Austurland


Austurland - 08.10.1921, Page 1

Austurland - 08.10.1921, Page 1
37. tbl. Seyðisfirði, 8. október 1921 2. árg. Kaupendur „Austurlands“ sem ekki hafa greitt andvirði blaðsins fyrir þetta og fyrra ár, eru vinsamlega beðnir að greí&a það sem allra fyrst. Annaðhvort með því að senda greiðsluna beint til afgreiðslu- manns, eða til verzlana H.f. Framtíðin hér á Austurlandi, sem góðfúslega hafa lofað að taka við andvirðinu. Einnig eru allir þeir útsölumenn, sem ekki hafa gert reikningsskil fyrir blaðið, beðnir að gera skil fyrir þeim eintökum er þeim hefur verið send, bæði fyrir þetta og fyrra ár, og senda þau sem allra fyrst til afgreiðslumanns, ásamt andvirði fyrir hin seldu eintök. Virðingarfyllst Hermann Þorsteinsson afgreiðslumaður Astandið nú. Haustkauptíðin stendur nú sem hæst yfir. Þá eru reikningsskil gerð, þá fá menn að vita hversu hefur borgað sig sumarvinnan, hvort alt brosir við eða hvort svart er framundan. Bændur eru nú fjölda margir hér í bænum. Sá er vill kynna sér hag landbúnaðarins á ári þessu hefur tækifæri til þess nú. Og niðurstaða sú, er hann kemst að, getur varla orðið til þess að létta brúnina. Bændur kaupa mest af vöru sinni ári og hálfu öðru ári áður en þeir koma framleiðslu sinni í peninga. Á verðfallstímum er fljótséð, hvað af því leiðir. í er- lendu vörukaupunum eru þeir heilu og hálfu ári á undan verð- fallinu, í sölu afurða sinna fylgj- ast þeir með því. Afleiðing þessa verður aftur á móti sú, að mis- munurinn á hlutfallslegu jafnvægi innlendrar og erlendrar vöru verð- ur skuld. Hjá því verður eigi komist með öðru móti en því, að framleiðslan sé meiri en áður. En sízt hafa nú tímarnir verið svo, hvort sem litið er til fólksafla eða verkakaups, að bændunum hafi unt verið að auka framleiðslu sína. í ofanálag hafa peningar eigi fengist gegn hvaða tryggingu sem vera skyldi, og því eigi hægt um vik að auka við sig eða færa út kvíarnar. í fyrra haust hófust vandræðin. Þá byrjuðu skuldirnar að íþyngja mönnum. Og nú er svo komið, jafnvel um þá bændur er eiga mik- inn fjárstpfn og góðar jarðir, að innlagið hrekkur ekki til upp í skuldirnar. Fá þeir því ekki út peninga og standa í verstu vand- ræðum með alt þaö, er þeir þurfa utan hins nauðsynlegasta af er- lendri vöru. Að líkindum neyðast margir til að skerða bústofn sinn enn þá meira en þeir ætluðu í fyrstu, og afleiðingin verður sú, er aukið verðfall kemur næsta haust, að skuldirnar standa við það sama eða verða enn þá meiri en áður, en framleiðslan minkar að tnun — og vegna skerðingar á nauð- synlegum bústofni tekur viðreisn- in mörg ár. Áður hefur all rækilega verið minst á hvernig horfir fyrir sjávar- útveginum. Þar er ástandið ekki glæsilegra. Og alt meinið liggur í því, að íslenzka þjóðin hefur ekki getað fylgst með verðlækk- uninni erlendu og eigi hefurverið séð ráð fyrir fé til framleiðslunn- ar. Ætli íslenzka stjórnin fari nú ekki að sjá þaö, að æskilegra hefði verið að fá lán í tíma og gefa frjáls erlend vörukaup. Vel mætti vera að ríkið skuldaði all miklu meira en nú, en hitt væri víst, að hagur allra framleiðenda mundi miklum mun betri og vér gætum litið mót batnandi tímum, í stað þess, sem það virðist nú orðið mjög vafasamt, hvort eigi liggur fyrir dyrum algjör uppgjöf atvinnuveganna og þá ríkisins. í slíkum málum er eigi tjaldað til einnar nætur. Fyrirhyggjan marg borgar sig og fyrirhyggju- leysið kemur mönnum margfalt í koll. Og víst er um það, að ef lán hefði verið tekið, þá hefði nú ríkissjóðurinn talsvert meiri tekj- ur en nú. — Eitt af því sem athuga ber í sambandi við þessi mál er það, hversu mikið hefur verið að því gert undanfarið að auka sífelt við lífsþarfirnar. Allskonar erlend ó- þarfa tízka hefur rutt sér til rúms í öllum lifnaðarháttum. Tízka, sem á hér ekki við, hefur alls ekki verið ^samræmd lifnaðarháttum vorum, sem náttúran afskamtar oss. og á álíka vel við og hvít silki- bót á sauðsvartar vaðmálsbuxur. Ættu menn nú að hugsa til þess, að svo má lífið verða mönnum gleðilegast, að