Dagskrá - 07.08.1897, Side 1
Kemur ut hvem virkan dag.
Verð ársfjórðungs (minnst
75 arkir) kr. 1,50. í
R.vík mánaðarl. kr. 0,50.
— Arsfjórð. erlendis 2,50.
Verð árgangs .yrir eldri kaup
endur innanlands.
4 krónur.
II, 33.
Reykjavík, laugardaginn 7. ágúst.
1897.
Frá útlöndum.
Friðarsamningurinn milli TyrkjaogGrikkjaálítst
nú svo gott sem á enda kljáður. Herkostnaðurinn á að
verða 4 milljónir pd. (t) Landamærin eiga að ákvarðast
á þann hátt sem herforingjanefnd sú er Tyrkjastjórn sett'
til þessa hefur stungið upp á. Akveða skal upphæð þá
er borga skuli tyrkneskum þegnum er liðið hafa tjón við
ófriðinn. Grikkir og Tyrkir skulu án íhlutunar stórveld-
anna semja ákvarðanir um rjettarstöðu þegna sinna inn-
byrðis. Tyrkir skulu ekki skyldir til að taka setulið sitt
úr Þessalíu fyr en herkostnaðurinn er goldinn að fullu.
Þýskaland áskilur að fjármál Grikkja skuli fyrst um sinn
vera háð eptirliti Evrópu, og er sagt að keisaranum gangi
það til að tryggja rjett skuldheimtumanna meðal Þjóð-
verja á þennan hátt. — Það hefur og frjettst að Rússa-
stjórn sje Þjóðverjum samdóma um að herkostnaðurinn
til Tyrkja skuli ekki svipta þýska skuldheimtumenn neinu
af því er þeir eiga hjá Grikkjum.
í hraðskeyti einu frá Miklagarði 31. f. m. segir svo
að þess væri vænst að ráðaneytið tyrkneska mundi taka
friðarsamninginn til álita daginn eptir, og rnundi soldán
síðan veita Tewfik pasha umboð til þess að undirrita
hann. En í öðru skeyti frá Aþenu 1. ágúst segir svo,
að Grikkir munu neyðast til að grípa til óyndisúrræða
fremur en að þola að skilmálar Þýskalandskeisara verði
teknir upp í friðarsamninginn, þar sem þeir líta svo á
sem frclsi Grikkja og þjóðarrjetti væri misboðið með
því að láta útlendar stjórnir hlutast til um innanríkismál-
efni þeirra.
Svo er sagt að sendiherrar stórveldanna búist ef til
vill við því að Tyrkir muni ætla sjer að senda herlið til
Kríteyjar, enn á ný, til þess að bæla. eykjarskeggja ger-
samlega undir sig, en stórve'din kváðu hafa komið sjer i
saman um að hindra þá ráðstöfun, hvað sem öðru líður.
400 enskar »riffilskyttur« fóru frá Möltu 31.fi m. áleiðis |
til Krítar til þess að sameina sig hinu enska herliði er
var fyrir við eyna.
Frá Serbíu er það að frjetta, að Albaningar hafa j
ráðist inn á landamæri ríkisins, hvað eptir annað, í smærri
og stærri sveitum, og hefur blað eitt í Lundúnum þóttst j
geta gefið þá upplýsing að Soldán mundi heimulega standa í
sambandi við Albaniu um árásir þessar. í miðri síðast-
liðinni viku skutust fremstu verðir Serva á við Albaninga
á sjö stöðum í einu, á endilangri landamæralínunni milli
Madliza og Rushka, en mannfall varð þó lítið sem ekk-
ert. Halda flestir að stjórnin í Miklagarði niuni vera
hjer með í ráðum, í því skyni að neyða Serva til ein-
hverra aðgerða. — I Epirus hafa Albaningar einnig
framið morð og rán á ýmsum stöðum.
Dönsk blöð ræða enn þá mikið um járnbrautar-
slysið við Gentofte, hverjum það hafi verið að kenna,
og hvernig sjúklingum þeim líði er meiddust við þennan
hryggilega atburð. Síðast er frjettist var hinn 36. ný-
dáinn á Commune-sjúkrahúsinu. — En hver eigi að bera
aðalorsökina fyrir slysið, er ekki full-ljóst enn. Lestar-
stjórinn Hansen, sem flestir voru samdóma um að ásaka,
virðist eptir því sem fram er komið við yfirheyrslurnar
fyrir rjettinum, varla muni verða dómfelldur fyrir neitt
vítavert ógát eða forsómun. — Surnir halda nú að merkin
á brautarstöðinni hafi ekki verið í lagi, og að af því
hafi óhappið að mestu leyti stafað.
Frá Svíbjóð frjettist um stórkostleg verkföll mcð-
al sjómanna, einkum á eimskipum er eiga heima í Stock-
holmi. Sjóliðar í hernum hafa verið sendir út til þess
að vinna um borð í eimskipum ýmsra hinna helstu fje-
laga til þess að halda uppi áætlunum þeirra og firra
menn vandræðum.
Menn ætla að Andrée, loptfarinn, ef til vill hafi týnst
á leið sinni til norðurpólsins og að hann muni hafa fallið
niður í hvíta hafið. Segir skipstjóri einn svo frá að hann
hafi sjeð þar eitthvað á floti mjög líkt stóru loptskipi.
Aðrir ætla þó að Andrée muni ekki hafa getað verið
kominn svo langt þegar skipið fór um, en dr. Nansen
og fleiri stungu þó upp á því að gjöra út leitarmenn til
hvíta haf.sins í tilefni af þessari fregn.
I Austurríki hafa hinir þýskumælandi þegnar
tekið sig saman um kröptug mótmæli gegn lagaboði
einu er ráðaneytisforsetinn Badeni hefur nýlega gefið
ut, og þar sem Þjóðverjum þykir hallað á jafnrjetti tungu
sinnar við mál annara þegna í ríkinu.
I bænum Eger í Bæheimi hefur herlið og lögregla
skorist í leikinn og voru fjölda tnargir teknir fastir og
margir særðir af hinum þýska bæjarlýð þá er Þjóðverjar
höfðu safnast saman við járnbrautarstöðina og tóku með