Austurland


Austurland - 10.09.1921, Síða 4

Austurland - 10.09.1921, Síða 4
4 AUSTUkLAND Lyfjabuð Seyðisfjarðar hefur meðal annars: Fljótandi rottueitur bráðdrepandi — óskaðlegt öðrum dýrum. Þurkuð egg — þurkaða eggjarauðu — Eggjaduft. Singelvatte bezta og drýgsta the, sem fáanlegt er. Matarlím — Vanillesykur. Svartan Kandís — íslenzk Fjallagrös. Auglysing. Eimskipið „ísland“ fer frá Kaupmannahöfn 16. september n. k. tii Leith, þaðan 20. september til Seyðisfjarðar, þaðan norður um land til Akureyrar, ísafjarðar og Reykja- víkur og svo til útlanda. AUSTURLAND kemur út vikulega. Verð 5 kr. árgangurinn. Gjalddagi 1. júlí Ritstjóri og ábyrgðarmaður Guðm. G. Hagalín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maður Herm. Þorsteinsson — Sími 13 B — Prentsmiðja Austurlands. SundmagarTTT "r!,i St. Th. Jónssonar, Seyðisfirði. Bryggja og huseignir Hafnarsjóðs Seyðisfjarðarkaupstaðar verða leigðar frá næstu áramót- um. Tilboð sem tilgreini eftirgjald og til hvers beiðandi ætlar að nota eignina, séu komin hingað á skrifstofuna fyrir 15. okt. næstk. Bæjarfógetinn á Seyðisfirði, 8. sept. 1921 Jón Þór. Sigtryggsson. Settur. R AFMAGNSTOÐVA R AFMAG NSTOÐVAR Afgreiðslan Mótorbátur til sölu. Fáheyrt álnavöruverð á þessum tímum. Fataefni frá kr. 6 pr. meter, í fatnað kr. 20 og 33. Súkkulaði Smjör Sykur Mjólk Kaffi Te Frakkatau kr. 15 pr. meter. Lasting á kr. 4,75 pr. meter. Silkiflauel á kr. 11 pr. meter. Kjólatau kr. 6 og 12,75 pr. mtr. tvíbr. Cheviot kr. 15 og 18. Sjalklútar allstórir kr. 8,75. Sokkar, karla kr. 3,75 og kven. kr. 4,75. Vasahnífar Rakvélar Hnífapör Skeiðar Litur Sódi Tibúin föt, útlend og hér saumuð. Byssur og riflar koma með næstu ferð, verða þá líklega helmingi ódýrari en að undanförnu. •Verzlun E. J. Waage. Mótorbátur 8 smálestir að stærð, súðbyggður úr B/eik. Með 10 hesta nýlegri og ágætri Gideonsvél með öllu tilheyrandi og vel útbúinn, er til sölu. Veiðarfæri geta fylgt ef vill. Bátur og vél hefir verið vel hirt og er í ágætu standi. Listhafendur snúi sér til Herm. Þorsteinsson kaupm. Seyðisfirði Fóðursíld til sölu í eikartunnum, verð 15 kr. fob. ísafirði. Nánari uppl. hjá Einari Jónssyni, verzlunarm. Seyðisfirði. efninu, sem honum finst auðsýnilega mjög skemtilegt. — Vertu nú ekki að þessum fjanda, Mitrij, segðu mér nú frá þessu. Segðu mér það nú, heyrirðu það. — Æ, láttu mig nú vera, Sergej. Eg er löngu búinn að segja þér frá því, hvíslaði Mitrij í bænarróm. En hann hefur víst vitað að hér var ekki við lambið að leika sér. og hóf því máls: — Jæja þá, við háttuðum og eg sagði: Maðurinn þinn get egekki verið, Marja. Þú ert heilbrigð og þróttmik- il stúlka, en eg er veikur og þrótt- laus vesalingur. Það var ekki e g, sem vildi kvænast, það var pabbi, sem neyddi mig til þess. Kvænstu, sagði hann — og þar með búið. Eg hef aldrei skift mér af kvenfólki og sízt af þér. Þú ert alt of fjörug — já — og ekkert af þessu skil eg — skil- urðu það . . . þenna viðbjóð — og synd — og svo börn, sem maður á að standa guði skil á. —-j Viðbjóð! hrín í Sergei, sem skellihlær. — Nú, og hvað sagði svo Marja? — En hvað ætlastu þá til að eg geri — sagði