Austurland


Austurland - 17.12.1921, Page 1

Austurland - 17.12.1921, Page 1
47. tbl. Einkasalan. Áður hefur nokkrum sinnum verið minst hér í blaðinu á einkasöiu rík- isins á tóbaki og lyfjum. — Sem menn vita, er það nú fullráðið, að byrja skal við nýjár á ríkissölu þeirra vörutegundá, sem í er vínandi að mun. Ennfr; mun ætlað vera að byrja á einkasölu á tóbaki. Fór það að flestra hyggju að vonum, að stjórnin mundi nógu áræðin og ötul til að leggja út í slíkt, þrátt fyrir alla hina alræmdu gætni hennar. Og forsætisráðherr- ann er Jón Magnússon, sem „Berl- ingske Tidende" segja um nýlega, að efalaust sé gætnasti og íhaldssamasti stjórnmálamaðurinn, er nú fari með völd í nokkru ríki! Því hefur áður verið haldið fram hér, að eigi væri að eins óþarft, held- ur einnig óhæfilegt að byrja nú á hinni fyrirhuguðu einkasölu, jafnvel þótt þann veg sé litið á, að slík einkasala sé heppileg og sjálfsögð, þegar alt gengur eðlilega í viðskifta- lífinu. Nú skortir fé til framieiðslu, yfir- færslu og nauðsynlegra viðskifta, og ætti það eitt að vera nægilegt til þess að ríkið íslenzka setti eigi upp þá fíflhúfu að festa fé sitt í munaðarvöru og lyfjum, sem sannað er að eigi eru betur komin í höndum ríkisins. Einkasala ríkis þykir ávalt fara þa.nn vég, að reksturskostnaður verð- ur mjög svo mikill, afgreiðsla öll ó- þarflega formbundin, umfangsmikil og frábærlega sein. Afleiðingin af þessu verður því sú, að ríkið getur eigi selt sér að skaðlausu vöruna fyrir sama verð og einstaklingur getur selt sér án halla. Ef svo ríkiö á að græða á einkasölunni, hlýtur varan að hækka í verði. En þegar um er að ræða tóbakið, hlýtur gróði ein: mitt að vera takmarkið, sem að er stefnt. Fyrsta árið að minsta kosti mun með öllu óhætt að segja að gróðinn verði seintekinn, meðan verið er að koma verzluninni f sæmilegt starfs- horf. Þarf því eigi að gera ráð fyir því, að einkasalan bæti að neinu leyti hag landsins fyrst um sinn, held- ur þvert á móti, eins og margsinnis liefur verið bent á, dregur til sín fé, sem fylsta þörf er á til annars þarf- ura. Auk þess gæti vel svo farið, eigi minni breytingar, en nú eru á verzlunarsviðinu, að landið lenti í öngþveiti með birgðir sínar og neydd- ist til að selja þær án allrar álagn- ingar eða að öðrum kosti miklum mun hærra verði en unt væri að fá þær samkvæmt þáverandi verði á er- lendum markaði. Af slíku mundi Ieiða óánægja, er yrði afbragös gróðr- arreitur tollsvika og smyglunar, sem hægra mun að vekja upp, en kveða niður, þá er þeir draugar hafa einu sinni á kreik komist. Margt er því sem móti mælir, en fátt með. Nú kemur reynzlan, sem Seyðisfiröi, 17. ólýgnust mun talin. Má vera að hún verði búin að opna ýmsra augu, áð- ur en einkasölusýkin nær að grafa um sig víðtækar en orðið er. Á uppsigiingu er hún, það er á allra vitorði. Hitt er einnig vitanlegt, að stjórninni er trúandi til að gleypa við agninu. Væri það sízt óhugsandi, að það yrði síðasta ráð hennar til að halda völdunum, að gerast jafn mik- ill forkólfur að flasi og flani og áð- ur hefur hún verið traustur og fast- heldinn gapastokkur bráðnauðsynleg- um bjargráðum. Vandkvæði. iii. Mönnum mun sýnast svo, að þá er bent hefur verið á það, er virðist hið stóra aðalmein í hugsunarhætti og uppeldi þjóðarinnar, að næst liggi að skipa því á starfsvið skólanna