Austurland


Austurland - 23.10.1920, Page 1

Austurland - 23.10.1920, Page 1
* Askorun. Hér með er skorað á alla, nœr og fjær, sem Iiafa fengið blaðið „Austurland“ og ekki greitt það, að senda andvirði blaðs- ins hið allra fyrsta til innheimtumanns Einars Blandou, Seyðisfirði. Vinnan. Er vér lítum á þroskastig mann- anna, þá sjáum vér það, að því ofar sem þeir standa á menning- arbrautinni, því meira er vinnan metin. Villimönnum þykir skömm að allri Ifkamlegri vinnu, annari en vígaferlum og dýraveiðum, hitt láta þeir lítilmagnann, sem þeir geta ráðið yfir, konur sínar, vinna. Svo var þessu og farið hjá for- feðrum vorum. Þeir höfðu þræla til vinnunnar. En er þroskinn verð- ur meiri, kemst vinnan í meiri met. Má sjá það á sögum vorum, að þá ef%þær voru ritaðar, hefur all-mikil virðing verið borin fyrir vinnunni. Má t. d. sjá það á um- sögn Egilssögu um Skallagrím Kveldúlfsson. Má og sjá á sögun- um, að hinir tignustu menn gengu að allri vinnu. Og nú á tímum er það viður- kent, að vinnan er það, sem mest göfgar manninn. Vel lokið starf gefur mesta sanna gleði. En þó að þetta sé alment viðurkent í orði, þá er svo sem það sé síð- ur á borði'. Jafnaðarmenn halda því fram, að þeir vilji koma sem mestum jöfnuði á í mannfélaginu og að þeir vilji því til vegar koma, að hver fái því starfi að gegna, sem hann hefur tilhneigingu til og nýt- ur mests yndis af. Er þetta gott og blessað og skyldi öllum gott þykja, að þetta mætti takast. — En þá er úr því að skera, hvað hverjum bezt hentar. Margir eru með því marki brend- ir, að una illa sínu. Þykja alt annað betra en það, sem þeir hafa að gera. Einkum er það þó algengt, að þeir, sem vinna líkam- lega vinnu, halda þá fullsæla, sem stunda önnur störf, halda þau erfiðislaus og agnúasmá. — Það er létt verk að halda á penna, munu margir hugsa. En sá veit gerst er reynir og munu þeir mennirnir, er pennastörfin inna af hendi, eigi síður ganga þreytt- ir til hvílu sinnar en hinir. And- leg vinna hefur véikjandi áhrif á líkamann, og ef hún er fábreytt og einhliða, þá á sálina líka. Þá er það og algengur kvilli, að öf- unda eignamenn af eignum þeirra. En eigi er minni vandi að gæta fengins fjár en afla þess og mun sá hinn gamli málsháttur sannur reynast. Sá, er gengur að hand- verki sínu, daglaunavinnu eða öðru slíku, verður laus við þung- ar og þreytandi áhyggjur, sem vinnuveitandinn verður að hafa. En hin eilífa öfund er alt af vak- andi, samanburðarhæfileiki mann- anna virðist alt af til reiðu, en ekki að sama skapi fullkominn eða sannsýnn. Jafnaðarmenskan brýnir það fyr- ir mönnum, að þola ekki rang- indi og fremja ekki rangindi. Eh sjaidan er minst á hið síðara. Hitt er alt af á lofti og í allra munni. En eigi hér að vera um verulegar þjóðfélagsbætur að ræða, þá er fyrsta skilyrðið, að gert sé alt til þess að fá mennina, bæði „æðri og lægri“ til þess að skilja hvað um er að ræða, hversu alt horfir við og hvers ber að taka tillit til. Hvert spor á þessarí braut ætti því að vera vandlega athug- að, ekkert orð óhugsað að vera talað, og ekkert verk, er af þessu hugsaða orði 1 eiddi ætti að vera fram kvæmt án nákvæmrar yfirvegunar. Eigi dugar því, að lítt þroskaðir og dómgreindarlitlir menn ráði því, hvar og hvenær sporin eru stígin. Andlega aflmiklir leiðtogar verða að meta hugsanirnar og orðin, áður en til framkvæmdanna kemur. Og einasta leiðin til þess, að hinir vitru menn fái ráðið, er sú að þroska fjöidann og vekja alhliða skilning hans á því, sem um er að ræða. Og fyrsta sporið, sem stígið verður til bless- unar á þeirri braut er það, að vekja sem mesta virðingu fyrir vinnunni, hver sem hún er. Því að ekkert starf er nokkrum manni falið svo lítilfjörlegt, að hann eigi með framkvæmd þess leggi stein í hina miklu byggingu þjóð- félagsins, annað tveggja til ills eða góðs, alt eftir því, hvort hann leysir starfið vel eða illa af hendi. Heróp tírhans á því eigi að vera: styttri vinnutími, meira kaup, heldur: vel unnið starf og virðing fyrir vinnunni. Þá fyrst verður hins með réttu krafist, þegar störf- in eru betur unnin en