Austurland - 02.07.1921, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
sólskin. Forsætisráðherra hélt tölu
á Lögbergi. Konungur svaraði
með stuttri ræðu. Guðm. Kr.
Guðmundss .voru veitt verðlaun fyr
ir fegurðarglímu, silfurbikar, sem
konungurinn afhenti honum. Kon-
ungur fór frá Þingvölium kl. 8 i
inorgun, kom að Geysi kl. 6.
Rvík so/s.
Lundúnafregn segir stjórnina
hafa veitt verkamönnum 10 milli-
ona sterlingspunda launalækkunar-
uppbót. Verkfalliru formlega lokið,
en yfirvofandi óeirðir verkamanna.
( Svíþjóð er viðbúið að verði
verkfall. Stofnað hefur verið til
þjóðhjálpar. Borg farin til Eng-
lands með fisk og lýsi. Ensk
skemtiskip væntanleg á sunnudag
með 500 farþega. Konungur er
við Geysi; fer þaðan á morgun.
Rvík x/7.
„Vísir“ bjrti nýlega einkaskeyti,
sem segir tollsamning milli Spán-
ar og íslands framlengdan um
stuttan tíma til bráðabirgða, og
að Englendingar leggi mikið kapp
á að tollur á fiski frá Bretlandi
og nýlendunum verði ekki hærri en
24 pesetar. Norskur ráðherra
er nýkominn til Barcelona til að
semja um fisktol! fyrir Noregs
hönd. Önnur fregn segir að stór-
þingið í Noregi hafi hækkað inn-
flutningstoll á vörum frá Spáni
um helming. í morgua birti „Morg-
unblaðið" svohljóðandi fregn:
„Stjórnin hefur fengið símskeyti,
sem segir að við getum ekki feng-
ið að halda áfram vægustu kjör-
um, sem tolllög Spánar heimta
á fiski héðan, ef ekki sé leyfður
hingað innflutningur spanskra
vína“.
Rvík 'h.
Bandaríkin vilja kaupa Azor-
eyjar af Portugal og koma þar
upp flotastöð. Grikkir hafa enn
þá beðið ósigur fyrir Tyrkjum.
Búist er við miklu verðfalli á
trjáviði í haust í Svíþjóð og Finn-
landi.
Konungur skoðaði Gullfoss í
gær. Ferðin hefur gengið að ósk-
um, komið að Selfossi í kvöld,
gist þar í nótt.
Utan að.
Fiskiveiðar.
Árið 1920 fiskuðu Skotar 130
milljón króna virði, en Englend-
voru það drýgri að virði fiskafla
þeirra var 425 milljónir. Samtals
hefur þá fiskast á Bretlandseyjum
555 milljóna virði. — Við Ný-
fundnaland eru einhver hin beztu
fiskimið í heimi. Fluttur er út
fiskur þaðan til Ítalíu, Spánar,
Brasilíu, Portúgal og Grikklands
Til Grikklands var lítið flutt með-
an á stríðinu stóð. Mest kaup-
ir Brasilía, eða um 10 milljón kg.
Nú hafa Nýfundnalandsmenn sam-
ið ný lög um verkun á saltfiski,
sölu hans og útflutning. Á með-
a) annars að meta fiskinn. Að
eins með vissum skilyrðum og
skuldbindingum fá menn að flytja
út fisk.
Neðansjávarskip.
Þýzkur verkfræðingur hefur eigi
alls fyrir löngu gert þær upp-
götvanir, er gera fært að smíða
neðansjávarskip af hvaða stærð
er vera skal. Meðal annars her-
skip alt að 9000 smálestum.
í Noregi.
var við síðasta manntal 2,646,306
manns. Er það all-miklu færra
en í Ðanmörku.
Afmæli.
Hinn 22. apríl, síðastliðinn átti
Rómaborg 2674 ára afmæli og
var þá mikið um dýrðir. Eldri
er þó enn þá ekki„ borgin eilífa
Munu margir kannast viö þjóð-
söguna um byggingu bennar.
Eldra fólkið ekki sízt úr Núma-
rímum.
Frá Færeyjum.
Fimtíu ár eru nú síöan Færey-
ingar sendu hér upp til íslands til
veiða fiskiskip í fyrsta sinn.
Rússar og Bretar.
í samningum þeim, sem Rúss-
ar og Bretar gerðu með sér í
vetur, var svo ákveðið, að Rúss-
ar yrðu að hætta hernaði og und-
irróðri í Asíu og öllu því öðru,
er orðið geti Bretum eða hags-
munum jieirra til tjóns. Ennfrem-
ur að þeir yrðu að hætta öllum
árásum á brezkar stofnanir og
gefi öllum brezkum þegnum taf-
arlaust heimfararleyfi og gjalda
þeim að fullu þann skaða, er þeir
kynnu að hafa orðið fyrir í styrj-
öldi rússnesku.
