Austurland - 09.07.1921, Side 3
3
\USTURLAND
Verzlun PÁLS A. PÁLSSONAR, Bjorka
Selur lang ódýrasta álnavöru og skótau, gefur 15% afslátt gegn
peningum. Þar gera sveitamenn, sem aðrir, bezt kaup. — Prjóna-
vélar, Saumavélar og Byssur fást keyptar og pantaðar. Með fyrsta
skipi kemur mikið úrval af öllum smávörum, sem nú vanta.
Hetur til sölu: OMA smjörlíki
Skósmfðavinnustoía
Sigurgísla Jónssonar, SeyöisL
er af öllum, sem til þekkja, tví-
mælalausttalin bezta skósmíðavinnu-
stofa á Austuriandi. — Leysir fljótt
og vel af hendi allar aðgerðir á
skófatnaði. — Býr til nýjan skófatn-
að eftir máli. Hefur ávalt fyrirliggj-
andi nægar birgðir af öllu verkefni
tilheyrandi iðninni.
Handunninn skófatnaður er beztur.
Og nú hefur verið byrjað á þann
hátt, að veita heiðursmerkin bryt-
um og hirðmeyjum, hermönnum
dönskum og öðrum slíkurn lýð, lík-
lega að eins fyrir þær sakir, að þetta
fólk var með konunginum, auð-
vitað er, að ef einhverir aðrir
hefðu verið með, en þetta fólk
ekki, þá hefðu þeir hlotið heiðurs-
merkin, en alls eigi þeir er hlutu
þau. Þarna ræður því helbert
tildur. Sama heimskan og skrípa-
leikurinn og dæmi eru til.
Vel er því byrjað, og ef þann
veg verður áfram haldið, er eigi
unt annað að segja, en íslenzku
heiðursmerkin verði mikils virði!
Eðlilegt var það, þótt skyldfólki
konungs, hinu nánasta, væri veitt
heiðurmerkin.s því aö rneðan vér
höfum konung, er sjálfsagt að
sýna honum og skylduliði hans
alla virðingu. En margir eru með-
al Dana og annara þjóða, sem
unnið hafa íslandi meira gagn en
það, að þiggja þar gestrisni. En
svo er um hirðmeyna, brytann
og foringjana fíesta, að þau virðast
eigi hafa unniðíslandiannaö.Enhvf
voru ekki húsbændunum á gisti-
húsinu „Fjallkonunni“ veitt heið-
ursmerki? Þangað koma þó oft
danskir sjóliðar.
Quðm. G. Hagalín.
Hitt og þetta,
Frá Fdskrúðsfiröi.
. . . Tíðindalítið héðan, þó er
það ekki óveruleg tilbreyting frá
því venjulega aö meö sunnlenzk-
um sjómönnum, er komu hér með
e.s. „Sterling" síðast, virðist hafa
fluzt óþverra íarsótt sem sumir
kalla „vont kvef“ en aörir innflú-
enzu. Hvað sem veiki þessi heitir,
þá er hún óþarfur gestur um há-
bjargræðistímann og veldur injög
miklu fjártjóni. Mig minnir að til
sé í hinu íslenzka ríki allsherjar
heilbrigðis- eða sóttvarnar-nefnd.
Ef svo er, ætti hún áminningu
skilið, því sagt er að veikin ber-
ist út frá Reykjavík og umhverf-
inu þar syðra. Hér í Búðaþorpi
og Fáskrúðsfirði verður mikill
hnekkir að lasleika þessum, þar
seni alllir verkfærir menn tefjast
til skiftis frá fiskiveiðum og öðru
sumarbjargræði, alt að viku til
hálfsmánaðar tíma; er þetta því
tilfinnanlegra, þar sem nú er land-
burður af fiski hér, sérstaklega á
árabáta. Mun tjón þetta vægt met-
ið á 1000 kr. fyrir hvert einstakt
heimili til jafnaðar; yrði þá fjár-
tjón þetta, eftir samanlagðri heim-
ilatölu í Búða- og Fáskrúðsfjarð-
ar hreppi, um 60 -80 þúsundir
króna. Ef hér er að ræða um
vænrækslu yfirvalda eöa allsherj-
ar heilbrigðisnefndar, sýnist verð-
ug áminning ekki óþörf, að minsta
kosti fáum vér kotkarlarnir oft
nótu fyrir minna, því oss er lítt
vægt í dómum ef út aí ber. . . .
