Austurland - 31.01.1920, Síða 3
AUStURLAND
3
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Aukablöð þegar ástæða þykir.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddægi 1. júií
Ritstjóri, ábyrgðar- og afgreiðslu-
maður Guðm. G. Hagalín. Sími 6 c.
Innheimtumaður
Tryggvi Guðmundsson, kaupm.
Sími 16.
Þjóðverjar hafa nú fengið Suð-
ur-Jótland í hendur Bandamönn-
um, og hefur alþjóðanefnd þar
stjórnina á hendi. Danska at-
kvæðabaráttan hófst 17. þ. m.
Verkamannaþing Norðurlanda
hófst 21. þ. m. og er því nú
lokið. Voru Bolsivikkar þar alger-
lega útilokaðir. Símað er frá
Kristíaníu, að ráðherrar Norður-
lánda komi saman á fund í febrú-
ar, til þess eingöngu, að ræða
um bandalag Norðurlanda.
Síðustu fréttir. Drepsótt mikil
geisar nú í Berlín og spánska
veikin er á ný komin upp í Kaup-
mannahöfn. Mesti fjöldi sjúklinga
hefur verið fluttur á sjúkrahús.
Aukaskip frá „Hinu sameinaða
gufuskipafélagi“ fer frá Kaup-
mannahöfn 3. febr. til íslands.
Vígin á Helgólandi hafa verið
jöfnuð við jörðu. í Warnemúnde
hafa verið brendar 70 flugvélar,
sem afhenda skyldi Bandamönnum.
Fréttir.
Bœjarstjórnarkosning.
Kosnir voru 5 menn í bæjar-
stjórn Seyðisfjaðarkaupstaðar 24.
þ. m. Komið höfðu fram 5 listar.
Á A listanum voru-. Karl Finn-
bogason, skólastjóri, Gestur Jó-
hannsson, verzlunarmaður, Sig.
Baldvinsson, póstmeistari, Guðm.
Benediktsson, gullsm. og Friðrik
Jónsson, búfræðingur. Á B lista:
St. Th. Jónsson .konsúll, Einar
Methúsalemsson, bankagjaldkeri,
Ottó Wathne, verzlunarm., Thorvald
ímsland, kaupm., og Gísli Lárus-
son, símritari, Á C lista: Her-
mann Þorsteinsson, kaupm., Ind-
riði Helgason, rafmagnsfræðingur,
Ingibjörg Sigurðardóttir, frú, Bogi
Benediktsson, kennari og Bjarni
Sigurðsson, gullsm., Á D lista:
Sig. Arngímsson, kaupm., Friðrik
Jónsson, búfr., Stefán Runólfsson,
smiður, Páll Árnason, útgerðarm.
og Jón Sveinsson, útgerðarm.
Á E lista: Benedikt Jónasson
verzlunarstj., Jón Sigurðsson,
kennari, Kri’stján Kristjánsson,
læknir, Jón Jónasson, málari og
Pétur Sigurðsson, skósmiður. A
listinn hlaut 82 atkv. B 73, C 25,
D 22, E 30, A kom þannig að
tveim mönnum, B sömuleiðis og
E einum.
Hdtíd
verður haldin hér í bænum
31. þ. m. til minningar um 25
ára afmæli Seyðisfjarðarkaupstað-
ar. Verður síðan í næsta blaði
skýrt nákvæmlega frá hátíðahöld-
unum og Seyðisíjarðar minnst.
Sterling
kom hingað laugardaginn 24.
og fór héðan 26. Kom skipið
fyrst á Djúpavog og Eskifjörð, og
tók þar þingmennina Þorleif Jóns-
son í Hólum og Sigurð lækni
Kvaran. Hér tók það Svein Ólafs-
son í Firði, Björn Hallsson bónda
á Rangá og Þorstein Methúsalem.
Með skipinu fór margt annara
manna til Reykjavíkur.