að bæta úr. Vist mun og það, að skól- arnir munu geta í þessu efni velt þungu hlassi, það hafa Þjóðverjar sýnt bezt allra manna. Þar í landi var unt að skapa á tiltölulega skömmum tíma framúrskarandi sjálfsfórn einstakling- anna fyrir heildina. Föðurlandið var hið æðsta og helzta, og guð þess. Árangurinn af þeirri hinni styrku hreyfingu liafa orðið hinar miklu vís- indalegu og verklegu framfarir þjóð- arinnar, hreysti hennar og vörn í heimsófriðnum, og nú loks dugnað- urinn og samheldnin í baráttunni fyrir endurreisn landsins. En her- skyldan gerði þar mikið að verkum, er hún tók við af skólunum. Og að henni verður vikið sérstaklega seinna í grein þessari. En til þess að skólar vorir verði nýtir í þessu eíni, þurfa þeir allmjög að breytast. Menn mega ekki ein- göngu láta börnin halda að þau séu að ganga í skóla til þess að vita eitthvað, vera ekki eins og álfar ú,t úr Jiól. Alvara þarf fyrst og fremst að fylgja kenslunni í náminu öllu. Alvaran verður að skipa hásætið og það að verða skráð óafmáanlegt í hug barnanna, að þau eru að læra til þess að verða nýtir menn í mannfé- laginu og góðir og hugsandi borgar- ar síns þjóðfélags. En ef svo á að geta orðið, tjáir ekki að velja kenn- arana af handahófi, eigi eftir því hver þeirra hefur bezt próf, eða veit mest. Og því síður tjáir að velja þá að eins þannig, að sá sé tekinn, sem fyrst býðst, svo að einungis sé hægt að segja að kensla hafi farið fram. Sé maðurinn lélegur, alvörulaus og hirðulaus um að innræta börnunum eða unglingunum virðingu fyrir vinn- unni í þarfir þjóðfélagsins, þá er hann verri en enginn kennari. En slíkt desember 1921 mun mjög svo brenna við í sveitum uppi nú, þar eð illa gengur að fá þangað kennara. Hér að ofan var minst á herskyld- una í sambandi við þýzku þjóðina. Alt fram til þessa tíma hefur her- skyldan verið það, sem öllu öðru fremur hefur haldið uppi virðingu einstaklinganna fyrir þjóðfélaginu, og meðvitund þeirra um það, hve mjög þSir eru skyldir að leggja í sölurnar fyrir heildina. Frá ættlið til ættliðs hefur sú tilfinning tekið meiri og meiri þroska, er styður að sjálfsfórn einstaklingsins. I hernum hefur hann lært að hlýða ótakmarkað þeim regl- um, er settar hafa verið, bera virð- inga fyrir þeim; og yfirmönnum þeim, er hafa átt að sjá um að reglunum væri hlýtt. Herskyldan hefur því ver- ið hinn bezti þroski þeirra þjóðfé- lagslegu dygða, sem eru hinar traust- ustu stoðir undir framförum hvers þjóðfélags. Nú er þetta nokkuð aö breytast, af eðlilegum ástæðum. Að vísu er sjálfsvörn landanna hin mesta nauð- syn, enn sem komið er, en aftur á móti eru mennn teknir að gefa því hinn mesta gaum, hversu heimsku- Iega dýrslegt það sé, að menn veg- ist vopnum. í baráttunni gegn víga- ferlunum hafa því forystumennirnir mist sjónar á gagnsemi herskyld- unnar þjóðfélagslega. En telja má það alveg víst, að þó að þær vonir rætist, að vopnaburður verði niður lagður og' vopnaviðskifti eigi lengur látin úr skera milli þjóðanna, þá muni menn fyliilega sjá uppeldisgagn- semi hennar og halda henni áfram með þeirri breytingu, að henni verði snúið til friðsamlegra starfa fyrir þjóðirnar og jafnframt lögð áherzla á þær íþróttir, er fegra vöxt manna, framkomu þeirra og hreyfingar og auka líkamshreysti og líkamsþroska. Það er trúa rnín, að á slíkri her- þjónustu