Austurland - 14.01.1922, Page 4

Austurland - 14.01.1922, Page 4
4 A UST URLAND Utan af landi. Togararnir íslenzku eru nú teknir að fá betra verð fyrir fisk sinn í Eng- landi. Belgaum seldi fyrir 3000 pund seinast og 3 aðrir fyrir 2000. — Settur er borgarlæknir í Reykjavík Ólafur Jónsson frá Húsavík. Talið er að Sigurður Kvaran muni fá embætt- ið. Einar Arnórsson, prófessor er skipaður skattstjóri með prófesors- embættinu. Hvortvegga fær hann full laun fyrir. — Jón Þorláksson, alþing- ismaður hefur fengið forstöðu flóa- áveitunnar með 15 þúsund króna árs- launum í tvö ár. Valtýr Stefánsson, sem er sérfræðingur í þessari grein, bauðst til að hafa forstöðuna, gegn lítilfjörlegum styrk, en boði hans var eigi. sint. «*> Símskeyti frá fréttaritara Austurlands. L. George hefur boðið Frakklandi skuldaeftirgjöf á 600 miljónum ster- lingspunda, ef það eftirgefi Þjóðverj- um jafnmikið. frska þingið samþykti sáttmálann með 64 atkvæðum gegn 57. Valera hefur verið hrundið úr forsetatígn og Griffith kosinn forseti með 60 atkv. gegn 58. Félagið sem sem stofnað er tii viðreisnar Evrópu, hefur samþykt að höfuðstóll félags- ins verði 20 miljónir sterlingspunda, og hefur Bretlandi, Þýzkalandi, Belgíu, Japan, Italíu, Frakklandi og Norður- löndum verið boðin þátttaka. Cannes- ráðstefnan hefur samþykt að Þjóð- verjar greiði 720 miljónir gullmarka á þessu ári. Samningur hefur verið gerður um flugferðir milli Danmerk- ur og Noregs. Kaupþing var opnað hér þ. 6. þ. m. í eimskipafélagshúsinu, er það opið þriðjudaga og föstudaga kl. hálf tvö til þrjú. Lagarfoss fór frá New-York í dag. MYNTGENGI 12/i: Sterlingspund ........ 21,10 Dollar ................ 5,00 Mörk .................. 2,85 Sænskar krónur .... 124,85 Kiorskar — .... 78,25 Franki frakkneskur .. 41,50 — svissneskur .. 97,25 Lírur ................ 21,75 Pesetar .............. 75,00 Gyllini ............. 184,25 Hitt og þetta. Hendrik Biering og frú biðja „Austurland" aö flytja Seyðfirðingum beztu nýárs óskir. Barnaskemtun hefur kvenfélagið á morgun. Eru þar öll börn velkomin að vanda. Þyk- ir skemtun barnanna oft bezta skemt- un ársins — einnig fullorðnu fólki og býzt „Austurland" við að hana muni enginn vanþakka. Álfadanz hefur leikfimisfélagið „Huginn" Jöröið SETBERG í Fellahreppi, 14,8 hundruð að nýju mati, er til sölu og ábúðar í fardögum 1922. Semja ber við undirritaðan fyrir 1. marz n. k. Jón Hallgrímsson, Skeggjastöðum. Hus til sölu. Lysthafendur snúi sér til Jóns Jónssonar í Firði. Seyðisfirði 3. janúar 1922 Runólfur Sigfússon. hinn 21. þ. m. Eru allir velkomnir að taka þátt í danzinum, þeir sem eru eldri en 14 ára. Verður hann haldinn hér í skólanum, Er álfadans oft góð skemtun og mjög vinsæl. Beðið er „Austurland" að geta þess, að cand. pharm. H. A. Schelsch gegni enskakonsúlsstörfum hér í bænum, meðan Kristján læknir er erlendis. Ritstjóraskifti urðu um þessi áramót við blaöið „fslending". Lét Jónas Jónasson frá Flatey af ritstjórn, en Gunnlaugur Tryggvi Jónasson tók við. Var Gunnlaugur áður ritstjóri Heims- kringlu vestra, gáfaður maður og vinsæll. Leikið var á Eiðum nú eftir nýárið. Við og við eru þar haldnir fyrirlestrar, sem almenningi úr nærsveitum gefinn kostur á að heyra. Er og gott að menningaráhrifa skólans njóti sem víðast um. Heilsufar hefur verið gott á Eiðum í vetur. Látinri er hér í bænum Sigfús Jónsson frá Snjóholti, gamall maður, fæddur 1842. Var líkið flutt upp yfir fjall til greftr- unar. — Látinn er hér einnig Gunn- laugur Jónsson, sem lengi hefur ver- ið hér farlama á sjúkrahúsinu. Nokkra enskunemend- ur get ég enn tekið. Elízabet Baldvins. Auglýsing. Fjármark Þórh. Ágústssonar, Lang- húsum, Fljólsdalshr. er: heilrifað pg biti framan hægra, blaðstýft