Árvakur - 06.02.1914, Blaðsíða 1

Árvakur - 06.02.1914, Blaðsíða 1
I. árg. Reykjavík, F'östu.ciag' O. Febrúar 1014 13. tbl. í^eir menn, er kynnu að óska að verða fastir kaupendur að blað- inu, geri svo vel að segja afgreiðslu- manni til sín, en hann er hr. Por- steinn Sigurðsson, Laugaveg 22 B., sími 431. Blaðinu væri það mikill greiði, ef sem flestir vildu gjalda misseris- borgunina, 1 kr. 25 au., sem fyrst. Innanbæjarmenn geta skrifað sig fyrir blaðinu til skemri tíma, þó ekki skemur en einn mánuð. Útg. Það eru allar horfur á því, að hlutafélaga-braskið sé að verða að nokkurs konar landplágu rneð oss íslendingum. Hlutafélög þjóta upp eins og gor- kúlur á haugi og hverfa mörg með jafnhröðum hætti. Og það er engin furða. Altaf fást einhverjir tii að gylla tilgang félagsins. Og léttúð almennings ná- lega takmarkalaus, ef forgöngumenn- irnir lofa nógu miklu. En enginn lagastafur fyrir nokkru eftirliti af hendi almennings-valdsins. Menn, sem komnir eru að hruni eftir allra handa brask, taka sig til einn góðan veðurdag og hóa saman nokkrum kunningjum og gróðabralls- mönnum til að gangast fyrir stofnun hlutafélags, til að reka verslun eða íiskveiðar í stórum stýl, eða hvort- tveggja. Bjartsýnir menn stofna félags- skap til að grafa gull eða aðrar ger- semar úr jörðu o. s. frv. Kunningjarn- ir geta ekki verið að neita kunningj- anum um að leggja fram nokkrar krónur eða tugi króna. Og gróða- brallararnir láta aldrei á sér standa, enda oft von um stundarhagnað, svo sem um að komast i stjórn félags- ins eða þvíumlíkt. Næsta sporið er þá venjulega að semja útboð til almenníngs um að kaupa hluti i félaginu. Og er þá sjaldan spöruð gyllingin eða feita letrið. Svo er félagið stofnað og hlutað- eigandi sýslumanni eða bæjarfógeta send tilkynning um stofnun þess. Hlutaféð er talið í tugum eða hund- ruðum þúsunda, og alt sagt inn- borgað eða því sem næst. Með þetta fer félagið á stað. Fyrsti spretturinn tekst venjulega sæmilega. Félagið greiðir hluthöf- um sinum 5 eða 6 af hundraði eftir fyrsta árið, enda stundum svo heppið, að missa meira eða minna af eign- unum í eldinn eða í sjóinn. Lof félagsstjórnarinnar er borið út í blöðunum, og þá oft og tíðum boðið upp á ný hlutakaup, og nú renna stundum jafnvel gætnir menn á agnið viðlíka ört og þorskur á vel beittan öngul. En svo fer spilaborgin alt i einu að riða. Hluthafarnir fá engan árs- arð og einn góðan veðurdag neita bankarnir félaginu um frekari stuðn- ing. Og þá liggur alt i rústum. Þá kemur oft upp úr kafinu að útboðsskjalið hefir ekki verið annað en skáldsaga, hreinn og beinn »reifari«. Innborguðu þúsundatug- irnir eða hundruðin hafa þá oft að miklu leyti staðið í gífurlega hátt virtum húsahrófum og óútgengileg- um vöruleyfum eða í lítt sjófærum skipum. Ekki ótíð ástæða til hruns hlutafálags er þó, að lagt hefir verið á stað með ailof lítið hlutafé, annað- hvort vegna vanþekkingar eða létt- úðar. Hluthafarnir fá ekki rauðan eyri af því, sem þeir lögðu fram. Lánar- drottnar félagsins tapa stórfé. Jafn- vel bankarnir verða stundum svo hart úti, að þeir verða að rifa seglin og neita góðum mönnum um lán til nytsamra og ábyggilegra fyrir- tækja. Og vinnulýð félagsins, tugum eða jafnvel hundruðum saman, er fleygt á klakann fyrirvaralaust. En