Baldur - 14.12.1903, Blaðsíða 4
4
BALDUR, 14. DES I903.
Nýja ísland.
SUNNUDAGINN þann 20.
desember verður messað f skóla-
húsinu
Á HNAUSUM
kl. 2 eftir hádegi.
J. P. SóLMUNDSSON.
f 3. þ. mán. dó ungbarnið
Margrjet Helga Dorothea, fædd
1 r. október síðastliðinn. Hún var
dóttir Júlíusar J. Sigurðar á Odda
við íslendingafljót og framliðinnar
konu hans, sem dó um miðjan okt.
í haust.
Þær frjettir berast norðan af
vatni, að fiskimenn hafi orðið fyrir
stórfelldu netatapi við það, að is-
inn braut af norðurvatninu skömmu
eftir að fyrst lagði. Allmikið af
fiski, sem ekki var búið að flytja
til lands, hafði einnig tapast, en að
öðru leyti berast góðar frjettir af
aflabrögðunum.
Á skólahjeraðsfundinum hjer
hinn 6. þ. mán. var hr. Bjarni
Júlíus kosinn í skólanefndina í stað-
inn fyrir hr. Björn B. Oison, sem
verið hefir í henni f síðastliðin þrjú
ár. Með því að hinum síðarnefnda
var þannig vikið úr sæti þrátt fyrir
að hann sótti um endurkosningu,
hafa nú báðir samverkamenn hans,
hr. Pjetur H. Tærgesen og hr.
Ari Guðmundsson, einnig sagt af
sjer nefndarmanns-embættunum,
þareð þeir máttu líta svo á, sem
kjósendurnir væru ósáttir með em-
bættisfærslu þeirra. Fundargjörða-
bók hjeraðsins ber það, sem sje,
með sjer, að þessir þrfr menn hafa
verið einhuga um hverja einustu
ákvörðun, sem nefndin hefir gjört.
Þetta tiltæki ber vott um meiri
göfugleik heldur en menn almennt
eiga að venjast, þegar þess er gætt,
að þeir Pjetur og Björn virðast
hafa verið óvægir andstæðingar
bæði f stjórnmálum og trúmálum.
Það má geta þess, hr. Hirti Leo,
fyrverandi kennara Gimliskólans,
og þessari fráfarandi skólanefnd til
sameiginlegs og verðugs lofs, að
enginn samskonar skóli f fylkinu
hefir getið sjer annan eins orðstfr
eins og þessi skóli hin fáu ár síðan
hann var stofnaður. Allir nemend-
ur frá Gimliskóla, sem gengið hafa
undir kennarapróf, hafa staðist
prófið, og það eru einsdœmi í
fylkinu.
Prófessor Johannes Miculics, sára-
læknir frá Breslau í Þýzkalandi,
sem ferðaðist um Amerfku í sumar,
sagði um Ameríkumenn, í fyrir-
lestri sem hann hjelt skömmu eftir
heimkomuna, meðal annars, að
sjálfstraust þeirra væri takmarka-
laust, þeir þættust alit vita og allt
geta, gætu þvf fátt sjeð í rjettu
ljósi nema í gegnum annara augu,
en samt væru þeir mikilhæfir menn,
og sá tími væri nú liðinn að Þjóð-
verjar væru gefendur en Ameríku-
menn þiggjendur í framfaralegu
tilliti.
Um frjettasmala blaðanna getur
hann þess, að það sje ,,hættulegir
herrar, “ sem ómögnlegt sje að um
flýja, og að cinn af þeim hafi spurt
sig í alvöru : ,,Hr. prófessor, hafið
þjer aldrei komist að því hvar heim-
ili mannssálarinnar er, þegar þjer
hafið verið að sundurliða manniega
lfkami“.
Trúðleikari var eitt sinn aðleika
Schrewsbury í leiknum ,,Rfkarður
þriðji“. Eins pg til stóð, kallaði
hann upp á rjettum tíma: ,,Hest!
Hest! Jeg gef konungsrfki mitt
fyrir hest! — -*—“. Þá segir einn
áheyrendanna :
„Dugar ekki asni ?“
Leikandinn áttaði sig fljótlega
og svaraði :
„Jú, — hann mun duga. Flýttu
þjer bara og komdu hingað“.
WINNIPEG
BUSINESS
COLLEGE.
Port. Ave. WINNIPEG.
NORTH END BRANCH.
Á MÓTI C. P. R. VAGNSTÖDINNI.
Sjerstakur gaumur gefinn að upp-
frœðslu í enska málinu.
Empire.
Þetta er mynd af Empire-
skilvindunni, sem
GUNNAR SVEINSSON
hefir nú til sölu. Um hana þarf
ekkert að fjölyrða. