Dagskrá - 07.01.1899, Síða 4
100
börnunum leið auðsælega vel um kveld-
ið. það var aðdáunar vert, ..hversu
vel tókst að stjórna jafnstórum hóp af
börnum á ýmsu reki. Eg hefi aldrei séð
það jafnvel gjört.
Miðvikudagur.
Suðvestan stormur og kafald, tölu-
vert frost, hafði fent mikið um nóttina.
Fundur haldinn í hlutafélagi, sem
nýlega er myndað hér í bænum. Er
það í þeim tilgangi að halda úti blað-
inu ísland næsta ár. Hver hlutur er
iookrónurog hafa þegar nokkrir skrif-
að sig í félagið.
Fimtidagur.
Suðvestan kaldi og kafald. Lítið
frost.
Prentarafélagið hélt samsæti í
Iðnaðarmannahúsinu. Var þar sungið
kvæði eftir Guðmund Magnússon prent-
ara, haldnar ræður og fi. gjört sér
til skemtunar.
Föstudagur.
Norðankaldi, þykt loft, litið frost.
Sagt er að nýlega hafi komið útblað,
sem nefnist „Eir“ gefið út al hr. Sig-
fúsi Eimundsyni, en stjórnað af lækn-
unum hér í bænum.
Framh. af bls. 97.
óstjórn, stjórnleysi og stefnuvilla, mætti
verða útlæg úr landi voru á komanda ári,
að hin æðsta stjórn mætti fá augun op-
in fyrir því, að hún verði að standa
reikningsskap réðsmensku sinnar fyrir
þjóðinni. — Að öðru leyti mun Dag-
skrá, að því er snertir framkomu henn-
ar í hinum einstbku málefnum, halda
stefnu sinni enn sem áður, og á kom-
andi alþingi |væntir hún þess, að geta
hitt Valtýskuna nr. 2 e5ns vel og
heppilega sem hið svo kallaða nr. 1.
— Dagskrá mun ekki gleyma því að
— samkvæmt lögum allra þjóðarfram-
sókna til andlegra og líkamlegra þrifa,
er fyrst og fremst stjórnin, sem þarf að
breytast í æskilegra horf. — Öll þau
mein, sem vér nefndum áðan, stafa frá
því að Isiendingar hafa ekki inn-
lenda stjórn. —
Efnaleysi íslendinga stafar af því,
að þeir hafa ekki haft og hafa ekki inn-
lenda stjórn.
En eins og Dagskrá er þetta Ijóst,
eins veit hún og vel. að næst því að
geta komið þeirri breyting á stjórnar
farinu til leiðar, sem æskilegast er, er það
að hindra að aðrar breytingar, sem ekki
eru æskilegar komist á
Þetta mun Dagskrá leggja til grund-
valiar fyrir framkomu sinni 1 stjórnar-
málinn um næsta þingtíma.
Hin önnur áhugamái Dagskrár
munu verða studd af blaðinu í sömu
átt, sem áður. Aðalframlög landsjóðs
og banka til landbúnaðarins. — Fiski-
veiðar reknar í stórum stíl, fyrst um
sinn með útlendu auðmagni, að óskeri-
um rétti landsmanna og þeim til hags.
Reykjavík er miðstöð og miðill fyrir
alla meginverzlun íslands við útlönd,
með algerðum aðskiinaði millilanda- og
strandferða á hinum opinberu skipaá-
ætlunum. Vakandi hugsun á því, að
komast æ nær og nær því, að gjöra allar
hinar æðstu menntastofnanir alinnlend-
ar o. frv.
— Dagskrá hefir enga ástæðu til
að hringla frá stefnu sinni,— þvf stefna
hennar er sú, sem á framtíðina fyrir
sér; þess erum vér fullvissjr.
Svo að lokum —■ gleðilegt ár, góðir
menn og bræður. Tökum aliir hönd-
um saman að vinna að hng Islands í
rétta, hyggilegaog framkvæmanlega átt.
Aumingja drykkjumennirnír!
