Austurland - 26.11.1921, Side 4
4
ASUTURLAND
skortir til lengdar fé til skipasmíði
á móts við Bandaríkin. En allur
heimur mun nú biða þess með ó-
þreyju að sjá hver árangur verð-
ur þessarar ráðstefnu.
Anatole France.
Franska skáldið Anatole France,
sem nýlega var getið um að feng-
ið hefði Nobelsverðlaunin, er
fæddur 16. apríl 1844. Var faðir
hans fornbókasali og hneigðist
þvi Anatole mjög snemma að
klassiskum bókmentum. Þá er
hann hafði lokið námi, starfaði
hann um tíma að útgáfu slíkra
bókmenta, en varð síðan ritdóm-
ari við stórblaðið Le Temps. Síð-
an tók hann að gefa út eftir sig
skáldrit, sögur frá miðöldunum,
fornöldinni og úr nútíðarlífinu. Er
hann listamaður hinn mesti, dáir
fegurðina í stíl og máli, 'gerir gys
að mönnunum í samtíðinni, en
er þó vinur þeirra, sem bágt eiga.
Anatole France kvæntist í fyrra
ungri stúlku.
Danir og Norðmenn um Grœnland.
Milli Norðmanna og Dana
stendur nú allhörð hríð út af
Grænlandi. Norðmenn vilja alls
ekki fyrir nokkurn mun láta af
hendi þau réttindi, sem þeir hafa
haft við Grænland. En Danir vilja
ekki láta neinar erlendar þjóðir
hafa nokkur réttindi á fiskimiðun-
um grænlenzku, eða við neinar
veiðar í höfunum umhverfis Græn-
land. Dönsku blöðin eru mjög
svo gröm við Norðmenn, og hin
norsku hvessa líka róminn. En
stjórnirnar vinna að bróðerni og
sáttum, einkum vill Schavenius,
utanríkisráðherra Dana, fara gæti-
lega í sakirnar, og segist hann
mikið vilja til þess vinna, að hið
norræna samstarf spillist ekki fyr-
ir þessar sakir. Svíar taka í streng-
inn með Dönum og eru með
slettur í garð Norðmanna. Ráð-
leggur eitt svenska blaðið þeim
að láta Eirík hinn rauða liggja í
friði í gröf sinni og fjalla um
málið með tilliti til vináttu þeirr-
ar og samúðar, sem hafi falist í
samstarfinu á stríðsárunum. Þetta
sænska blað veit eftir þessu að
dæma eigi betur, en aö Eiríkur
rauði hafi helgað Norðmönnum
Grænland með landnámi sínu. Er
þó blaðið „Aftonbladet", eitt af
helztu blöðum Svía.
Hitt og þetta.
Mannalát.
Látinn er á Hákonarstöðum á
Jökuldal Pétur Kristjánsson bóndi,
maður á bezta aldri og einn af
mestu myndarbændum hér eystra.
— Látinn er hér í bænum Jón
Stefánsson á Vestdaiseyri, 85 ára
að aldri.
Leidrétting.
Sagt var frá í síðasta blaði
„Austurlands“, að dáið hefði í
Bökunarduft
búðingsduft, succat, Glaxo, þur-
eág* eggjaduft o. fl. o. fl. iæst í
Lyfjabúö Seyöisfjaröar.
Reykt sfld.
Ágæt reykt s í I d fæst nú hjá
Herm. Þorsteinssyni.
Vátryggingar
Brunatryggingar
Sjóvátryggingar
Stríðsvátryggingar
Sigurður Jónsson
Simi 2 og 52.
"|i ,Framtíðin‘
hefur nú fengiö nýjar vörur
svo sem:
Tvíbökur
Kringlur
Baunir
Bankabygg
Heilmaís
Soda
Súkkulaði 4 teg.
Rúsínur
Sveskjur
Maccaroni
Sáldsykur
Melís
Mjólkurmjöl
Skraa
Rjól
»» " ’
Engin verzlun austanlauds sel-
ur ofannefndar nauðsynjavörur
eins ódýrt og
h|f Framtíðin
Seyöisfirði.
