Austurland - 02.07.1921, Blaðsíða 3
3
Skósmíðavinnustoía
Sigurgísla Jónssonar, Seyðisí.
er af öllum, sem til þííkkja, tví-
mælalaust talin bezta skósmíðavinnu-
stofa á Austurlandi. - Leysir fljótt
og vel af hendi allar aðgerðir á
skófatnaði. — Býr til nýjan skófatn-
að eftir máli. He.fur ávalt fyrirliggj-
andi nægar birgðir af öllu verkefni
tilheyrandi iðninni.
Handunninn skófatnaður er beztur.
bókum frentur, er eg hef fengiö
nýlega, og einmitt fyrir það,
hversu þörfin fyrir slíka bók er
tilfinnanleg og bókin Ijóst og
greinilega samin. Um rækilegan
og fræðilegan Jóm getur eigi ver-
ið að tala. Til þess þyrfti eg að
hafa jafnhliða þekkingu höfundi
bókarinnar, sem er sérfræðingur á
þessu sviði. En skyldu tel eg að
vekja á bókinni sem almennasta
eftirtekt, svo að hún verði keypt
og lesin.
Fyrst er formáli, þar sem höf-
undur skýrir frá tilgangi sínum
og skilningi á verkinu. Þá er
skýring setningafræðilegra hugtaka.
Er það kafli, sem gefur mjög svo
ljóst yfirlit og skýran skilning á
eðli þess er síðar kemur. Þá er
inngangur, þar sem gerð er grein
fyrir mun á lærðum $.tíl og al-
þýðustíl. Eru þar sýndir í stuttu
máli kostir þeir, er alþýðustíllinn
hefur fram yfir lærða stílinn og
færð rök að því, hvers vegna höf-
undur tekur hann aðallega til
meðferöar. Þá er kafli um
frumlag og umsögn, 2. Brottfall
setningarhluta, 3. Notkun greinis,
4. Lýsingarorð, 5. Samræmi setn-
ingahluta, 6. Fallbeying, 7. For-
nöfn, 8. Miðmynd og þolmynd
sagna, 9. Nafnháttur, 10. Hluttaks-
orð, 11. Notkun hátta og tíða í
aðalsetningu, 12, Aukasetningar,
13. Notkun hátta og tíða í auká-
setningu, 14. Röcl oröa og setn-
inga, 15. Nokkur stnærri atriði.
Bókin er 279 + XIV síður og
framsetning öll hin greinilegasta,
sem verður á kosið. Fjöldi sýnis-
horna úr nýislenzkum úrvais stíl
er til færður í bókinni. Sturidum
eru menn varaðir við ýmsu því,
sem óleyfilegt er í rithætti, en
full lítið er samt að því gert. Sem
fræðirit má bókin teljast mjög
skemtileg, enda setningafræðin
eitthvert skemtilegasta atriði mál-
fræðinnar, þar eð þar þarf glögg-
an skilning og greinargerð á
hverju einu.
Efalaust hefur samning bókar
þessarar kostað höfundinn mikið
starf og mikið þrek og nákvæmni.
Og hann mun glaður mega líta á
verk sitt, þar eð eigi verður það
vegið eða metið, að hve miklu
gagni það má verða íslenzkri
tungu framvegis. Og vonandi er
að íslenzka þjóðin þakki honum
það svo sem vert er. Og þá fyrst
og fremst með því aö hagnýta sér
sem bezt bók hans.
O. G. H.
\USTURLAND
Eftir
Johannes Jorgensen.
Þegar haustar að, glitrar lauf
villivínviðarins í görðunum, þar
sem það fellur eins og blóðrautt,
slegið hár frá greinum risatrjánna.
Þegar ræktaði vínviðurinn ber
rauðar, þroskaðar vínþrúgur, þá
ber villivínviðurinn rauð blöð.
Sagt er að villivínviðurinn hafi
eitt sinn vertð ung og ávaxtarík
grein á fÖgrum vínviði, sem óx
upp með suðurhliðinni á rimla-
girðingu einni. Fuglar fléttuðu
hreiöur sín í limi hans, sólin glit-
aði roðnandi berin og fylti þau
sætum safa, um fagrar tunglskins-
nætur vökvaði mild og hrein
döggin jiau, svo að þau heilsuðu
dagrenningunni glitrandi björt og
fögur.
En villivínviðurinn undi ekki
'lífi því, er frá alda öðli hafði
verið vínviðnum áskapað. Hann
teygði vafningsþræðina út yfir
rimiana, og stilkarnir urðu svo
langir, að þeir gátu hvorki borið
blóm né ávöxt. En þessi uppreist-
argjarni jaröarrgróður fékst ekki
minstu vitund um það'— hann
sagðist sjálfur vilja njóta alls
hins góða af lífi sínu — hann
kærði sig ekki um að leggja.neitt
í sölurnar fyrir aðra og kvaðst
ekkert hirða um það, hvort menn-
irnir fengju fleiri eða færri, betri
eða verri vínber. „Hver hefur
sagt“, mælti vilti vínviðurinn, „að
mér sé að skyldu gert að þjóna
mannirium? Hvaða rétt hefur
hann til að kalla sig herra jarð-
arinnar og krefjast ávaxta hennar?
Ég kæri mig ekki um að þjóna
manninum — ég vil ekki bera
honum ávöxt, ég vil vagga mér
hátt uppi á múrbrúninni, langt
burt frá oki þessara rimla, ég
kæri mig ekki um að láta harð-
stjórann binda mig og sníða mig
eftir sínum geðþótta. Ég vil að
eins lifa frjáls og vaxa í friði
undir heiðum himni guðs".
Slíkar og þessu líkar ræður hélt
villivínviðurinn yfir sjálfum sér
og losnaði að lokum alveg við
móðurjurtina. Einn góðan veður-
dag sáu menn hann hverfa upp
af múrbrúninni og festa nýjar
rætur í þakrifum og múrsprung-
um, hinum megin múrsins. Qamli
vínviðurinn gætti sín, og eigi leið
á löngu áður en sá, er að heim-
an fór, var alveg gleymdur.
Viilivínviðurinn hefur síðan far-
ið um víða veröld, Hann vex fljótt
og stöngull og blöð eru þroska-
mikil. En ávöxt getur hann ekki
borið.
Og á haustin, þegar uppskeru-
tíminn er kominn, þegar blá og
guliingræn vínberin eru tínd og
stórar körfur eru fyltar ávöxtum
vínviðarins göfga, þá blikar blóð-
rauður villlvínviðurinn og blöð
hans.
Deyjandi skart hans gleður
manninn, sem hann vill eigi unna
berjanna sinna. Og af ófrjórri
egurð hans læra mennirnir það,
að sá, sem slítur fornar rætur,
ber engan ávöxt.
Símskeyti
frá
fréttaritara Austurlands.
Rvík *B/e.
Aðalfundur Eitnskipafélagsins
var haldinn t dag, fundarstjóri var
kosinn Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeti og fundarskrifari Lárus
Jóhannesson. Samþykt að greiða
hluthöfum 10%, afskrifað af félags-
eignum 123 þúsund, lagt í vara-
sjóð 275 þúsund, eftirlaunasjóður
fékk 20 þúsund og berklahæli
Norðlendinga voru gefin lOþúsund.
Stjórnarkosning: Pétur Ólafsson,
Hallgrímur Benediktsson, Halldór
Þorsteinsson og Árni Eggertsson.
Konungsskipin eru komin nálægt
Reykjarnesi. Klukkan 10 á morgun
stígur konungur á land.
Rvík 2S/6.
Konungsskipin, Valkyrien, Heim-
dal og Fylla komu kl. ellefu í
gærkvöld, sigldu norðan við Engey
inn í Sund, lágu þar í nótt. (
morgun héldu þau út sömu leið
og í gærkvöld og komu svo inn
vanalega skipaleið, vörpuðu akker-
um á ytri höfn kl. 9xjz. Forsætis-
ráðherra fór um borð í konungs-
skipið. Konungur, drottning og
fylgdarsveit þeirra stigu á land kl.
10 við steinbryggjuna og skutu þá
herskipin fallbyssuskotum. Forsæt-
isráðherra bauð konungshjónin
velkomin, Hvítklæddar ungmeyjar
stráðu blómum fyrir konungshjón-
in, þegar þau gengu upp bryggj-
una. lnnan við heiðursbogann í
Pósthússtræti, bauð borgarstjóri
og bæjarstjórn konungshjónin vel-
komin, þá var gengið til bústað-
ar konungs í Mentaskólanum. Kl.
12 var konungur við messu í dóm-
kirkjunni, biskup predikaði á ís-
lenzku. Kl. 2 hófst móttökuhátíö
í Alþingishúsinu, voru þar sungin
hátíðaljóð eftir Þorstein Qíslason.
