Alþýðublaðið - 30.05.1962, Blaðsíða 2
IBltstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — ASstoSarritstjóri:
BJörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
•—10. — Áskriftargjald Kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. -Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Tap kommúnista
KOMMÚNISTAR 'hafa algera sérstöðu meðal
stjórnmálaflokkanna; því þeir eru svamir andstæð
ingar 'þess lýðræðis, sem fóstrar þá. Þess vegna er
með þ\ í fylgzt af nokkurri forvitni, 'hvemig þeim
vegnar í kosningum, hvort þeir geti talið sig feti
nær takmarki byltingarinnar eða. ekki, þegar at-
íkvæði hafa verið talin.
Kosningarnar síðastliðinn sunnudag voru ósigur
fyrir íslenzka kommúnista. Þeir töpuðu mörg
liundruð atkvæðum í kaupstöðunum, þó að ekki
ísé reiknað með fólksfjölgun. Þeir misstu hreinan
Íieimrihluta í Kópavogi, og er það eitt alvarlegt á-
fall. Þá vantaði aðeins rétt yfir 100 atkvæði til að
A-listinn feldi þriðja kommúnistann í Reykjavík.
‘Pegar litið er á heildina, standa kommúnistar í
svipuðum sporum og þeir gerðu, áður en Hanni
<bál V(aldimarsson og Alfreð Gíslason stofnuðu með
J>eim Alþýðubandalagið.
Aðþessu sinni var mjög.hart sótt að kommúnist
iim varðandi samband þeirra við hinn alþjóðlega
%ommúnisma og yfirráð erlendra afla í flokki
þeirra. Morgunblaðið hafði stórathyglisverð skjöl
í höndum, en fór illa með þau. í stað þess að birta
J>au sem ómengaðan áróður með skrumfyrirsögnum
•og skopteikningum, hefði átt að birta þetta sem
skjalleg gögn og gefa síðan út sérprentað með for
• imála eftir einhvem þeirra fyrrverandi kommún-
ista, sem hafa yfir.gefið flokkinn, eða annan sér-
■froðan mann. Þannig hefði orðið varanlegra gagn
• -af þessum „leyn:skjölum“.
agalaust hefur þessi árás á kommúnista gert
inikið tjón, sérstaklega innan flokksins. Viðbrögð
in voru athyglisverð. Skjölunum var ekki afneit-
að og samsæristengskn við alþjóðahreyfinguna
-voru játuð. Þegar þessa er gætt, verður að telja
það furðulegt, að kommúnistar skyldu ekki tapa
meiru en raun bar vitni. Fer að verða erfitt að trúa,
að innan raða þeirra sé mikið um fólk, sem ekki eru
(kommúnistar á alþjóða <vísu, heldur aðeins róttæk
ir, íslenzkir vinstrimenn. Réttara er að álykta, að
allur þorrinn af kjósendum kommúnista hljóti að
vera fólk, sem vel getur hugsað sér að búa í aust-
rænu alþýðulýðveldi eða eftir mynd þeirra hér á
landi.
Uppljóstranir leyniskjalanna og kosningarnar
. Ænunu án efa valda langvarandi eftirleik innan raða
kommúnista. Munu hinar ýmsu klíkur þar magn-
•ast og berjast meir en nokkru sinni. Hreinræktað
ir hugsjónakommúnistar munu gefa lausan taum-
inn fyrirlitningu sinni á agaleysi og tækifæris-
stefnu núverandi ráðamanna flokksins. Verður
(það uppgjör þýðingarmikið fyrir báða og mun ráða
því, hvers konar kommúnistaflokk verður við að
<etja á næstu árum.
Kosningarnar voru spor aftur á bak fyrir komm
•únista. Það hefði aðeins þurft að vera- stærra.
% 30. imaí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
já, Tívolí hefir opnað hlið sín upp á gátt; Tivolívarðliðið marsérar I
hátíðabúningi sínum og flugeldar varpa bjarma á hlýjan næturhimininn
yflr Kaupmannahöfn. Það er vor í Kaupmaonahöfn - og Kaupmannahöfn
er falleg f birtu vorsins og hlýindum sumarsins. Kaupmannahöfn er lífs-
glöð borg; þar er alltaf eitthvað að gerast á ölium tímum sólarhringsins.
Takið sumarleyfið snemma - og krækið yður í aukaskammt af sumrinu
- og ferðizt með Flugfélagi íslands; það er skemmtilegur viðburður
útaf fyrlr slg.
Skipulegglð sumarleyfl. yðar í samráði við ferðaskrifstofu yðar eða
Js/œ/tdsm'
^ ^ ICJELAMDATá*
\
1
HANNÍS
Á HORNINU
★ Með siðsamlegri svip
en áður var.
★ Smekkleysi nokkurra
kaupmanna.
★ Pólitísk matarkaup.
★ Hverjir ráða úrslitum?
KJÓSANDI SKRIFAR: „Mér
finnst að ekki megi skiljast svo við
síðustu kosningabaráttu að ekki sc
minnst á ýmislegrt sem má til bóta
verða í liegðun stjórnmálaflokk-
anna í framtíðinni. Það cr áreiöan-
legt mál, að breytingin, sem gerð
var fyrir nokkrum árum liefur orð-
ið tfl mikflla bóta, en hiin var i því
fólgin, að bannað er að hafa borða
lagöa áróðursmenn á kjörstaö og
einnig er bannað að liafa merki
á bílum.
KOSNINGABARÁTTAN hefur
með þessum reglum orðið siðlegri
en hún var og ofríki við kjóscndur
á kjörstöðum og við.þá er ekki eins
og það var. Áður var varla hægt að
þverfóta í portum barnaskólanna
fyrir aðgangsfrekum smölum með
borða og bindi bak og fyrir og var
þetta mörgum hvimleitt. Alveg eins
var þetta með bílana. Sá flokkur
sem mest hafði af peningum reyndi
að yfirgnæfa allt með merktum
bílum og þetta varð til þess að
smalarnir sendu hver öðrum tóninn
vegna þess áð þá þekktu þeir hver
annan.
ALLT ER ÞETTA HORFIÐ. Og
eitt, eða öllu heldur tvennt sem
allt er með siðlegri svip. En það er
þarf að minnast á og lýsir ekki
siðsemi. Nokkrir kaupmenn, fylgis
menn Sjálfstæðisflokksins gleymdu
því fyrir kjördag að með verzlun
sinni eru þeir í raun og veru þjón-
ustumenn viðskiftavina sinna án
tillits til stjórnmálaskoðana. Þessir
menn fylltu búðaglugga sína með
auglýsingum frá Sjálfstæðisflokkn-
um.
ÉG VAR STADDUR i stórri verzl
un einn daginn. Kona kom inn
úr dyrunum og sagði: ,,Er ég kann
ski að villast. Ég ætlaði ekki inn í
kosningaskrifstofu heldur í mat-
vöruverzlun.“ Og hún snéri út aft-
ur. „Hún hefur alltaf verzlað hér,“
sagði afgreiðslustúlka. „Það er vit
laust að vera að hafa þessa miða.“
— Ég var sammála konunni. Kaup-
maðurinn gat barist fyrir flokk
sinn eins og hann vildi. En það er
móðgun við viðskiftavinina að syo
að segja öskra framan í þá póli-
tísk slagorð kaupmannsins.
I
ÉG VEIT að þessir kaupmenn
hafa tapað viðskiftavinum á þess-
ari smékkleysu sinni. Þeir mega
ekki gleyma því, að allt að þvf
Framhald á 14. síðu.