Austurland


Austurland - 20.08.1921, Blaðsíða 2

Austurland - 20.08.1921, Blaðsíða 2
W2 austu;rl?a;nd Seyðisfirði hafa fyrirliggjandi Sykur hÖggvinn Te Kandís Kaffibætir Súkkulaði Kakao Baunir hálfar Bankabygg Kryddvörur Mjólk Sveskjur Umbúðastriga Umb.pappír Bréfpoka Vírnet Gaddavír Olíufatnað Þvottabretti Deildarlit Seglgarn Primusao.fi. Við heimsókn vora í gær í verk smiðju American Machinery Com- pany fengum vér lýsingu á bræðslu aiiskonar lifrar. Og er hún í stúttu máli þessi: Lifrin, án tillits til þess í hvaða ástandi hún er, er látin í ílát, sem í er heitt vatn með dálitlu af salti í. Úr ílátinu er þessum lifr- argraut þrengt með dælu inn í hin rafmögnuðu hólf vélarinnar, þar sem hann svo er rafgeislaður, Heldur lifrin áfram yfir síu, er heldur eftir hinum óuppleysanlega hluta lifrarinnar, en lýsið og vatn- ið fer í annað ílát, sem í er vatn. Lýsið flýtur nú ofan á vatninu og heldur áfram inn í einsk®nar skil- vindu, sem aðskilur alveg lýsið og vatnið. Rennur nú lýsið áfram í þriöja ílátið, alveg hreint og tært og í fyrsta flokks ástandi. Rafgeislarinn þarf nálægt 18 ampera kraft, með 50—90 volta spennu, sem fer eftir hólfatölu vélarinnar. Þar sem ekki er unt að fá beinan rafkraft með þessari spennu, er hægt að fá straum- breytara fyrir 1—1V® kw. Skilvindan þarf tæpt 1 hestafl og álíka afl þarf dæian, svo að alls má komast af með hérumbil 2 hestöfl, Engin lykt finst meðan á bræðslunni stendur. Lifrin er látin inn í annan enda vélarinnar og eftir þrjár mínútur rennur lýs- ið hreint og tært í lýsisílátið. Grúturinn varpast sjálfkrafa út úr vélinni, og er hægt að þurka hann. annaðhvort til áburðar eða fóð- urmjöls. Kostnaðurinn við að framleiða eitt amerískt fat af lýsi, úr lif- ur, sem hefur 50°/o lýsismagn, er frá 6—15 cent. Verð rafmagns- ins er reiknað 10 cent á kw-tíma, og^er þar í innifalið bæði geislun- arrafmagnið og eins afl reksturs- vélarinnar. Að- eins einn mann þarf til þess að stjórna allri vél- inni. Af þessu geta menn séð, að Rogert-Bennett vélin muni ná mjög mikilli útbreiðslu á Norðurlönd- um, íslandi og Norður-Rússlandi. í öllum þessum löndum hefur verzlunarfélagið Niels Juul Com- pany einkaumboð fyrir vélina og er það ætiun herra Larsen að koma á fót í næsta mánuði fyr- irgreiðslustofnun (Demostrations- anlæg) í einhverjum af fiskibæjunum á vesturströnd Noregs. Og verð- ur þeim af blaðamönnum, sem hafa áhuga fyrir þessu, boðið þangað. Með gufuskipinu „Stavanger- fjord“, sem fer héðan á föstudag- inn, verður send ein af þessum vélum, og samtímis sendir Amer- ican-Byproduct Machinery Com- pany einn af verkfræðingum sín- um, er annast á uppsetning þeirr- ar lýsisvinsluvél^r, sem að ötlum líkindum mun valda gagngerðri breytingu í lýsisvinsluiðnaðinum. — Og þá ekki sízt í hinum fisk- auðugu löndum. (Dansk Fiskeritidende). H. Þ. þýddi. Brot úr sögu Vindlendinga. Vindland liggur norðarlega í Sann- leikshafinu. Það er eyland mikið og merkilegt, bæði að fornu og nýja. Þar er hafís á vetrum, en hafrót á sumrum. Landið skiftist f grösugar sveitir, gróðurlaus öræfi, gjósandi hveri og gínandi gjár. Þar eru há fjöll og heiðar miklar. Himinbláir jöklar og hraun mikil. Ár eru þar margar og illar yfirferðar og margar óreiðar árið um kring, — en þó er landið talið þurt. Mentun er þar mik- il, enda skortir landið ekki leiðtoga. Þaö sem hel?t stendur því fyrir þrif- um, er að einstaklingar þjóðarinnar