Lögberg-Heimskringla - 26.11.1964, Síða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1964
Úr borg og byggð
Womens' Association of The
First Lutheran Church invite
you to their XMAS TEA to be
held in the Parish Hall, Tues-
day, December 1, 1964. Time
2 to 4.30 p.m. and 7.30 to 9.30
p.m. — Home Cooking —
Handicraft — White Elephant.
☆
Nokkur einlök til sölu
Kertaljós...... $3.50
Norðurljós .... $2.50
Burðargjald innifalið.
JAKOBÍNA JOHNSON,
3208 N.W. 59th Street,
Seattle 7, Washington.
☆
Donations to Betel
í minningu um vini mína,
er dóu 1964: Sigríði Sigur-
geirson, Sigríði Thordarson,
Gróu Sigurdson, Gunnar
Guttormson og Ebines Páls-
son.
Jóhann K. Johnson, $25.00
In memory of Lawrence
Johnson, Elmhurst, 111. De-
parted November 1964.
Icelandic Chess Club,
Chicago ............. $25.00
Roy, Grace and Kr!
Benson, Chicago ..... $10.00
Gratefully acknowledged,
S. M. Backman,
12 — 280 Assiniboine Ave.,
Winnipeg 1.
☆
Giftingar
Shirley Ann, elzta dóttir
Mr. og Mrs. Sigurjón Sigurd-
son, Geysir, Man. og Lynn
Roy, sonur Mrs. Evelyn Hok-
anson, Riverton, Man., voru
gefin saman í hjónaband 19.
sept. 1964 í lútersku kirkjunni
á Geysir.
☆
Oskar Thor Sigvaldason,
sonur Mr. og Mrs. T. G. Sig-
valdason, Arborg gekk að
eiga Miss Jane Catherine
McMullen, ættaðri frá Tor-
onto, 15. ágúst 1964 og fór
hjónavígslan fram í Rosedale
United Church í Toronto.
Ungu hjónin fóru til Bret-
lands, en þar er brúðguminn
að ljúka námi við Imperial
College í London.
☆
Tilvalin jólagjöf
Sendið vinum ykkar Lög-
berg-Heimskringlu í jólagjöf;
þeir munu fagna þessum ís-
lenzka gesti, sem kemur til
þeirra vikulega. Jólakort
munu send með nafni gefand-
ans.
Dánarfregnir
Miss Helga Johnson andað-
ist 12. nóvember 1964 á sjúkra-
húsi í Vancouver, B.C.
Foreldrar hennar voru Berg-
þór og Jóhanna Johnson sem
lengi áttu heima í Fort Rouge
í Winnipeg, Man. og þar ólst
Helga upp í foreldra húsum.
Er hún varð fullorðin þá vann
hún hjá Free Press og víðar.
Hún fluttist til Vancouver
fyrir 40 árum. Hana lifa fjór-
ar systur hennar: Mrs. J.
Elmer Newell (Elín) í Aber-
deen, Wash.; Mrs. Philip P.
Wolfe (Christie) í Vancouver;
Mrs. H. M. Whitworth
(Emma) og Mrs. Thomas
Dawes (Mary)„ Winnipeg
Man.
Helga Johnson var vel gef-
in sómakona. Hún var með-
limur í ísl. Lúterska söfnuð-
inum, og sótti kirkju á meðan
heilsan leyfði. Hún var þá
einnig heiðursfélagi í W. A.
kirkjunnar. Hún átti marga
vini, og var hjálpfús og ein-
læg í allri framkomu. — Út-
förin fór fram í Nunn and
Thompson’s útfararstofu, 16.
nóv. Séra N. D. B. Larmonth
D.D. flutti síðustu kveðjuna.
(Bálför). G. J.
☆
Mrs. Ingveldur Kristín Sig-
urdur, lézt 21. nóv. 1964. Hún
fædd að Sinclair, Man. Hún
var gift Peter Sigurdur og
áttu • þau fyrrum heima að
Sandy Hook en síðustu á ár-
in að Camp Morton. Auk
manns hennar lifa hana 5
synir, John og Mundi Sigurd-
son, báðir í Winnipeg, Sveinn
Sigurdson í Traverse Bay,
Wilfred í Flin Flon og Conrad
í Nigeria; 5 dætur, Guðrún,
Mrs. George Whitehead, On-
tario, Joey — Mrs. Mars Gor-
man, St. Norbert, Grace —
Mrs. Gordon Murray, Stone-
wall, Thora-Lou — Mrs.
