Austurland - 14.01.1922, Qupperneq 3

Austurland - 14.01.1922, Qupperneq 3
AUSTURLAND 3 inn gætu þeir fengið fisk, ef þeir vildu, en auk þess ættu þeir víst að fá gull, og það jafnvel gull á gull ofan, ár frá ári. Ómögulegt að segja hvað mikið þeir græddu á hverri krónu, sem þeir létu af hendi rakna. Þetta var ekki svo fjarska óálitlegt, og auk þess ekki venja að prestar breiddu út á meðal manna annað en ómeng- að orð, og á því hafa eflaust marg- ir byggt, en mun samt hafa reynst á sandi eða öðrum verri grunni. IV. Qrunt mun á því góða hjá ýms- um héraðsbúum, og er sitt af hverju því valdandi. T. d. má nefna hiö mikla kaupfélag. sem setur sitt hef- ur á Reýðarfirði. Kjöt í óeðlilega lágu verði, og þar við bættist, að haustið 1920 reyndist það, eða part- ur af því skemt þegar til kaupand- ans kom. Félagsmenn vildu fá að vita ástæðuna fyrir skemdinni, og varð sú „forvitni" til þess, að „Þor- mar“ þvoði hendur sínar, eins og Pílatus forðum, í viðurvist helztu meiriháttar manna í félaginu, og eng- inn veit, hver eöa hvað hefur valdið skemdinni. Líklega góða tíðin um haustið. Hún getur orðið mönnum dýr, engu síður en sú vonda. V. Ólíklegt þykir að félagsskapur sé í afturför á Héraöi, en samt sem áð- ur segja sumir að úr því hann kosti fyrirhöfn, sem oft og einatt fæst ekki borguð í kringlóttum krónum, minsta kosti ekki í bráð, þá sé ekki ómaks- ins vert að halda honum við. Um að gera að snúa sér að peningunum — peningum, og njóta svo þeirra gæða, sem rétt er, svona gengur það. Nautafélag Vallamanna alveg dott- ið úr sögunni, sem vonlegt var, þar sem alt er fult af tví- og þrí- og fjórfættum nautum. Hrossaræktarfélagið á leið til iekkj- unnar, og sagt að 200-króna-leigu- -Bleikur, hafi valdið að parti. Fljóts- dælinga vilja félagsskap, en „notaben" að þeir séu sjálfir „pottur og panna“ að öllu saman, og talið líklegt, eða eftir þeim, að gana úr kaupfélaginu, ef einhver annar hreppur næði yfir- tökunum hvað viðskiftamagn og fjölda félagsmanna snertir. Mörg fleiri félög og félagasambönd mætti nefna, sem átt hafa sína blóma- tíð, en gert alveg ótrúlega lítið gagn, eiris og þeim hefur þó verið vel stjórnað, bæði af áhuga og reglulegri snild. Rétt t. d. má nefna „Héraðs- samband Fljótsdalshéraðs" og „1- þróttabandalag Austurlands“. Þau blunda nú þæði sem stendur, en von- andi að eins aupnablik þótt mörg- um virðist það augnablik orðið langt. Það fyrnefnda hefur hvergi látiö sjá sig, nú í seinni tíð, en það er öðru máli að gegna með íþrótta- bandalagið, það blundar á milli en vaknar, á eins til tveggja ára fresti, og síðast var það vakandi, - mér vitanlegt — hinn 1. ágúst 1920, til sællar minningar. Hóaði íbúum Aust urlands saman í Egilsstaðaskóg, og hafði 7-falda skemtun á boðstólum, en þó með þeim fyrirvara, að 2 kr. væru greiddar fyrir hvern fald, eða 14 kr. alls, það allra minsta. Sem sé: 2 kr. að vera á hinum helga stað „íþróttavellinum", sem er ógirtur bali, sundurgrafinn og blautur, 2 kr. kaff- ið, 2 kr. skyrið, einn diskur, 2 kr. ölflaskan, 2 kr. hornablástur ^og 2 kr. að heyra og sjá skáldið frá Sandi, og að endingu, hin óviðjafnanlega náttúrufegurð, á 2 kr. og ef til vill hefur svo „Bakkus“ verið með í för- inni, og ekki má hann vera í ríkum mæli, ef á að kosta minna en 2 kr. Þetta var auðvitað áætlun, en hún al- veg ágæt, og 31. júlí, sama ár, eða daginn fyrir hið mikla mót, var ekki annað sjáanlegt en þetta gæti alt fylgt áætlun, en svo kom fyrsti ágúst - eini illviðrisdagurinn á ölln sumrinu — og tveggja króna áætlunin var endurskoðuð og endurbætt. Margt hvarf sem þar stóð áður, en af öðru