hún grátandi — þykir þér þá ekkert vænt um mig, eða er eg þá hreinasta afhrak? -— Nei, en Sergei, eg held að hún sé alveg blygðunarlaus og svo vond manneskja í ofanálag — Finst þér þá rétt — sagði hún — að eg bjóði mig hon- um tengdaföður mínum? Eg svaraði: Hafðu það alveg eftir þínu höfði og Ieitaðu þangað sem þér sýnist. Eg get ekki misboðið eðli mínu.......... Ef nú hefði verið um ást að ræða — það hefði verið sök sér — en svona eins og það er. — Hann afi minn sagði: hvernig er það nú annars? — þetta framferði er dauðasynd. Erum við, þú og eg, þá aðeinsdýr? — spyreg. Hún grætur og grætur og segir: — Þú hefur rænt mig æsku minni og heiðri. — Þá kendi eg í brjósti um hana, en, sagði eg, þú munt sjá um þig. Annars geturðu gengið í klaustur. Svo fór hún að skamma mig. — Þú ert fífl Mitrij — fantur — Sjáum til! hvíslar Sergei sigri hrósandi — nú, svo þú skauzt því að henni að ganga í klaustur? — Já, það gerði eg, segir Mitrij blátt áfram. — En kallaði h ú n þig fífl? spyr Sergej og er nú háværari. — Já, það gerði hún. — Það var rétt af henni, kunningi. Það var alveg hárrétt af henni. Hún hefði átt að berja þig! Alt í einu skiftir Sergej um rödd og talar nú í eggjandi refsiróm: — Heldurðu að þú getir kannske gengið þvert í bág við lögin ? Já, það gerðirðu. En það setn er í lög leitt, það er í lög leitt, og um það .verður ekki deilt. En þú fórst eftir þínu |höfði. Það var fallega af sér vikið. í klaustur! Heimskingi! Hvað heldurðu í raun og veru að konan þrái mest? Heldurðu að það sé að komast í klaustur? Ja, miklir and- skotans asnar geta menn verið nú á dögum! Huggleiddu nú þetta rétt í þetta sinn — hver hefur nú orðið af- leiðingin af þessu? Þú ert hvorki heill né hálfur. Stúlkuna hefur þú farið með í hundana. Hún er orðin frilla gamla mannsins. Og gamli maðurinn gerir sig sekan í syndsamlegu samlífi við tengdadóttur sína — og það er líka þér að kenna. Finst þér þú svo ekki nægilega sek- ur gegn lögunum? Hvílíkur bölvað- ur asni þú getur verið! — Heyrðu Sergej! Lögin eru í sál hvers og eins. Eitt lögmál er öllum gildandi: Gerðu aldrei neitt gegn samvizku þinni og þú munt al- drei valda neinu illu í heiminum! Mitrij sagði þetta rólega og eins og hann vildi leita sátta. Og hann hristi höfuðið. — En þú hefur drýgt synd, sagði Sergej ákveðinn. — Margt getur fundist í fylgsnum sálarinnar — og við getum ekki boðið öllu byrginn. Nei, vinur minn, við verðum að geta skilið sálina — og breyta svo eftir þeim skilningi. — Nei, Sergej, svona máttu ekki skilja það, sagði Mitrij ákafur, eins og hann alt í einu væri nú kominn í æsing. — Sálin, hún er alt af, eins og þú skilur, ,hrein eins og daggar- dropi. Um hana er skurn — og hún er langt inni. En ef þú gerir þér far um að hlýða á rödd hennar, þá munt þú ekki fara villur vegar. Alt sem þú gerir mun verða í samræmi við guð, ef þú hlýðir sál þinni. Því að eins og þú veizt er guð í sálinni — og þá lögmálið Iíka. Af guði er það skapað og blásið mönnunum í brjóst. Menn verða að eins að geta horft inn í sál sína og mega ekki hlífa sjáifum sér.--------- Framh.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.