George Leslie, Winnipeg og
Elizabeth — Mrs. Merl Dom-
stad, Calgary og 30 barnabörn.
☆
Wilhjalmina Thorunn Stef-
henson, lézt 8. okt. 1964, 92
ára að aldri. Hennar verður
nánar minnst síðar.
☆
Thorunn Johnson, 73 ára,
lézt að heimi sínu í Amaranth,
Manitboa, 17. sept. 1964. Hún
var fædd í Churchbridge,
Sask. og flutti til Amaranth
1917. Hún missti eiginmann
sinn Guðmund (James) John-
soní febrúar 1964 og sonur
þeirra, Arthur, lézt 1951. Hana
lifa tveir synir, Byron í Mac-
donald, Man. og Ólafur í Am-
aranth; ein dóttir, May — Mrs.
R. Felshe í B.C.; 18 barnabörn
og ein systir, Mrs. Óla Helga-
son í Churchbridge.
☆
Sigurður (Sam) Thorarins-
son, 81 árs, andaðist 9. nóv-
ember 1964. Hann flutti hing-
að frá íslandi 1889 og átti
heima í St. James í síðastl.
75 ár. Hann lifa tveir bræður,
Runólfur M. Thorarinsson og
Barney Thornson; tvær syst-
ur, Mrs. Art Rose (Lily) og
Mrs. Alf Rose (Katie) og mörg
systkinabörn.
☆
Gísli Einar Anderson, Gimli,
Man., lézt 5. nóv. 1964, 51 árs
að aldri. Hann lætur eftir sig
eiginkonu sína Kristínu And-
erson.
MESSUBOÐ
Fyrsla lúlerska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku: kl. 9.45. f. h.
11.00 f.h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
Valdi og Lilja
Framhald af bls. 1. -
Meðal þeirra er komu úr
fjarlægð til að sitja samsætið
voru Mrs. Ása Stefánsson,
Vancouver; Mrs. Thora Val-
gardsson, Moose Jaw; Senator
og Mrs. G. S. Thorvaldson,
Ottawa; Mr. og Mrs. G. A.
Williams, Hecla; Mrs. Margrét
Sigurdson, Gimli og fl. Hinir
mörgu vinir Mr. og Mrs. T.
R. Thorvaldson, fjær og nær,
munu hugsa hlýlega til þeirra
á þessum tímamótum og áma
þeim heilla.
Mr. L. H. Thorlaksson
Framhald frá bls. 2.
efnis að hann væri „Honorary
Life Member of Canadian
Folk Society“. Var þessi liður
samkvæmisins mjög hátíð-
legur.
Mr. L. Halfdan Thorlaks-
son er fæddur í Selkirk, Man.,
sonur séra Steingríms og frú
Eríku Thorlakson (bæði látin).
Hann er kvæntur Lillian
Graham og þau hjónin eiga
einn son Gordon. Mr. L. H.
Thorlakson er háttsettur
starfsmaður hjá Hudson Bay
Co., Vancouver.
Mr. Thorlakson er góður Is-
lendingur og hefur gjört
meira en flestir aðrir til að
efla og halda uppi íslenzkum
félagskap — og það sérstak-
lega í Isl. kirkjunni og söfn-
uðinum. Hann var fyrsti for-
seti safnaðarins, og ávalt í
stjórnarnefnd hans. Hann
stjórnaði söngflokknum —
söng einsöngva og í kór — og
var ávalt boðinn og búinn að
koma fram til hjálpar þar sem
þurfti með. Árið 1957 var
hann sæmdur Riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu af
stjórn íslands og forseta Ás-
geiri Ásgeirssyni.
Árið 1952 var hann heiðrað-
ur af Vancouver Downtown
Business Assoc. kjörinn „Life
Member“ félagsins, og
„Scandinavian Business Mens
Club“ heiðraði hann á sama
hátt í sínu félagi — þar sem
hann hefur einnig starfað
mikið og vel.
Ég veit að ég mæli fyrir
hönd íslendinga hér í Van-
couver — og sjálfra mín er ég
óska Mr. Thorlakson til ham-
ingju með verðskuldaðan
heiður og óska honum alls
góðs og blessunar í framtíð-
inni.
Guðlaug Jóhannesson.
