Baldur - 14.12.1903, Blaðsíða 1
BiLDUE.
I. ÁR. GIMLI, MANITOBA, 14. DESEMBER 1903. Nr. 47.
Það eru
vinsamleg tilmæli
útgefenda Balcurs við alla J>á, sem
að undanförnu hafa stutt að út-
breiðslu blaðsins, að þeir haldi á-
fram að rjetta sjer sem vingjarn-
legasta hjálparhönd, bæði að því
sem borgun og útbreiðslu viðkem-
ur. Fyrsti árgangur er bráðum á
cnda, og fyrir komandi ár er ekki
á annað en kaupendurna að treysta,
fremur en að undanförnu.
Þessari bendingu vona útgefend-
urnir að allir sannir drengir taki
vel. Það lyftir engum manni neitt
hærra, að láta biðja sig ölmusu til
eflingar þarflegu og vel meintu
fyrirtæki.
Svo scm að sjálfsögðu eru allir
kaupendur blaðsins beðnir að sýna
því sómasamlega skilvfsi.
Það er svo að heyra sem lesend-
um blaðsins falli það yfirleitt vel f
geð, og það gefur útgefcndunum á-
stæðu til þess, að vonast eftir, að
kaupendurnir liggi ekki á liði sínu,
fremur á borði en f orði.
Nýjum útsölumönnum vcrður
fúslega veitt sanngjörn borgun fyr-
ir ómak sitt.
STJÓRKARFARIÐ í
M.4NTTOBA.
Hjer í Manitoba og í hinum öðr-
um fylkjum í Canada er stjórnar-
farið í öllum aðalatriðum hið sama,
sem í Canadaríkinu f heild sinni.
FRAMKVÆMDARV ALD
fylkisins er í höndunum á fylkis-
stjóra (Lieutenant-Governor), sem
settur er af hinum canadiska land-
stjóra samkvæmt ráði hins cana-
diska ráðaneytis. Hann er þann-
ig fulltrúi konungsvaldsins f fylk-
inu, og umboðsmaður konungsins j
á næstu tröpþu fyrir neðan land- j
stjórann.
Til þess að framfylgja þeirri
reglu, að láta aðalfulltrúa þjóðfje-
lagsins bera ábyrgðina af með-
höndlun framkvæmdarvaldsins í
stað konungsins eða umboðsmanns
hans, kveður fylkisstjórinn ráða-
neyti sjer til fulltingis, og fer f því
efni eftir öllum hinum sömu regl-
um, sem landstjórinn fylgir við að
velja sjer ráðaneyti.
Afstaða þess ráðaneytis gagn-
vart fylkisstjóranum og rjettindi
þess í þeim efnum, sem fylkinu
eru viðkomandi, eru einnig hin
sömu, sem afstaða hins canadiska
ráðaneytis gagnvart landstjóranum,
og rjettindi þess í málefnum sam-
bandsheildarinnar.
Ráðgjafar fylkisstjórans hjer í
Manítoba eru ekki nema fimm að
tölu,* en í það minnsta
ELLEFU
STJÓRNARDEILDIR
er um að ræða f þeim málum, sem
fylkið hefir undir sinni hendi.
1. Ráðaneytisskrifstofan (De-
partment of the Executive Coun-
cil). Ráðaneytisformaðurinn hefir
formennsku þcssarar deildar á
hendi, hverja helzt aðradeild, sem
hann kann þar að auki að hafa
undir sinni hendi.
2. Fylkisskrifstofan (Dep. of
the Provincial Secretary). Fylkis-
skrifarinn hefir formennsku þess-
arar déildar á hcndi.
3. Fjármáladeildin (Dep. of
the Prov. Treasurer). Fylkisfje-
hirðirinn hcfir á hendi formennsku
þessarar deildar.
4. Stj órnarbyggingadeil din
(Dep. of Public Works). Þessi
deild hefir undir sinni hendi hin
* í British Columbia eru þeir
einnig 5 ; f Nova Scotia og f
New Brunsvvick 7 ; í Prince
Edvvard Island, f Ontario og
í Quebec 8. Sumir ráðgjaf-
arnir f þessum fylkjum hafa
samt ekki neina stjórnardeild
undir hendi.
