Austurland - 28.01.1922, Side 1

Austurland - 28.01.1922, Side 1
AUSTURLAND 4. tbi. Seyðisfirði, 28. janúar 1922 3. árg. t Pétur Jónsson atvinnumálaráðherra 20 Þ. m. andaðist snögglega í Reykjavík Pétur Jónssvn frá Gautlönd- um, ráðherra- atvinnu- og samgöngu- mála. Pétur Jónsson var fæddur á Gaut- Iöndum 28. ágúst 1858. Foreldrar hans voru Jón bóndi og alþingis- maður Sigurðsson, og kona hans Solveig Jónsdóttir prests úr Reykja- hlíð Þorsteinssonar. Systkini Péturs voru: Sigurður verslunarmaður, Krist- ján háyfirdómari, Jón bóndi, Stein- grímur sýslumaður og bæjarfógeti, Þorlákur skólagenginn, og 3 systur: Þuríður, Rebekka og Kristjana, er allar giftust. Pétur Jónsson byrjaði búskap á Gautlöndum móti föður sínum 1884. Kona hans var Þóra Jónasdóttir bónda á Grænavatni, Jónssonar: Hún lést 1894. Börn þeirra er upp- komust Sólveig, Kristjana, Jón Gauti, Hólmfríöur og Þorleif. Eftir að Jón Sigurðsson lést 1889, en hann hafði verið forstöðumaður Pöntunarfélags Þingeyinga, tók Pétur Jónsson við því starfi og var kaup- félagsstjóri Suðurþingeyinga um fjöldamörg ár, 1894 var hann kosinn þingmaður Suðurþingeyinga og gengdi hann því starfi til dauðadags. Um- boðsm. Reykjadalsumboðs var hann skipaður 1894. Á alþingi gat Pétur Jónsson sér góðan orðstír. Hann sat jafnan í neðri deild. Var oft kosinn í hinar þýðingarmeiri nefndir, sat iðulega í fjárlaganefnd og var oft framsögu- maður hennar. Eftir aö heimastjórnarmenn og sjálfstæöismenn komu til sögunnar, fylti hann flokk heimastjórnarmanna, utan þings og innan og reyndist þeim mjög trúr flokksmaður. Naut hann mikils trausts á þingi af flokks- mönnum sínum, og heima í héraði af samsýslungum sínum, þar var hann kosinn þingmaður í sífellu og tjáði engum að keppa við hann um þingsætið. Yfir 30 ár veitti hann forstöðu kaupfélagi Suðurþingeyinga. Þótti hann gera það mjög vel og trúlega. Og var álit margra kunnugra manna, að hiö mikla gengi þessa kaupfélags væri honum ekki síst að þakka. Við ráðherra embætti tók hann 25 febrúar 1920 og gengdi því síðan. Frést hafði að hann ætlaöi að segja af sér um byrjun næsta þings. Hann mun hafa veriö farinn að kenna heilsubrests, hafði þó verið heilsu- góður maður lengst af æfinnar. Ráðherrastaðan hér á landi hefur ekki reynst holl né heilsubætandi til langframa. Pétur Jónsson h'afði ekki notið annarar fræðslu og upplýsingar en þeirrar er hann fékk í heimahúsum og af sjálfslestri og af umgengni við lesna menn og fróða. En sú þekking dugði honum til hinna mörgu og margvíslegu starfa, er á hann hlóðust. Dómar kunna að geta orðið mis- jafnir um það, hvernig hann leysti af hendi starf sitt bæði sem þingmaður og seinast sem ráðherra* um tæp 2 ár. En um það verður aðeins einn dómur, aö hann hafi jafnan viljað Ieggja til og gera það, sem hann áleit réttast vera og hollast fyrir land og þjóð. Sumir þeirra manna, er gengt hafa opinberum störfum hér á landi, hvort heldur kaupfélagsforstöðu, þing- mensku eða ráðherraembætti, hafa verið