Dagskrá

Issue

Dagskrá - 03.09.1896, Page 2

Dagskrá - 03.09.1896, Page 2
78 sýni foreldra og annara vandamanna einatt um að kenna, er þeir knýja börn sín til að seilast eptir því, er þeira er ofvaxið og eðli þeirra frábitið. Hver strákhnokkinn, erskammlaust getur jlagt sam- an 2 og 4, má til að verða prestur eða sýslumaður. „Hann vantar ekki gáfurnar hann Nonna", sagði Þorsteinn gamli í Grófum þegar Jón litli sonur hans gat þulið upp öll nöfnin á rollunum í kvíun- um og rakið ætt þeirra út í æsar. Það jók og ekki alllítið á álit föðursins, að Nonni kunni söguna af Sigurði lúsaleist og Loðinkópi Strútssyni. „Það væri synd að láta ekki drenginn læra“. Jðn var sendur i skóla. En hvernig fór? Eptir 7 ár kom hetjan heim apt- ur og hafði þá í annað sinn fallið í gegn við 2. bekkjarpróf. En á búnaðarskólanum, er hann vifjaði siðar, fjekk Jón fyrirtaks vitn- isburð; gjörðist hann siðan bðndi og þótti ágætur búmaður; eink- um var hann talinn fjárauga hið mesta. En það var til yðar, nýju stúdentar, sem jeg ætlaði að snúa máli mínu. Þjer lifið nú i lystisemd og fagnaði, og þykist hraust- lega hafa brotið af yður skólaböndin, og munuð eigi síður en jeg vera drýldnir af takmarki því, er þjer hafið náð fram tii. Nú stand- ið þjer á vegamótum og horfið hugfangnír fram á veginn, er kvísl- ast í allar áttir. En þoka hvílir yfir hverri braut, að eins enda- stöðvarnar sjáið þjer gnæfa hátt í embættislegri dýrð. Þar hyllir á einn veg undir konunglega dándismenn á stöfuðum brókum og gullknepptum sloppum og með borðalagðar húfur eða hrúthyrnda hatta á höfðinu; er það glæsileg sveit, tigin mjög og titlarík; þar er kvennsæld mikil, því að hver göfug mær, er nokkuð þykist hafa tii síns ágætis, lyptir þangað augum með ást og lotningu; gullið þykir fagurt og embættin feit. Slík dýrð er töfrandi fyrir ung og metorðagjörn hjörtu; mjer er sem jeg heyri marga yðar kalla með lifi og sál: „Jeg les lög, lög, ekki að tala um annað!“ Á annan veg getur að líta guðsmennina góðu, forkólfa rjett- lætisins og andskotasyndarinnar. Sumir lifa á háum launum og ást safnaðanna í borgunum. Aðrir hjúfra sig i friði og kyrrð á frjóvsömum jörðum, og baða sig í guðrækninni sem hvolparí fiður- hing. Það er sælt og ljósauðugt lif, og vænlegt til sáluhjálpar. „Ó, að jeg væri orðinn prestur11, segir Góði-drengur, „þá þyrfti jeg ekkert annað að gjöra en lifa á eggjum og uýmjólk, leggja út dá- lítinn ræðustúf á laugardagskvöldin og láta dáðst að mjer i stóln- um á sunnudögunum11. í hinni þriðju átt glittir í sprenglærða málfræðinga, er berjast með hnúum og hnefum fyrir uppfræðslu þjóðarinnar, og gefa út ósköpin öll af orðabókum og ódauðlegum ritum. AMestir eru þeir magrir og renglulegir af sífelldu grúski og erfiði, er þeir dag ept- ir dag verða að tögla fræði sin í athyglisvana harðsvíraðra þorsk- hausa. „Jeg vil verða málfræðingur11, segir frónskuhetjan mikla, „það er fagurt starf, þótt erfitt sje, — maður getur alltaf ætlað sjer af?“ Þá er i fjórða lagi lækna sveitin vopnuð með blikandi skurð- hnífa sem bíta á náinn. „Það er nytsamt starf og gróðurvænlegt“, segir litli Toggi, „en verst er að vera refinn upp úr rúminu frá konunni um hánótt, sem titt er með lækna“. Enn eru heimspekingar, er stritast á móti trú og guðdómi og eru sífellt að bisa við að smíða grundvallarskoðanir á lögmáli lífs og tilveru, andhverfar allri skynsemi, og svo náttúrufræðingar, fljúg- andi um allan heim i ransóknaferðum. „Eyrir það er frægðin vís“, gellur fimbulþulur við, „jeg vil verða heimspekingur og fagurfræðingur og kenna löndum mínum að hugsa og rita; það er engin vanþörf á íslenskum Brandesi11. Allt þetta sýnir hugsjónir yðar í glæsilegum myndum, ef til vill glæsilegri en svo, að sannleikanum sjeusamkvæmar. Það kitl- ar hjegómagirndina og tælir lengra og lengra, einatt út á glapstigu. — Þjer viljið ólmir verða lögfræðingar! Er það vegna einkennis- búningsins? Sje svo, getið þjer aflað hans með margfallt hægara móti. Yagnstjórar á hafnargötum bera samskonar