Upplestur.
Jóhann Jónsson, stúdent, las
hér upp kvæði síðastliðinn laug-
ardag og í annað sinn á miðviku-
dag. Hefur hann, eins og um var
getiö í siðasta blaði, lesið oft
upp í Reykjavík, Akureyri og
Hafnarfirði. Las hann upp hér
„Fýkur yfir hæðir“ eftir Jónas
Hallgrímsson, „Flosa og Hildi-
gunni“ eftirGuöm. Guömundsson,
„Jón Arason á aftökustaðnum"
eftir Matth. Jochumsson og „Gretti
og Glám“ e'ftir sama. Ennfremur
„Álfakonunginn“ eftir Goethe,
„Ákvæðaskáldið", eftir Uhland,
„Svein Dúfu“ eftir Runeberg og
„Játningu" eftir Heine. Þá „Abba-
labba-lá“ eftir Davíð Stefánsson,
„Gljúfrabúann" eftir Guðm. G.
Hagalín, „Delirium bibendi“ og
„Jóhönnu litlu“ eftir sjálfan sig.
Var góður rómur gerður að upp-
lestri hans. Mun óhætt að segja,
að í honum eigum vér ágætt efni
í afbrigða upplesara. Röddin er
bæði sterk og beyjanleg, svipbrigð-
in skjót og glögg og leikarahæfi-
leikarnir ótvíræðir. Auk þessa
hefur Jóhann í ríkulegum mæli
skilning á verkefnunum, en það
er hin stærsta nauðsyn, jafnt
upplesurum sem söngvurum. Von-
andi er, að Seyðfirðingar fái síð-
ar að heyra til Jóhanns, þá er
hann hefur fengið fulla æfingu í
list sinni. Þess má gela, að lík-
legt er að út komi ljóðabók eftir
hann hér á Seyðisfirði á hausti
komanda. Og um kveðskap hans
hefur ritstjóri blaðs þessa engu
við að bæta, að svo komnu máli,
það sem sagt var í síðasta blaði.
Kóminn
er hingað til bæjarins Kristinn
Pétursson frá Næfranesi í Dýra-
firði, sendimaður skrifstofu máls
og vogar. Á hann að athuga mál
og vog hjá kaupmönnum hér.
Ekki veit „Austurland“ hversu
góður gestur hann kann að vera!
Fiskiveiðar.
Mjög mikill afii er nú í Vopna-
firði og á Langanesi. Koma smá-
bátar að daglega hlaðnír. Frézt
hefur líka að Færeyingar, sem nú
eru að veiðum hér úti fyrir, fiski
afbragðsvel. Eru þeir langt und-
an landi, yzt á Hvalbaksgrunni.
Mun þeim eigi af veita þótt vel
gangi hjá þeim í sumar, þar eð
sumarið í fyrra og eins vetrar-
vertíðin í vetur, voru með versta
inóti. Nokkrar færeyskar skútur
hafa komið hér hinn.
Jón Þ. Sigtryggsson,
settur sýslumaður hér, leggur
af stað í þingaferðir í dag. Með
honum er Einar Blandon, sýslu-
skrifari.
Mesti fjöldi
manna úr sveitum ofan hefur
verið hér þessa dagana. Er útlit í
sveitum alls ekki sem verst. Síð-
ustu dagarnir hafa bætt mjög
mikiö úr skák, þar eð hitar og
regn hefur skifst á. Er víða byrj-
aður sláttur í sveitunum. Lítur
því svo út, sem þetta ár ætli að
verða bændunum hið bezta á all-
an hátt.
