Austurland


Austurland - 16.10.1920, Side 4

Austurland - 16.10.1920, Side 4
4 AUSTURLAND 35 tonn með 44 ha. Avancevél er t'l sölu. SkipiO er í góðu standl að öllu leyti. Veið- aríæri íyigja eí vill. Allar nánari upppiýsingar gefur Sveinn Árnason, Seyðisfirði. Uppboðsauglýsing. Samkvæmt beiðni Jóns Ásbjörnssonar lögfræðings í Reykjavík, fyr- ir hönd útflutningsnefndarinnar, verður opinbert uppboð haldið hér á Seyðisfirði miðvikudaginn 10. nóvember næstkomandi, á circa 460 skpd. af saltfiski, eign firmans Helgi Zoéga & Co. í Reykjavík, en út- flutningsnefndin hefur fisk þenna að handveði. Fiskurinn er geymdur hér á Seyðisfirði hjá H/f. „Framtíðin“, H/f. Sameinuðu íslenzku verzl- unum og kaupmanni Wathne. Uppboðið hefst nefndan dag kl. 12 á hádegi hér á bæjarfógeta- skrifstofunni og verða söluskilmálar þá birtir. Skrifstofu bæjarfógeta Seyðisfjarðar, 8. október 1920. Ari Arnalds. AUSTURLAND kemur út vikulega. Verö 5 kr. árgangurinn. Qjalddagi 1. júlí Ritstjóri, ábyrgðar- og afgreiðslu- maður Quðm. Q. Hagalín. Sími 6 c. Innheimtumaður Einar Blandon, kaupmaður. Prentsmiðja Austurlands. Auglýsing. Jörðin Mýrnes í Eiðaþinghá í Suður-Múlasýslu er laus til ábúðar á næstkomandi vori, 3. maí 1921. Lysthafendur snúi sér til undirritaðs fyrir 31. desember þ. á. Eyjólfsstöðum á Völlum, 8. október 1920. F. h. eiganda jaröarinnar Páls Stefánssonar Kristján Sigmundsson. íbúðarhúsið Borgarholl er til sölu. Stærð 10x8 álnir, portbygt. Upplýsingar gefur Sigurður Jónsson, Brimnesi. OSRAM lampinn er áreiðan- lega bezti lampinn. — Fœst hjá Indr. Helgasyni Seyðisf. RAFMAQ NSTOÐVA Uppboðsauglýsing. Samkvæmt kröfu málafærslumanns, Jóns Ásbjörnssonar í Reykja- vik, fyrir hönd útflutningsnefndarinnar, verður opinbert uppboð sett og haldið á Eskifirði 10. nóvember næstkomandi kl. 1 e. hádegi og verða þá seld 250 til 260 skpd. af fiski, eign firmans Helga Zoéga & Co. Reykjavík, en sem geymdur er hjá Sameinuðu ísl. verzlununum Eskifirði og kaupmönnunum Andr. Figved og G. Jóhannessyni, Eski- firði. Fisk þenna hefur útflutningsnefndin að handveði fyrir víxilskuld nefnds firma. — Söluskilmálar verða birtir á undan uppboðinu. Skrifstofu Suður-Múlasýslu, 11. október 1920. Sigurjón Markússon. Sérverzlun með brauð, sœlgœti og tóbak Þar eru bezt kaup á tóbaki. Sveinn Árnason. Þann er ég lánaði legghlífar mínar, bið ég vinsamlegast að skila þeim aftur sem fyrst. Karl Jóhannsson. Kom móða óskast keypt. R. v. á. Vátryggingar Brunatryggingar Sjóvátryggingar Stríðsvátryggingar Sigurður Jónsson Sfmi 2 og 52. hennar var nú aftur kominn leik- anndi léttur roði og hárið hafði nú á ný náð fullri fegurð. Leit Þorvaldur formaður til hennar, þá er hann hélt að fáir tækju eftir. En Jakob Azeitti augnaráði hans eftirtekt og vakti það honum eigi gremju eða afbrýðisemi, honum þótti gaman að því, að svo fallegur maður sem Þorvald- ur liti hýru