Austurland


Austurland - 30.07.1921, Side 2

Austurland - 30.07.1921, Side 2
2 austurla;nd SEYÐISFIRÐI hafa fyrirliggjandi: Mjólk Hafrajírjón Sykur, höggvinn Sáldsykur Súkkulaði Kakao Kaffibætir Rúsínur Sveskjur Bankabygg Hálfbaunir Flatningsbnífa Þvottabretti Kústahausa Umbúðapappír Bréfpoka Qaddavír Vírnet Skeifnajárn Fiður Olíufatnað Kjarval. Aður á tímum komu álfar og huld- ur í draumi til manna, leiddu þá á i'elli víða og fagra og um ýmiss undralönd. Stundum voru löndin hrikaleg gljúfur, eða hamraborgir, þar, sem ólgandi sjórinn hamaðist. Álfasögurnar eru dýrðardraumar þjóðanna. Vængjatök þeirra inn í þá heima, sem enginn sér, en allir finna, á stundum þrám sinna og vona. Hinskonar griðastaðir sálna þeirra. Hlutverk málara og annara lista- manna er að leiða oss inn í álfahall- ir hamranna, krystalsali vatnadísanna. Inn í jjá sali em vér sjáum ekki, nema vér höfum töfrasprotann eða kunnum töfraorðin - „Sesam, sesam“ þessara undrasala. Og sá listamað- urinn, sem lengst kemst inn í hina huldu sali, hann er æðstur öðlingur í ríki listarinnar. Þeir eru margir sem koma til vor, leiða oss upp í hlíðina, eða út að sænum. En oss bregður ekkert í brún. Vér sjáum alt eins og vér er- um vanir að sjá það — engar álfa eða dísa-hallir. En svo kemur einn góðan veðurdag til vor maður, ef til vill ekki eins og fólk er flest — ef til vill eins og úr hömrum genginn. Og þessi maður býður oss fylgd sína. Og hvað skeöur! Allir sjáum vér eitthvað nýtt. Máske gamalkunnu klettana með alt öðrum svip en áður. Snmir halda að þetta séu sjónhverf- ingar og hrista höfuðið yfir loddar anum — sumir sjá þar þaö sern augu þeirra hafa ekki skynjað, en hug þeirra hefur órað fyrir. Og þeir minnast álfanna og dísanna — heyr- ist allsstaöar hjarta slá í ljósi og litum. Kjarval málari er einn af mönnum þeim, sem tekur oss þannig við hönd sér. Og hver sem fylgir honum, skal hafa það í huga, að nú á ekki að leiða hann venjulegan malborinn þjóðveginn, heldur, hvort sem líkar betur eöa ver, veginn þann, sem að eins geymir fótinn. Og nú ætlar Kjarval að bjóða oss fylgd sína bráðum, Hann hefur sjálf- ur lagt á sig margra ára baráttu til þess að öölast máttinn og valdiö til að bera töfrasprotann. Erlendis hef- ur hann freistað hamingjunnar, stund- að nám árum saman við listháskóla Kaupmannahafnar og hlotið lofsorð mikið sænskra og danskra listdóm- ara. Svíar kalla hann skáldið og dulardómamanninn meðal ís- lenzkra rnálara. Hann hefur og leitað til heillalinda suðrænna lista í „borg- inni eilífu". Kvæntur er hann danskri konu, sem líka stundar hinar fögru listir — í riti — skáldkonunni Tove Kjar- t Þörarinn R. Jörgensen. Lag: Fýkur yfir hæðir. Vinum þínum blæddi, er barst sú voða fregn hve brandur dauðans snögglega laust þig í gegn. Og þeirra hinztu kveðju af hjartnanna rót í hreinum tónum kærleikans tak þú á mót. Guðsljóð |jér fylgi til grafar. S. A. val, sem skrifað hefur bækumar „Af Stov er du komrnet", „Mor“ og „Fredlos". Fer hún þar líkar leiðir og bóndi hennar svo langt frá al- faravegi, að bezt er að leggja af stað með nesti og nýja skó, ef menn ætla að íylgja henni á brautum útlagans (sbr. Fredlos). Er það von vor, að Austfiröingar íylgi fúsir Kjarval á Austfiröingamótinu fyrirhugaða. í álf- heima komu oft feöur vorir, og fýsa mun oss enn þangað. G. G. H. Allsherjarverkfallið norska. Hinn 11. júní stendur svohljóð- andi grein í „Politiken" — og gæti greinin orðið lærdómsrík: „Nú er leitt til lykta norska alls- herjarverkfallið. Því lauk tæpum hálfum mánuði eftir að það hófst. Tiltæki þetta og afdrif þess vekur eftirtekt manna víðar en í Noregi. Víða mun það verða rækilega íhugað og af því dregnar ýmsar ályktanir. Fyrst mun það þó vekja at- hygli, að þjóðfélög nú á tímum eru svo þrautreynd, að þeim staf- ar ekki nein veruleg hætta af alls- herjarverkfalli og geta að mestu leyti gegnt störfum sínum eftir sem áður. Sérstaklega hefðu menn getað búist við því, að Noregur væri illa staddur, sökum þess hve afskektur hann er og hve langt er þar bygða á milli. Héldu menn því að verkfall mundi konta sér þar ver en í flestum öðrum lönd- um. En samt sem áður greiddi norska þjóðfélagið ágætlega fram úr þessu — og meira að segja án jjess að grípa til nokkurra óynd- isúrræða. Herinn var að vísu víg- búinn, en ekki þurfti til hans að grípa. Reyndizt meira að segja hægt að framleiða nægilegan