Ólafur lækriir
Lárusson á Brekku hefur beðið
„Austurland“ að leiðrétta það
sem sagt var um veikindi hans
hér í blaðinu. Var það missögn
að hann hefði legið eins lengi og
sagt var.
Flugferðirnar.
Vegna ót'yrirsjáanlegra ástæða
mun ekkert verða af flugferðun-
um hingað upp f sumar.
Á Austfirðingamótinu,
sem haldið verður hér í sumar,
mun verða mjög margt til skemt-
unar og er vonandi að það verði
vel sótt.
Alment
munu landsmenn mega gleðjast
yfir því, að Sigurði Guðmunds-
syni, magister, hefur verið veitt
skólastjórastaðan á Akureyri. Sig-
urður er alkunnur gáfu- og gæða-
maður, afbragðs kennari og hef-
ur mikil og góð persónuleg áhrif
á nemendurna. Er óhætt að segja
að hann hafi virðingu og vináttu
allra þeirra, er hann hefur kent.
Óskar „Austurland“ Sigurði og
Norðlendingum til hamingju.
Brusiloff
sá, sem um er getið í skeyti hér
í blaðinu, er einhver mesti og
bezti hershöfðingi Rússa frá heims-
stríðinu. Gat hann sér einnig
mjög góöan orðstír í stríðinu milli
Japana og Rússa.
/ vor útskrifuðust
af Eiðaskólanum eftirtaldir nem-
endur:
1. Aðalsteinn Eiríksson
2. Anna Þórarinsdóttir
3. Björn Guttormsson
4. Dagur Sigurjónsson
5. Einar Jónsson
6. Einar Kristinn Eiríksson
7. Einar Þorsteinsson
8. Eiríkur Stefánsson
9. Elízabet Jónsdóttir
10. Gunnar Snjólfsson
11. Halldór Pétursson
12. Hannes Magnússon
13. Jóhann Frímann Jónsson
14. Jóhann Arngrímsson
15. Jón Sigurðsson
16. Málfríður Þorsteinsdóttir
17. Óli Guðbrandsson
18. Skúli Þórðarson
19. Stefán Eiríksson
20. Sverre F. Jóhansen
21. Þorvaldur Sigurðsson
22. Þórður Vigfússon
Símskeyti
frá
fréttaritara Austurlands.
Rvík 2/7.
Norska stjórnin nýja hefur birt
stefnuskrá sína; segir þar meðal
annars, að hún vilji leita samn-
inga við Spánverja og Portugals-
menn um fiskitollinn á grundvelli
þeim, sem lagður hefur verið í
löggjöf og kröfum þjóðarinnar,
þar sem þess hefur verið krafist
með þjóðaratkvæði, að salabrenni-
vfns og heitra vína yrði lögbönn-
uð, en stjórnin tæki jafnframt í
sínar hendur ein^asölu áfengis. —
Norska sjómannaverkfallinu er
lokið.
Konungur og fylgdarsveit hans
kom að austan klukkan 7.
Rvík 3/7.
íþróttasýning í dag, konungs-
hjónin voru viðstödd. Þorkell Sig-
urðsson vann Álafoss-hlaupið,
hljóp 17 kílómetra á 66 mínútum.
Konungur afhenti honum verð-
launabikar. Bæjarstjórnin heldur
konungi veizlu í kvöld. Templarar
höfðu fjölmenna skrautgöngu í
dag.
Rvík 4/7.
Beint tap af kolaverkfallinu
brezka er talið 237 millionir
sterlingspunda. Alríkisfundur Breta
ræðir um hvort gerlegt muni vera
að endurnýja samninga milli Breta
og Japansmanna, með breytingum,
ef Bandaríkin sainþykki.
Gunnar Egilsson, ásamt dönsk-
um sendiherra, er á leið til Madrid
til að semja um fisktollinn við
Sf>ánverja. Konungur fór um borð
kl. 10. Boð úti í „Valkyrien“ kl.
2. Konungsskipin fóru kl. 6.
Rvtk 5/7.
Hardirg forseti hefur undirskrif-
að friðarsamning milli Bandaríkj-
anna, Þýzkalands og Austurríkis.