Dagskrá - 10.05.1899, Side 3
171
ef vér þá þyrftum nokkra aðra
stjórnarbót en Valtýs frumvarp
eins og skilningstréð gerir sór ta-pi
tungu með. Ástæðurnar eru.
ef þess þyrfti, þær, að samvinnan
í stjórnarbótarmálinu eins og öðru
verður svo bróðurleg. Bls. 27.
Þar er þá að sjá að íslandsráð-
gjafi verði í ríkisráðinu jafn ein-
ráður með stjórnarskrá og í al-
mennum lögum. En hér held ég
sé kvisthlaup í skilningstrénu. Þá
er samvinnan; þingflokkarnir og
stjórnarflokkur vinna hver um sig
og ef til vill framsóknarflokkurinn
líka, lengra kemst það nú ekki.
En svo liggja flokkarnir sín á milli
í baráttu. En auðvitað er það að
frelsisflokkurinn verður ofan á, úr
því ráðgjafinn er fulltrúi þingsins.
En mun nú áreiðanlegt að byggja
á þessum fróðleik framfaravonir
sínar ? [Framh.J
ísl. iðnaðarmenn í K.höfn.
„Félag ísl. iðnaðarmanna í K.höfn“
heitir félag eitt, er ísl. iðnarmenn
stofnuðu hér í okt. 1897. Félag
þetta hefir lítið látið á sér bera enn
sem komið er, en það hefir verið
með vilja gert af hálfu stjórnar
félagsins, sem þótti hyggilegra að
biða þess tíma að fél. yxi svo
fiskur um hrygg, að það gæti farið
að starfa í áttina samkv. tilgangi
sínum, sem só að leiðbeina og
hjálpa íslenzkum iðnaðarmönnum,
er hingað leita til að afla sór
fullkomnari þekkingar í þeirri iðn,
er þeir stunda og eru alls ókunn-
ugir hér í bæ. í fólaginu eru nú
sem stendur um 50 meðlimir,
karlar og konur. Fundi heldur
félagið tvisvar í mánuði og skemt-
un að jafnaði einu sinni. Á fund-
um eru rædd ýms mál, er snerta
iðnað og það alt, er til gagns má
verða fyrir iðnaðarmenn; — í því
skyni er það stofnað, sem segir í
l. gr. félagslaganna, að „efla og
glæða félagsskap meðal iðnaðar-
manna, Ieiðbeina nýkomnum,hvetja
menn og styrkja til að afla sór
hinnar fullkomnustu verklegu þekk-
ingar og leitast við að lyfta ísl.
iðnaði á hærra og betra stig.“ —
Nú er félagið að nokkru leyti
komið í samband við félag það,
er meistarar hafa (Haandverker
foren.) og hefir formaður þess lof-
að að gera sitt ýtrasta til, að efni-
legir íslendingar geti fengið atvinnu
á góðum vinnustofum, þar sem
þeir hafi vissu fyrir að geta full-
komnað sig svo sem unt er; en
þó með því skilyrði að þeir hafl
í höndunum meðmæli Handiðna-
mannafól. íslenzka, sem það -—
Handiðnamannafél. — mun aug-
lýsa nákvæmlega í blöðunum.
Á síðasta fundi félagsins 4. þ.
m. var með rúml. 40 atkv. samþ.
að taka af sjóði fólagsins 100 kr.
og leggja á vöxtu og kosin nefnd
til að semja reglugerð fyrir sjóð,
sem þessi upphæð á að verða
stofnfó að; sjóður þessi á svo á
sínum tíma að verða til styrktar
ísl. iðnaðarmönnum í K.höfn, —
gizkað á að fólagið geti aukið
hann um 50—100 kr. árlega. Nán-
ar um fyrirkomulag sjóðs þessa
er ekki hægt að segja að svo
konmu. —; Skemtanir heldur fé-
lagið á, vetrum fyrir meðlimi sína
og aðra íslendinga, er þeirra vilja
njóta, sem eru að mun ódýrari
og fara betur fram en hér gerist
alment.
Nú upp á síðkastið hefir „Islend-
ingafélagið" eða nokkrir menn úr því,
farið þess á leit að steypa félög-
unum saman og hafa að eins-eitt
félag eins og áður var; en ekki
munu iðnarmenn gína við þeirri
flugu, því ekki hafa beir þókst
komast mikið áleiðis með mál sín
meðan eitt var félagið, enda- mun
það helzt hafa ýtt undir stofnun
félags þessa, að geta í næði hugs-
og rætt sín sérstöku málefni.
