Austurland


Austurland - 31.01.1920, Page 1

Austurland - 31.01.1920, Page 1
4. tbl. Seyöisfirði, 31. janúar 1920 1. árg. ísjenzk menning. i. Oft hefur veriö myrkt yfir þjóð vorri, en aldrei svo, að eigi hafi sést þar Ijósblettir og kyndlar, sem af hefur staðið ylur. Fyr var það, að þjóðin hafði Mtið um sig, einkum út á við. Verzlunin var öll í höndum út- lendinga, og allur fjöldi manna bjó íkyrþey búi sínu og þótti gott, ef hann hafði í sig og á. Menn trúðu í barnslegri einfeldni kristindómin- um eins og hann var þeim kendur, spunnu að vísu út úr honum ýmsa hjátrú, einkum þó djöflatrúnni, og létu hugann reika um ókunna dularheima með hinu fjölsæja ímyndunarafli hins óupplýsta nátt- úrubarns. Þeir lásu sögu forfeðra sinna, dáðust að hreysti þeirra og hetjuskap, lifðu með þeim í sorg þeirra og gleði, létu hugann sveima í hóla og steina til dverga og álfa, horfðu með hryllingi á draug- ana sem, vitjuðu peninga sinna nóttu hverja, og tröllanna, er námu brott sauðamenn og vökustúlkur á hinni helgu nóttu. Og sungnar voru og kveðnar þjóðvísur, ferskeytlur og rímur alþýðuskáldanna, þessara óskabarna ógæfunnar, sem ráfuðu eirðarlausir og hælisvana í heimi hversdagslífsins bæ frá bæ og sveit úr sveit, en báru þó með sér ein- hvern töframátt og vörpuðu æfin- týra og draumabjarma yfir alt sjónarsviðið. Og þjóðin fann sig nátengda landinu, þar sem hún var borin. Hún var ekki rótslitin, þess vegna visnaði hún ekki, þótt eigi vökv- aðist hún ávalt hlýrri morgundögg (sbr. Qrímur Thomsen Ljóðm.) í huganum bar hún minninguna um forfeður sína, alt umhverfið hlúði hjá henni að arfgeng- um tilfinningum og kendum, og annan lærdóm átti hún ekki en þann, sem var af sömu rótum runninn og hún sjálf, eða með hennar mörkum, og þann lærdóm hafði hún skilið og tileinkað sér þegar í bernsku, fengið hann í vöggugjöf, og hann var hennar andleg, arfgeng eign, sem hún síðar bætti við í sama anda. Og alt umhverfið var í samræmi við hana sjálfa og menningu hennar. Þarna var því rót og festa, ekki þur bókfræði, heldur lifandi andi — sönn menning En hvernig er nú? Hvað tengir nú þjóðina við landið, og hversu er menning hennar samræm eðli hennar og anda? Hinar fornu bókmentir vorar lofa allir hástöfum, þótt þeir hafi ekki einu sinni lesið þær, auk heldur skilið þær og tileinkað sér anda þeirra og auðæfi. Þær eru reyndar all-víða ti! og gyltar á kjöl, en það er af því að slíkt þykir fínt „að lofa það, guma’ af þvf, láta það sjást í loggyltu bandi hjá sér“. Þjóðsögurnar lesa fáir, að minsta kosti eru þær ekki lesnar með 'sama skiiningi og áður, menn sjá ekki lengur lifandi fyrir augum sér viðburði þeirra, þær eru ekki lengur blóð af blóði þjóðarinnar og hold af hennar holdi. Rímurn- ar er fínt að fyrirlíta, ferskeytlan lifir helzt í klámi og skömmum og ljóðin, sem haía verið þjóð- inni ómetanlegur harmaléttir um hundruð ára, eru nú af sumum talin landplága. Hreimur ljóða og hreimur gulls, lætur líklega ekki vel í eyrum saman. Upp í afdöl- um má nú finria bændur, sem líta á þjóðernið fyrirlitningaraug- um, lesa fátt nema skammablöð og hugsa um fjárverð. Nú eru hjúin ekki framar árum saman hjá sama húsbóndanum, nú eru vetrarmenn og vetrarkonur, kaupa- menn og kaupakonur, sitt af hverju Iandshorninu. Sjómennirnir líta stórum aðdáunaraugum á út- lendingana, háttu þeirra og venjur, mál þeirra og hugsanir, einkum á ,þetta sér þó stað um reykvísku sjómennina. Ungir menn þyrpast að sjónum og að verzlunarstörf- um, studentar og lærðir menn sem aörir, og jafnvel sumir efni- legustu fræðimenn og kennarar við æðri skóla snúa við fyrri störfum sínum bakinu og gefa sig á vald Mammoni. Og verka- lýðurinn er gripinn af hreyfing- unni. Hann flækist fram og aftur um landið, rótlaus og heimilisvana. Og jafnaðarmennskan, eins og vér og flestar jojóðir þekkja hana í verki, er ekki mannúðarstefna, heldur gullstríð. Einkunnarorð hennar eru, eins og blað eitt tók réttilega fram nýlega, „þitt er mitt“, en ekki „mitt er þitt“, eins og sæmdi mannúðar- og kærleiks- stefnu. Blákaldar varir öreigans hrópa gull, og sælleg hefðarmærin tæpir teprulega á því. Ef þjóðernið stenzt ekki straum gullsins, þá fari það veg allrar veraldar. Hver er sá heilvita maður, er hafna mundi fyrir þjóðerni sitt