væri hin mesta þörf hjá oss Sjálfsagt mundi það hafa mjög svo mikil þroskandi áhrif líkamlega og andlega á þjóðina, auk þess, sem það mundi mjög svo auka þær fram- kvæmdir, sem henni eru nauðsyn- legar á verklegu sviði. Mundi sízt nokkurn mann þurfa þess að iðra, þó að hann í æsku léti nokkra mán- uði af lífi sínu, án allrar hugsunar urn endurgjald eða eigin hagsmuni. Þegnskylduvinnutillagan stefndi í þessa átt. Hún var illa undirbúin og náði ekki fylgi þjóðarinnar. Var feld. En málið má ekki þar meö deyja, hvort sem framkvæmd þess verður nefnd þegnskylduvinna eður ekki. En til þess þarf að vanda hið mesta. Þá er þjóðin hefur samþykt framkvæmd málsins, þarf langan undirbúning, unz unt er að hefjast handa og láta til skarar skríða. Er það stærra mál en svo, og meira sem þar liggur til grundvallar, en að það eigi skilið að falla lítt athugað. Fulltrúar og foringjar þjóðarinnar mega eigi þvo hendur sínar og gera ekkert að. Er vonandi að einhverir 2. árg. séu þeir, er vilji taka á ný upp mál- ið og sannfæra þjóðina um það, að taka megi bókstaflega vísuna um mál þetta: Ó hve margur yrði sæll og elska mundi landið heitt, ef mætti vera mánuð þræll og moka skít fyrir ekki neitt. G. G. H. Sænskar bókmentir. Fjöldi manna hér á landi les nú á dögum erlendar bókmentir, enda þyk- ir nú sá sízt maður með mönnum, karl eða kona, sem eigi hefur lært eitthvað í dönsku og ensku —- ís- lenzku er ekki spurt að — enda mun ýmsum þykja það fáránlegt að spyrja íslending að því, hvort hann kunni íslenzku. En svo mun þó vera, að fæstir séu á íslenzku sendibréfs- færir, svo vel sé, þótt þeir hinir sömu lesi ensku og dönsku. Þá er eg hef verið beðinn að segja einhverjum til í dönsku, hefur venjulega strandaö á því, að eg hef þegar í stað spurt nemandann eða aðstandendur hans, hvort hann kynni nokkuð f íslenzku. Kann hann, er mér sagt meö undr- unarsvip — málfræði, nei, ónei. Þá hefur mér ekki fundist í mál takandi að læra dönskuna, nema tekin væri íslenzk málfræði fyrst. En slíkt ó- þarfa nám hafa nemendumir sjaldnast viljað eyða fé og tíma í. En látum nú svo vera, að menn lesi erlend mál, sér til gagns og gamans, ef vel væru þá valdar bækurnar. En sú mun sízt raunin. Hef eg forvitnast lítið eitt um sölu böka hjá bóksölum — og ber þeim saman um það, að kaup almennings á bókum stjórnist með öilu af einskærri tilviljun. En varla verður annað sagt, en að fólki sé þar nokkur vorkunn. *Það hefur eftir engu að fara í því efni. Engin menningarþjóð mun vera eins fátæk af bókum um bókmentir og vér Is- lendingar, og leit mun að því meðal menningarþjóða, að jafn lítið sé að því gert og hér að Ieiðbeina mönn- um í vali bóka. Flestir hinir beztu höfundar erlendir verða hér annáð- hvort aldrei kunnir, eða þá eigi fyr en seint og um síðir. Vel má vera að bóksalar vorir hafi eigi trú á því, að bækur um slík efni seljist, en inunu mentamenn vorir hafa skrifað mikið. af slíkum bókum og boðið þær bóksölunum til útgáfu? Eg ef- ast um það! Helzt hefur mér þá virzt skrifað um höfunda, sem uppi hafa verið fyrir einni til tveimur öld- um. Með tímanum er aidrei fylgst. Bókmentamenn vorir láta sér nægja að rýna í rit hinna „klassisku", er þeim hefur verið kent að meta á skólaárum sínum, en hafa hvorki á- V

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.