Austurland


Austurland - 09.04.1921, Blaðsíða 2

Austurland - 09.04.1921, Blaðsíða 2
2 MJJSTURLAND SEYÐISFIRÐI hafa fyrirliggjandi: Kaffi óbrent Epli, þurkuð — brent Aprikosur, þurkaðar — og malað Oma-smjöriíki Export Bankabygg Rúsínur Baunir, heilar & hálfar Sveskjur Kex Alt nýkomnar vörur. Sagogrjón Te Þakpappn Panelpappa Grænsápu Stangasápu starf þeirra iáti þeim bezt, en eigi veit eg betur en ailir þeir menn séu taldir nýtir menn og vamm- lausir og færi betur að Tímamenn rösuðu eigi fremur um ráð fram eða væru menn eigi ósanngjarnari en for maður skólanefndar þeirrar er frá fór. Um þingmenskuna má víst það segja, að ekki virðist tekið að bóla á þingmannsefnum enn þá hér í bænum. En góð er hin óbeina yfirlýsing „Tímans“ um frámboð Karls Finnbogasonar, því aðminsta kosti í mínum augum bætir það ekki fyrir neinum kennara eða skólastjóra, að hann fáist mikið við stjórnmál eða þingmensku og hef ég fært að því máli rök. Fræðslumálastjórnin getur svar- að til síns máls og er ekki ólík- lagt að satt sé það sem heyrst hefur, að síra Tryggva Þórhalls- syni hafi brugðiö, er fræðslumála- stjóri sagði honum það álit sitt, að hann bæri ekki skyn á skóla- mál Seyðfirðinga. Enda kvað þá klerkur hafa sagt sig saklausan af greininni. Guðni. G. Hagalín. Sveitahéruðln og iæknarnir. Niðurl. Hvað sem þessu líður, sem vænt- aniega stendur til bóta hér á landi, hafi kjör íslenzku sveitalæknanna batnað stórum með nýju launalög- unum. Þá er eftir að athuga framavon- ina, sem eflaust dregur margan ungan lækm utan, hvernig skyldi henni líða hjá læknunum okkar, sem búnir eru að vera nokkur ár í sveitahéruðunum? Er hún svo blómleg, að hún megni að ná ungu læknunum í auðu héröðin? Henni virðist vera búið að koma fyrir kattarnef hjá mörgum, og skal hér gerð nokkur grein fyrir því, sök- um þess, að það mun eiga drýgst- an þáttinn í auðn læknishéraðanna eins og nú standa sakir. Veit- ingavaldið hér á landi, landlæknir og forsætisráðherra, virða þá iækna úr sveitahéruðunum að vettugi, sem sækja um önnur skárri em- bætti, sem losna og þó er verið að auglýsa iaus. Það er skemst á að minnast, hvernig farið var að með veitingu ísafjarðarhéraðs fyrir fáum árum, en því miður eru dæmin ekki einstök, heldur mörg. Mjög var það eðlilegt, þó að Vil- mundur Jónsson, héraðslæknir vildi það fremur en eitthvert út- kjálkahérað, en á hinn bóginn var afar óhyggilegt og grunnfærnis- legt af veitingavaldinu, að veita honum það, því til þess varð það að traðka á rétti (ef hægt er að tala um það í þessu sambandi hér á landi), eldri, dugandi lækna, og gaf þar með yngri læknunum fdr- dsemið, með að þurfa alls eigi að fara í erfiðari og strjálbýlli hér- uðin; þeir geta fengið þau þegar þeir koma frá prófborðinu, ef þau eru laus, og hví skyldu þeir ekki ganga á það lagið? En þegar héruð af betri endanum eru ekkl lengur til handa þeim, vilja þeir ekki verða héraðslæknar á íslandi upp á þá kosti, að fara í sveita- héruðin og þrælka þar æfilangt, fara því utan og setjast þar að. Það er líka mjög eðlilegt. Skamt er síðan að dæmi kom fyrir, sem sýnir áþreifanlega, hve ógurlega rotið veitíngavaldið er, og skeytingalaust um hag lækn- ishéraðanna, að því leyti að þangað fáist læknar, þegar það er að veita læknisembætti. Sigvaldi Kaldalóns, héraðslækn- ir í Nauteyrarhéraði og Guðm. Þorsteinsson, læknir í Hróafstungu- héraði, sóttn síðastl. sumar um Hólshérað (Bolungarvík), en hvor- ugur fékk; það var veitt ungum lækni, sem hafði verið þar aður búsettur í 1—2 ár. Báðir þessir héraðslæknar höfðu þó áður farið í læknishéruð, sem búin voru að standa árum saman læknislaus, af því þau hafa þótt afarerfið til ferða- laga og strjálbýlis. Sigvaldi Kaldalóns hefur gegnt Nauteyrarhéraði í 11 ár, og hefur verið talinn mjög dugandi og sam- vizkusamur læknir, en hann er orðinn heilsulítill til að gagna þessu héraði, og má nærri geta, að hérað eins og Hólshérað væri honum eftirsóknarvert, því þar er stórt þorp og ferðalög því nær engin. Auðvitað var honum ekki veitt héraðið, og þetta eru þakk- irnar, sem hann fær af hálfu land- læknis og stjórnar fyrir að hafa farið í hérað, sem enginn annar læknir vildi árin áður, og gegnt því dyggiiega í rúman áratug, þakkirnar þessar, að verða minna metinn en læknirinn