Árvakur - 02.01.1914, Page 1

Árvakur - 02.01.1914, Page 1
Reykjavík, Föstudag 2. Janúar 1914 I. árg. ^Peir menn, er kynnu að óska að verða fasiir kaupendur að blað- inu, geri svo vel að segja afgreiðslu- manni til sín, en hann er hr. Por- steinn Sigurðsson, Laugaveg 22 B., sími 431. Blaðinu væri það mikill greiði, ef sem flestir vildu gjalda misseris- borgunina, 1 kr. 25 au., sem fyrst. 7/uianbæjarmenn geta skrifað sig fyrir blaðinu til skemri tíma, þó ekki skemur en einn mánuð. Utg. Ýmsir góðir og gagnlegir munir til sölu með liálfvirði á Laugaveg 22. Sími 431. T^íiiiaii eí iiílin. Púðurkerling? 22. Nóv. f. á. sagði ráðherra í ríkisráðsræðu sinni, að sér virtist »ástæða til þess að gefa þjóðinni og atþingi kost á að láta uppi skoðun sína um það, hvernig menn óski, að fáninn líti út«. þjóðin og alþingi átlu eítir því að fá að óska sér tiltekinnar fána- gerðar, og hefir ráðherra þá líklega ætlað sér að ráða li. h. konungin- um til að verða við óskum þings og þjóðar. Með orðinu )>þjóðinni« gat ekki verið átt við annað en kjósendnr landsins. »Lögr.« gat þess að vísu, um leið og hún ílutti konungsúrskurðinn um fánamálið, sjá VIII. árg. nr. 55, að það mundi »ætlun ráðherra að skipa menn í nefnd af öllum ílokk- um til þess að ráða fram úr því máli«. En margir lögðu meira upp úr orðum ráðherra í ríkisráðinu en upp úr spá málgagnsins, það því fremur, sem það hafði þá nýskeð gert ráðh. rangt til, með því að geta þess til, að hann ætlaði að fresta uppburði hvalveiðafrumvarpsins, líkt og hann frestaði uppburði lotterí- frumvarpsins sæla. En viti menn, málgagninu ratað- ist rétt á munn, eða því sem næst. Á gamlársdag flutti »ísafold« þá fregn, að ráðh. hefði þá um daginn skipað þá Guðm. Björnsson land- lækni, Jón Jónsson dósent, Malthías I3órðarson fornmenjavörð, Ólaf Björnsson ritstjóra og þórarinn þorláksson málara í nefnd til þess að gera tillögur um fáaagerðina. »ísaf.« hefir það eftir erindisbréfi þeirra félaga, að nefndin eigi »að taka gerð fánans til rækilegrar í- hugunar, kynna sér eftir föngum, hvað fullnægja mundi óskum þjóð- arinnar í þessu efni, og koma fram með tillögur til stjórflarinnar um lögun og lit fánans, svo snemma, að stjórnin geti gert alþingi, er það kemur saman næst, kost á að láta uppi skoðun sína um þær«. »Lögr.« hafði getið þess, að allir flokkar ættu fulltrúa i nefndinni, en húsbóndinn hefir alveg gleymt /Jcc/idaflokknum. Auk þess er Heima- sljórnarflokknum ekki gerð full skil, þar sem Jón Jónsson dósent fer, tneð löngu gefnu stjórnarráðsleyfi, til langdvalar í úllöndum, innan skamms. þá er það eftirtektarvert um mannavalið meðal annars, að eng- inn sjómaðnr hefir þótt tiltækilegur í nefndina. Alt skólagengtiir menn. Nefndin skipuð líkt og konung- kjörnu sætin á alþingi. Að vísu varð ráðherra unninn til þess, með miklum erfiðismunum, að skipa einn bónda og einn sjómann*) í 2 kon- ungkjörin sæti 1905. En úr þeirri yfirsjón bætti hann þegar í stað við fyrsta tælcifæri, með því að skipa skólastjórann á Akureyri í annað sætið og landlækninn í hitt. Nefndin á að kynna sér eftir föng- um, »hvað fullnægja mundi óskum þjóðarinnar« um gerð og lit fánans. En á því hlutverki er bara sá agnúi, að það getur nefndin með engu móti gert. Hún hefir ckkert vald til þess að heimta