gróðabrallararnir flytja sig á næstu mið og byrja á nýjan leik, eða beitast fyrir önnur fyrirtæki, undir nafni konu eða barna, haíi útgerðin borgað sig fyrir þá. Þannig löguð cða þessu lík er saga margra hlutafélaga hér á landi, eystra og vestra, nyrðra og syðra, og ekki sízt í sjálfum höfuðstaðnum. Dæmi þarf ekki að nefna. Þau eru öllum kunn. En annað verður að nefna, verður að finna. Það er bjargráð við þessu faraldi. Það er stórskaðlegt bæði inn á við og út á við. Það hefir féflett margan íslending og dregið hug og dug úr mörgum mönnum til framlaga til heilbrigðra fyrirtækja. Og það hefir stórspilt lánstrausti einstaklinga og almennings í öðrum löndum, þvi meir sem hrunið hefir verið hærra. Og bjargráðið er sjálfgefið. Það er lagasetning. Vér þurfum að eign- ast lög, er tryggja örugt eftirlit af hendi almenningsvaldsins með öll- um hlutafélögum, sérstaklega með atvinnufélögum. Það verður fyrst og fremst að búa svo um, að einstaklingur og almenn- ingur megi treysta því, að hin lög- boðna tilkynning til firmaskrárinnar sé sönn. Það á ekki að mega taka við firmatilkynningu, fyr en sannprófað er, að hlutaféð sé fyrir hendi, að það sé innborgað í reiðufé, sem talið er innborgað, og að mat á öðrum framlögum en reiðufé sé réttlátt o. s. frv. Þar næst verður að fá heimild fyrir stöðugu eftirliti með rekstri fé- lagsins og fyrir valdi til að taka i tauma þess, ef út af bregður réttum gangi. Það væri nauðsynjaverk að hefj- ast handa sem fyrst. Mundi land- stjórnin ekki geta undirbúið slíka lagasetningu til næsta alþingis? Fyrirmyndir cru nægar i annara landa lögum, þar á meðal í ’Eng- landi. Þar eru til góð lög frá 1908, »The Companies Act«, sem gengu í gildi 1. April 1909. t Ijaakon Jlyhuus. Árið, sem leið, hefi eg átt bak að sjá tveimur meðal kærustu vina minna, er báðir vóru bókvörzlu- menn og báðir snildarmenn með afbrigðum, hvor á sinn hátt, í sínu köllunarverki. í vor, er leið, dó Steingrimur Stefánsson í Washington, D. C., og hefi ég minst hans áður (»Reykjavik« síðasta ár, og í »Nýju Öldinni« 3. árg). Nú um Jólin andaðist Haakon Nghuns í Kristíaníu eftir árlanga og þunga sjúkdómslegu. Síðasta bréf fékk ég frá honum í sumar, er leið, og varð hann að láta dóttur sina rita það fyrir sig, en ritaði sjálfur nafn sitt undir og utanáskriftina. Þá var hann góðrar vonar um, að hann mundi komast á fætur innan svo sem sex vikna, eftir því sem læknir hans áleit. En það fór á hinn veginn. Honum auðnaðist aldrei að stíga á fætur framar. Haakon Nyhuus var fæddur 28. Nóvember 1866, og var af norsku Finna-kyni kominn í aðra ætt. Hann varð stúdent 19 ára gamall (1885). Nyhuus tók nú um hríð fjörugan þátt í stúdenta-lífinu í Kristíaníu um nokkur ár; tók hann heim- spekispróf við háskólann, enn eigi fleiri lærdómspróf. Eitthvað lítils- háttar skrifaði hann þessi ár, las ýmislegt, en ekkert sérstakt með próf fyrir augum. Var í honum ævintýra- náttúra þessi ár, og 1890 lók hann sig til að svala henni með því að fara vestur um haf til Chicago. Hann kom þangað 33 ára gamall, tómhentur, en með hraustan likama og góða burði. Eftir að hafa feng- ist fyrst við hina og þessa líkam- lega vinnu, komst hann eftir nokk- urn tima að bókvörzlustarfi í New- berry-bókasafninu mikla í Chicago. Þaðan fór hann síðar til