ýmsu verklegu fyrirtæki fylkisins,
önnur en byggingu járnbrauta og
hinna venjulegu uppfrœðslustofn-
ana ; svo sem vegagjörð ; vatns-
framræzlu ; heimili fyrir vitskert
fólk; heimili fyrir þá sjúklinga,
sem taldir eru ólæknandi; menn-
ingarstofnun fyrir það fólk, sem er
heyrnarlaust eða mállaust; o.s.frv.
5. Dómsmáladeildin (Dep. of
the Attorney-General). Þessi deild
hefir tillit með öllu rjettarfari f
fylkinu, og verður verksviði henn-
ar nákvæmar lýst sfðar, þegar
minnst vcrður á rjettarfar landsins
f heild sinni.*
Hinir fimm ráðgjafar hafa á
hendi formennsku sinn í hverri
deild af þeim fimm deildum, sem
þegár hafa verið taldar, en auk
þcss skifta þeir á milli sfn for-
mennsku þeirra fimm deilda, sem
hjer fylgja næst á eftir.
6. Menntamáludeildin (Dep.
of Education). Meðhöndlun á
allri uppfræðslu fylkisbúa á almenn-
ings kostnað er í höndum þessarar
deildar.**
7. Akuryrkjumála- og inn-
flutningsmála-deildin (Dep. of
Agriculture and Immigration).
Hún innibindur allt það, sem inn-
flutningi til fylkisins viðkemur, og
veitir umsjón öllu þvf, sem lýtur
að uppfrœðslu f búnaði og eflingu
búnaðarins á ýmsan hátt, svo sem
hinni árlegu iðnaðarsýningu f
Winnipeg; sýningum og fram-
* Þegar ráðaneytisformaðurinn
er löglærður maður hefir hann
venjulega áhendi formennsku
þessarar deildar í hverju fylk-
inu sem er.
** Meðhöndlun þcirra mála er
hin þýðingarmestu sjerrjett-
indi fylkjanna, og sambands-
stjórnin lætur þau með öllu af-
skiftalaus, nema hin brýnasta
nauðsyn beri til. Máske
verðursfðar í blaðinu nákvæm-
ar minnst á verksvið þessarar
deildar.
kvæmdum hinna ýmsu akuryrkju-
fjelaga (Agricultural Societies) og
bœndafjelaga (Farmers’ Institutes);
styrkveitingum til smjörgjörðar-
húsa;* árlegri ókeypis tilsögn f
mjólkurmeðferð; uppskeruskýrsl-
um; o. s. frv. Einnig er í ráði
að þessi deild komi áfót akuryrkju-
skóla (Agricultural College).
8. Járnbrautamáladeildin
(Dep. of the Railway Commis-
sioner).
9. Landeignadeildin (Dep. of
the Land Commissioncr).
10. Sveitamáladeildin (Dep.
of Municipal Commissioner). Þessi
deild hefir eftirlit á starfsemi hinna
ýmsu sveitastjórna, og hefir alla
stjórnsemi á hendi í þeim byggðar-
lögum fylkisins, þar sem reglu-
bundin sveitarstjórn er ekki kom-
in á.
11. YJirskoðunardeildin (Au-
ditor’s Department). Þessi deild
hefir á hendi yfirskoðun á fjármeð-
höndlun ráðaneytisins, og er óháð
ráðaneytinu og öllum stjórna-
skiftum.
LÖGGJAFARVALDIÐ
f fylkinu er í höndum fylkisstjóra og
þings, sem er í einni deild.
Þingmenn fylkisins eru 40 að
tölu. Þeir verða að vera orðnir 21
árs gamlir og brezkir borgarar.
Þingmennskulaun þeirra eru $500
á ári, og þingfararkaup 10 cent á
hverja mílu. Hvert kjörtfmabil í
fylkinu er 4 ár, en þing bemur ekki
sjaldnar saman en á tólf mánaða
fresti.
Allt að $500 er venjuiega
veitt sem lán hverju því fje-
lagi, sem leggur sjálft fram
jafnmikið fje til þess, að stofna
smjörgjörðarhús, en auk þess
verður hvert slíkt fjelag að
standa f ábyrgð fyrir öðrum
$500, ef á þarf að halda.