eru svo mentaðir, að enginn getur verið undir annan gefinn. Því hefur það verið tekið upp, að skifta um ráð- herra við hverja tunglkomu og það á að ganga, þar til allir eru orðnir ráð- herrar, sem ekki hafa þegið af sveit. Náttúrlega er þetta lítil lýsing á jafn- merkilegu landi, en vilji menn kynn- ast því nánar, verða menn að hafa landafræðina til aðstoðar. Höfuðborg landsins heitir Sæluvík. Það hafði verið róstusamt í Sælu- vík undanfarna daga, en nú hafði heldur hægst um í bráðina. Það var sunnudagskvöld. Veður var dimt og draugalegt, og regnið streymdi úr loftinu. Tíminn gekk um gólf í skrif- stofu ■sinni í Vindheimi og var þungt hugs^ndi. Hann var skrýddur klerka- hempu, en hann var kominn úr ann- ari erminni. Hempan var mjög nær- skorin, og virtist helzt, að hann væri að vaxa upp úr henni. Alt í einu var barið að dyrum, og áður en Tíminn hafði tíma til að svara, opnuðust dyrnar, og, inn kom kvenmaður, heldur lítill vexti. Kona þessi var heldur við aldur, en ern vel. Skjótleg var hún í öllum hreyf- ingum og augnaráðið ísmeygilegt. „Sæll vertu, Tími góður“ mælti hún. „Sæl vertu Lygi góð“, mælti Tími. „Hvers vegna kemur þú ekki fyrri?“ mælti Tími. —„Eg hefi verið aðvon- ast eftir þér í allan dag“. „Eg hef verið að leita mér atvinnu" mælti Lygin, „en ekki orðið gott til fanga. Það lítur helzt út fýrir, að það eigi alveg að steypa mér af stóli, en setja í hásætið piitunga þann, er Sannleikur heitir. Við erum jafn- gömul, en eg er miklu vanari við að fara með völdin og ætti því að vera sjálfkjörin. Nú er eg búin að ráfa um iðjulaus í þrjá daga og hef meira að segja verið ofsótt. Kvenréttindin eru nú ekki meiri en þetta enn þá“. Tími hafði setið þegjandi undir þessari ræðu og hlustað með athygli „Því komstu ekki til okkar“, mælti hann, „við höfum altal verið að von- ast eftirvþér, og nú skaltu ekki þurfa að ganga um atvinnulaus, ef þú vilt ganga að samningum okkar. En nú ætla eg að biðja þig að færa mig úr hempunni, því mér finst hún ætla að nísta hold frá beini. Svo skulum við ganga yfir til frú. Hriflu, sem býr í hinum enda hússins". Frú Hrifla og Efíaltes sonur henn- ar sátu við skriftir, þegar þau komu yfir um. Eftir að hafa heilsað, var þeim vísað til sætis, og umræður hóf- ust um daginn og veginn. „Jæja, nú er' kaupakonan komin“, mælti Tími. til frú Hriflu og Efíaltesar „og nú væri gott að fá aö heyra samningana, ef þeir væru tilbúnir". „Stefnuskráin er tilbúin“, sagði frú Hrifla, „En heyrðu, heillin," mælti hún til Lygi. „Stefnu- skráin er sniðin eftir þér, og getur ekki kornist í framkvæmd, nema með þínu liðsinni. Hún stendur og fellur með þér“. „Ekki skaðar þótt skráin sé lesin", mælti Lygi. „Lestu þá, sonur sæll„, mælti frú Hrifla til Efíaltesar. Efíaltes gengur að borðinu, tekur stefnuskrána og byrjar að lesa, mjög hátíðlega. „Stefnuskrá þessi er runnin af öldu þeirri, sem gengið hefur yfir landið undanfarna daga. Okkar góðu vin- kona hefur verið steypt af stóli, en Sannleikur settur í staðinn. Nú er það áform okkar að hiálpa henni til að ná völdunum aftur, en síðan eig- um við að vera meöráðamenn henn- ar og hafa mat fyrir. Málin sem eru á stefnuskránni eru aðallega þrjú. Fyrsta málið er samvinnumálið. Við ætlum að taka að okkur samvinnuhugsjónina og.