þeir lifi sem ein- földustu og fegurstu lífi og sem mest í samræmi við staðháttu og sitt eigið eðli, er af þeim mark- ast. Þá er og svívirðing sú, er hef- ur átt sér stað í innanlandsvið- skiftum. Bændur og sjómenn hafa selt hterir öðrum vöru sína feikna verði og miðað alt við erlent verð og jafnvel farið fram úr því, þótt um bein vöruskifti hafi verið að ræða. Kaupstaðarfólkið hefur gef- ið kost á sér fyrir feikna kaup í sveitirnar og bændurnir svo aftur í viðskiftum reynt að okra sem • niest á því. Og sumir menn eru svo grunnhygnir, aö þeir segja að þetl^ skifti engu máli, þegar sjáv- ar- og land-afurðir mætist með hlutfallslega jafn háu verði. En þeir hinir sömu gefa því ekki gaum, að í fyrsta lagi stuðlar þetta að því að halda við dýrtíðinni í allskonar verzlun í smáum og stórum stíl, milli einstakra manna og heilla stétta. Ennfremur hefur þetta orðið til þess að verzlunin innanlands hefur orðið miklu minni en ella. Ef svo væri nú, að á stríðsárunum hefði tekist mjög víðtæk viðskifti milli fiskiþorp- anna og sveitanna, væri nú miklu minna flutt inn af erlendri vöru en nú er og minna út af íslenzkri. Og meðan íslenzk vara er í hlut- fallslega lægra verði en útlend, er landinu stórgróði að því, að sem minst sé flutt inn og mest af af- urðunum notað í landinu sjálfu. Því minni verður hallinn sem minni er veltan. Og því, minna er að varpa af sér, þegar góðu árin koma, sem lausn fjárhagsvandræð- anna og verðfallið hefur í för með sér. En mikið má enn gera, og hér hefur verið bent á mál, sem hægt er að gera á verulegar umbætur. (ískiljanlegt tiltæki bæjarstjórnarinnar. Svo sem öllum bæjarbúum mun kunnugt, hefi jeg undanfarin ár haft á hendi afgreiðslu skipa Sam- einaða gufuskipafjelagsins og Berg- enska fjelagsins. Hefi jeg haft á leigu hafnarsjóðseignirnar] hjer, til afgreiðslu þessara skipa. En í vetur sagði bæjarstjórnin upp leigu- samningnum við mig. Eigi væri það óeðlilegt að bæj- arstjórnin vildi hafa sem mest upp úr, fyrir hönd bæjarins, eignum hafnarsjóðs. En þess ber þó að gæta, að slíkar eignir eru frekar ætlaðar til óbeins gróða og þæg- inda bæjarbúum, heldur en til þess að bærinn hafi af þeim mikl- ar beinar tekjur, sem fengnar voru með ráðstöfunum, sem að öðru leyti en tekjunum væru óheppileg- ar og óhagstæðar bæjarbúum. Hingað til hefir bæjarsjóðseign- unum verið stjórnað eftir sérstakri reglugjörð, sem fylgt hefur verið mjög svo nákvæmlega. Öll skip hafa átt kost á því að fá afgreiðslu við bryggjuna og liggja þar. Gufuskipafjelögin tvö, sem áður eru nefnd, hafa haft hjer talsvert miklar siglingar, þótt nokkuð hafi það á stríðsárunum verið minna en áður. Bæjarbrygjan er insta bryggjan, sem skipum er óhætt að leggjast við, og næst miðjum bæn- um. Eru því afar mikil þægindi að því fyrir bæjarbúa, póstaf- greiðslu og farþega að skipin hafi afgreiðslu þar. Bryggjan hefir veriö hrein og þrifaleg, enginn fiskur verið lagður þar upp, eöa fiskaðgerð farið þar fram. Úti við hin svokölluðu Madsenshús á jeg sjálfur bryggju, sem er helm- ingi utar en hin og nota þarf til fjölda margs, svo sem fiskiaf- greiðslu og annars þessháttar. Virðist því flestum að nokkur munur sje á því, að afgreiðslan fari fram við bæjarbryggjuna, en ef um það væri að ræða, að skip- in væru afgreidd við Madsens- hús. Mun því fleirum finnast það en mjer, að bærinn ætti að sjá sóma sinn í því, að afgreiðsla nefndra skipa gæti framvegis farið fram við bæjarbryggjuna. En að því verður vikið síðar. í síðastliðnum mánuði skrifaði jeg bæjarstjórninni brjef, þar sem jeg fór fram á framlengingu samn- inganna. Mun flestum finnast, að sjálfsagt hefði verið að bæjar- stjórnin svaraði brjefi mínu, en í stað þess að gera það, samþykti hún að auglýsa til leigu eignir hafnarsjóðs. Bjóst jeg í fyrstu við að útboðið næði að eins til bæj- arins, og varð því heldur en ekki undrandi, þegar jeg fekk að vita, að eignirnar höfðu verið auglýst- ar í öllum kaupstöðum landsins.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.