Skemtiferðum gengst félagið fyr-
ir á sumrum og var í fyrra farið
víða um Sjáland og eitt sinn til
Svíþjóðar og gengu ferðir þessar
ágætlega vel. í sumar er ráðgert
að skoða ýmsa merka staði í Dan-
mörku: Hróarskeldu, Friðriksborg,
Freðensborg, Gribskov, Gurre Sö
og Gurre Slot o. m. fl.
Mánaðartillag í félagið er 0.75
fyrir karlm. en 0.35 fyrir kvenn-
menn; fátækir menn, er stunda
nám og lítið eða ekkert kaup fá,
borga ekki neitt.
i. J.
FRÉTTIR.
—0—
„Skálliolt“ kom í gær, vestan
um land.
„Hólar" komu í dag, austan
um land.
Engar fróttir markverðar.
Botnvörpuveiðaskip Jóns kaupm.
Yídalíns var tekið við veiðar í
landhelgi, afli og veiðarfæri gerð
upptæk og sektað um 1008 kr.
Bærilega byrjar sá útvegur!
13. apríl fórst sexæringur úr
Bolungarvík, í flskiróðri og drukn-
uðu 3 menn. Skipinu hvolfdi á
mótsvið svonefnda Stígahlíð. Þeir
sem druknuðu voru: Jens Pórðar-
son frá Grundum í Bolungarvík,
Majus Elíasson (Eldjárnssonar frá
Sandeyri) og Sigurður Sólberg. Jens
lót eftir sig ekkju og 2 börn, en
Majus ekkju og 6 börn.
Það slys vildi til nýlega (17. f.
rc.), á hvalveiðastöð hr. Ellefsens
á Önundarflrði, að maður nokkur,
að nafni Pálmi Guðmundsson varð
undir snjóskafli, er féll fram, og
beið bana af; var hann að grafa
tunnur úr úr skaflinum ásamt fl.
mönnum, en þá sprakk skaflinn.
Annar maður meiddist töluvert.
Mann nokkurn, að nafni Einar
Björnsson frá Ögri, kól svo rétt
fyrir páskana, að taka varð af
honum báða fætur, annan um rist-
ina en hinn um ökla. Var það
gert á spítalanum á ísaflrði. Mað-
urinn var á ferð fram í Laugar-
dal, en komst ekki til bæja og lá
úti.
Haííshroði heflr verið víða með
I norðurströndum, heflr hann sum-
staðar spilt all-mjög veiðarfærum
manna, svo sem í Bolungarvík og
víðar. Nú kvað hann þó að mestu
horflnn.
27. f. m. kviknaði í húsiá'ísa-
flrði, sem Guðm. Br. Guðmunds-
son verzlaði í, og brann all-mikið.
Yörur og hús vátrygt.
REYKJAVÍK.
—o—
Stúkan „Bifröst“ hélt fyrstu árs
hátíð sína 7. þ. m. og var þá
önnur fjölmennasta stúka landsins.
Fyrst. mælti búfr. Sig. Bórólfsson
fyrir minni íslands og þar næst
var sungið kvæði það, er birtist í
blaðinu hór að framan. Næst tal-
aði Sig. Júl. Jóhannesson fyrir
minni st. „Bifröst" og var þá sung-
ið kvæði eftir Jóhann Sigurjónsson
stud. art. Þá talaði Jóhannes Jó-
hannesson stud. med. & chir fyrir
minni kvenna, en Lárus Sigurjóns-
son, stud. art. flutti kvæði. Næst
talaði Jóhann Sigurjónsson fyrir
minni G.-T-reglunnar og yfirmanns
hennar, en stórtemplar Jndriði Ein-
arsson svaraði því og talaði um
vöxt reglunnar og viðgang. Loks
flutti Lárus Sigurjónsson stud. art.
langa ræðu og snjalla. Yar það
hvöt til íslenzku þjóðarinnar að
láta ekki hugfallast þótt reynt
væri að herða á þrældómsfjötrun-
um, heldur taka fjörkippi og reyna
að slíta flötrana. Bar sú ræða
langt af hinum að vorum dómi.
Að afloknum ræðum, kvæðum og
kaffidrykkju var skemt með ýmsu,
svo sem skuggamyndum, sjón-
leik og dansi. Skemtunin fór fram
hið bezta og voru allir. ánægðir.
Stúkan „Bifröst" hefir náð fljót-
ari þroska en nokkur önnur stúka
á íslandi og má fnllkomlega treysta
því að sú fylking muni framvegis
sækja fast fram i bardaganum eins
og hún hefir gert að undanförnu.
cTCiíí ocj þoíía.