bornir þeirri sök, að hafa nof- að stöðu sína til að efla sína og sinna hagi. Við þessa sök var Pétur Jónsson aldrei kendur, hvorki á þingi né í héraði. Hann hafði á sér al- mennings orð fyrir ráðvendni, sam- vizkusemi og ósíngirni. Horeldi. Eins og eðlilegt er, fer nú sú alda yfir meðal almennings, að ríkissjóður skuli sparaður sem allra mest. Em- bættum hefur verið fjölgað óþarflega mikið, þjóðin þykist mjög svo hart ieikin, finnur sáran til byrðanna. Virðist nokkuð að saman fari þær tvær hliðar á fjármálaóviti hjá stjórn- inni, aum fjáröflun og óhaganleg og óhæfilag eyðsla og takmarkalaus. Mælist þetta að vonum hvarvetna illa fyrir. En ein er sú stétt manna, í landi hér, sem eigi er troðið í fé. Það er sú stétt, sem sér um hinar andlegu þarfir. Til hennar tel eg eigi presta- stéttina, sem stétt, heldur að eins skáld og vísindamenn á sálarinnar sviðum. Altaf klingir það við, aö umfram alt eigi skáld ekki fyrst og fremst aö vera skáld, heldur eigi þau að hafa skáldskapinn í hjáverkum, svo hafi hin beztu skáld gert. En þess gæta menn ekki, þá er þeir koma fram með þessar og þvílíkar staðhæfingar, að ný-íslenzkar bókmentir eiga e n g i n stórvirki. Þær eiga smá perlur, spm áð vísu er hægt að raða saman og búa til úr festi, en ærið veröur sú festi mislit og misfögur. Þessu valda hjáverkin marglofuðu. Hvað hefði getað orðið úr þeim mönn- um, sem gáfu þjóð sinni perlurnar mislitu, og margvíslegu aö gæðum, ef þeir hefðu haft yfir öllum sfnum andans þrótti og starfstíma að ráða, í þarfir listarinnar? Bestu perlurnar þeirra gefa oss rétt til að álykta, að þeir hefðu þá getað gefið okkurjafn- fögur heildarstórvirki. Menning vor er mislit, sú hin nýrri, alveg eins og skáldskapurinn. Þjóð- areinkennin eru að smá mást út. Menning vor er eins og hrat, á yzta horni háborðs heimsmenningarinnar. Hætt er viö að menn líti svo á, að hún sé eingöngu molar, sem hrokk- ið hafi af dýrindisréttunum á háborð- inu. Vér höfum engin þau stórvirki háð andlega í seinni tfð, að þau gætu sett mót það á menningu vora, er ynnni henni nokkurt tignarsæti. Hún er hörmulega lítið þekt út um heim- inn. Ef annað er sagt, þá eru það blaðablekkingar, eða gaspur sprottið af sjálfumgleði þeirra, sem ímynda sér að ísland sé hásæti heilags anda í heimi hér. Vísindamenn á sviði sálarinnar, og skáld, eru þeir mennirnir, sem þarna er mest af að vænta. Þeir taka hið óunna gull og móta það í dýra og sjaldgenga mynt. Þeir bera merki þjóðargildisins hærra en nokkrir aðr- ir. Framkvæmdir á verklega sviðinu geta aldrei mótað eða styrkt menn- ingu vora á hinu andlega. Þær geta gert hana samlitan þátt alheimsmenn- ingarinnar verklegu. í henni verða hvorki ís né eldur. Sagt hefur verið um Frakka, að þeir geri rithöfunda sína ódauðlega, Eng- lendinga, að þeir geri þá að aöals- mönnum og Ameríkumenn að þeir geri þá ríka. Um íslendinga má segja, að þeir leggi mesta áherzlu á að hora sína andans menn, sjúga úr þeim merginn, þynna og kæla í þeim blóðið. Gömul