Árvakur - 06.02.1914, Page 3

Árvakur - 06.02.1914, Page 3
ÁRVAKUR 41 munað um hlutdeild í, sem nú máske verður að þiggja styrk bæj- arfélagsins, eða sækir máltíðir til Samverjans, meðan útlendar sel- stöðuverslanir, sem útgerðina áttu, sitja að feng sínum. Sjómciður. Landsreikningarnir og stjórnarráðið, Blöðin öll, önnur en »Árv.«, hafa varist allra frélta af framkomu þing- manna og landsstjórnar á síðasta alþingi, rétt eins og almenningi kæmi hún ekkert við. Þessi steinþögn er því hættulegri, sem kosningar eiga að fara fram innan fárra vikna, en Alþingistíðind- in ekki fullprentuð. »Árv.« heldur því áfram upptekn- um hætti og leiðir nú almenningi fyrir sjónir vandvirkni stjórnarinnar eða hitt þó heldur á tilbúningi landsreikninganna m. fl. Lárus H. Bjarnason: .... Annars skal eg leyfa mér, að gera nokkrar athugasemdir við landsreikninginn 1910—1911. Eg býst við því, að eg megi, ekki einungis í mínu nafni, heldur og meðendurskoðanda mins, geta þess, að það er mjög nauðsyn- legt, að stjórnarráðið afgreiði lands- reikninganna fyr til endurskoðunar- manna en gert var um reikning- ana 1910—1911, og að það vandi yfileitt betur til þeirra. Reikningur- inn um 1910 var ekki saminn fyr en 15, Des, 1911 og ekki sendur yfirskoðunarmönnum fyr en 20 Jan. 1912, það leið meir en mánuður frá því er landsreikningurinn var saminn til þess er hann var sendur til yfirskoðunarmannanna. Reikn- ingurinn var að mestu leyti óendur- skoðaður af hinni umboðslegu end- urskoðun og er það injög óheppilegt, að þeir reikningar, er landsreikning- urinn byggist á, séu ekki endur- skoðaðir umboðslega áður en þeir eru fengnir yíirskoðunarmönnum í hendur, því að ekki er viðlit að ætla yfirskoðunarmönnum slíka end- urskoðun, enda hafa þeir engan tíma til hennar, þó að þeir vildu leggja hana á sig um alla skyldu fram. Tryggingin fyrir réttmæti lands- reikningins minkar að sama skapi sem þeir reikningar eru ófullkomn- ari, sem hann byggist á. Við yfirskoðunarmenn afgreiddum athugasemdir okkar til stjórnarráðs- íns með bréfi dags. 11. Júní 1912. Svör stjórnarráðsins voru ekki til fyr en 23. Október, en tillögur okk- ar voru búnar 19. Desember. En þótt landsreikningurinn 1910 kæmi seint, þá kom reikningurinn fyrir 19íf þó ennþá seinna. Hann var ekki saminn fyr en 13, Mars 19Í3 og ekki sendur okkur fyr en 28. Mars, og það má segja sama um hann eins og landsreikninginn 1910, að hann mátti heita alóendur- skoðaður af hinni umboðslegu end- urskoðun. Við höfum lokið endur- skoðun okkar 20. Maí, en svör stjórnarinnar, sem eru dagsett 27. Júní, komu ekki til okkar fyr en 3. Júlí, eða eftir að þing var byrjað. það sjá allir, að þettta er óhafandi sleifarlag, og að yfirskoðun hlýtur að verða miklu lauslegri og tillögur lakar grundaðar, er svo er í pott- inn búið hjá stjórninni, enda reikn- ingurinn allur óábyggilegri. Viðvíkjandi skaltheimtu gjald- heimtumanna landssjóðs verður að geta þess, að surnir reikningshald- arar gera hvorttveggja í einu, semja reikninga sína of seint og gjalda tekjurnar of seint í landssjóð. þetta getur leitt til stórtjóns fyrir lands- sjóð og hefir gert það, þó að lands- sjóður tapaði ekki við sjóðþurð þá hina miklu, er nýlega átti sér stað norðanlands. En það happ í ó- happi var ekki eftirlitsmönnunum að þakka. þeir höfðu með slælegu eða ráttara sagt engu eftirliti stofnað til stórtjóns, þó að vinir og vanda- menn bættu úr. Það er vitanlegt um einstaka gjaldheimtumenn, að þeir borga tekjur liðins árs með tekjum líðandi árs, og um aðra, að þeir draga greiðslur í landssjóð til þess að geta sjálfir notið vaxta af tekjum landssjóðs. Landssjóður leggur árlega til um 1500 kr. á ári til eftirlitsferða, og ætti því að mega heimta, að stjórnin vissi eitthvað, áður en alt er kol- fallið. Dæmið, sem eg nefndi áðan að sjóðþurðinni, sem var 7—8 ára gömul, var ekki síður að kenna eftirlitsleysi stjórnarráðsins en and- varaleysi gjaldheiintumannsins. Háttv. framsögupiaður mintist á fæðispeninga umsjónarmanns vit- anna og taldi 4 kr. nægja, en um- sjónarmaðurinn hefir fengið 6—8 kr. á dag. Út af þessu vil eg geta þess, að