Austurland


Austurland - 10.12.1921, Page 4

Austurland - 10.12.1921, Page 4
4 ASUTURLAND Magnús Þorsteinsson, útgerðarm., Sigbjörn Stefánsson, verkstj., Stefán Ingvar Sveinsson. 65: Brynjólfur Björgólfsson, tré- smiður, Sigurveig Guttormsdóttur, símamær. 60: Bjarni Þ. Skaftfell, rafstöðvar- stjóri, Böðvar Jónsson, kaupm., Hall- dóra B. Haraldsdóttir, símamær, Jón St. Scheving, síldarmatsmaður, Jón Vigfússon, byggingameistari, Lára Björnsson, símamær, Þorbjörg Ingi- mundardóttir, símamær. 55: Guðm. Benediktsson, gullsmið- ur, Guðrún Gísladóttir, forstöðukona, Sveinn Stefánsson, bátasmiður. 50: Bogi Benediktsson, verzlunarm., Einar Sv. Þorsteinsson, trésmiður, cand. phil. Gunnhild Horring, Ingim. Ingimundarson, verkam., Jón Sigurðs- son, verzlunarm., Jónas Helgason, ökum., Jónas Rósinkranz, verkam., Jentoft Kristiansen, skipstjóri, Ketill Bjarnason, trésmiður, fröken Rakel Imsland. Sigurður Þorsteinsson, verka- maður, Stefán Böðvarsson, verkstj., T. L. C. Imsland, verzlunarm. Svar til Jóns í Firði. í síðasta tbl. „Austurlands" kemur nýr maður fram á vígvöllinn, til þess að rita um Garðarshúsamálið. Mað- urinn er Jón Jónsson, bóndi í Firði og jafnframt fulltrúi St. Th. Jónsson- ar. Þar sem grein hans er bein á- rás á mig, bygð á rakalausum full- yrðingum og ósannindum, þá neyð- ist eg til að svara honum nokkrum orðum þrátt fyrir það, þótt Iesendur „Austurlands" séu að sjálfsögðu orðn- ir leiðir á ritdeilunum um þetta mál, og þrátt fyrir^það, þótt ritstjóri blaðs- ins sé búinn að lýsa því yfir, að hann veiti ekki upptöku fleiri grein- um um það, því að eftir því sem eg frekast veit, gefa gildandi lög um prentfrelsi mér rétt til að svara að minsta kosti ýmsum atriðum í áður- nefndri grein. Greinarhöfundur er svo ósvífinn að neita því að nokkur mótspyrna hafi verið innan bæjarstjórnarinnar gegn því að eigninni væri sagt lausri. Hins- vegar telur hann allar deilur um mál- ið hafa orsakast af því hve ófimlega og ókurteislega eg hefði flutt það. Eg hreyfði þessu máli fyrst sumarið 1920, eins og Jón í Firði man að sjálfsögðu eftir, og eg hefi minst á lauslega hér í blaðinu áður. Hreyfði því með gætni og stiilingu og fullum skilningi á því að varlega yrði að reifa málið ef samvinna ætti að nást um það innan bæjarstjórnarinnar. Ste- fán Th. Jónsson og samherjar hans, þar á meðal Jón í Firði,jusu mig óbóta- skömmumfyrir að eg skyldi gerast svo djarfur að gefa í skyn að eignin væri of Iágt leigð. Kváðu mig skorta bæði vit og þekkingu til að tala um jafn umfangs- mikið mál eins og bér væri um að ræða, enda bæri hagur Hafnarsjóðs, sem stæði með miklum blóma, bezt vitni um það, hvort eignin hefði ekki verið leigð sæmilega. Uppsögn kváðu þeir ekki einungis varhugaverða, held- ur á engu viti bygða. Eg gafst upp við málið í þetta skifti, enda voru úrslit þess fyrirsjáanleg, eins og. bæjarstjórnin var þá skipuð. Eg tók svo upp málið aftur í janúar síðast- liðinn vetur, og kom þá með ákveðna tillögu um að eigninni væri sagt lausri. EkRi minnist eg þess að hafa, er eg fluttí og mæíti með tillögu þess- ari viðhaft nokkur þau orð eða um- mæli sem ekki standa ennþá óhögg- uð, en hins vegar var eg eitthvað harðorður út af meðferð eignarinnar enda þá orðinn málinu" kunnugri. Undirtaldir samherjarar St. Th. J. (sjálfur var hann þá ekki í bæjar- stjórn), Jón í Firði, E. Jónsíon o. s. frv. voru á sömu leið og áður. Þeir kváðu ekkert vit í að segja eigninni lausri, rengdu öll gögn sem eg hafði fram að leggja, og spöruðu engin stóryrði í minn garð og annarra þeirra, er mér fylgdu að málum. Ennfremur héldu þeir fram þeirri meinloku sem Jón í Firði endurtekur nú aftur í blaðinu, að uppsögn yrði að vera bundin við áramót, þrátt fyr- ir það þótt leigutaki liefði engan leigusamning. Þó benti ýmislegt á, að skoðun þeirra félaga hefði ekki það fylgi innan bæjarstjórnarinnar, sem þeir bjuggust viö og að þeir myndu verða í minni hluta, þegar málið kæmi til úrslita. Var málinu svo vísað í nefnd til athugunar. Nefndin lagði til að eigninni yrði §§gt lausri og var þar með allri mót- spyrnu gegn þessari hliö