Jarðbönn
mikil og harðindi í Héraði segir
Víga-Glúmur sá, er grein hefur
skrifað, sem nú er birt hér í
blaðinu. Telur hann, að skamt
muni til almennra vandræða, ef
slíkri tíð fer fram, sem nú er.
Jón Benediktsson
stud. med. kom hingað til bæj-
arins með skipinu Díönu, sern
kom hingað eftir lýsi. Verður Jón
læknir á Eskifirði meðan Kvaran
er á þingi.
Guðmundur Kamban,
skáld hefur nýlega lokið leikriti,
sem heitir „Vi Mordere" (Vér
morðingjar). Hefur Dagmarleik-
húsið í Kaupmannahöfn keypt
það og leikur það í vetur. Kon-
ungsglíman verður leikin í vetur
á Konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn.
Barkskipið
Eos rann mannlaust á land 22.
þ. m. á Eyrarbakka. Mönnunum
hafði brezkur botnvörpungur bjarg-
að og flutt þá til Reykjavjkur.
Skipshöfnin var íslenzk og skipið
á leið til Svíþjóðar.
Meiri afli
er nú sagður í Sandgeröi en
dæmi eru til áður.
Botnvörpungur
strandaði 20. þ. m. á Geröa-
hólma syðra.
Talið er víst
að kosiö verði á ný í Reykja-
vík, en búist samt við, að eigi
verði hreyft við kosningu Sveins
Björnssonar.
Afsökun.
Er rafmagnsstöðin bilaði um
daginn, varð blaðið á eftir áætl-
un og sakir mannfæðar sáum vér
ekki annað vænna, en sleppa úr
blaði til þess að ná réttum út-
komudegi. Verður það bætt upp
síðar, er vér fáum aukinn
vinnukraft.
M. b. Faxa
hlekktist á á leiötil ísafjarðar 20.
þ. m. Misti hann stýrið á Breiða-
firði og komst við illan leik til
Patreksfjarðar með bilaða vél.
Góð segl björguðu.
Hvar er bezt að verzla?
Þar sem mest er úr að velja. Þar sem flest er til í sömu sölubúð-
inni. Þar sem vörurnar eru fjölbreyttastar, og þar sem vörurnar eru
ódýrastar.
Engin verzlun uppfyllir betur þessi skilyrði en verzlun:
St. Th. Jónssonar á Seyðisfirði.
Bæjarbúar, útgerðarmenn og bændur! Gjörið yður ávalt að reglu
að kaupa engan hlut, fyr en þiö hafið fengið að vita hvað hann
kostar þar. Hringið upp í talsíma nr. 1 og 51, þið fáið strax svar.
Auk allrar venjulegrar matvöru, nýlenduvöru, vefnaðarvöru og járn-
vöru, hefur verzlunin ýmsar sérvörur, sem seldar eru með verksmiðju-
verði að viðbættum kostnaði, svo sem: prjónavélar, saumavélar,
skilvindur og strokka, hjólhesta, utanborðs bensínmótora í smáa báta
og einnig stærri mótora. Byssur og allskonar skotáhöld. Ofna, elda-
vélar, vasaúr, klukkur, baromet og fleira og fleira.
Biðjið um sérstök tilboð og verðlista.
St. Th. Jónnsson.
Þýzkt
skip, Undine, strandaði nýlega.
Náði það sér þó út aftur og
komst til Reykjavíkur til viðgerðar.
Skipið var að koma frá Spáni,
með salt til Proppébræðra á
Þingeyri.
Jón Laxdal,
kaupmaður, hefur gefið ung-
mennaskólanum að Núpi í Dýra-
firði 500 krónur.
Bæjarstjórnarkosningar
fara fram í Reykjavík í dag.
