Austurland


Austurland - 23.07.1921, Page 4

Austurland - 23.07.1921, Page 4
4 AUSTURLAND (S1 4? H.f., Framtfðin' Seyðisf. Nýkomið meðal annars: Reiðjakkar ágætir, Reiðskálmar svartar, Regnkápur margs- konar, Legghlífar gular & svartar, Hryggtöskur vatns- heldar, Skófatnaður. © Sjðl hrokkin og slétt. Nærfatnaður ýmiskonar. © M á I, hvítt, blátt, grænt og rautt. © Ávextir niðursoðnir: Perur, Apricosur, Ferskjur, Ananas © Exportkaffið góða (Ludvig David). © B a u n i r: hvftar, gular, grænar og brúnar © „Sunlight" sápa og margskonar handsápur. © Segið oss hvers þér óskið, vér iátum yður hafa það sem þér þarfnist. Nýkomið mikið úrval af Svendborgar ofnum, eldavélum og þvottapottum. Einnig rör, ristar, eldfastir steinar og leir, sömuleiðis v a r a h 1 u t i r þessu tilheyrandi. Imslands erfingjar. Kennari óskast í Hjaltastaðaiirepp næsta vetur. Umsóknir sendist til undirritaðs sern fyrst. Ánastöðum 28. júní 1921. Páll Jónsson. Verzlunarmaður óskar eftir atvinnu hér á Austurlandi við innan- eöa utan-búðarstörf. Uppl. í Prentsmiðju Austurlands. l ilboð æski- legust, merkt: „Verzlunarmaður“ serid- ist í prentsmiðjuna. RAFMAG NSTÖÐVAR A Björtu næturnar eru að A F hverfa, en þeim sem hafa F H 1 fyrirhyggju til að kaupa L Osram-lampann Ý T gerir það ekkkert. Pantið og S U N kaupið 1 tima. Sem stendur nægar byrgðir fyrirliggj. hjá I M Indr. Helgasyni, Seyðisf. G RAFMAGNSTÖÐVAR AUSTURLAND kentur út vikulega. Verö 5 kr. árgangurinn. Gjaiddagi 1. júií Ritstjóri og ábyrgðarmaður Guðm. G. Hagaiín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maður Herm. Þorsteinsson — Sími 13 B — Prentsmiöja Austurlands. Kaupfélag Austfjarða hefur meðal annars mikið af nýkomnu Kaffi, Export, Súkkulaði, Kakaó, Rísgrjón, Baunir, Bankabygg, Fata- efni, frá kr. 9,50 pr. meter, Buxnaefnin eftirspurðu, Kjólatau (Alpakka) frá kr. 6,75 pr. meter, Tvististau og allskonar fóðurefni til fata. Ljá- léni o. m. fl. — Nýjar vörur með hverri ferð. Kaupfélagiö heíur eingöngu nauðsynl. og vandaðar vörur. Kaupið jiví þar. li Eimskipafél. Islands „Goðafoss“ byrjar að ferma í Kaupmannahöfn 4. ágúst. Fer þaðan 12. ágÚSt. Afgreiðslan Seyðisíirði. Vátryggingar Brunatrypgirigar Sjóvátryggingar Stríðsvátryggingar Sigurður Jónsson Sími 2 og 52. Ullarkambar hjá Imslands erfingjum. Lang bezt og mest úrval af allsk. skófatnaði hja Imslands erfingj. inn eins og krakka — en hvað hún var tíguleg og róleg — eins og hún líka bar höfuðið — og iivernig hún heilsaöi . . . — en hve mig hafði dreymt um hana — fyrsta ástin mín . . . vonleysi og gömul blóm og mynd, sem eg hafði stolið úr myndabók Krist- jáns, mynd, sem eg hafði kyst, þegar eg sat undir heimspekifyr- irlestrunum . . . Og nú var hann orðinn prestur á Hlésey. Svo var sem æskuvinur minn hefði lesið hugsanir mínar, því að hann mælti: — Já, vinur minn, margt getur hreyzt á átta árum. — Já, margt getur breyzt. Við sátum þegjandi. Svo sagði hann: — Þú hefur víst frétt lát pabba. Hann dó víst skömmu eftir að þú fórst. — Já — eg heyrði eitthvað ó- greinilegt um það. — Það var sorglegt. — Hann treysti sér ekki til að lifa það, að óhamingjan skylli yfir. Eg var í vandræðum. Eg þagði og beið. — Já, á þeim árum vissum við ekki neitt um það alt — á þeim árum, þegar við áttum mest sam- an að sælda — en seinna, þegar við vorum farnir að vera minna saman — fengum hvor okkar störfum að sinna — þá varð eg þess smátt og smátt áskynja. — Var sagt sumt, grunaði þó fleira. — Verzlun pabba var alt af í afturför. Pabbi hafði alt af telft djarft og notað lánstraustið eins og hin gamla og góða tiltrú fram- ast þoldi. Svo kom óhapp á ó- happ ofan, tjón á tjón ofan. — Og svo þurfti að leyna þessu og láta sem ekkert væri. Og alt af voru lífsþæjgindin aukin, til þess að móður mína og þá, sem ókunnugir voru, grunaði ekki neitt — Elízabet og eg vissum það ein manna. — Gjaldkerinn gamli hafði í angist sinni sagt mér frá því. — Geturöu ímyndað þér livað það er voðalegt, að búa árum saman undir því þaki, sem alt af liggur við hruni — þar sem gjald- þrotið liggur í leyni í hverjum krók og kima. Og svo allur gauragangurinn og veizlurnar Og við, sem vissum alt sem litum livort á annað til að full- vissa okkur um að við lékjum okkar hlutverk vel! Og svo mættumst við Elíza- het, þegar gleðskapurinn stóð sem hæst, tókum með öndina í háleinum hvort í annars hönd og litum hvort á annað, augurn ör- væntingarinnar og kvíðans. Æskuvinur minn sat grafkyr um stund og hóf síðan máls, rólegur sem fyr. — Já, vesalings, vesalings Elíza- bet. — Hvað segirðu — hvað er hún nú — hún er víst gift? — Nei, hún brá heitorði við unnusta sinn — þann vetur — þann vetur — síðasta veturinn hrá hún heitorði við unnusta sinn. — Hver var hann? Var það ekki Thorsen? — Jú — — veiztu hvað, hún breytti eins og hún átti að breyta — hann hafði iofast ríku stúlk- unni — ekki fátæktinni, sem nú barði að dyrum. — En — ojæja, eg held hún hafi ekki getað gleymt honum. — Og hann gerði sér það að Innilegar þakkfr fyrir auðsýnda hluttekningu við lát og jarðartör Þórarins R. Jörgensens. Aðstandendur. góðu — án allra umsvifa — lét hana fara sína leið? — Vinur minn góður, hvað átti hann að gera? Laun hans voru 1500 krónur á ári og Elízabet hafði þurft þrefalt meira fé til þess að kaupa sér kjóla . . . . Eg held að honum hafi liðið illa. . . . Núna í vor kvæntist hann. — Svo mikill var söknuðurinn — O, jæja . . . Nei, gættu nú að — um slíkt geta rnenn aldrei dæmt. Sorg á ekki saman nema að nafninu til — og hún er ekki öllum jafn erfið------ — En hvernig var það svo annars með hitt. Meira. ♦

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.