Konungur talaði af svölum Al-
þingishússins kl. sjöíkvöld. Veizla
Alþingis verður haldin í lðnó, for-
seti sameinas þings býður gestina
velkomna. Þór og 60 vélbátar
sigldu til móts við konungsskipin
við Vestmannaeyjar í gær.
Rvík 27/«.
Þegar borgarstjóri ávarpaði kon-
ungshjónin í gærmorgun, svaraði
konungur með nokkrum hlýjum
orðum og mælti á íslenzku. Kon-
ungsveizluna í Iðnaðarmannahús-
inu í gærkvöldi sátu um 300
manns. Forseti sameinaðs þings
bauð gestina velkomna og mælti
fyrir minni konungs, drotningar
og prinsanna og svaraði konung-
ur þeirri ræðu vel og skörulega.
Sendiherra, Sveinn Björnsson,
mælti fyrir minni Danmerkur,
biskup fyrir minni Suður-Jótlands.
Sungin voru hátíðaljóð eftir Hann-
es Blöndal. Veizlunni lokið klukk-
an 10xli. Rafmagnsstöð Reykja-
víkur var opnuð klukkan að
ganga 9 í morgun. Borgarstjóri
bauð ýmsum að vera við athöfn-
ina. Konungur setti aðra vélina
af stað en drotningin hina. Borg-'
arstjóri sagði sögu fyrirtækisins í
fám orðum, konungur mælti nokk-
ur orð í sambandi við opnunina.
Að skilnaði afhenti borgarstjóri
konungi silfurbikar af rafmagns-
vél, haglega gerðan. Klukkan 10
var ríkisráðsfundur, skrifaði kon-
ungur þar undir lög Alþingis. Kl.
1 var boð hjá konungi og voru
þar ráðherrar, forsetar Alþingis
og hæstaréttardómarar og fleiri.
Klukkan 3 var stúdentafögnuður;
ræður fluttu Quðm. Finnbogason
og Alexander Jóhannesson, sung-
ið kvæði eftir Einar Benediktsson.
Einaf flutti konungi einnig drápu.
Klukkan 5 heimsótti konungur
sendiherra Dana og klukkan 7
fór hann í boð til forsætisráð-
herra.
Rvík 28/b.
Bandaríkjablöð lýsa hispurslaust
yfir að þjóðin sé mótfallin endur-
nýjun samnings milli Japana og
Englendinga. Harding óskar að
Englendingar gefi Amerikumönn-
um opinbera yfirlýsingu um að
þeir láti afskiftalaust ef Kyrrahafs-
stríð yrði milli Ámerikumanna og
Japana. Grikkir hafa lýst yfir ófrið-
arástandi milli sín og Sovjet-Rúss-
lands, ástæðan sú, að Bolsivíkk-
ar styðji stjórn Mustafa Kemel
í Angora, og ljái herlið og skot-
færi. Lundúnafregn segir að fyrir
milligöngu Bretastjórnar séu byrj-
aðar nýjar samningaumleitanir
milli námueigenda og námuverka-
manna. Stærsta loftfar heimsins
var reynt í Lundúnum 25. þ. m.,
farþegar 48, getur flogið hvíldar
laust 5000 enskar mílur.
Rafmagnsstöð Reykjavíkur kost-
aði 2 milljónir og 800 þúsund kr.
Landbúnaðarsýningin var opnuð í
gærdag. í sunnudagsveizlunni af-
henti konungur forseta sameinaðs
þings íagurt skrautker að gjöf til
Alþingis, í veizlunni var drotning-
in í skautbúningi þeim, sem ís-
lenzkar konur gáfu henni. Kl. 9
í morgun fór konungur til Þing-
valla, ekið í bifreiðum, komið til
Þingvalla kl. 12, morgunverður kl.
1. Undir borðum flutti Matthías
Þórðarson þjóðmenjavörður er-
indi á dönsku um Þingvöll, kl. 4
glíma, kl. 6 hátíðahald að Lög-
bergi, kl. 8 miðdegiSverður í Val-
höll. Bezta veður.
Rvík 29/«.
Lundúnafregn segir að námu-
eigendur og verkamenn séu ásáttir
um bráðabirgðasamning. Byrjað
verður að vinna í námunum
mánudaginn 4/7- Útlit fyrir sam-
komulag í írsku deilunni. Tyrkir
hafa sigrað Qrikki í Litlu-Asíu.
Beskytteren tók 2 togara í land-
helgi, enskan og þýzkan. Stór-
stúkuþingið sett í dag. Þingvalla-
hátíðina í gær sóttu yfir 2000
manns, ágætis veður, logn og