingur sem riðinn er við opinber mál, nema Valtýr einn, getur blekkst á henni. — Vjer skulum t. d. nefna skilning Valtýs á stöðu ráðgjafans gagnvart ríkisráðinu, sem hver maður, sem um þetta mál hefur fjallað, veit að er hið fýrsta aðalatriði í stjórnarbótakröfum ísiend- inga. Um þetta segir dr. V. að það sje að sönnu „ó- viðkunnanlegt“ að ráðgjafinn sitji í ríkisráði Dana, en það hafi „sáralitla eða enga praktiska þýðingu“. Slík yfirlýsing ein ætti að vera nægileg tii þess að almenningur skipaði Valtýs-póiitíkinni fljótt og vel á þann bekk, er hún verðskuldar. Hjer er ekki verið að hyija holurnar með yfirekinsákvæðum. Hjer erbeintog blátt sagt, að það sje í sjálfu sjer þýðingarlaust, hvort Danastjórn eða íslandsstjórn hafi síðasta atkvæði í sjer- stökum málum íslands. Slíkt verður naumast misskilið, og þarf ekki útskýringar við. Það væri óskandi, að allir nýjungamenn, sem i vin- arskyni við þjóðina velja sjer hlutverk dr. Valtýs, að hindra framgang stjórnarmálsins í Höfn eða heima, kæmu eins og hann til dyranna eins og þeir eru klædd- ir, svo engin freisting yrði fyrir neinn að blekkjast á þeim. Þá mundi apturhvarfspólitík síðasta alþingis verða fylgt fljótt og vel til grafar með kistuua, sem dr. Valtýr hefur slegið fyrsta naglann í. Hestarækt. Sauðasölubannið enska hlýtur að knýja menn til þess að sjá sig um eptir Dýjum leiðum, öðrum úrræðum til þess að gjöra landbúnað vorn arðberandi. Það er ekki einungis nýr markaður fyrir hina fyrri framleiðslu sem leitað mun verða að, heldur munu menn snúa sjer að því að mynda eða efla aðrar greinar búnaðarins heldur en

x

Dagskrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.