skýrslu nokkurs manns og hún hefir auk þess eng- an tíma eða tök til þess. Alþingis- deildirnar einar geta veitt nefndum slíkt vald, sbr. 22. gr. stj.skr., en ráðh. getur það ekki. Nefndin er því þegar af þessari ástæðu sama sem andvana fædd. Hún er að því leyti til miklu lakar sett en sljórn- arráðið. það hefði gelað beittfyrir sig sveitastjórnum og embættismönnum. En þar við bætist, að ekki þurfti á /m7Z/-þinganefnd að halda til að skera úr því, hvort ísl. fáninn líktist svo annara landa fánum, að breyta yrði til um gerðina. Til þess þurfti ekki annað, en að prenta í blöð landsins eða leggja fyrir alþingi eftirmynd úr einhverri ílaggbókinni af líkustu fánum aunara þjóða.Vænt- anleg fánanefnd á alþingi hefði svo getað skorið úr deilumáli þvi, er ráðh. hefir vakið í því efni. En til hvers hefir nefndin þá verið skipuð? Sumir geta þess til, að hún hafi verið sett til þess að kom- ast lijá þvi, að bera fánagerðina undir atkvœði kjósenda, svo sem eðlilega hefði átt að gera. Og ó- neitanlega eru allmiklar líkur fyrir því, að sá hafi tilgangurinn verið. Það liggur jafnvel beint við eftir niðurlagi erindisbréfsins, svo sem það er prentað i »ísaf., þar sem tillögur nefndarinnar eiga að ganga til ráðherra og þaðan aftur beint til alþingis. Og í annan stað er það eftirtektarvert, að í konungsúrskurð- inum, sem ráðherra nafnsetti, er tekið öðruvísi til orða en ríkisráðs- ræðu ráðherra. í konungsúrskurð- inum er óska þjóðarinnar að engu getið, heldur er þar minst á »óskir manna á íslandi«, og vitanlega eru háttv.nefndarmenn »menn á íslandi«, *) Pór. Jónsson og Aug. Flygenring. og reynast vonandi góðir íslend- ingar. Nefndin gæli komið að nokkru liði, ef væntanlegur uppdráttur henn- ar að nýjum fána væri ásamt eftir- mjmd af ísl. fánanum, markaður í at- kvæðamiða, er kjósendum væri feng- inn við næstu lcosningar, ásamt kjörmiðanum, og kjósendur gætu svo valið um með því að merkja við þá gerðina, er þeim gætist best að. Þessa leið gæti ráðh. farið enn, þrátt fyrir niðurlagsorð erindisbréfs- ins. Nefndin á ekki að þurfa lang- an starfstíma. Og hann ætti að fara þá leið. Annars er viðbúið, að kjósendum þyki lielst til lítið gert úr sjer, mörgum þúsundum rnanna, en helst til mikið úr fimmmenningunum. Þá gæti jafnvel svo farið, að úr nefndinni yrði lítið annað en hvellur á borð við livellina úr ótal öðrum púðurkerlingum, sem sprengd- ar voru víðsvegar um bæinn þann dag. Gárungi einn kallaði nefndina jafnvel þegar daginn eftir, á nýárs- dag, púðurkerlingu, sagði neista úr henni hafa hrokkið á flaggstreng einn, ekki mjög langt vestur af stjórnar- ráðinu og brent strenginn, svo að ekkij hafði orðið flaggað þar með ísl. flaggi, svo sem alt af hefir verið gert hingað til. *¥* Nýjar bælmr. Gunnar Gutmarsson: Gæst den enejede. Gyld. Bogh. Nord. Forl. Kbh. & Kría 1913, 146 bls. Leitt er til þess að vita að þessi hásöngur karlmannlegrar iðrunar og mikilla mannkosta skuli ekki hafa verið frumsaminn á fögru íslensku máli, því að það hefði verið stór- fengur okkar litlu, fáskrúðugu bók- mentum. En engu að síður sýnir hann og ber þess nú væntanlega vitni út um heiminn, hversu margt fagurt og verðmætt getur falist með íslenskum sálum. Eg ætla ekki að fara að ritdæma þessa bók né heldur lýsa henni, að eins benda