Héraði Einar Hallsson. Átti að
vera Hallur Einarsson.
Fullveldisdagsins
veröur minst itieð samkomu í
barnaskólauum, er hefst kl. 5 síðd.
Hafa fimm ræður verið ákveðnar.
Síðan frjáls ræðuhöld og danz.
Veitinar selur „Kvik“ á staðnum
og inngangur ókeypis.
Til leiöréttingar.
Bjarni Sæmundsson, yfirkennari,
hefur vakið eftirtekt mína á því,
að nokkrar villur hafa slæðst inn
í grein mína í vor um náttúru-
fræöafélagið og Eggerts Ólafsson-
ar sjóðinn. 1. að náttúrufræða-
félagið hefur eigi enn þá ákveðið
að útgefa fræðileg rit um hinar
ýmsu greinar náttúrufræðinnar. 2.
að Eggerts Ólafssonar sjóðurinn
Tækifæriskaup
40 hesta DanvéS
er hægt að fá
fyrir 4000,00 kr.
Upplýsingar hjá
Indriða Helgasyni
stendur ekki í neinu sambandi við
náttúrufræðafélagið.
//. Sc/itesch
cand. pharm.
All-vel
aflast nú hér á fjörðunum, þeg-
ar gefur, og er stutt róið.
Geir Þormar
frá Geitagerði, útlærður tréskeri
er nú hér í bænum við tréskurð.
Gefst þar gott tækifæri til af afla
sér fallegra jólagjafa. Eitt af verk-
um Þormars er hinn kunni „AIa-
fossbikar".
Eyjólfur Jónsson,
bankastjóri, hefur verið skipað-
aður sænskur vicekonsúll fyrir
Austurland. Áður var sænskur
konsúll Jón kaupmaður Arnesen
á Eskifirði, sem nú er fluttur til
Akureyrar.
Hiö mesta
mein er að rottum hér í bæn-
um og væri hin mesta þörf á að
þeim væri útrýmt. En eigi þýðir
slíkt, nema það sé gert allsstaðar
í einu. Kom málið til umræðu
síðast á bæjarstjórnarfundi — og
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Guðm. G. Hagalín
— Sími 54 —
Afgreiðslu- og innheimtu-maður
Herm. Þorsteinsson
— Sími 13 B —
Prentsmiðia Austurlands.
Allskonar timbur
nýkomið
Hinar Sam. ísl. verzlanir
Vestdalseyri.
Tilbúin föt
úr ágætu efni, fást hjá
Marfu Þórðardóttur, Ósi.
Víxileyðublöö
selur
Prentsm. Austurlands.
verður fremur á það minst í næsta
blaði.
Takiö eftir!
í síðasta blaði misprentaðist í
auglýsingulandsverzlunarinnarverð
á rúgmjöli 46,00 kr. 100 kg. á að
vera 47,00 kr.
Klukkan 8
í morgun lézt Þorsteinn Arn-
Ijótsson kaupmaður á Þórshöfn.
Var hann elzti sonir síra Arnljóts
Ólafssonar, hálfsextugur að aldri.
Var hann alkunnur gáfu og gæða-
maöur.
Skíði
úr bezta efni (Hykcorí six) með norsku lagi og fóta-
búnaði, smíða og sel eg undirritaður. Þeir sem
kynnu að vilja fá sér skíði, sendi pantanir sem allra
fyrst meðan upplagið endist.
Sig. Jónsson, Seljamýri, p. t. Seyðisfjörð.
Munið eftir.
Allir, sem þurfa að auglýsa í blað-
inu eða fá prentun og pappír hjá
prentsmiðjunni, eru beðnir að snúa
sér til Herm. Þorsteinssonar eða
prentaranna í prentsmiðjunni. : :
E. s. Botnía
fer frá Kaupinannahöfn 2. des., til Reykjavíkur,
ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar — og það-
an út.
Afgreiðslan.
Rammalistar
(margar tegundir) nýkomnir. — Myndir innrammaðar.
Sigurður Björnsson.