var slegið, svo að um munaöi, en þó segja sumir, að hinni glæsilegu áætl- un hafi að eins verið þokað nær fljótinu, þar hafi hún fengiö að njóta sín bæði vel og lengi. Eftir öll þessi undur, fékk íþrótta- bandal. sér blund, og hvort það sefur enn, eða hvað lengi, veit eg ekk- ert um, Ekki held eg sé rétt að ganga fram hjá „Búnaðarsambandi Austurlands“, sem í mörg ár hefur rótað um jörð- inni, engu minna en „Frás“-vélin gerði á síðasta sumri. Samband sem þarf árlega um 1500 kr. í þriggja manna stjórnarkostnað, og keypti á s. 1. sumri 9 hundruð kr. sláttuvél, sem einkennir sig frá áður þektum sláttuvélum á spánnýju nafni. Yfirleitt segja menn sambandið nauðsynlegt, en samt sem áður undrast margir hvað því gengur öröugt að koma í lóg því fé, sem það ræður yfir, þrátt fyrir athugula og afbragðs stjórn- Síðastliðið sumar réð það yfir plóg- manni og ráðunaut. Sá fyrnefndi rótaði um jörðinni á ýmsum stöðum, en hinn síðarnefndi hefur valdið reglu- legu „hugarróti" meðal bænda í Múlasýslum. Loks má nefna tilraunastöð sam- bandsins á Eiðum. Aðallega virðist áherzla lögð á að beita hestum og öðrum gripum þar innan girðingar. Qrænar jurtir sáust þar fáar í sumar Tré og fl. þess háttar líflítið, aðallega lifði Tanacetum og Aconitum, Na- pellus, helztu nytjajurtir sambandsins. VI. Mig minnir það vera árið 1905 eöa 6, er það undur átti sér stað er nú skal greina: Framgjarnir áhugamenn á Héraði mynduðu hlutafélag, sem mun hafa verið gefið nafnið „Lagarfljótsormur- inn“, og hafði það áform að koma vélbát á Lagarfljót, sem fara skyldi milji Egilsstaða og Brekku, bæöi eft- ir fastri áætlun, og svo þörfum. Svo var það einn sólbjartan sumardag 5 eða 6 árum eftir aldainót s. 1., að „Lagarfljótsormurinn" lagði leið sína um hinn rennslétta lög, sem Héraðs- menn þakka og muna. Þungaður var hann auðvitað af mönnum, helzt þeim meiri háttar, og sér í lagi þeim, sem áttu stórt og mikið undir sér og ekki minnist eg þess að báturinn strandaði í þeiri ferð. Bátur þessi var mönnum mjög kær, og kom brátt í ljós, hvað hann létti undir með alla aðdrætti, og menn gerðu sér himingnæfandi vonir um hann í framtíðinni, og á bak við eyr- að var meðvitundin um þær rentur, seiu hann mundi færa hluthöfunum, en stjórn félagsins gætti þess ætíð að hafa farmgjöld og fargjöld svo væg, að félagið gæti ekki borið sig fjárhagslega, og auk þess vildi regl- an verða sú, að setja bátinn í strand einu sinni í viku. Þessu var svo hald- ið með litlum breytingum, þar til sumarið 1918, að báturnn strandaði í síðasta sinni, og hið fyrsta strand- uppboð fór fram í Fljótsdalshreppi á Geitagerðisfjörum, þar sem alt til- heyrandi strandinu var selt. Nú er næsta merkileg fleyta á Lagarfljóti og virðist hún hafa kaf- bátaeðli, kunnugust á botni. Tryggur framfaramælikvarði. VII. Innanhreppa „pólitík" er svæsin og hrífandi. T. d. má nefna, að sendi- bréfssnepill stóð í Hallgrími og hann gekk úr hreppsnefnd í tvö ár, og vildi svo fá traustsyfirlýsingu hjá hrepps- búum í þokkabót. Annars virðast í þeim hreppi góð lífsskilyrði fyrir slúðursögur, sérstaklega ef þær eru eitthvað ærumeiðandi fyrir náungann. Þeir nota sem sé sömu aðferð og „Ingimundur" benti mönnum á að nota við sérstakt tækifæri. Sverta vel stimpilinn til að byrja með, loka svo augunum, og sverta svo rétt það sem fyrir yrði. Vallamenn eru skáld, en hver upp á sína vísu. Líklega er nú rétt að fara að leggja frá sér pennann, en áður en eg segi mitt síðasta orð ,;af Héraöi“, vildi eg minnast á miðdagsmáltíð, sem fram var borinn að Eiðum 26. júní s. 1. til lofs og dýrðar fyrverandi skóla- stjóra á Eiðum, þá 70 ára að aldri, og meðfylgjandi var 20 kr. kraftsúpa handa hverjum einstökum gesti, sem var svo vel gerð, að hún beinlínis lyfti seljandanum á hærra stig í mann- félaginu. Af því sem að framan er sagt, sést að margt er gert til bóta, og víða er komið við í þágu almennings. Við- fangsefnin eru alt frá því lægsta og auvirðilegasta, og upp til þess hæsta sem mannvitið hingað til hefur náð á iandi hér. Áhuga- og framfara- menn Fljótsdalshéraðs eru ekki ein- asta sómi síns héraðs, heldur lands og þjóðar í heild sinni. 