Þeir hafa aitaf haft það sér til
huggunar, þegar talað hefirverið um á-
fengi, að það sé bindindismannaofstæki,
en svo kemur þetta yfir þá eins og
þruma úr heiðskíru lofti, að héraðslæknir-
inn í Rvík heldur betri ræðu á móti Bakk-
usi en nokkru sinni hefir áður fluttver-
ið hér á landi. Þeir stóðu lengi sem
steini lostnir, en loksins dettur þeim ráð
í hug, ef ráð skyldi kalla; Þeir hugsa
sér að útbreiða þá lýgi, að Good-
Templarar muni hafa keypt Guðmund
til þess að flytja þessa tölu, þvert á
móti betri vitund, þvert á moti sann-
færing sinni, eða þá í öðru lagi, að
hann ætli sér sjálfsagt að komast á
þing og vilji með þessu tryggja sér
fylgi bindindismannanna. Hvort ósann-
indin í íslandi síðast eiga að styrkja
þessa skoðun, skal ég ekki dæma um,
en alt er gjört í einhverjum tilgangi.
Þar segir að Guðm. hafi viljað gjöra
það að skilyrði til þess að komast á
þing að menn væru með sölubanni á-
fengis. Þetta eru hrein og bein ósann-
indi, eins og allir geta vitnað, sem heyrðu
fyrirlesturinn. Það er til viss flokkur
manna, sem trúir því ekki að nokkur
maður geti unnið nokkurt verk, talað
nokkurt orð, hugsað nokkra hugsun,
öðruvísi en í eigingjörnum tilgangi eða
af einhverjum óhreinum hvötum. En
þetta er nú auðvitað vandræðavopn í
ráðleysi tekið af ástvinum Bakkusar
gamla, sem vilja hjálpa honum af veik-
um mætti, þar sem hann liggur í dauða-
teygjunum. — Sá er vinur, sem í raun
reynistl
Jón Ólafsson
kvað hafa slátrað uppeldisdóttur sinni
N. Ö. núna um hátíðirnar, og mun það
satt vera, að minsta kosti hefir hún
ekki sést á gangi um langan tíma.
Auðvitað v; r hún altaf faförul og víð-
ast hvar rekm á dyr, en þó kom hún
á stöku heimili óboðia eins og- sutnar
aðrar flökkukindur gjöra. Það var ann-
ars ekki að búast við, að kindar grey-
ið tórði lengi á þeirri andlegu þynku,
sem hún var fóðruð á, svo maður taki
sér í munn orð leiguliðans. Það voru
til nokkrir tilfinningarlausir maurapúk-
ar hér á íslandi fyr á dögum, sem héldu
sveitarómaga með fullri meðgjöf, en
kvöldu þá í hor og hungri þangað til
þeir vesluðust upp.
Líkt er því farið með Jón. Með-
gjöfin hefir ekki dugað til þess að hann
gæti fóstrað lengur þenna laungetning
sinn.
Dagskrá samgleðst Jóni með þenna
létti og telur það vel farið að fóstur-
dóttir hans hefir iosnað frá kvölunum.
En eins vildi Dagskrá óska, og það er
zþað, að N. Ö. gangi ekki aftur eins
og sagt er að sumir sveitarómagarnir
hafi gjört þegar þeir voru drepnir úr
hor.
Eftirmæli hafa|Dagskrá borist, er
hún birtir síðar.
Féiagsskapur skösmiða. Nú
um áramótin 'nafa allir skósmiðir bæjar-
ins Qyndað með sér fé'ag í þeim til-
gangi,“áð takmarka lánsverziun ogborg-
unarHi ítt, sem svo tilfinnanlega hnekkir
velmegun þeirra sem annará. Sam-
kvæmt lögum þessa nýja félagsmá ■ ng"
inn^lánav neitt öðrum en föstum við"
skiftamönnum, þeim er reynst hafa á-
reiðanlegir og skilvísir. í félagið hafa
gengið allir skósmiðir bæjarins og eru
það virðingarverð samtök. Óskiisemj
þeirra, sem ekki borga skuldir sínar,
bitnar oft á saklausum, við því verður
ekki gjört; þeir sem fyrir vanskilum
verða, hljóta að selja þeim mun dýrara
öllum yfirleitt, sem fleiri refjast um að
borga; en með þessu móti er gjörður
munur á áreiðanlegum og refjóttum við-
skiftamönnum og það er í alla staði
rétt og lofsvert.
KÍN A-LIFS-ELIX í R.
Vottorð.
I rúm 8 ár hefir kona mín þjáðst
mjög af brjóstveiki, taugaveiklun og
slcemri meltingu og hafði hún þess vegna
reynt ýmislegmeðöl, en árangurslaust Eg
tók því að reyna hinn heimsfræga KÍNA-
LÍFS-ELIXÍR hr. Valdemars Petersens
íFriðriksh'ójn og keypti ég því nokkrar
flöskur hjá J. R. B. Lefoli á Eyrarbakka.
