Dagskrá - 07.08.1897, Side 3
því mundi kvikna í yfirborði jarðarinnar svo að öll fjöll
bráðnuðu, og rinnu út í hafið; átti strauniur þessi að
taka með sjer alla syndara, er þá lifðu á jörðinni, og
fara með þá í Duzabk; þar áttu bæði þeir og hinir sem
fyrir voru, að kveljast einungis 3 daga, og að þeim liðn-
um fá inngöngu í sælubústað hinr.a góðu. I lögum
Manus, sem er ein af hinum fornu trúarbókum Brama-
trúarmanna, eru nefndir 20 kvalastaðir, er þarhegntfyr-
ir mismunandi syndir. Samkvæmt Búddatrú var kvala-
staðurinn einungis einn en honum var skipt niður í 136
smærri.
A dögum gamla testa-menntisins höfðu Gyðingar
enga hugmynd um kvalastað eptir dauðann, og finnnst
ekkert þess háttar í lögum Mósesar og sama er að segja
um spámennina. Orðið »sheol« sem er lagt út helvíti
taknar ekkert annað en bústað hinna dauðu, og svarar
það þannig til gríska orðsins Hades; sú er einnig mein-
ing þess í nýja-testamenntinu og öðrum grfskum ritum.
Hegning sú, er Gyðingar hugsuðu sjer að vondir menn
yrðu að þola sakir óguðleika síns, var innifalinn í ýms-
um plágum, sjúkdómum eigna- og ættingjamissi, ó-
friði af hendi nágranna þeirra, dauða og viðbjóði við
þeim eptir dauðann o. s. frv.
Breyting á þýðing þeirri, er lögð var í orðið she-
ol, átti sjer fyrst stað eptir herleiðinguna. Þá fóru
menn að hugsa sjer framtíðarbústað hinna dauðu tví-
skiptan; voru öðrumegin hinir góðu, og það var kölluð
Paradís en hinummeginn illgjörðamenn og var það nefnt
Gehenna. Það var ekki fyr en rúmri öld fyrir Krist að
sú hugmynd var orðin almenn á meðal Gyðinga. A
dögum Krists voru 3 aðalflokkar manna á Gyðingalandi,
er höfðu sína skoðun hver. Fyrsti flokkurinn voru Farf-
sear, sem voru langflestir; þeir trúðu því að vondir
menn yrðu eilíflega að búa í undirheimum; annar flokk-
urinn voru Essenar; þeir hugsuðu sjer einnig eilífan
kvalastað fyrir hina illu; átti þar að vera myrkur og
kuldi, og hinir þriðju voru Sadúsear: þeir trúðu engri
tilveru eptir dauðann.
Það eru 3 orð í nýja-testamenntinu, sem öll eru
lögð út með helvíti; það er Hades er táknar hið sama
og áður er sagt, Gehenna, sem einnig er minnst á áð-
ur og Tartarus, sem kemur aðeins fyrir einu sinni (II.
Post. 3. 4.) og er það hið eiginlega nafn á hegningar-
stað þeim, er Grikkir hugsuðu sjer. 1 Goðafræði Grikkja
er hegningarstaðurinn kallaður Tartarus.
Ilómer og Hesiod lýsa alheiminum sem holum
hnctti er skiptist í sundur af jörðinni, en hún er flöt.
Efst uppi í efri hlutanum var Olympus, heimkynni guð-
anna, en í neðri hlutanum var Hades, bústaður allra
dauðra manna, en neðst í honum Tartarus. Svo var langt
á milli Olympus og jarðarinnar, að járnsteðji mundi vcra
9 sólarhringa að detta þaðan, og aðra 9 frá jörðinni
niður til Tartarus. Tartarus var einkum skoðaður sem
hegningarstaður Tit ina, cr gjört höfðu uppreisn á móti
guðunum í Olympus, og síðar voru allir stórglæpamenn
sendir þangað. Síðar gjörðu menn sjer enn ljósari hug-
mynd um allt þetta. Hades var skipt í tvennt; annað
var sælustaður, þar var ljós og birta, var það ætlað
hinum góðu, en hitt var Tartarus; þar var eilíft myrk-
ur og kuldi, og þangað skyldu hinir illu fara. Einstöku
flokkur villiþjóða hugsar sjer engan hegningatstáð eptir
dauðann, þannig eru t. d. Indíánar í Ámeríku.
Sólin.
Sólin er 1,283,000 sinnum eins stór og jörðin, og
þvermælir hennar er 108V2 sinnum eins langur og
þvermælir jarðarinnár, hún vegur 324.000 sinnum eins
mikið og jörðin. Ef maður hugsaði sjcr að farið yrði
á gufuvagni til sólarinnar, sem færi 60 kilómetra á klukku-
stund, þá stæði ferðin yfir í 283 ár. Til þess að gjöra
sjer lítið eitt ljósari hugmynd um þessa fjarlægð, skul-
um vjer geta þess, að þegar maður rekur hendina í eld
og brennir sig, þá líður sá tími frá því að hendin kemur í
eldinn, og þangað til maður kippir henni að sjer, sem
tilfinningin er að komast til heilans og boð eða skipun
að komast aptur frá honum til handarinnar að draga
sig til baka. Ef maður hugsaði sjer nú að einhver
hefði svo langan handlegg að hann næði til sólarinnar,
þá væri tilfinningin fyrir hitanum eða sársaukinn af
brunanum svo lengi að komast til heilans að maðurinn
væri löngu dauður áður, hversu ungur sem bann hefði
verið. Sólin er svo heit að ef hún væri ekki fjær jörð-
inni en túnglið, þá mundi hún (jörðin) öll bráðna. í sól-
inni eru svo mikil umbrot, að ekki er hægt að gefa
neina glögga hugmynd um það. Hinir mestu stormar
og fellibyljir, þrumur, eldgos, jarðskjálftar og allt þess
háttar, er vjer þekkjum, er sama sem ekki neitt í móts við
það.
A Þýskalandi eru 32,000 munaðarlausra manna
í hjúkrunarhúsum.
í Ameríku voru 6,737 rnenn í fangclsi árið 1850
eða 292 af hverri milljón, en 1894 voru þeir 59,258
eða 1,180 af hverri milljón; giæpir fara þar svcna í
vöxt.
í Norðursíberíu er er jörðin frosin 600 feta
djúpt.
í heiminum er árlega eytt 3,000,000,000 punda
af pappír og er hann búinn til í 4,600 pappírsgjörðar-
húsum.