þó að meira sé komið undir þvi, að eftirlitsmennirnir geri eitthvert gagn, heldur en undir hinu, hvort þeir fá nokkrum krónum meira eða minna, þá ætti þó að vera faslákveðin upp- hæð, er ekki mætti fara fram úr. Sérstaklega er óforsvaranlegt, að leyfa eftirlitsmönnum að taka 4 kr. á dag, meðan þeir eru á skipum, auk venjulegra fæðispeninga, 6 kr., eða 10 kr. alls i fæðispeninga á dag, en þettu hafa tveir hálaunaðir em- bættismenn reiknað sér og fengið. Þetta er óþarflega hátt og ætti ekki að líðast, sizt ef þeir ekki gera ann- að en spóka sig í góða sumarveðr- inu, eins og stundum vill brenna við. Þá vildi eg loks geta þess, að það er mjög óviðfeldið og jafnvel vill- andi, þegar fjárlögin eru svo rang- lega siteruð í landsreikningnum, sem gert er að minsta kosti á 2 stöðum í landsreikn. 1911, svo sem á sér stað um 85. og 88. aths. Þar er tilvitnun hagað svo, að föst fjárhæð Verður að áætlunarupphæð, og er það vitanlega stjórninni í hag, Annað eins og þetta bakar endur- skoðendum Alþingis óþarfa ómak og er jafnvel villandi. Ráðherrann (H. H.) : Það er mikið rétt, sem háttv. 1. þingm. Rvk (L. H. B.) sagði, að það er óheppilegt að landsreikningarnir séu svo seint tilbúnir. En þetta kemur blátt á- fram af því, að verið var að reyna að láta umboðsendurskoðunina vera sem lengst komna, áður en lands- reikningurinn væri saminn. En starfskraftur i stjórnarráðinu var ekki nægur. Ef að meiri starfs- kraftur hefði verið, hefði umboðs- endurskoðunin gengið ttjótara, og reikningurinti orðið fyr tilbúinn. Það var líka rétt, sem sami liáttv. þingm. sagði, að það er óheppilegt, að gjaldheimtumenn landssjóðs skuli ekki allir gera reikningsskil nógu snemma. Flestir senda þó reikn- inga sina nógu snemma, og geri þeir það ekki, þá fá þeir áminningu hjá stjórnarráðinu. Hér er erfiðara að hafa eftirlit með slíku en í öðrum löndum, þar sem samgöngurnar eru miklu greiðari. Þar sem járnbrautir eru um alt land, er hægt i einum vettvangi að ná í það sem vantar, Hér tekur það aftur á móti mikinn tíma að skrifa með laudpóstum, og fá svör aftur langar leiðir að, ef eitthvað er i ólagi. Að svo miklu leyti sem ræða háttvirts þingm. um þetta efni átti að vera aðfinsla til núverandi stjórnar, þá skaut hann þar fram hjá markinu, því uð sjóð- þurðin, sem hann talaði um að orðið hefði hjá einum sýslumanni á Norðurlandi, var tilkomin áður en eg tók við ráðherraembættinu; og eg held að það hafi verið eitt mitt fyrsta embættisverk*), að fyrirskipa rannsókn gegn þessum manni. Það sem háttvirtur þingm. var að tala um siðast í ræðu sinni, að nauðsynlegt væri að tilfæra orðrétt fjárlögin, þá verð eg að álíta, að það sé nauða ómerkilegt atriði. Endur- skoðendurnir hafa alveg eins fjár- lögin við hendina eins og stjórnar- skrifstofan, og ekki get eg séð, að það sé mikið ómak fyrir þá, þótt þeir stöku sinnum þurfi að stinga niður blýanti, til að bæta við »alt að« eða því líku. Þetta atriði held eg að háttvirtur þingm. hafi meira talað um til þess að hafa eitthvað til að finna að, heldur en að það lægi honum svo ríkt á hjarta, að slíkt kæmi ekki fyrir. Lárus H. Bjarnason: Hv. ráðherra vildi kenna starfskraftaleysi í stjórn- arráðinu um dráttinn á landsreikn- ingagerðinni, en þær röksemdir ráðh. eru ekki alveg vafalausar. Starfs- kraftarnir í stjórnarráðinu, sérstak- lega á 3. skrifstofu, eru víst nógu miklir, það er að segja, mennirnir eru víst nógu margir. Annað mál er það, hvort starfsmennirnir eru allir jafn góðir. Og víst er um það, að þeir eru misjafnlega notaðir. Það er t. d. á allra vitorði, að einn starfsmaðurinn á 3. skrifstofu stjórn- arráðsins hefir fast starf annar- staðar á þeim tíma, sem hann á að vera í stjórnarráðinu. Og þar sem aldrei hafa verið jafnmargir starfs- menn í stjórnarráðinu sem nú — þeir munu vera 6 á 3. skrifstofu — þá er það ekki of mikið sagt, þótt maður segi, að þessi röksemd ráðh. sé vafasöm. Sérstaklega er þetta lítt frambæri- leg ástæða þegar litið er til þess, að reikningsgerðin sjálf er lítið verk, því að eins og eg tók fram áðan, var reikningurinn óendurskoðaður á 3. skrifstofu þegar okkur