Austurland - 28.01.1922, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
Jörðin. Kjólsvík
í Borgarfjarðarhreppi er til kaups og áhúðar í
n. k. fardögum. Menn snúi sér til verzlunarstjóra
Jóns Stefánssonar, Borgarfirði.
Ritvélapappír
(Im. Lærredspapir)
bæði með og án
firmanafns fæst í
Prentsm. Austurlands.
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Guðm. G. Hagalín
— Síini 54 —
Afgreiðslu- og innheimtu-maður
Herm. Þorsteinsson
— Sími 13 —
Prentsmiðja Austurlands.
Munið eftir.
Allir, sem þurfa að auglýsa í blað-
inu eða fá prentun og pappír hjá
prentsmiðjunni, eru beðnir að snúa
sér til Herm. Þorsteinssonar eða
prentaranna í prentsmiðjunni. : :
Jörðin Gaukstaðir
í Jökuldalshreppi fæst til kaups
og ábúðar í næstu fardögum 1922
Semjið við undirskrifaðan eiganda
jarðarinnar.
Gaukstöðum 23, des.
Þórður Þórðarson.
INNILEGT þakklæti vottum við öllum
• þeim, er gáfu dóttur okkar gjafir, áður
en hún fór suður til aö leita sér lækn-
inga. Viljum vér nefna nöfn þessara
gefenda: Bened. Jónasson, verzlunar-
stjóri, Kristjana Davíðsdóttir, kenslu-
kona, húsfrú Ingunn Gísladóttir og hús-
frú Helga Árnadóttir. Þessum velgjörða-
mönnum barnsins okkar biðjum við
guð að launa.
Vestdalseyri 21. jan. 1922.
Oddfrídur Ottadóttir.
Sveinbjörn Ingimundarson.
*
Aminning.
Enn á ný eru þeir er skulda andvirði Austurlands
fyrir fyrri árganga, vinsamlega beðnir að greiða
það til innheimtumanns hið fyrsta.
Víxileyðublöð fást í Prentsmiðju Austurlands.
Hinar alkunnu
Diabolo
skil vindur
og strokkar
af ýmsum stærðum, fást með góðu verði hjá
Tuliniusverzlun
Seyðisfirði.
Aðalfundur
h.f. Prentsmiðjufélags Austurlands, Seyðisf.
verður haldinn á gistihúsinu „Skálanes" á Seyöisfirði, mið-
vikudaginn 22. marz n. k., kl. 4 síðdegis.
Dagskrá samkæmt lögum félagsins.
Seyðisfiröi 19. janúar 1922.
Stjórnin.
UMBÚÐAPAPPlR
fæst keyptur f
Prentsmiðju Austurlands.
Auglýsið í Austurlandi
: Kaupið Austurland:
2. Fjóröungsþingið skorar á Fiski-
þing og Fiskifélagsstjórn aö beita
sér fyrir því við ríkisstjórn, að
hún geri alt sem í hennar valdi
stendur að yfirfærsla á peningum
fáist, til innkaupa á þeim vörum, er
þurfa til framleiðslu sjávarafurða.
TilL borin upp og samþ. í e. hlj.
3. Fjórðungsþingið skorar á allar
deildir í fjórðungnum að þær beiti
sér fyrir því, hver í sinni verstöð
að stofnaður verði félagsskapur
meðal sjávarútvegsmanna um kaup
á þeim vörum, er þurfa til fram-
leiðslu sjávarafurða og eins um
sölu þeirra.
Breytingartillaga kom fram frá Vil-
hjálmi Árnasyni, þannig, að í stað
„félagskapar" komi „samvinnufélags-
skapar“. Þessi breytingartillaga var
feld.
Eftir nokkrar umræður var aðal-
tillagan samþykt með 9 atkv. gegn 1.
//. Lög um sölu á beitusíld.
Nefndin í því máli kom fram með
svohljóðandi tillögu:
Fjórðungsþingið skorar á Fiski-
félag íslands, að beita sér fyrir því,
að lagt verði fyrir næsta Alþingi,
frumvarp til laga um sölu á beitu-
síld, bygt á þeim grundvflli, aö skylt
verði að selja nýveidda síld til
beitu, ef til er, á því verði sem þá
er markaösverð, að frádregnum
kostnaði við verkun síldarinnar, og
sendingu til sölustaðar.
Friðrik Steinsson kom fram með
breytingartillögu við tillögu nefndar-
innar, svohljóöandi að feld yrði síð-
asta málsgreinin aftan af:
— að frádregnum kostnaði við
verkun sfldarinnar og sendingu til
sölustaðar. —
Eftir nokkrar umræður var breyt-
ingartillagan borin upp og felld.
Þá var aðaltillagan borin upp og
samþ. með 8 atkv. gegn 2.
III. Svohljóöandi till. var borin upp.
Fjórðungsþingið finnur fufla á-
stæðu til þess, að þakka herra kenn-
ara Bjarna Sæmundssyni í nafni
fiskimannastéttarinnar hér eystra,
fyrir rannsóknarstarf hans í þarfir
fiskiveiðanna, og áhuga hans þar
að Iútandi, og telur því fé mjög vel
varið sem til þess var veitt, og álít-
ur sjálfsagt að nægilegu fé verði
varið til þessháttar rannsókna fram-
vegis.
Till. var samþ. með því að allir
fjórðungsþingsfulltrúar stóðu upp.
IV. Svohlj. till. kom fram.
Þar sem fiskimarkaður vor fs-
lendinga er nú svo mjög bundinn
við Spán, að sýnilegt er að sjávar-
útveg vorum er stór hætta búin af
tollalögum Spánverja, skorar fjórð-
ungsþingið á Fiskiþingið og stjórn
Fiskifélagssins, að beita sér fyrir
því öfluglega, að gert verði eins
mikiö og unt er til þess að afla
saltfiski vorum markaðs után Spán-
ar.
Fjórðungsþingið lítur svo á, að
þetta beri að gera sem fyrst, og
vftir eindregið það aðgerðarleysi,
sem hefur átt sér stað í þessu efni
síðan kröfur Spánverja komu fram.
Eftir nokkrar umræður var tillagan
samþykt.
V. Stjórnarkosning.
Forseti lngvar Pálmason, Norðfirði,
endurkosinn.
Ritari Hermann Þorsteinsson, Seyð-
isfirði, endurkosinn.
Varaforseti Vilhjálmur Árnason,
endurkosinn.
Vararitari Friðrik Steinsson, kosinn
með öllum atkvæðum.
Samþykt meö öllum atkvæðum að
næsta fjórðungsþing skyldi háð á
Norðfirði.
VI. Svohlj. till. var borin upp.
Fjórðungsþingið lýsir þvi yfir að
að það telur símalagning frá Þórs-
höfn að Skálum mjög nauðsynlega
fyrir sjáfarútveginn á Austfjörðum.
Sömuleiðis telur fjórðungsþingið
símalínu frá Hafranesi að Vattar-
nesi mjög nauðsynlega.
Kol
afhendast einungis á
miöviku- og laugardögum.
Wathne.
Till. var samþ. í e.'hlj.
Fleyra kom ekki til umræðu á
þinginu.
Með því var þinginu slitið.
Ingvar Pálmason,
fotseti.
Hermann Þorsteinsson,
ritari.
Vilhjálmur Árnason,
Varaforseti.
Friðrik Steinsson,
vararitari.
Sveinn Bentdiktsson.
Sigurður Eiríksson.
Bjarni Sigurðsson.
Bjarni Nikulásson.
Árni Sveinsson.
Lúðvík S. Sigurðsson.