—0—
lllgirni og heimska.
Ólafur mátti ó’ska sér einhvers,
en svo mátti Bjarni óska sór helm-
ingi meira. Þetta þótti Óla.fi ilt
og hugsar sór að leika á Bjarna.
Hann óskar því að stungið verði
úr sér annað augað til þess að
bæði skuli verða stungin úr Bjarna.
Líkt þessu fór einum náunga.
hór nýlega. Þannig stóð á að
fólag eitt mjög fjölment ætlaði að
halda afmælishátíð sína, en náung-
inn, sem nefndur var, hataði einn
meðlim í félaginu. Hann vissi
hvaða hús félagsmenn ætluðu að
fá til fundarhaldsins, en hugsar
sór að verða fyrri til og fá það
leigt á sama tíma handa öðru fé-
lagi, sem telur, nálægt 6 meðlimj.
Þess má geta að þetta 6 manna
fólag hafði fasta leigu á fundahúsi
annarsstaðar og þurfti auk þess
ekki að halda fund í þetta skifti.
Nú fóru þeir, sem fyrir hátíða-
! haldinu stóðu, til allra í 6 manna
félaginu hvers í sínu lagi, buðu
þeim ágætt húsnæði 10—20 sinn-
um stærra en þeir þurftu, hitað og
lýst, á jafngóðum stað og hitt,
fyrir ckkert, ef þeir vildu hliðra
til. Voru þeir allir fúsir á það
og kváðust sumir ekki ætla að
vera á fundi, aðrir höfðu ekki hug-
mynd um að nokkur fundur þyrfti
að vera, nema „náunginn," hann
var formanns-nefna félagsins og
kvaðst verða að halda fund og
alls ekki hliðra til. Meiningin heflr
líklega verið að láta hátíðahaldið
fara út um þúfur, en það brást,
það var haldið á öðrum stað og
fór vel fram, en sagt er að ná-
unginn hafl haldið eins manns fund
I salnum, sem er 24 ál. á lengd
og 12 á breidd. Má ætla að ver-
ið hafi nægilega rúmt um hann
kveldið það (rýmra en í pokanum
forðum). Hann verður að borga
10—15 kr. fyrir húsið í stað þess
að fá hús fyrir ekki neitt. Óþarft
er að nafngreina þennan náunga,
hór þekkist ekki nema einn, sem
heflr jafn þroskaða illgirnishliðina.
Pað halda menn að hann muni
sækja um styrk til þingsins í sum -
ar til þess að borga með húsleig-
una.
Enskur miljónaeigandi hélt ný-
lega miðdagsverð í París, sem kost-
aði 75,000 franka, á meðan á þessu
ódæma hófleysi stóð, voru mörg
hundruð manns í París, sem höfðu
engan miðdegisverð.
— Mormónar settust að í Salt-
vatnsdalnum í Utah 24. júlí 1847.
— Nótur í hljóðfærum voru
fyrst notaðar árið 1338.
Leiðrétting.
Ég hitti áðan kunningja minn
á götu, og fékk hjá honum Ijóta
ofanígjöf fyrir það, að ég hefði far-
ið að dæmi Jóns Ólafssonar, og
ekki nent að ómaka mig áf stóln-
um, til að gá í hylluna, og sjá,
eftir hvern hendingarnar væru, sem
teknar vóru upp í siðustu Dag-
skrá, og þess vegna hefði ég eign-
að þær Stgr., en þær væru eftir J.
Ó. sjálfan. Svona sagði kunningi
minn það væri farsælt, að fara að
hans dæmi. Ég fór eins og góðu
börnin, og lofaði að gera það al-
drei oftar, og bað fyrirgefningar.
* *
*
í síðasta bl. 2. síðu, 1. dálki, 9.
línu að neðan, stendur: 1837, í
staðinn fyrir 1851.
í blaðinu þar næst á undan 41,
á 1. síðu, 3. dálki í 11. línu að
neðan, stendur: „verulegu“ í stað-
inn fyrir „óverulegu."
J. B.
Kína-lífs-clixirinn fæst hjá
flestum kaupmönnum á íslandi.
Til þess að ,vera vissir um, að
fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru
kaupendur beðnir að líta vel eftir
því, að standi á flöskunum
í grænu lakki, og eins eítir hinu
skrásetta vörumerki á flöskumið-
anura: Kínverji með glas í hendi,
og firma-nafnið: Valdemar Peter-
sen, Frederikshavn. Danmark.