málsins lok- ið. Jón í Firði og Eyjólfur Jónsson mæltu nú báðir með tillögunni, hafa sjálfsagt haldiö að öll undangengin stóryrði þeirra væru gleymd og bezt geymd á þann hátt að jeta þau ofan í sig, og talið heppilegast að gera það að svo miklu leyti sem því varð við komið, úr því að þau komu ekki aö gagni. Eg vona nú að lesendur blaðsins geti verið mér sammála um það, að vissir menn innan bæjar- stjórnarinnar hefðu ástæðu til aö blygðast sín fyrir meðferð málsins og eignarinnar í heild sinni fyrog síðar. Jón í Firði telur mig hafa verið viku að pæla í reikningum Hafnarsjóðs og áætlar mér þar sennilega sama tíma og sjálfum sér, sem er skiljanlegt og frá hans sjónarmiði sjálfsagt réttmætt En það sem mestu máli skiftir er það, að á hans útdrætti er ekkert að græða en minn aftur á móti svo greinilegur að hver maður með ofur- Iítilli skynsemi getur áttað síg á hon- um. Hvað kústhausum, rekum, snærum til körfuaðgerðar o. fl. viðvíkur, þá fanst mér óeðlilegt að Hafnarsióði bæri að borga að minsta kosti sumt af þess konar smávörum sem tilfært var á reikningunum, t. d. hefur eign- in mér vitanlega aldrei átt körfur, né heldur þurft á þeim að halda og hefði þar af leiðandi ekki heldur átt að þurfa að kaupa neitt efni þeim til viðhalds. Allri þvælu greinarhöf. um meðferð málsins í bæjarstj. nú síðast, nenni eg ekki að vera að svara, enda hefur K. Finnbogason skýrt frá henni hér í blaðinu. Þó má geta þess að St. Th/ J. gerði ekki kröfu til að kolaplássið væri leigt með húseign- inni. Sótti sem sé um“ hann alveg sérstaklega. Jón í Firði segir að St. Th. J. hefði flutt afgreiðslu þeirra tveggja gufuskipafélaga, sem hann er um- boðsmaður fyrir til annarar bryggju ef ekki hefði orðið samkomulag milli hans og bæjarstjórnar. Eg er nú fyrir mitt leyti ekki alveg viss um að hann geti teymt skip þessara fé- laga á eftir sér hvert sem honum þóknast (t. d. út á Madsenshús), Hitt þykir mér sennilegra, að hann myndi missa afgreiðsluna, ef hann ekki gæti afgreitt þau við bryggju, sem full- nægði ölium þeim aðalkröfum, sem vöru og póstflutningaskip venjulega gera í því efni. ,Batterf í vasaluktir nýkomin. I. Helgason. AUSTURLAND kemur út vikulega. Verð 5 kr. árgangurinn. Gjalddagi 1. júlí Ritstjóri og ábyrgðarmaður Guðm. G. Hagalín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maður Herm. Þorsteinsson — Sími 13 B — Prentsmiðja Austurlands. VíxileyðuMðð fást í Prentsmiðju Austuriands. Ýmsar vörur Nýkomnar svo sem Kartöflur 16 kr. pokinn. Brent og malað kaffið góða, sem allar húsmæður helzt vilja. St. Th. Jónsson. Prentsmiðja Austurlands prentar og selur ailskonar eyðublöð og reikninga, með eða án firmanafns. Hefur til sölu ágætan póst- pappír (margar teg.) og umslög, áprentað efti.r vild. • Leysir fljótt og vel af hendi allskonar prentun. Ágæt fóðursíid í tveggja strokka tunnum á kr. 55,00, fæst keypt á Unaós hjá Hinum sam. ísl. verzlunum. ---—---—-—-—--—--——-—7---------- * Aminning. Enn á ný eru þeir er skulda andvirði Austurlands fyrir þennan og fyrri árgang, vinsamlega beðnir að greiða það til innheimtumanns fyrir áramót. Ekki get eg falíist á að eignin hefði tapað á því peningalega þótt tilboði Kaupfélagsin hefði verið tekið og því leigð tvö húsin fyrir 3000 kr.. Mín skoðun var sú, að hún mundi græða á því, ef réttilega væri með hinn hluta eignarinnar farið, og í samræmi viö þá skoðun mína greiddi bg at- kvæði. Gestur Jóhannsson. A'ths. Samkvæmt prentfrelsislögunum sé eg mér ekki fært að neita alveg um svar, heldur að eins takmarka rúmið, enda virðast prentfrelsislögin skálka- skjól manna að allsendis óþarfri og framúrskarar.di leiðinlegri ritþvælu. Er langlundargeð hlutaðeigenda í Garðarshúsamálinu svo mikið, að flesta mun furða, en viðbrugðið er þolinmæði kattarins, þegar hann bíður viðmúsarholuna. Ritstj. UMBÚÐAPAPPÍR fæst keyptur í Brentsmiðju Austurlands. gingar Brunatryggingar Sjóvátryggingar Stríðsvátryggingar Sigurður Jónsson Simi 2 og 52. TVÍRITUNARBÆKUR fást eftir pöntun prent- aðar og h e f t a r í PRENTSMISJU AUSTIIRLANDS

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.