á hana. Því að hún á erindi til allra vakandi sálna og sem flestir ættu að ná í hana og lesa hana. Það er ekki heldur létt verk að lýsa henni sem skyldi, því að viðburðirnir í henni eru hvorki miklir né margbrotnir; hún er lítið annað en lýsing á sálum þeim, sem þar bregður fyrir og þó aðallega á þessari einu iðrandi sál — Gesti eineygða — sem virðist hafa kann- að allar raunir mannlífsins grunna og er að reyna að bjarga sér upp úr hörmungunum og bæta fyrir alt það, sem hann hefir misgert, með því að bjarga sálum manna og beina þeim inn á brautir kærleika og um- burðarlyndis. Eg hefi ekki haft mikla trú á höf. fyr en eg las þessa bók hans. En úr þessu get eg vænst alls hins besta V. tl)l. Mvnðaniai fásf bestir og ódýrastir á trésmíða vinnustofunni Laugaveg 1. Milílu úr að velja. Myndir innrammaðar fljótt og vel. frá lionum. Því að þessi bók hefir á sér öll einkenni góðrar listar. Eitt mætti auðvitað að henni finna, að lýsingar hennar á íslenskri nátt- úru eða íslensku þjóðlífi eru ekki mjög ítarlegar né nákvæmar. En það er ekki heldur tilgangur henn- ar. Aftur á móti hefir hún þann mikla kost, að sálarlýsingar hennar eru svo mannlegar og sannar, að hún getur farið för sína um heim- inn svo, að allir geta skilið hana og metið. Og væntanlega kemst hún víða, verður þýdd á mörg mál. Enda á hún það fyllilega skilið. Þeim heiður, sem heiður ber! Þetta er einhver hin ákjósanleg- asta jólabók og er vel til þess fallin að dreifa friði og helgi í sálirnar, einkum hygg eg, að prestarnir hefðu gott af að lesa hana sem einskonar jólahugvekju. Ág. Bj. Utlendar íréttir. Viðsjár í Elsass á Þýzkalandi. Árið 1871 urðu Frakkar eins og kunnugt er að láta af hendi til Þjóðverja héruðin Elsass og Lothringen. Þótt Þjóðverjum hafi yfirleitt farist vel við ibúa þessara héraða, hefir oft orðið par vart við kur gegn Þjóðverjum og Þýzkalandi. Og nú í haust hefir yfirgangur og uppvöðslu- semi ungra foringja í smábæ einum í Elsass sem Zabern nefnist, gefið tilefni til allmikilla viðsjár. Loks urðu svo mikil brögð að þeim, að fyrirspurn um það mál var gerð í þýzka rikisþinginu. Þótti þá sem oftar, að hermálaráðherrann og ríkiskanzlar- inn Bethmann-Holhveg vildu ekkert gera úr yfirtroðslum og otrikisverkum herforingjanna. Varð þá hark mikið og hörð rimma út af öllum þessum að- förum, er lauk með því, að þingið lýsti yfir vantrausti sinu á kanzlaranum með 293 atkvæðum gegn 54 fyrir afskifti hans af þessu máli. - Þegar hér var komið tók Vilhjálmur keisari málið í sína hönd. Hann kvaddi ríkiskanzlarann, landstjórann í Elsass og æðsta herforingjann á sinn fund til þess að fá skýrslur þeirra um málið. Að því búnu úrskurðaði keisarinn, að seluliðið skyldi um slundarsakir víkja burtu úr Zabern, og mál þau sem vísað hafði verið til hermannadómsins skyldi hið allra bráðasta til lykta leidd. Jafn- framt var yfirforingjanum í Zabern vikið frá um stundarsakir. Þykir keisarinn, sem jafnan hefir verið velviljaður liernum ogdregiðtaum lians, hafa vaxið fyrir afskifti sín af málinu. • Það er og talið sennilegt, að viðsjárnar í Elsass réni við þenna úrskurð keisarans.

x

Árvakur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árvakur
https://timarit.is/publication/164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.