17. des. 1921. rbng. ♦ Fréttir. Frá útlöndum. Nýjar fregnir segja að í aösigi séu mjög miklar stjórnarbreytigar. Hafi Bolsiwikkar ákveðið að ' viðurkenna skuldir ríkisins við Vesturlönd og leyfa innlendum mönnum all-mikil sérréttindi til iðnaðar. í stað þess taka Vesturþjóðirnar upp viðskifti við Rússland og viöurkenna ríkið rússneska. — Innflúenzan er nú í Þýzkalandi, Danmörku, Færeyjum og Noregi, en sögð væg. — Stór bruni varð í Hartlepool í Englandi 7. þ. m. Skaðinn er metinn 2 milliónir ster- lingspunda 29 hestinum. Hann lét líka eins og hann veitti þW alls enga eftirtekt, að menn flyktust umhverfis hest- inn, þegar hann sté af baki og batt hann. En komið gat það þó fyrir, að hann sýndi hvað Gráni átti til í fórunt sínum. Heim úr kaupstaðnum hafði hann farið á styttri tíma en mílurnar voru margar. — Og þegar útboð fór fram, fékk liðsforinginn hann ætíð að láni. Þó var eins og Geirmundur riði harðara og væri yfirleitt órórri, síðan biðlar tóku að venja komur sínar að Iðu. í samkvæmum var hann meiri orðhákur en hæfa þætti unglingi. Einnig drakk hann þá og spil- aði — einkum valdi hann til að spila við þá menn, er voru honum ríkari og máttu frekar við að tapa. Helzt sóttist hann eftir að vera með sonum ríkustu bændanna, einkum þeim, er ætla mátti að átt gætu erindi að Iðu. Hlífði hann þeim og lítt víð harðyrðum og barsmíð. Af þessum sökum hafði hann frekar ilt orð á sér og varð illa þokk- aður, ekki sízt af Jóni í lðu. Dag einn brotnaði gljúfurbrúin. Gömul venja hafði það verið, að bændurnir í Iðu og Straumhaga smíðuðu brúna í samlög- um og legðu til í hana efni. En þá er Geirmund- ur fór yfir til Jóns og tók að minnast á brúar- smíðið, var Jón afundinn og kvaðst ekki þurfa brúarinnar, og sæi hann eigi að hún væri heldur 30 nein nauðsyn Geirmundi. Nú kvað hann sveitar- veginn nægja, brúin hefði verið smíðuð áður en hann hefði verið lagður, og þá hefði hún verið nauðsynteg. Orsök þessa var, að Jón hafði fyrir skömmu heyrt þann orðróm, að varia væri óhætt að konia í Iðu, sakir Geirmundar í Straumhaga. Og sú mundi raunin, að Sigríður hefði fest við hann ástir, þar eð hún synjaði öllum öðrum eiginorðs. Jón hafði einnig heyrt, að Geirmundur væri á rjátli með byssu sína umhverfis Iðuselið — og var nú gamli maðurinn all reiður þeim báðum, Geirmundi og Sigríði. Þá erGeirmundur kom til að ræða um brúna, var Sigríður úti á túni við brunninn, að störfum sínum. Kastaði hún kveðju á Geirmund, en gekk eigi til stofu. Þá er hann fór aftur, gekk hann fram hjá henni og sagði, all ómjúkur í máli: — Nú fær Gráni, tötrið, ekki að koma yfir gljúfrið oftar, Sigríður. Pabbi þinn vill ekki heyra nefnda aðra leið milli bæjanna en sveitarveginn. — Við skulum þá láta heita svo, Geirmundur, að sá vegurinn sé styztur, mælti Sigríður lágt. — Þá leiðina fara svo margir, nú í seinni tíð, sagði hann beizklega — og ég á ekki von á stór- býlum í arf, eins og þeir. — Þú veizt að ég bíð, sagði hún enn þá lág- mæltari — og um leið leit hún niður fyrir sig.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.