Dagskrá - 29.03.1899, Síða 1
DAGSKRA.
III. No. 35.
Reykjavík, miðvikudaginn 29. marz.
1899.
kemur út á hverjum
L'CL^OJVICL laugardggi^ árg. kostar
3,75 (erlendis 5 kr.), gjalddagi 1. okt.
A.fgreiðsla og skrifstofa er í Kirjustræti
4, opin hvern virkan dag kl. 11—12 og
4—5 siðd.
DAGSKRÁ 1ke",ut’ “V fyr ■
þetta skifti enn a
ákveðnum degi vegna beena-
daganna.
Innheimtu og reikningsskil á
Dagsskrá
annast búfræðingur Sigurður Þór-
ólfsson, og er hann að liitta á af-
greiðslustofu blaðsins í Kirlsjustræti 4,
kl. 4—5 síðdegis á virkum dögum.
Til minnis.
Bæjarstjórnar-fundir 1. og 3. Fmtd. í
mán., kl. 5 síðd.
Fátækranefndar-fundir 2. og 4. Fmtd. í
mán. kl. 5 síðd.
Forngripasafnið Mkd. og Ld. kl. 11—12
árd.
Holdsveikra-spítalinn. Heimsóknartími
til sjúklinga dagl. kl. 2—3!/2-
Landsbankinn kl. 11 árd. til 2 síðd. —
Bankastjóri viðst. kl. lll/2—ll/2 síðd.
Annar gæzlustj. vidstaddur kl. 12—1.
Landsbókasafnið. Lestrarsalgr opinn
dagl. 12—2; á Mán d.,Mvkd. og Ld.
til kl. 3 síðd., og þá útlán.
Náttúrugripasafnið (Glasgow) op. kl.
2—3 á‘Sunnudögum.
Reykjavíkur-spítali. Ókeypis lækning-
ar Priðjad. og Föstud. kl. 11—1.
Söfnunarsjóðurinn (í barnaskól.) op. kl.
5—6 síðd. 1. Mánd. í hv. mán.
Augnlækningar ókeypis 1. og 3. Föstud.
í hv. mán. á spítalanum kl. 11—1.
Tannlækningar ókeypis 1. og 3. Mánad.
í hv. mán. kl. 11—1., Hafnarstr. 16
(V. Bernhöft).
Hvöt til íslendinga.
--0 —
Vakna, kynslóð íslands unga,
upp með táp og þor!
Varpa af þér deyfð og drunga,
dáðrík starfl hönd og tunga.
— Reyndu nú að feta’ í feðra spor.
Sérðu ei að svefn og doði
samtaks veikja band?
— Fláu stjórnar fylg ei boði —
frelsi þínu’ er búinn voði.
Lít hvar fjanda fyigjur stiga’ á land.
Til hvers er að tala’ og rita?
til hvers er þitt líf?
— Það er til að stríða’ og strita,
stanza ei þótt kosti svita.
Landi þínu vera vörn og hlíf.
Til þín, þjóð mín, tíminn kallar,
tepruskapinn deyð.
Vellir, brekkur, elfui' allar,
urðir, drangar, fell og hjallar,
til-þín mæna’ í dapri dauðans neyð.
Er nú hreystin forna farin,
flúin yflr haf?
Blæs i kaun við ættlands arinn
orðlaus þjóðin, krömd og marin.
líörðum svipu-höggum níðings af?
Nei, min þjóð á enn þá eldinn,
orku, þrek og dug.
— Þú átt enn þá frelsis feldinn,—
frjálsar ver við kröfur heldin.
Fram og berst, ei fallast lát þér hug.
Viltu lengur hanga’ og hýma,
hræðast danskan vönd?
Heimsku’ og kúgun hrynd í tíma,
—hættu við þinn skugga’að glíma.—
Af þér hristu útlend þrældóms bönd.
Flýðu ei þótt fáir skeinu,
fast við rétt þinn halt,
hlauptu ekki eftir neinu
orðagjálfri, skrumi einu;
frelsi þitt ei heimta iiálft — en alt!
Sérðu þá, er svík þér brugga,
sitja’ um frelsi lands;
eins og banvæn eitur mugga
ættlandsbygðir hylja skugga —
undir merkjum innlends manns?
Þann sem vill þig róíti rýja,
rek úr þinni sveit. i
Sem þig ekki’ að siðum þýja,
sannleik lát ei frá þór stía,
brjóst þitt fylli frelsisþráin heit,
Stjórnarrétt þinn sterkar trygðu,
stand ei kjarklaus við;
skoðun þína’ á bjargi bygðu,
bregð upp sannleiksvopni skygðu,
lymskt af höndum hrektu fjandalið.
Rá mun aukast líf í landi,
læknast þrældóms spor;
gróður spretta’ á gráum sandi,
guðstrú þroskast, frelsisandi
vekja' líf og þrek og kjark og þor.
Norðmýlingur.
Pingmáí í sumar.
— 0—
III.
Vínsölubannið.