630 milljónir króna
Framhald frá bls. 3.
fjölkvæni og ókvænta karl-
menn. Að órannsökuðu máli
er sennilegt, að mikið sé um
piparsveina í landi þar sem
konur eru í minnihluta og
margir karlmenn tíðka fjöl-
kvæni.
Dr. Gil, sem unnið hafði við
svipuð störf í 20 ár, þegar
hann hófst handa í Ghana,
hafði ekki einungis meðferðis
víðtæka reynslu og þekkingu,
heldur einnig talsvert magn
af eldmóði — en hann kemur
í góðar þarfir þegar vinna
þarf svona verk í landi þar
sem flestum íbúanna er jafn-
vel ókunnugt um aldur sinn.
Eftir að hann hefur aðstoðað
yfirvöldin við að vinna úr töl-
unum, getur hann ánægður
kvatt þennan starfsakur.
Stórgjafir flýta fyrir
Rannsóknarstofnun
S.Þ.
Rannsóknar- og fræðslu-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
verður brátt sett á laggirnar,
og hafa mjög stuðlað að því
gjafir og loforð frá ýmsum
löndum. Búizt er við að stofn-
unin hefji starfsemi sína á
árinu 1965. Hlutverk hennar
verður m.a. að þjálfa háttsetta
embættismenn, einkum frá
vanþróuðum löndum, til
þjónustu í heimalöndum sín-
um og hjá Sameinuðu þjóðun-
um, og einnig til að rannsaka
með hvaða hætti verði hag-
kvæmast og árangursríkast
að hjálpa þeim löndum sem
eru á ólíkum þróunarstigum.
Nýlega barst stórgjöf, 450,-
000 dollarar, frá Rockefeller-
stofnuninni bandarísku. Fyrir
þá fjárhæð geta samtökin
fest kaup á fimm hæða húsi í
nágrenni við aðalstöðvarnar í
New York. 1 þessu húsi verð-
ur hin nýja stofnun. Nú er
beðið eftir því, að reglugerð
stofnunarinnar verði fulllok-
ið. og sennilegt þykir að for-
stióri hennar og stjórn verði
skiouð í janúar.
Stofnunin verður sett á fót
samkvæmt ákvörðun Alls-
heriarbingsins. Framkvæmda-
stjóri S.Þ. hefur sent persónu-
legan fulltrúa sinn til um 50
landa til að afla fjárhagsað-
stoðar við stofnunina. Með
gjöf Rockefeller-stofnunarinn-
ar eru framlögin, sem komin
eru fram eða lofað hefur ver-
ið, orðin 2,8 milljónir dollara
frá 30 löndum og 3 einka-
stofnunum. Búizt er við að
enn muni 15 lönd og nokkrar
stofnanir bætast í hópinn,
svo að þær 5 milljónir dollara,
sem nauðsynlegar eru, safnist
inn.
Til þessa hefur eitt Norður-
landanna lagt fram fé til
stofnunarinnar. Það var Nor-
egur með 56,000 dollara.
Búizt er við að fyrsta nám-
skeið stofnunarinnar verði
haldið fyrir unga embættis-
menn frá þróunarlöndunum
til að kynna þeim starfsemi
Sameinuðu þjóðanna.
Það var á „kaupakonuballi".
— Þér dansið hraðar en
takturinn hjá hljómsveitinni
er.
— Já, ég veit það, sagði
herrann, en ég verð að flýta
mér til þess að ná síðustu
rútunni.
Það er betra að stíga í eld-
inn en standa í honum.
GOING TO ICELAND?
Or perháps you wish to visit
other countries or places here,
in Europe or elswhere? Where-
ever you wish to travel, by
plane, ship or train, let the
Triple-A-Service with 40 years
travel experience make the
arrangements. Passports and
other travel documents secured
without extra cost.
Write, call or telephone to-
day without any obligations to:
ARTHUR A. ANDERSON
TRAVEL SERVICE
133 Claremont Ave.,
Winnipeg 6, Man.
Tel.: GLobe 2-5446
WESTHOME SUPERMARKET LTD.
WHERE QUALITY COUNTS
Corner of Wellington Ave. and Beverly
737 WELLINGTON AVE.—PHONE 774-3491, 774-3492
SHOULDER LAMB — Cured and Smoked
LEG OF LAMB — Cured and Smoked
Heavy or Medium Smoked Available
By Professional Experts
Good Supply of "RULLUPYLSA" Available
WE WILL SHIP ACROSS THE COUNTRY.
IF WE GET ORDERS SOON