áður og af meiri skilningi. Ella bíða þjóð- félögin hnekki viö stytting vinnu- tímans og hækkað kaup, hnekki, sem þau geta eðlilega ekki þolað. En með þeirri stefnu, sem verka- lýðshreyfingin hefur nú á dögum, verður alt til þess, að gera verka- mennina kröfuharðari og óánægð- ari, sem aftur á hinn bóginn veldur því, að þeir vinna störf sín slælegar en áður. Og stytíri vinnutími, hækkað kaup og lakari vinna, hlýtur til þess að leiða, að allar lífsnauðsynjar verkamann- anna hækki í verði og hagur þjóðiélagsins versni. Því er það hin stærsta nauðsyn fyrir hina litlu þjóð vora, að hún taki sem hollasta og réttasta stefnu, er hún fer fyrir alvöru að tileinka sér hina erlendu strauma á þjóð- félagssviðinu, er nú valda mestum byltingum og umbrotum í lífi stór- þjóðanna. Og mundi það nær sanni, að þeir, er kosið hafa sjálfa sig leiðtoga á þessu sviði, brýndu fyrir mönnum að afla sér sem mests skilnings á eðli og gildi vinnunnar á hinum ýmsu sviðum þjóðfélagsins, heldur en að róa að því öllum árum, að þjóð vor verði gripin af þeirri hreyfingu, er öllu vill bylta í einni svipan og útrýma allri skynsam- legri umhugsun og lifa í æsingu augnabliksins. ---- —4».. Trúin á annað líf. Lengi hefur trúin á annað líf verið einn aðalþátturinn í andlegu lífi mannanna. Að ýmsu hafa þeir hallast, unað illa fávizku og grip- ið því oftlega hinar fáránlegustu hugmyndir tveim höndum og trú- að á þær í blindni. Og eftir því hafa hugmyndirnar verið láfleyg- ari, sem mennirnir hafa staðið á lægra þroskastigi. En sammerkt hafa hinar æðri átt hinum í því, að jafnan hafa þær verið fullyrðingar, að mestu í lausu lofti bygðar. Hina óyggjandi, sannanlegu vissu, er engrar opinberunar þarf við, hef- ur skort. Og einmitt sakir þess, að menn hafa fundið það, að þessar hugmyndir þeirra máttu ekki við miklum olnbogaskotum efa og rækilegrar og rólegrar íhug- unar, þá hafa þeir þolað það ver en alt annað að þær væru rengd- ar. Og af slíku hafa hlotist hinar hryllilegustu styrjaldir og blóðsút- hellingar. Nú á hinum síðustu tímum hafa menn komið fram, er hyggjast að byggja fullyrðingar sínar, ekki á opinberun einni saman, án trygg- ingar, heldur vísindategum rann- sóknum. En áhuginn hefur verið jafn brennandi og trúin jafn sterk og áður, sem allur fjöldi manna hefur fest á þetta, ef hann annars hefur aðhylst það. En hvernig stendur á því, að mönnum er svona mikið kappsmál að fá að vita hvað tekur við hinummegin? Er það ekki þroskaleysi vort og þröngsýni? Ekki munu þeir vilja samþykkja það, sem kalla alla þá „efnishyggjumenn11, sem líta á líf- ið hérnámegin, sem hið eina, sem um sé að ræða. Og orðið „efnis- hyggjumaður" er í munni trú- mannanna að mestu hið sama og afglapi og lítt hugsandi mann- skepna. En er nú ekki unt að líta sem hugsjónamaður, göfugur og óeig- ingjarn hugsjónamaður, á þetta líf? Er ekki unt að hugsa sér heiminn, sem lifandi heild, er haldi áfram að lifa og starfa þótt ein- staklingurinn deyi, og hugsa sér sjálfa oss, sem einstaklinga í þess- ari heild, einstaklinga, er með lífi sínu geti miklu til vegar komið í þá átt, að bæta og fullkomna heiminn, gera lítið eitt léttari spor þeirra, sem eiga að ganga leiðina að oss látnum? Og þótt vér lif- um eigi,_ sem sjálfstæðar persón- ur, að þá lifum vér þó og störfum í heildinni eftir dauða vorn? Og ætti þessi skoðun eigi að geta verið jafn göfug og bætandi, eins og þær, sem halda fram lífi ein- staklingsins eftir dauðann? Jú, vissulega, þar eð þeir, sem hana aðhyltust, lifðu göfgu og fögru lífi, eingöngu með það fyrir augum, að gera heildinni gagn, en hinir, sem af völdum trúarinnar á ann- að líf væru hreinlífir menn og skylduræknir, gerðu það af ótta við sín eigin afdrif annars heims. Trúin á annaö líf virðist því alls ekki nauðsynleg til þess að menn geti verið göfgir og góðir. Ein- mitt hún stuðlar að því, að menn líti, með tilliti til þessa lífs og þess ímyndaða annars lífs, fyrst og fremst á sína eigin velferð. Mennirnir finna vanmátt sinn og vilja fá traust í hverskyns þraut,

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.