Baldur - 12.10.1903, Qupperneq 4
4
BALDUR, 12. OKT. 19O3.
Nýja ísland.
—:o.—
Sunnudaginn þann 18. október
verður messað í skólahúsinu hjer á
Gimli kl. 2 e. hád.
Það, sem tekið verður til um-
ræðu í þetta skifti er Trúarástand-
ið okka r hjerna.
J. P. SóLMUN'DSSON.
Hr. B. B. Olson hefir um nokk-
urn undanfarinn tíma verið að ferð-
ast um byggðirnar hjcr á milli
vatnanna til þess, að vinna að bún-
aðarmálum fyrir hönd akuryrkju-
máladeildarinnar. Milli 60 og 70
ínanns mynduðu nýtt bœndafjelag
við Grunnavatn, og um 60 annað í
Gcysirbyggðinni. Auk þess eru
nýafstaðnir fundir við Fljótið og
hjerá Gimli, og fundarhald er bráð-
lega væntanlegt í Breiðuvíkínni.
Haustveiði stendur hjer nú sem
hæst, og aflast víða vel, þar sem
*ekki er of mikil netastappa. Stöku
maður hefir fiskað upp á $9 og $10
suma daga. Þctta getur verið
mjög farsæl auðsuppspretta fyrir
þá, sem kunna að færa sjer það
rjettilega í nyt í stað annarar út-
vinnu yfir stuttan tíma, en hjá
unglingum með lítilli fyrirhyggju
skapar þctta skaðiega veiðiskapaf-
fíkn, sem dregur athygli þeirra
svo mjög frá öðrum störfum árið
um kring, að þeir verða mannfje-
laginu langtum óuppbyggilegri
heldur en þeir annars gætu verið.
í ofsaveðrinu mikla, hinn 12.
sept., fórst scglbátur nálægt Mikl-
ey. Hann var á leið til Selkirk
norðan af vatni. Á honum voru
prestur nokkur og tveir aðrirmenn
fullorðnir, auk fjögra cða fimm
unglinga, Allt þetta fólk var kyn-
blcndingar, nema prc3turinn.
Báturinn fannst skörnmu sfðar
austan við vatn, én líkin rak öll
upp í Breiðuvík um síðustu mán-
aðamót. Það mátti heita svo, að
hver bóndi finndi dauðan mann í
sinni lendingu á löngum kaflameð-
fram ströndinni. Bœndur önnuð-
ust um líkin hver hjá sjer á mcðan
boðum var komið til Selkirk til
hins næsta lögskipaða líkskoðunar-
manns. Eftir að hann hafði komið
og lokið verki sfnu, voru líkin
flutt tfl Selkirk, og hafa að líkind-
um verið jarðsett þar.
Síðustu votviðri hafa mjög spill
færðinni á vegunum, og gefur það
sjerstaka ástæðu til þess, að benda
á þá blettina, sem verstir eru,
einkum á aðalveginum. Sunnan
til f Víðinessbyggð og sunnan til í
Breiðuvík eru verstu kaflarnir,
þeirra sem langir eru. Svo eru
stuttir spottar lítt færir sunnan við
Fenhring, sunnan við Brú, ogfram i
undan Brautarholti. Sveitarstjórn
og vegaumsjónarmenn þurfa sam-
eiginlega að hafa einhverja fram-
króka með að ráða bót á þvf, sem
allra verst er.
Auk bleytunnar eru til aðrar
vítaverðar torfærur, sem svoleiðis
er háttað, að vírgirðingar hafa ver-
ið settar frain í brautina. Af þvf
getur hlotist stórslys ef hart er
keyrt í dimmu. Ef þetta kemur-
til af þvf, að troðningurinn hefirað
undanförnu lagst út fyrir jaðar á
hinu lfigskipaða vegarstæði, þá
verður sveitarstjórnin að láta ryðja
svo frá til hinnar handarinnar, að
ekki sje ófært fyrir skógi ; en sje
girðingin aftur á móti frarn í braut-
arstæðinu, þá hlýtur vegaumsjón-
armaður að hafa rjett til þess, að
höggva hana þaðan f burt eins og
hvert annað rusl, sem ekki á þar
að vera. Það á engin maður með
að nota vegina til annars en um-
ferðar.
