Alþýðublaðið - 01.01.1906, Side 6

Alþýðublaðið - 01.01.1906, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ. þjóðinni, að menn dæma ekki lög- in eftir þeim flokk eða þeim mönn- um sem flytja þau, heldur eftirþvi, hvort þau í raun og veru eru vond eða góð. í flestum tilfellum er hætt við að rétti lítilmagnans sé hallað, ogverð- ur hann því oft og einatt að líta rétt sinn fyrir borð borinn sakir síns vanmáttar. Þetta er hið fyrir- litlegasta ranglæti sem hverjum vel- þenkjandi manni á að vera umhug- að um að útrýma. Valdhafar og auðmenn eiga einkarhægt með að ná rjetti sínum í flestum tilfellum; og stundum gera þeir það líka með svo miklu ofurkappi og með svo mxkilli frekju. að úr þvi verður hið svæsnasta ofríki, sem ótal saldausir mega beygja sig undir, vegna sinn- ar fátæktar og lítilmensku. Hin eina vörn móti þessu er, að verkmenn myndi félag til stuðnings hver öðrum. Eins og kaupmenn og iðnrekend- ur hafa ákveðið verð á vörum sín- um og öðru sem þeir láta framleiða, eins er það ofureðlilegt, að verk- menn setji ákveðið verð á þá einu vöru, sem þeir hafa á hoðstólum: vinnukraftinn. Það má líka ganga að því vísu, að margir góðirmenn mundu styðja slíkan félagsskap, menn, sem eru framsýnir og hagsýnir, með einbeitt- an vilja og sanna föðurlandsást, og sem láta sér eins ant um rétt hins snauða og volaða eins og hins betur megandi. Og þá mnndi sá orðróm- ur deyja út, að skipstjóri hafi látið skipverja sína greíða atkvæði í þarf- ir þess flokks, sem liann var hlynt- ur, eða að kaupmaður eða iðnrek- andi hafi skipað þjónurn sínum að greiða atkvæði eftir þvi, sem honum þótti við eiga. Verkmenn! Verið nú samtaka! Á. J. ★ ★ Aths.: Ritstjórn blaðs þessa er fús á að gefa pær leiðbeiningar í pessu efni, sem hún frekast getur. Maxim Gorki höfundur sögunnar sem fylgir þessu blaði, er rússneskur alþýðu- maður og er af mörgum talinn vera mesta skáld sem Rússland á. Hann hefir gefið út fjöldamargar sögur (flestar þó stuttar) og nafn hans þekkist um allan heim, þó er hann ekki nema liðugt þrítugur að aldri. Hann hefir ekki stundað nám við neinn skóla, er að eins sjálfmentað- ur. A unga aldri lærði hann bak- araiðn, en ekki hefir hann verið stöðugur við þá atvinnu, heldur hvarflað sem landshornamaður um Rússland þvert og endilangt og aflað sér brauðs á þann hátt, sem hægast var í hvert sinn. Slíkt er alsiða á Rúss- landi, þó ekki þekkist það hér á landi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.