allsnægt- um. Þessar tvær setningar eru runnar frá gullhjarta gullmenn- ingarinnar. Þær eru hennar eink- unnarorð. Menning vor er óþjóðleg, rót- laus menning, sem fœrir þjóðina ávalt fju r og fjcer anda sínum og eðli, fjœr og fjcer því að vera fsSenzk þjóð. II. Áður en vér minnumst írekar á orsakir þær, sem að því liggja, að menning vor er þannig orðin og hvað gera megi til þess að bæta um, teljum vér rétt að geta þess, að þó vér teljum nútíðar- menningu vora hættulega sem á horfist, þá neitum vér því auðvit- að ekki, að hún sé að mörgu ágæt og æskileg og auk þess eðlilegt og sjálfsagt að vér tileink- um oss hana, en að eins það, að vér verðum að íslenzka hana, gera hana hold af okkar holdi og blóð af okkar blóði og láta hana verða til þess aö gera oss enn þá styrkari sem íslenzka þjóð, af hinum trausta og kjafngóða nor- ræna stofni. — — ,------Er tekið var að veita síraumum útlendrar menningar og áhrifa inn í landiö, voru sumir iorvígismenn hennar þeirrar skoð- únar, að gefa þyrfti henni íslenzk- an blæ og anda. Jurtafræðingar hafa uppgötvað það, að þegar hvítri og rauðri rós er sáð í sarna jurtapott, og ræturnar látn- ar fléttast saman, þá vex upp jurt, sem ber einkenni og lit hinna beggja. Þannig höguðu sumir menningarfröinuðurnir starfsemi sinni, þeir vildu blása nýju lífi í hinn íslenzka gróður, þroska hann og fegra í íslenzkri mold. Þeir vildu hvorki uppræta hinn íslenzka, né láta hann vaxa við hlið hins erlenda, án þess að þeir vefðu rótum sínum saman. En sumir sintu þessu ekki. Og kröfur tím- ans jukust, öldurnar urðu háreist- ari, verklegu framfarirnar steypt- ust örar yfir þjóðfélagið en svo, að andlega, þjóðlega menningin næði að setja á hugina mörk sín, er útlendu, áhrifin gerðu á þá her- hlaup. Skóiarnir voru sömu fræðasyrpurnar, þurrir og and- lausir. Og þessu hefur lítið farið fram. Nöfn á löndum og borgum, jurtum og dýrum, málíræðiheit- um og öðru slíku rigndi og rignir yfir neinendurna, en andann vant- ar. Fátt eða ekkert hefur verið eða er reynt, til þess að kenna þeim að skilja sögur, ljóð og sagnir þjóðar sinnar, stríð henn- ar og þroskasögu, kenna þeim að meta náttúruna, átthagana og ó- sýnilegu böndin, sem tengja þá, — nei allur þessi óljósi fræða- grauíur hefur gert hið gagnstæða, vakið óþreyju og óeirð, fégirnd og rerrbing. Kennimenn kirkjunnar hafa barist um trúarbrögðin, sumir hafa haldiö í krossinn tveim hönd- um og sagt hann helgan dóm, gæddan kraftaverka og máttaranda, hinir hafa brotið hann sundur ögn fyrir ögn og reynt að sýna fólkinu, að hann væri að eins tré, að vísu trcv sem eins og önnur tré væri írá guði runnin, en mann- anna smíði hátt og lágt. Enn aðrir hafa látið anda ganga ljósum logum um horð og bekki, í mönn- um og hlutum. Og ekkert hefur verið reynt til þess að draga úr hinum skyndilegu áhrifum, eða beina þeim inn á réttar brautir. Umhverfis hugi æskumannanna hefur þotið hringiða staðhæf- inga og hugarflugs, straumur nýrra og óvæntra stefna og atburða, fáir orðið ti! þess að leiðbeina eða kryfja til mergjar, — vorir fáu fræðimenn annaðhvort staðið jafn áttaviltir og ruglaöir eins og alj)ýðan, eða þá eigi haft kjark til þess að leita móti straumnum. Rætur fornu menn- ingarinnar hafa því slitnað, straum- urinn sópað blómskrúðinu burt, og fátt verið reynt til þess að sá því, er fest gæti rætur ög- átt heima og borið blóm í íslenzkum jarðvegi. Prh. Brot úr þingreiðar-annái. „Sér þú mannareiöina, Vand- ráður?“ „Sé eg víst“. „Hverir ætlar þú að vera muni? mælti Fljótráður „eða munu þessir fara með ófriði um sveitir vorar? Vandráður mælti: „Það hygg ég, að þar ríði goðar vorir og munu þeir ætla að helga leið“. „Eigi er venja að þeir fari svo fjölmennir, og mun meira undir búa“. „Svo er víst“, anzaði Vandráður. „Þú munt vera allheimskur, ef þú veizt eigi, að konungur vor hefur rofið þingið, og með því frelsið er nú nögt í flcstum grein- um, þá eigu vér aö kjósa tvo nýja goða í haust fyrir þetta hérað. Nú munu þarna vera í ferð með hinum fyrrum goðum garpar þeir, sem hyggja nú til þingreiðar. Þeir munu ætla að vinna sér hylli búenda og iýðsins á leiðinni. \ Nú niunum við sitja hér eigi alllangt frá veginum, unz þá ber fram um, skal eg þá nefna þér

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.