klæði. Eða er það til að verða fengsamir til kvennkosta? Eins og það sje ekki meiri aragrúi til af góðum og fallegum stúlkum til á íslandi (— því að alkunnugt er, hversu dæmalaust vel drottni tókt að skapa kvennfólkið þar —) en svo, að þær þurfi allar að hugsa til að ná í lagasnápa, enda þótt þeir sjeu margir sem mýin í Skorradal; ein- hverjar hljóta að verða afgangs og vart munu þær hætta til of- langrar biðar, því að geigvænlegt er djúp örvæntingarinnar, held- ur hlaupa þær óðfúsar í faðm yðar. „Ó já, okkur þykir nú lítið til koma, kunningi, að vera neyðarúrræði kvenna“, segið þjer. Borgin- mannlega mælt. En trúið mjer. Þeim muu fara sem þorskinum í Bolungavík, er ekki komst að línunni hans gamla Kláusar; þeir öf- unduðu í fyrstu ósköpin öll þá, er á önglunum hjengu, af glófögru síldarheitunni, en er þeir sáu bræður sína dregna á þurt land, klöpp- uðu þeir lof í lófa að vera lausir og undu með sæld við ormakrás- ina á mararbotni. — Eða er það vegna embættanna sjálfra? „Já, auðvitað“. En vegurinn, er liggur til þeirrar dýrðar, er torfær og illur yfirferðar. Þar úir og grúir af pyttum og stórgrýtisurðum, ekki úr náttúrlegu grjóti, heldur úr pálþykkum baunverskum laga- skruddum. Hver Bem um veginn vill fara, verður að svolgra i sig alla fúlguna, því ekki dugir að sparka henni í burt, sem steini úr götu. Pyttirnir eru fullir af sumbli, er nemendur hafa til svölun- ar sjer, því þurt er að kyngja lögfræðinni einni saman. Nellemann heitir jötunn einn, er stendur öndverður á götuenda og púar á móti aðsækjendum; spýr hann í sífellu nýjum og nýjum doðröntum full- um af svo krókóttri lögvísi og smásmuglegum orðhengilskap, að vart verður botnað í; hafa lögfræðingar sagt svo sjálfir frá, að ó- tuggnum yrðu þeir að kyngja kenningum hans. Ár frá ári harðn- ar hriðin, enda hnígur margur knár kappi í valinn, og fáir kunna sigri að hrósa fyr en eptir 6—8 ára þrautseiga aðsókn. Nei, það er engin gamanleikur að tarna, og þrek þarf til og ekki alllitla staðfestu að sitja jafnlangan tíma samankropinn í slíka fræði; með- an unaðsbliðar ástaraddir þjóta töfrandi um eyrun, og gleðin og lífið leikur sjer fyrir utan. Skyggnist fram í tímann, piltar; fikið yður eptir þræði orsaka og afleiðinga, og yður mun ekki dyljast hvilíkt svartnætti hjúpar framtíðarútlit ÍBlenskra laganemenda um þessar mundir. Sjáið þjer ekki vargafjöldann, er rífst með voða- hljóðum um hvern embættishrauðmolann. Brátt mun þó meir grána gamanið. Pæstir munu krækja í bráð; einungis sóknhörðustu hetj- urnar, hæfilegleikamennirnir. En hinna miðlungsgreyjanna, bíður sultur og seyra. Annað tveggja verða þeir að velta út af á hor- leggjunum, eða láta sjer nægja með einhverja lítilfjörlega atvinnu, er hver menntavana kotungi getur fengið. Tólf til sextán ára bar- átta er unin fyrir gíg, þróttarárin horfin, og nú verða þeir að byrja að nýju til. Látið því lögfræðiskænuna sigla sinn eiginn sjó, þjer sjáið að hún ætlar að liðast í sundur af ofhleðslu. Heppilegra mun aðsnúa huganum til einhverra hinna annara vanalegu námsgreina, svo sem læknisfræði, og gjörast sóknharðir drengir i holdsveikisbaráttunni miklu, eða málfræði og berjast gegn baunverska soranum, en þó einkum verkfræði og eðlisfræði, því að hver veit nema þjer kunnið að verða járnbrautakóngar og rafurmagnsmeistarar þegar framfara- aldan mikla skellur yfir ísland; þannig verðið þjer frægir menn og máttarstólpar ættjarðarinnar. En skoðið þó grandgæfilega hugi yðar áður þjer veljið einhverja brautina, skoðið hæfileika yðar og hinar sönnu tilhneigingar, í hvaða átt þær hallast. Ef þjer hafið ekki einbeittan áhuga og fölskvalausa ást á vísindunum og unnið öðru meir, hvort sem eru konur eða vín, er einkarhætt við að lærdómurinn verði yðnr tor- sóttur. Það er betra að snúa við nú þegar, þótt mikið sje að vísu í sölurnar lagt, þar sem eru 6 blómlegustu ár æskunnar; seinna verður eptir meiru að sjá og örðugra viðfangs að breyta stefnunni.

x

Dagskrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.