Bolsivikkar.
All-mikla eftirtekt vekja at-
kvæðagreiðslur jafnaðarmanna í
ýmsum löndum með eða móti
Bolsivikkum. Á Spáni var taliö
víst að þeir væru í miklum meiri
hluta, er fylgja vildu Bolsivikkum,
en reyndin varð sú, að 8808
greiddu atkvæði á móti, en 6025
með. í Frakklandi varð aftur á
móti meiri hlutinn með Bolsivikk-
um. Á Ítalíu unnu Bolsivikkaand-
stæðingar mikinn sigur, og í Sviss
reyndust 8000 með, en 250,000 á
móti. Veltur því á ýmsum endum
í löndunum, en takist Bolsivikk-
um í Rússlandi að friða landið
og sýna það, að stjórnarfyrir-
komulag þeirra gefist vel, mun
lítill efi á því, að þeim eykst
fylgi út í frá. Er eigi séð fyrir end-
ann á því í Bretlandi, hversu þar
kann að fara, þótt nú eigi að
heita hlé á kolaverkfallinu.
í Bandaríkjaþinginu
eiga nú sæti 359 republikanar
og 269 demokratar. Einn þing
maður talaði þar í vetur í 11
daga samfieytt, til þess að tefja
fyrir frumvarpi einu.
R AFMAG NSTÖÐVA R
A A
F H 1 Ymislegt F L Ý
T hentugt til tækifærisgjafa S
IJ fæst hjá 1
N Indriða Helgasyni Sðf. N G
R i\FMAG NSTÖÐVA R
AUSTURLAND
keinur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Guðm. G. Hagalín
— Síini 54 —
Afgreiðslu- og innheiifitu-maður
Herm. Þorsteinsson
— Sími 13 B —
Prentsmiöja Austurlands.
Nautakjöt
kaupir hæsta verði
St. Th. Jónsson, Seyðisf.
Sement
verður selt við verzlun Stefáns Th. Jónssonar á Seyðisfirði, síðari
hluta þessa mánaðar, með mjög niðurseítu verði. Bezt að panta sem fyrst.
Verkaðir sundmagar
verða bezt borgaðir í ár f verzlun
Steíáns Th. Jónssonar á Seyðisfirði.
Allar fslenzkar afurðir
keyptar liæsta verði í verzlun
Stefáns Th. Jónssonar, Seyðisfirði
Hitt og þetta.
Munntalsþing
verður lialdið hér á Seyðisfirði
næstkomandi mánudag.
Aðalfundur
Búnaðarsambands Austurlands
var haldinn á Egiisstöðum 24—
25 f. m. Var ritstjóri Austurlands
þar |)á staddur og naut þar gest-
risni Sambandsins. Mun yfirlit
yfir það, er gerðist þar á fundin-
um verða birt síðar hér í blað-
inu.
Innflúenza
geisar nú á Fáskrúðsfírði, Borg-
arfirði og Norðfirði. En hún er
komin úr Reykjavík.
He'raðsfundur
var haldinn að Eiðum fyrri
bluta þessarar viku, undir stjórn
Einars prófasts Jónssonar á Hofi.
4
Jóhann Jónsson,
stúdent, les hér upp í kvöld 12
kvæði. Er hann alkunnur í Reykja-
vík, Akureyri og Hafnarfirði, joar
eð hann hefur verið þar mjög
Kennara
vantar í Eiða|)ingliárfræðsluhérað
ii. k. vetur. Umsóknir sendist
fræðslunefndinni fyrir 10. ágúst.
Snemmbær ung kýr
óskast til kaups nú þegar. R. v. á.
eftirsóttur upplesari. Má segja
fólki það, að |)aö má vænta hinri-
ar óvanaiegustu meðferðar á við-
fangsefnunum, sem fiest eru löng
og merk, afar erfið viðfangs og
eftirtektarverð. Meðal annars les
Jóhann upp tvö kvæði eftir sjálf-
an sig, en að hyggju ritstjóra
þessa blaðs, sem þekkir fyr og
nú skáldskap hans í bundnu og
óbundnu máli, mun hann þegar í
stað fá honum sæti í fremri röð
skálda vorra, er hann kemur fram
á sjónarsviðið.
Um kosti þá,
er Spánverjar setja oss íslend-
ingum nú, mun verða rækilega
ritað í næsta blaði.