auga til Quðrúnar. Skírnarathöfnin fór svo fram sem venja er til. Qrét drengurinn sáran, er presturinn jós vatni á höfuð honum. Jakob fölnaði lítið eitt og lá við að augnaráðið væri gremjulegt, er hann leit á prest- inn. Honum fanst auðsýnilega ó- þarfi að vera svona óvæginn við blessaðan drenginn. Að lokinni skírnarathöfninni tóku gestirnir tal með sér. Jakob hélt á telpu Guðrúnar, en dreng- urinn var lagður i vögguna. Quð- rún fór til eldhúss og tók að hugsa um gæði þau, er veita skyldi gestunum. Næstur dyrum sat Þorvaldur formaður. Guðrún lagði dúk á borð og bar inn bolla. Er hún kom með fyrsta brauðdiskinn, rak hún fótinn í þröskuldinn og hefði fallið, ef Þorvaldur hefði ekki gripið um hana. En brauðið hrundi á gólfið. Guðrún hugðist að tína það upp, en Þorvaldur bauðst til þess, og áður en hún gat áttað sig, var hann kominn á fjóra fætur inn undir borðið. Hló þá Quðrún og fór fram. Er Þorvaldur hafði lok- ið við að tína brauðið upp á diskinn, gekk hann með hann fram í eldhús. Innan stundar komu þau inn, Guðrún og hann, með sinn brauðdiskinn hvort. Skömmu síðar var sezt að borðum í stof- unni. Síðla aftans héldu gestirnir heim á leið og fylgdi Jakob þeim úr garði. Skamt frá húsi Jakobs skildu prestshjónin við hópinn, en Jakob hélt áfram með félögum sínum. Hann var glaður og ör- uggur og tók gamni vel, og áður en hann vissi af, var hann kom- inn langt inn í þorp. — Hvar er Þorvaldur? sagði hann alt í einu. — Þorvaldur, hann fór með okkur út. Kannske hann hafi far- ið eitthvað á leið með prests- hjónunum, sagði einn sjómann- anna. Og Jakob fanst það rétt líklegt. Og nú fanst honum, að í raun og veru hefði hann verið ókurteis, að bjóða ekki prests- hjónunum fylgd sína. Hann Þor- valdur, sá kunni sig þó dálítiö betur. Jakob gekk hljóður heim á leið. Honum leið undarlega vel. Veðr- ið var gott, blærinn þýður og skógaranganin ofan úr hlíðinni svæfandi og höfug. Nóttin vafði um hann rökkurslæðu sinni þétt og hlýtt, ástrík sem móðir. Sær- inn lék sér létt og hljótt við fjöru- sandinn, fjöllin gnæfðu dökk og þunglyndisleg yfir kaupstaðinn og var sem húsin í brekkunni hjúfr- uðu sig að brjóstum þeirra. Við og við heyrðust fuglaraddir rjúfa næturkyrðina, ýmist angurblíðar og óróar, ofan úr móunum, eða hásar og ósamhljóma, utan af sjónum. Og tunglið skauzt fram undan hnjúk, rautt, hátíðlegt og hægfara. Jakob gekk hægt eftir malarkambinum. Mölin glamraði undir fólum hans og hljóðið stygði öðruhvoru sendlinga, er hlupu hljóðlaust milli steinanna, er voru á víð og dreif í sandinum fram við sjóinn. Hann reyndi ekkert til þess að gera sér grein fyrir á- hrifum þeim, sem streymdu inr. í sál hans, en lét berast þangað, sem fætur hans báru hann — án hans eigin vilja eða vitundar. Sál hans var eins og léttur hnoðri er blærinn vaggaði á vængjum sér. Frh.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.