útskýra hana eftir okkar eigin hvötum og vinna að henni á allskonar grundvelli. Verzlunina ætlum við að sníða eft- ir henni og binda alla kaupmenn í sigurþræði samvinnunnar. Setja þá við hreinsunareld hræsninnar og láta þá bíða þar hæztaréttardóms frú Hriflu. Við ætlum með aðstoð Good- templara, að drekka upp alt ^ín, sem flyzt til landsins, — eftir læknisráði. Þannig getum við komið í veg fyrir öll bannlagabrot andbanninga. Þriðja málið er að hrífa alþýðuna undan oki auðvaldsins. Lyfta henni upp fyrir þokutinda þekkingarleysisins, alla Ieið upp á hábrúnir hugsjónanna". Lygi hafði setið þögul og svipþung meðan á lestrinum stóð, en nú stóð hún upp og mælti með nokkurri þykkju: „Svo eg á þá að vinna að göfugum hugsjónum". Þú mátt ekki taka þetta ait of alvarlega", mælti Efíaltes, þetta er að eins formið, sem á að vera svona göfugt. Við ætluin að eins að grímuklæða þessar hug- sjónir og láta þær síðan ganga eins og úlfa meðal sauða. Okkur dettur ekki í hug' að taka samvinnuhugsjón- ina eins hún er í insta eðli, því það er göi g hugsjón, en það er al- drei gróðavegur að gangast fyrir þeim. Samvinnuhugsjónin er svo víðtæk, að n ð samvinnugrímunni getum við b „iidað okkur inn í nærri öll mál og aukið veg okkar með því að vekja þar úlfúð og illdeilur. Þetta er á- formið. Það er nauðsynlegt að hafa hylli alþýðunnar til þess, að geta æst hana upp á móti yfirboðurum sínum. Hún er nógu auðtrúa, ef menn kunna gott taumhald á henni. Aftur á móti munum við hafa það silfur af henni, sem við getum.“ Glampandi gleðibros lék um varir Lygi. Hún mælti: „Þarna sé eg að er verkefni fyrir mig og ekki mun mig munninn bila. Eg er albúin þess að staðfesta samninginn". Niðurl. næst. Jón Magnússon frá Skeggjastöðum á Jökuldal. 1 nýkomnu bréfi frá íslandi barst sú frétt, aö Jón bóndi Magnússon frá Skeggjastöðum á Jökuldal hefði andast 25. jan. síðastliðinn hjá dótt- ur sinni og tengdasyni, Birni Þor- kelssyni (frá Klúku) í Hnefilsdai á Jökuldal. Vandamenn hans og vinir ýmsir hér vestan hafs hafa óskað þess að eg skrifaði nokkur minning- arorð um Jón; átti hann hér marga ættingja og vini. jón ól allan aldur sinn á Skeggja- siöðum, nema 10 ár, var hann þó hálf áttræður, er hann lézt. Þegar hann kvæntist, fluttist hann að Mýrnesi í Eiðaþinghá, og bjó þar 5 ár, flutti síðan að Skeggjastöðum og bió þar eftir föður sinn, þar til nálægt 5 árum áður en hann lézt, þá brá hann búi og flutti til áðurnefnds tengdasonar síns og Guðríðar dóttur sinnar. Var þá ellin farin að lama starfsþrek þeirra hjóna, ogerfittorð- ið um að fá vinnufólk. Sigríðurkona Jóns lézt rétt eftir það, um jólin 1918. Faðir Jóns var Magnús bóndi Pét- ursson á Skeggjastöðum, ættaður frá Héðinshöfða á Tjörnesi í Þingeyjar- sýslu. En rnöðir Jóns var Guðný Stefánsdóttir t'rá Gilsárvöllum í Borg- arfirði eystra. . >na Jóns var Sigríður Jónsdóttir ocnda Einarssonar, frá Snjóholti í Eiðaþinghá, en móðir hennar og kona Jóns í Snjóholti, var Guðný Sigfús- dóttir yngri, dóttir síra Sigfúsar Guð- mundssonar að Ási í Felluni. Sig- ríður var ekkja, er hún giftist Jóni. Var fyrri maður hennar Halldór Jóns- son Halldórssonar, ættaður úr Mý- vatnssveit. Sá Halldór (afi Halldórs Jónssonar) druknaði í Kaldá í Jök- ulsárhlíð. Um þann atburð var kveð- in þessi vísa: „Halldór veldis völdum snildar vildi halda. Höldi gildum Kaldá kældi, kvöldaði snild en alda’ hann tældi.“ Þau Halldór og Sigríður áttu eina dóttur, Guðnýju að nafni, er hún gift Magnúsi Hjörleifssyni í Vestur-Sel-

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.