aftan vinstra. — Brennimark: G 8. AUSTURLAND kemur út vikulega. Verð 5 kr. árgangurinn. Gialddagi 1. júlí Ritstjóri og ábyrgðarmaöur Guðm. G. Hagalín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maður Herm. Þorsteinsson — Sími 13 — Prentsmiðja Austurlands. Með því að öll nágrannalöndin eru nú sýkt af innflúenzu, er almenningi hér með bannað að fara út í skip, sem koma frá útlöndum, eða hafa mök við skipverja af slíkum skip- um, fyrr en þau hafa fengið heilbrigðisvottorð. Bannað er að afgreiða skip þessi fyrr en skipstjöri hefur fengið heilbrigðisvottorð. Bæjarfógetinn á Seyðisfirði, 13. jan. 1922. Jón Sigtryggsson settur Veg^a erfiðleika á innlieimtu neyðist ég til frá deginum í dag að lána ekkert nema sérstaklega sé um samið, að undanþegnu því, sem tilskipun 4. desember 1672 skilur til. Virðingarfyllst. P. L. Mogensen. Saraein. pfuskipafél. sendir skip frá Kaupmannahöfn 14. febrúar til Reykjavíkur, norður um land til ísafjarðar, Akur- eyrar og Seyðisfjarðar. — Aígreiðslan á Seyöisfirði. 31 — Guð launi þér þessi orð, Sigríður. Ég býzt við að eigi veitti af því, þó að ég fengi að heyra þau aítur, sagði Geirmundur og gekk leiðar sinnar. Bæði voru þau föl yfirlitum. Samtal þeirra var þeim eins og langt mót, en sakir fólksins á bænum, varð það að eins að vera örfá orð, um leið og hann gekk fram hjá. En hann tók upp blómgaða jurt, sem hún hafði haldið á. Geirmundi hafði alt af þótt það ilt, að fólk hafði sagt, að maður eigi ríkari en hann, ætti að selja hestinn. Fyrir hann gæti hann ef til vill fengið 80 krónur. Nú lét hann sig engu skifta hvað menn sögðu og var Öllum til undrunar hinn vingjarnlegasti og góður mjög viðskiftis. Hugðist hann nú selja Grána í góðar hendur; svo bjóst hann við að sér gæfist kostur á að kaupa hann á ný, því að nú ætlaði hann að gerast hestaprangari. Milli Norðfjarðar og næstu sveitar voru hinar verstu útistöður. Ollu því deilur um afréttalönd og skógarréttindi — og auk þess gamalt og rótgróið hatur. Menn úr sveitum þessum börðu hvorir á öðrum, hvar sem þeir hittust í kaupstað — og sagt var, að margt það heföi fram farið uppi á fjöllunum, sem hollast væri að yfirvöldin hefðu eigi vitneskju um. Þóttu það líka stórtíðindi, þegar Eysteinn ríki í Mikiabæ í nágrannasveitinni kom ríðandi til Iðu. Eiíndi hans var á allra vitorði, og eins vissu það 32 allir, að hann hafði fengið hryggbrot. Gladdi það mjög sveitarbúa, en það fréttist, að Eysteinn hefði heitið því að heimsækja Geirmund í Straumhaga, þegar honum kæmi það verst — því að Geir- mundi kendi hann ófarir sínar. Víða um sveitir átti Eysteinn fé hjá mönnum, en í Norðfirði átti hann ekki einn eyri. Hlógu menn því dátt og sögðu að gaman yrði að sjá, hvernig hann færi að því að hefna sín á Geirsnundi, því að það var á allra vitorði, að eigi þurfti Eysteinn að þreyta aflraunir við hann. Um jónsmessuleytið var útsvarsuppboðið hjá hreppsstjóranum á Kirkjuvatni. Menn vissu það vel, að uppboð þetta var að eins til málamynda, því að hreppsstjórinn innheimti aldrei útsvörin, fyr en menn áttu hægt með að borga. En til þess að full- nægja lögunum, voru uppboðin ávalt haldin. Menn sóttu aldrei uppboð þessi, svo að hreppsstjórinn varð alt af hæstbjóðandi. En þetta ár komu nokkrir menn ríðandi til uppboðsins, nákvæmlega á tíma þeim, sem ákveð- inn var. Var jiar kominn Eysteinn í Miklabæ við fjórða mann. Kvöddu þeir vel sveitarmenn, tóku sér sæti og hlustuðu á. Þegar kom að hesti einum gráum, er settur var að veði fyrir síðasta árs út- svari, bauð Eysteinn 12 dali. Hreppsstjórinn leit á hann alvarlega og kvað þetta eigi vera að venju sveitarmanna — og auk þess væri boðið hið mesta srnánarboð.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.