Það verður ef til vill það mál,
sem einna skiftastar verða skoð-
anir um á þinginu í sumar. Það
virðist nú svo sem ekki sé þörf á
að mæla sérstaklega með því, eft-
ir þeim undirtektum að dæma, sem
það fókk hér í höfuðstaðnum á al-
mennum borgarafundi, þar sem
ekki einn einasti var því mótmælt-
ur og tillaga um það var samþykt
í einu hljóði, en það dylst oss þó
ekki, að einstakir drykkjuvinir muni
gera sitt til að koma þeirri flugu
inn á þingið, að viðsjárvert verði
að samþykkja tillögu í þá.átt, sem
um hafl verið talað. Þeir eru ann-
ars undarlegir Bakkusar-vinirnir,
það er eins og þeir þori aldrei að
koma fram í ljósið með lofræður
sínar um hann; það var skorað —
marg skorað á þá á borgarafund-
inum hór í bænum að taka til
máls og mæla karli bót, ef þeir
hefðu nokkrar málsbætur iionum
til handa, en allir þögðu — stein-
þögðu. Má af því ráða, að lítt
treystist þeir að etja sínum egg-
lausu vopnum gegn ofurefli því,
sem á móti er að berjast. Það
eina sem þeir gera, er að bíta á
jaxlinn og bölva í hljóði yftr því
hversu gersamlega er flett oían af
kunningja þeirra, óvini þjóðaiinnar
— Það sem helzt er fært á móti
vínsölúbanninu, er það, að ekki só
rótt að beita þvingun í þessu né
öðru; þeir, sem halda dauðahaldi
með annari hendinni utan um glas-
ið en hinni um flöskuna, segja að
bindindismennirnir eigi að skapa
hugsunarháttinn svo að allir hætti
af sjálfsdáðum að kaupa vín og
flytja, svo ekki verði þörf á nokkr-
um bannlögum eða óeðlilegum höft-
um. Hún er fögur fljótt á að líta
þessi frelsiskenning þeirra, en hún
heflr fleiri hliðar en eina. Því neit-
ar víst enginn að æskilegt væri
að geta skapað svo hugsunarhátt-
inn yflr höfuð, að engum dytti í
hug að setja sór framar glas á
munn; bindindismennirnir liggja
ekki á liði sínu í þá áttina, en
það gengur svo seint, að margir,
ótölulega margir geta drukknað á
meðan; margir efnilegir unglingar
geta á meðan farið sér að voða í
brennivínsöldum og svift sjálfa sig
fagurri framtíð, elskandi foreldra
björtum vonum, þurfandi þjóð afli,
fé og heiðri. Eigum vér að bíða
eftir því, að . enn þá verði smá-
murkað líflð úr fjölda barna og
kvenna? Eigum vér að bíða eftir
því, að margir fari enn þá villir
vegar, auk allra þeirra, sem þegar
eru glataðir af völdum drykkju-
skaparins bæði að fornu og nýju?
Höfum vér ekki séð nógu mörg
sár, sem seint verða grædd, þótt
vér stuðlum ekki til þess með
deyfð og aðgerðaleysi að þeim fjölgi
enn um nokkurn tíma? Höfum
vér ekki séð nógu mörg tár, sem
vér vorum skyldugir að þerra?
Höfurn vér eigi heyrt nógu marg- j
ar angistarstunur og þung andvörp j
frá brjóstum munaðarleysingja? I
Höfum vér ekki nógu oft séð grá-
hærð gamalmenni, staulast áfram j
gleði svift og sælu vana, sem hafa
oi'ðið að lifa við‘ eymd og óánægju
í elli sinni, sökum þess að þeir ;
eyddu fé sinu, fjöri og kröftum í
þjónustu Bakkusar, en báru ekkert
úr býtum annað en þungar átölur
samvizku sinnar fyrir það, að hafa
gert sína og annara sálir, ef til
vill eilíflega vansælar? Höfum vér
ekki nógu oft horft á alt þetta?
Og ætti það ekki að vera nægilegt
til þess að enginn dirfðist að leggja
það til að máli þessu væri frestað ?
Þetta er samvizkuspurning, er vér
berum til allra manna yflr höfuð
og sérstaklega til þingmannanna,
sem hafa það á samvizkunni að
hafa stuðlað til þess að halda þjóð-
inni í hlekkjum, ef þeir ekki vilja
höggva af henni þrældómshlekki
Bakkusar, þegar þjóðin sjálf heflr
fengið þeim vopn i hendur. Sá
myndi hvers manns nýðingur tal-
inn og það með réttu, sem sæi
húsbónda sinn í böndum — sak-
lausan — ef húsbóndifln vísaði hon-
um svo á vopn sin til þess að
skera af honum böndin, en hann
í stað þess tæki þau og berðist
með þeim þvert á móti fyrirmæl-
um hans, ef til vill beitti þeim á
móti honum, en léti hann liggja
kyrran í böndum og segðist ætla að
bíða rólegur þangað til óvinurinn
fengi opin augun fyrir því, að hann
hefði gert rangt í því að binda
hann og léti hann því lausan?
Hver gæti borið traust til þess,
er þannig breytti? — enginn, eng-
inn, enginn. En er ekki alveg
sama máli að gegna. með þá þing-
menn, sem ekki vilja aðhyllast vín-
sölubannið, ef þeir annars verða
nokkrir? Er ekki þjóðin húsbóndi
þeirra? Stynur hún ekki i þræl-
dómsböndum Bakkusar? Dirflst
nokkur að neita því? Hefir hún
ekki fengið þjónum sínum, þing-
mönnunum vopn sín í hendur?
Heflr hún ekki trúað þeim fyrir
því að berjast undir sínum merkj-
um? Eru þeir ekki skyldir til að
losa um þau bönd, sem að henni
kreppa og leysa þau alveg eða
slíta, ef hægt er? Þessum sam-
vizkuspurningum vonum vér að
allir svari játandi og þá ætti eng-
um að dyljast hvoru megin þing-
menn eru skyldir að vera i vín-
sölubannsmálinu. Þeir halda því
fram sumir, að þetta só . skerðing
á frelsi einstaklingsins, það leysi ef
til vill þjóðina úr böndum en leggi
ný höft og óeðlileg á einstaka menn.
En gætum að, hver er einn aðal-
tilgangur allrar löggjafar; hann er
sá annars vegar, að koma í veg
fyrir að einstaklingurinn geti gert
fjöldanum tjón, hins vegar sá, að
vernda rótt einstaklingsins, sjá um
að honuro verði ekki hætta búin.