yfir- skoðunarmönnum var sendur hann. Hin umboðslega endurskoðun stjórn- arráðsins hefir oft verið nokkuð kákkend og sumir póstar í lands- reikningnum ekki verið endurskoð- aðir. Til dæmis er nýfarið að end- urskoða starfrækslureikninga land- símans. Það var í mörg ár ekki borið við að endurskoða þá um- boðslega. Hæstv. ráðh. kannaðist við, að það væri mjög óheppilegt, að gjald- heimtumenn landssjóðs skyldu skila reikningum sínum of seint, og sumir skila tekjunum of seint, en hann *) Það var hr. K. J., en ekki hr. H. H. sem fyrirskipaði rannsóknina. færði þá afsökun fram fyrir því, að það kæmi af erfiðum og seinum samgöngum. Þessi ástæða er mjög veigalítil, því að fyrst eru nú sam- göngur allar stórbættar frá þvi er gjaldheimtureglugerðin varð til fyrir 40 árum, og svo koma of sein skil ósjaldan fyrir hjá þeim einbættis- mönnum, sem eru alveg uudir handarjaðri stjórnarinnar. Það eru líka nú komnir ritsímar og talsíinar um mest alt landið, svo að það væri hægur vandi fyrir stjórnarráðið að finna að misfellum á stuttum tíma. En stjórnin kvað ekki brúka nema póstferðir til þess að finna að, ef eitthvað vantar, og svo skrifa og Skrifa i það óendanlega. í stað þess að stjórnin ætti að sekta þá sem mestir eru trassarnir og jafnvel víkja þeim frá um stund- arsakir, og þá vitanlega áður en skuldasúpan er svo vaxin þeim yfir höfuð, að þeim er ómögulegt að rétta við. Hæstv. ráðherra sagði að það væri ekki sér að kenna, að ekki hefði verið haft betra eftirlit með sjóðþurðinni fyrir norðan, af því að hún hefði verið byrjuð áður en hann tók við völdum. Eg hefi nú að visu ekki séð rannsóknarskjölin, en sagt er mér, að rótin til þeirrar sjóðþurðar sé margra ára gömul. Byrjunin til hennar varð vist skömmu eftir 1904, og þá var hæstv. núver- andi ráðherra við völd. Það mun líka hafa komið fyrir, að embættis- menn, sem nú eru í embættum eða á eftirlaunum, hafi sýnt af sér van- skil og standi jafnvel í óbættum sökum. Þetta verður að laga, enda er það ekki síður í þágu embættis- mannanna sjálfra, að eftirlitið sé sem nákvæmast. Ef eftirlitið er nógu strangt, þá verða vanskil þeim síður að fótakefli. Það er hægra fyrir þá að leiðrétta, ef eitthvað hefir farið aílaga, sé fundið að í tíma. Hæstv. ráðherra sagði, að það væri mjög ómerkilegt atriði, þótt vitnað væri rangt í fjárlögin i lands- reikningunum. í hér um ræddum tilfellum var deila um það milli stjórnarráðsins og yfirskoðunar- manna, hvort umræddar upphæðir væru fastar eða áætlunarupphæðir. Þær voru fastar, en stjórnarráðið gerði þær að áœf/unarupphæðum með rangri tilvitnun, og tók sér þannig bessalayfi til að fara fram úr fjárveitingu alþingis. Það er ein aðalskylda yfirskoðunarmanna að gæta þess, að stjórnin haldi fjár- lögin, og sannarlega þá ekki til of mikils mælst, að stjórnin villi yfir- skoðunarmönnum ekki sýn. Það er að visu innan handar fyrir yfir- skoðunarmennina, að lesa fjárlögin saman við landsreikningana, en þá er það ekki síður innanhandar fyrir embættismennina f stjórnarráðinu að fara rétt með þau. Og óneitan- lega ætti stjórnarráðið að ætla yfir- skoðunarmönnum lengri tíma til endurskoðunar, ef yfirskoðunar- mennirnir meiga ekki ganga út frá því, að alstaðar sé villulaust vitnað til fjárlaganna i landsreikningnum, heldur áætlunarupphæðir gerðar að föstum upphæðum og þvi um líkt. Háttvirtur sessanautur minn, fram- sögumaður reikningslaganefndarinn- ar, sagði, að við yfirskoðunarmenn gerðum ofmikið úr auravillum, hélt því fram, skildist mér. að slíku mætti sleppa, en þar skjátlast hon- um. Góð endurskoðun athugar jafnt smávillur sem stórar, er beint skyldug til þess. Hann sagði líka, að fyrir gæti komið, að innheimtu- menn gætu ómögulega gert reikn- ingsskil á réttum tíma. Það getur verið rétt, en slíkar undantekningar réttlæta ekki vanskil að jafnaði, og ofmikla hlífð við gamalreynda van- skilamenn. Stjórnin verður að gæta þess, að hún fer með annara fé en ekki sitt eigið.

x

Árvakur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árvakur
https://timarit.is/publication/164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.