sem þar var fyrir, og hafði áður verið héraðs- læknir í 1—2 ár í Reykjarfjarðar- héraði, en sagði því embætti þá af sér sakir erfiðleika. Hann fær Hólshérað fyrir að flýja erfiðleika Reykjarfjarðar, en Sigvaldi er veg- inn og léttvægur fundinn fyrir að standa og stríða í erfiðleikum Nauteyrarhéraðs í fullan áratug Er ofsagt að veitingavaldið sé óg- urlega rotið? Það er ekki of mikið sagt þó veitingavaldið með þessu og því líku háttalagi hafi gert marga hér- aðslækna úrkula vonar um að komast nokkurntíma úr þeim hér- uðum, sem þeir hafa einu sinni lent í. Yngri læknunum mun eigi þykja þetta agn girnilegt, og setj- ast að erlendis. Alþjóð manna finst það sann- gjarnt, að þeir læknar, sem fyrst lenda í sveitahéruðum og standa þar vel og dyggilega í stöðu sinni ættu að vissu leyti forgangsrétt að betri embættum síðar, þegar þau losna. Væri þeirri reglu fylgt, myndu yngri læknarnir fyrst í stað umsvifalaust sækja um sveitahér- uðin, ílengjast þar nokkur ár, en meðan þeir hafa ekki von um annað en æfilanga þrælkun þar, munu þeir eðlilega forðast þau, og hvernig fer svo þegar þeir lækn- ar hætta starfi, sem nú gegna ýms- um af þessum lélegri sveiíahéruð- um? Hvað skyldu héruðin þá mörg verða læknislaus, ef veitinga- valdið heldur svona stefnu og fálmi áfram lengur? Hvað af veitingavaldinu skyldi hafa ráðið veitingu Hólshéraðs s. 1. haust? Mun það hafa verið landlæknir eða forsætisráðherra, eða er þar samansöfnuð grunn- hygni þeirra, óframsýni og óvit, sem þar hefur vertð að ráðum? Það eru örugg ráð sem bent hefur verið á, en eðlilega koma þau aldrei að haldi, nema reynd verði. Veitingavaldið þarf að átta sig á því, til hvers þetta leiðir, og taki það sig ekki á, verður þjóð- in að koma því á annara hendur, sem færari eru með það að fara, eða taka það sjálf í sínar hendur og kjósa læknana, þó að prestakosn- ingarnar spani lítt upp í mörgum löngun til þess, en öllu grárra yrðu læknar eigi leiknir af kjós- endum en veitingavaldi síðustu ára Sú regla, að læknar eigi einhver laun vís, önnur en föstu launin og jafnvel fasta bústaði, fyrir dygga þjónustu í erfiðum sveitahéröðum, má til með að verða föst og ó- haggandi. Þetta má ekki vera háð pólitísku kálfabrölti eða per- sónulegum geðþótta veitingavalds- ins, nei, það þarf að fara svo að, að læknar geti óhykað treyst og reitt sig á réttlæti og sanngirni í embættisveitingum. Hvenær verð- ur það? Verður það tíð núver- andi landlæknis og stjómar? Þeir hafa sennilega ekki fengið kodda undir höfuðið hjá veitinga- valdinu, þeir læknar, sem staðið hafa í striti og erfiði sveitahérað- anga s. I. áratug og meir, en þeir sem gerðust verkþrælar annars UMBÚÐAPAPPI'R fæst keyptur í Prentsmiðju Austurlands. Reiðhestur til sölu. Leirljós hryssa, 9 vetra gömul, gott reiðhross, er til sölu hjá Helg* Jóhannssyni, Krossstekk Mjóafirðl. INNANHÚSPAPPI veggfóðúr og ýmsar tegundir af málningavörum til sölu hjá JÓNI fi. JÖNASSYNl, niálara. Hani óskast keyptur. R. v. á. TVÍRITUNARBÆKUR fást eftir pöntun prent- aðar og h e f t a r í PIENTSMISJIIAUSTURLANDS húsbónda hér á árunum, fengu hann þó, eftir þvf sem meistara Jóni farast orð. Vér skulum vona, að sjálit veitingavaldið verði eigi verra, og sjái þá sæng upp breidda, sem þeir með þessu búa landinu tíl sveita. En þjóðin, sem farin er að sjá hvert stefnir í þessu efni, mun eflaust taka í taumana, áður farið er lengra, því hún er ekki svo merglaus enn, að hún geti það ekki og geri. Db. Símskeyti frá fréttaritM-a AwtturlwMh. Rvík 7/1. Allsherjarkolaverkfall í Englandi. Flutnings- og járnbrautamenn taka þátt í verkfallinu. Enska stjórnin hefur gefiö út bráða- birgðalög, sem heimila henni að leggja eignarhald á kolanámurj hesta, vagna, lýsingartæki og skipaskurði. Sömuleiðis heimild til að hafa eftirlit á öllum vegum, takmarka skipagöngur og banna skipum að fara úr höfn. Enn* fremur heimild til að hafa eftirlit með uppskipun vara og vald til að kveða upp verð á gasi, kolum, vatni, rafmagni og bensíni. Bönn- uð sala á skotvopnum. Stjórnín hafi rétt til að nota hermenn til allra nauðsynjaverka, Lögreglulið- ið aukið. Fjalla-Eyvindur leikinn í kvöld í 50. sinn. í tilefni af því flytur prófessor Nordal erindi um leik-

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.