SLYS. í gærdag varð Guð-
mundur Jakobsson, ungur maður
hjer á Gimli, nýkvæntur, fyrir skoti
úr byssu, sem hann var að rjetta
öðrum manní upp f heyæki. Hann
hafði haldið um hlaupið þegar hann
rjetti upp byssuna, cn að lfkindum
hefir bógurinn einhvernveginn
flœkst f hcyinu, Skotið kom f
hálsinn og öxlina og olli mjög stór-
felldum áverka. Það var tafarlaust
sent til Einars Jónassonar og 0-
lafs Stephensens, læknis frá Winni-
peg, sem hjer var staddur, en þeir
fengu ekkert að gjört, vegna þess
að ekki voru tök á því að gjöra hjer
uppskurð. Með þvf að Guðmund-
ur var of mikið særður til þcss að
þo!a keyrzlu, var þegar f stað róið
með hann suður að Winnipeg
Beach, f því skyni að ná mcð hann
á spftalann í Wpeg mcð næstu lest.
ÖIl slys, sem fyrir koma í heim-
inum, eru hugvekjur í margan
handa máta. í þetta skifti virðist
rjett að minna gjaldendur Gimli-
sveitar á það, að þegar daglegur
járnbrautarlestagangur er loksins
kominn á að jaðri sveitarinnar, þá
er það bæði synd og skömm, að
hafa vegina í því ástandi, að lífi
manna verði ekki bjargað fyrir ó-
færum, cf illt er f vatnið.
Það má enn heita að vegurinn
sje svo á parti og parti, þótt full-
hraust fólk geti klöngrast áfram
þegar á liggur.
Af íbúum Rússlands er 1 Gyð-
ingur gegn hverjum 20 kristnum,
en þriðji hluti þessara Gyðinga er
mælt að eigi helming allra þjóð-
eigna. Svo segir Mr. Schalters,
starfsmaður innflutningaskrifstofu
Bandafylkjanna.
Bezta lífsábyrgðin er sjálfsstjórn.
Tortryggni cr slagbrandur fyrir
dyrum gæfunnar.
WINNIPEG
BUSINESS
COLLEGE.
Port. Ave. WINNIPEG.
NORTII END BRANCH,
Á MóTI C. P. R. VAGNSTÖDINNI.
Sjerstakur gaumur gefinn að upp-
frœðslu í cnska málinu.
Upplýsingar fást hjá B. B. OLSON,
Gimli.
G. W. Donald, sec.
WINNIPEG.
KARL : Hvað er piparsveinn,
mamma ?
M.: Piparsveinn cr maður, sem
vanrækt hefir aðgjöra stúlku ógæfu-
sama.
Ef þú ert sá bjáni að þú ekker
í mannst, farðu þá að eins og jeg,
j skrifaðu hjá þjer það scm þú átt að
gjöra,
QtŒRSTA brú f heimi verður
sú brú, sem Rússar ætla sjer að
lcggja yfir Kaffasundið, er liggur
á milli Asovska hafsins og Svarta
hafsins. Þar sem brúin á að vera,
er sundið rúm ensk mfla á breidd.
Áætlað cr að brúin muni kosta yfir
S milljónir dollara.
,, Getið þjer sagt mjer hvar rak-
arinn býr ?“
,,Haltu áfram þessa götu ofan á
móts við apótekið, snúðu þjer svo
til vinstri handar og haltu áfram
dálftinn spotta — og þá heyrir þú
skrækina —“ var svarað.
ÓLl: Það eru miklr þorparar
þessir vínsölumenn, einn þeirra
fjekk mjer falskan ,,kvart“ um
daginn og jeg hefi ekki getað orð-
ið af með hann enn.
B.: Gjíirðu það aldrei sem þú
villt ekki að aðrir gjöri.
J.: Eftir því mætti jeg aldrei
kyssa konuna mfna.
Lffið cr of stutt til þess að það
hafi afgangs tfma til fjandskapar.
Geðfeld störf eru ánægja, nyt-
söm sæla.
FOB TWENTY YEARS IN THE LEAO
Autoraatic take-up; seíf-setting; needlej self«>
threading; shuttle; antomatic bobbin winder;
quick-tension release; all-steel nickeled attach*
ments. Eatknteo Ball-bearing Stand.
OUPERlOn Tö ALL OTHER3
Handsomenfc, easicst runnlnp;. most noisoless,
most durable........A&k ycur dealer <or tho
Eldredffe“3,,, and donot buy any tnachine un-
*il you have seen the El(iredí?o “B.’' Oom-
•'aro its quality and price, and ascertain itá
pirv^ioritv.
Tf interested send for book about Eldridgo
1 ■‘B.’’ We will mail it promptly.
Wholesale Distributors: y
Merrlck, Anderson & Co., Winnipeg. I