brauð- mat handa landsbúum, án þess að nokkrir brauðgerðarsveinar kæmi þar uærri. Blöðin komu út án aðgerða nokkurs prentarafélags og rafmagns — og gasstöðvar gátu haldið áiram öllum sírium störf- um. Mætti svo lengi teija. Alt virðist ganga sinn venjulega gang, minsta kosti urðu menn ekki fyrir miklum óþægindum. Virtist því þetta ægilega vopn verða áhrifalaust, þar eð norska þjóðiu sýndi nægilegan styrk til |)ess að standast árásina og hrinda henni af sér. Jafnaðarmannablaðiö norska, Æskuvinur minn. Eftir Hermann Bang. Framh. — Pabbi hélt öllu á réttum kili svo lengi sem unt var. Og dagarnir á undan geturðu gert þér þá í hugarlund — þegar ég vissi alt. Hvernig alt var á heljarþremi. Þegar allar klær voru hafðar úti til þess að ná í fé til að borga víxla okkar — og gjaldþrotið gat komið — ekki þessa klukkustund, þá hina. Bankarnir, eins og þú skilur, voru farnir að verða varkárir, þeir drógu sig í hlé, gerðust hykandi, voru með dylgjur og neituðu að kaupa víxla okkar. —------ — Eg man eftir því, að einu sinni þegar farið hafði verið með víxil í bankann, komu boð um að banka- stjórinn vildi tala viö pabba sjálfan. Ég var á skrifstoíunni hjá pabba, |>egar sendimaðurinn kom. Hann leit upp og snéri sér við, svo aö skrifstofuþjónninn sá ekki frarnan í hann. — Og víxillinn? sagði hann. Ja hann var ekki keyptur - Bankastjórinn sagði að ekki hefði verið rétt frá honum gengið. — Afbragð. — Viljið þér hringja. — Látið beita fyrir vagninn. — Pabbi var annars vanur að fara gangandi. En upp á síðkastiö vildi hann helzt alt af fara í vagni. Ég held að hann hafi ekki viljað láta menn sjá sig — þú skilur — fá að vera e’nn — þá stundina að minsta kosti — og svo líka til þess að láta menn sjá vagninn. Pabbi var ná-fölur, þegar hann ók af stað. Hann nam staðar fyrir framan spegilinn. — Er ég mjög ræfilslegur að sjá mig? sagði hann. — O, nei, þú ert eins og þú átt að þér. — Hvernig er þetta meö víxilinn, spurði eg í hálfum hljóöum. — Hvernig það er? Og pabbi lækkaði róminn: Hvernig |)að er. Þeir bera ekki lengur traust til mín. — Og vinur minn, aldrei gleymi eg hljómnum í rödd hans þá. — Svo ók hann af stað. Gjaldkerinn og eg biðurn með önd- ina í hálsinum — það var gjaldþrot, ef ekki var hægt að kippá þessu í liðinn, skilurðu það, gjaldrot þegar í stað og án allrar bjargar. — Eftir hálftíma kom pabbi. Gjaldkerinn dirfðist ekki að leita frétta, þegar hann kom inn 1 skrif- stofuna. En þegar pabbi tók til máls, voru það sömu, gamalkunnu og tígulegu hreyf- ingarnar og áður fyr, þegar alt lék í lyndi. — Kæri Karlsen, það var auðvitað misskilningur. Bankastjórinn bað mig afsökunar .... En það var ekki alt úti þó að þessi dagurinri liði hjá verri dagar voru í vonum. Þú þekkir ekki þá kvöl að sitja dag eftir dag og brjóta heilann, reikna og örvænta, vona og aftur örvænta. Nú var það bara svona, tafl fram á hengiflugi gjaldþrotsins. Fyrir tólf áttu peningarnir að vera komnir í bankann hugsaðu þér — þúsundir, oft tugir þúsunda — og klukkan 10 kom pabbi í skrifstofuna og vissi þá ekki frekar en þú eða eg, hvar hann ætti aö taka þessa tugi þúsunda .... Því nú var ekki lengur um að tala skynsamlegar ráðagerðir — engin von framar — því var miður. Aðeins að draga á frest, ögra því sem stóð fyrir dyrum, gefa örstutta stund gjaidþrot- nu og eymdinni langt nef. Svo komu þessir tveir tfmar frá 10 —12 — með öll þeirra heilabrot, út- reikning, úrræðaleit, bréfaskriftir og lánbeiðnir, sem skrifaðar voru skjálf- andi hendi . . . Og með fjöregg okk ar að leiksoppi biðum við sendisvein- anna úr bönkum og búðuin — og við víxluðum peningum og fengum frest á víxilgreiðslum. Þessir tveir tlmar gleyptu í sig alt lífið og alla tilveruna. Þessi hræði- lega martröð biða, ótta og blekkinga því að svo langt komst þaö vinur minn. Eg vissi ekki mitt rjúkandi ráð — eða hvað eg átti af mér að gera. Eg gat ekki haldið mig á skrifstofunni hjá pabba það hlaut að vekja eft- irtekt. Og auk þess voru alt af ein- hverir að heimsækja hann. Þarna mátti hann sitja, stundarfjórðung eft- ir stundarfjórðung, varð að hlusta á alls konar þvaður, sögur frá heirn- boðum, sem etazráðin, makráðir ístru- belgir segja frá — á þetta varð hann að hlusta, meðan hann bjóst vio á hverri stundu að íjöregg sitt hrykki í sundur. Nei, þar gat eg ekki haldist viö. *

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.