Og þegar hún hafði brúkað tvær flösk-
ur, tók henni að batna, meltingin skán-
aði og taugarnar styrktust. Eg get því
af eigin reynzlu mælt með bitter þess-
um og er viss um, ef hún heidur áfram
að brúka þetta ágæta meðal, nær hún
með tímanum fullri heilsu.
Kollabæ í Fljótshlíð, 26. jan. 1897.
Loftur Loftsson.
Við undirritaðir, sem höfum þekt
konu L. Loftssonar í mörg ár og séð
hana þjást af ofannefndum veikindum,
getum upp á æru og samvizku vitnað,
að það er fulkomlega sannleikanum
samkvæmt, sem sagt er í ofanrituðu
vottorði hinum heimsfræga Kína-lífs-
elixír til meðmæla.
Bárður Sigurðsson, Þorgeir Guðnason,
fyrverandi bóndi bóndi
á Kollabæ. á Stöðiakoci.
KÍNA-LÍFS-ELIXÍRINN fæst hjá
flestum kaupmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinnekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eftir þW, að
standi á Flöskunum í grænu lakki,
eins eft'.r hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firma nafnið Valdemar Peter-
sen, Frederekshavn, Danmark.
Fineste Skandinavisk Export
Kaffe Sorrogat,
F. Hjort & Co.
Kjöbenhavn K.
Bindindismannadrykkurinn
,Chika‘,
er ljúflfengur og fínn svaladrykkur. —
»Chika« er ekki meðal þeirra drykkja
sem meðlimum Stórstúku Danmerkur af
N. I. O. G. T. er bannað að drekka.
Martin Jensen, Kjöbenhavn.
Uboðsmaður fyrir ísland:
F. Hjorth.&Co.
Báran.
Samkvæmt 4. kap. 2. gr. hinna j
nýju laga sjómannafélagsins »Báran»
Nr. 1. Reykjavík verðaallir þeir félags-
menn teðs félags, sem eiga ógreidd
árstillög sín eða standa á annan hátt
íjskuld við féiagið, tafarlaust lögsóttir,
verði þeir eigi búnir að greiða skúldir
sínar innan 15. þ. m; — sömuleiðis
þeir, sem eiga óborgaðar skuldir sínar
frá uppboði því, er haldið var a Tom-
bólu þeirri, er félagið hélt 16. okt. f. á.
hvort sem þeir eru utanfélags eða inn-
an.
Reykjavik 6. jan. 1899.
Félagsstjórnin.
til sölu með góðu verði.
Ritstj. vísar á.
AtvinnA
óskast, helzt við búðarstörf, skriftir
eða einhverja aðra hæga vinnu.
Ritstjóri vísar á.
lyrAÐUR um tvítugt óskar eftir
■^atvinnu við verzlun í Reykjavík
Mó-brúnn foli 4 v. hefir mérverið
dreginn í haust að norðan; mark að
líkindum sýlt eða blaðstýft framan
hægra. Eigandi gefi sig íram.
Bakkakoti í Andakílshr. 1. des. 1898.
Jóhann Bj'órnsson.
Lífsábyrgðarfélagið ,8TAR‘.
Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg
J\ls 11,er opin hvern virkan dag frá
11—2 og 4—5.
Magasinofna
eldavélar
af ýmsum gerðum selur
Kristján Þorgrímsson.
Nýasta nýtt!
Frá 1. jan. 1899 og framvegis tök-
um við að okkur að leigja út hús og
einstök herbergi fyrir alla hÚSeígendur
í Reykjavík, ef nógu margir gefa sig
fram.
Gísli Þorbjarnarson W. Ó. Breiðfj'órd
búfræðingur. kaupmaður,
* * ❖ *
* *
Fyrirtæki etta er einkar nauðsyn-
legt og lofsvert, Það hefir verið al-
gengt hér 1 bænum, að mennhafa orð-
ið að hlaupa hús úr husi til þess að
leita sér upplýsinga og fá leigt, og hús-
eigendur sömuleiðis oft orðið að hafa
húsnæði auð lengri eða skemmri tíma,
þótt nóg hafi verið til af leigjendum,
einungis sökum þess að þeir hafa ekki
getað fundið þá. Ervonandi, að menn
noti sér þetta. Ritstj.
HUS til sölu við Bergstaðastræti
í Rvík með stórri lóð. Góðir borgunar-
skilmálar. Semja má við
Pál Ólafsson á Grund.
Útgefandí: Félag eitt í Reykjavík.
Abyrgðarm.: Sig. Júl. Jóharmesson,
cand. þhil.
Prentsmiðja Dagskrár.