Almanna- bókasafnsins [Public Librarg) í Chi- cago, og þar varð liann von bráðar forinaður spjaldskrárdeildarinnar, og var það orð á að lokum, að hann væri einn færustu manna í Ame- ríku i sinni ment. Má það til marks um telja, að safnið sendi hann austur um Bandariki til að kynna sér nýjustu og beztu aðferðir i flokkun og skrásetning og öðru, er að bókvörzlu lýtur, og kostaði för hans. Honum fór sem fleirum, er eigi koma kornungir til Vesturheims, að heimþráin óx í honum eftir þvi sem útlegðarárin fjölguðu. 1907 reif hann sig loks upp, og fór alfari til Noregs. Þar bauðst honum rétt eftir heiinkomuna bókavarðarstaða; en hann vildi ekki þiggja annað en fulla forstjórn safns sem yfirbóka- vörður. Það var verið að koma nýju skipulagi á Deichmanns-bóka- safnið um þetta leyti, og varð það úr að lokum, að stjórn safnsins gekk að kostum hans og réð hann yfirbókavörð með eftirlaunarétti (1898). Deichmanns-bókasafnið er stofnað með gjafabréfi CarlDeichmanns 1780, og var gjöfin 6000 bindi bóka og 2000 rikisdalir (4000 kr.) og skyldi safnið vera til almennings-nota. Það var opnað 1785. Kristíaníu-bær kostaði húsnæði og ofurlitla þjón- ustu safnsins. En það var alt fá- tæklegt og mjög litilmótlegt, viðbæt- urnar mest gjafarusl og mikið af því einskisvert. — Nyhuus fékk bæinn til að umsteypa safninu og endur- fæða það. Norskt vikublað frá 1911, sem ég hefi fyrir mér liggjandi, kveður svo að orði; »Með Nyhuus var alt í einu fenginn réttur maður á réttan stað. Hann kom sem hvirfilvindur inn í gamla ömurlega bóka-hrófið. Hann blés á burt öllu gömlu ónýtu rusli og gömlum og úreltum erfikenningum urn fyrir- komulag og stjórn bókasafna .... .... Með óþreytandi elju og óbif- andi þreki hefir hann síðan sífelt heimtað og fengið aukin framlög til safnsins. Hver sem nú gengur fram hjá »ævintýrahöllinni« í Kristjáns-íjórða-götu, sér þar ljós- blik í hverri rúðu, því að hér á ævintýrið heima — ævintýrið um, hverju starfs-þrek og siglöð lund fær til leiðar komið«. Ég skal hér geta þess, að þegar fyrir 6 árum átti safnið milli 80 og 90 þúsundir binda (auk smáritlinga). Aðsóknin að þvi var þá orðin meiri en að nokkru öðru bókasafni á Norðurlöndum. 1907 voru heim- lán 537,401 ; og 71,428 manns sóttu það ár lestrarsalinn. En Nyhuus nægði ekki að starfa fyrir þetta eina bókasafn, Hann gaf sér innan um alt annrikið tima til að hugsa um sveitir og bæi um alt landið. Flestöll bókasöfn út um land i Noregi eru sniðin eftir Deich- manns-bókasafninu. Og bókasöfn um öll Norðurlönd hafa lært og tekið upp nýja háttu eftir þvi. »Hingað koma stöðugt« (segir norska blaðið, sem ég áður nefndi) »menn frá Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku, og allir lúka þeir upp einum munni að dást að inu frábæra fyrirkomu- lagi og stjórn Deichmanns-bóka- safnsins. Kirkju- og kenslumála-stjórnin skipaði Nyhuus (ásamt öðrum) i nefnd til að koma belra skipulagi á alþýðu-bókasöfn, þau er sveitarfélög eða bæjarfélög halda uppi. Eftir hans tillögum kom hún á samvinnu- félagsskap um bókakaup fyrir öll söfnin, og sameiginlega spjaldskrá, Deichmanns-bókasafnið annast um

x

Árvakur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árvakur
https://timarit.is/publication/164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.