Frétt er orðið um lista verka-
manna og lista Sjálfstjórnar. Á
lista verkamanna eru: Ólafur
Friðriksson, ritstjóri, Jónína Jóna-
tansdóttir, frú, Kjartan Ólafsson,
steinsmiður og Hallbjörn Hall-
dórsson, yfirsetjari. Listi Sjálf-
stjórnar: Sig. Jónsson, kennari,
Pétur Halldórsson, bóksali, Páll
Gíslason, kaupm., Þórður Bjarna-
son, stórkaupm., Þorsteinn Þor-
steinsson, hagstofustjóri óg Sveinn
Hjartarson bakari.
Fyrsti fundur
bæjarstjórnarinnar hér eftir kosn-
ingarnar var haldinn síðastliðinn
miðvikudag. Setti bæjarfógeti fund-
inn og bauö hina nýju fulltrúa
velkomna og æskti góðrar sam-
vinnu framvegis. í fjárhagsneínd
voru kosnir, auk bæjarfógeta, sem
er sjálfkjörinn, Sigurður Jónsson
og Jón Jónsson, með hlutkesti
milli hans og St. Th. Jónssonar.
Fasteignanefnd: Sigurður Jóns-
son, Jón Jónsson, Eyjólfnr Jóns-
son. Fátækranefnd: Bæjarfógeti,
(sjálfkjörinn), Benedikt Jónasson,
Sveinn Árnasson og Einar Methú-
salemsson. Byggingarnefnd: Bæjar-
fógeti og Slökviliðsstjóri (báðir
sjálfkjörnir): St. Th. Jónsson og
Eyjólfur Jónsson — utan bæjar-
stjórnar: Stefán Runólfsson og
Jóhann Hansson. Veganefnd: Ein-
ar Methúsalemsson, Benedikt Jón-
asson og Sigurður Jónsson.
Brunamálanefnd: Slökkviliðsstjóri
Sólar, bætir, saumar skó
sumar jafnt og vetur,
fáir munu finnast þó
fljótvirkari en
Pétur
Býður nokkur betur?
og bæjarfógeti (sjálfkjörnir), Gest-
ur Jóhannsson, EinarMethúsalems-
son og Jón Jónsson. í rafstöð-
varnefnd var endurkosinn Sigurjón
Jóhannsson. Sjúkrahússnefnd: Hér-
aðslæknir (sjálfkjörinn), Karl Finn-
bogason og Gestur Jóhannsson.
Bókasafnsnefnd: Karl Finnbogason
og Sigurður Jónsson. Skattanefnd:
Eyjólfur Jónsson og Sigurður
Jónsson. Einn maður var kosinn
í Sóttvarnarnefnd og kosningu
hlaut Jón Jónsson. Ellistyrktar-
sjóðsnefnd: Jón Jónsson, Sveinn
Árnason og Einar Methúsalems-
son. Alþingiskjörskrárn.: Gestur
Jóhannsson og Benedikt Jónasson.
Síðan var tekið fyrir útsvars-
kærumál. Hafði H. Schlesch cand.
pharm. kært útsvarsitt. Var nokkuð
deilt um málið, en útsvarið síðan
lækkað úr 225 oían í 200. Þá
kom Karl Finnbogason með þá
tillögu að skipa nefnd til næsta
fundar, til þess að athuga, hvort
eigi væri tiltækilegt að bærinn
keypti allmikið af kólum nú þegar,
þar eð talið væri full-víst, að kol
hækkuðu að miklum mun innan
skams. Voru kosnir: Jón Jónsson,
Karl Finnbogason og St. Th.
Jónsson. Þá kom Einar Methú-
salemsson með tillögu um að
samin væru íundarsköp handa
bæjarstjórninni. Var tillagan
samþykt og kosin þriggja manna
nefnd. Kosningu hlutu: Einar Met-
húsalemsson, Jón Jónsson, Karl
Finnbogason. Auk þessara mála
var rætt um hátíðahöldin, í til-
et'ni af 25 ára afmæli bæjarins.
Prentsmiðja Austurlands.