trú er það, að skinn- in af horfé séu seigari og haldbetri á fæturna, en skinnið af feitu fé og vel öldu. Ekki er ólíkur hugsunar- Fundargerð. Ár 1922, fimtudaginn 12. janúar, var fimta fjórðungsþing fiskideilda í Austfirðingafjórðungi sett og haldiö á Norðfirði. Þessir fulltrúar voru mættir: Fyrir Seyðisfjarðardeild: Vilhjálmur Árnason og Hermann Þorsteinsson. Fyrir Mjóafjarðardeild: Sigurður Eiríksson. Fyrir Norðfjardeild: Lúðvík S. Sigurðsson og Ingvar Pálmason. Fyrir Eskifiarðardeild : Bjarni Sig- urðsson og Friðrik Steinsson. Fyrir Reyðarfjarðardeild: Bjarni Nikulásson. Fyrir Fáskrúðsfjarðardeild: Sveinn Benediktsson og Árni Svelnsson. Forseti setti þingið, bauð fulltrú- ana velkomna og var þar með settur 1. þingfundur. Forseti lagði fram svohljóðandi dagskrá fyrir þingið: 1. ToIImál. 2. Samvinnumál. 3. Spánartollur. 4. Fiskiveiðasýning. 5. Fiskimat. ' 6. Vitamál. 7. Steinolíumál. 8. Strandvarnir. háttur íslenzku þjóðarinnar, þegar um er að ræða skáldin. Hún heldur að bjálfarnir af þeim verði ólseigur og óslítandi andskoti, ef hún hori þá nægilega. En verði svona haldið áfram, má íslenzka þjóðin vera þess viss, að hún smækkar andlega. Þaö mun sízt hafa góðar afleiðingar í för með sér, að hábundnir séu hæfileikar andlegra leiðtoga hennar. Andleg afkvæmi þeirra verða haltir vesalingar, hljóð- andi af sulti, merg- og bein-svikin. Og eftir þessum afkvæmum á svo þjóðin að sníða sér stakkinn. Gæti svo farið, að hún liti innan skamms svo út, að einn ræfillinn héngi út, en hinn inn — og þröngt yrði henni um hreyfingarnar í horbjórastakknum, Sparnaðurinn verður eins og alt ann- að, að vera á viti bygður — eigi því viti, sem nú er svo kallað oftlega, heldur því, sem strangasta merking orðsins og um leið hin rétta, felur í sér. G. G. H. Athugasemd. „Þorgrímur er nefndur leysingi einn; hann átti viðnefni og var kallaður tordýfill. — Þorgrímur var lítill mað- ur vexti og kviklegur, orðmargur og illorður, heimskur og illgjarn. og ef Þá var tekið fyrir fyrsta mál á dagskránni. Tollmál. Framsögumaður: v Vilhj. Árnason skýrði frá hvað gerst hefði í málinu í Seyðisfjarðardeild, og lagði til að kosin yrði 5 manna nefnd í máliö. Eftir nokkrar umræður voru þessir menn kosnir í nefndina: Bjarni Sigurðsson með 9 atkv. Sveinn Benediktsson — 8 — Lúðvík Sigurðsson — 8 — Hermann Þorsteinsson —- 6 — Ingvar Pálmason — 6 — Samkv. ósk framsögumanns (Herm. Þ.), var samvinnumálinu frestað til næsta fundar, og því tekið fyrir næsta mál á dagskrá. Spánartollur. Framsögumaður: Hermann Þor- steinsson skýrði frá afstöðu sinni í málinu og eftir nokkrar umræöur var fundarhlé til kl. 2 e. h. Fundur settur kl 2, allir fulltrúar mættir. Haldið áfram umræðum um Spánartollinn og málinu vísað til toll- málanefndar. Því næst tekið fyrir næsta mál á dagskránni. Samvinnumál. Eftir nokkrar umræöur bar fram- sögumaður Hermann Þorsteinsson fram tillögu um að kosin yrði 3ja manna nefnd í málið.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.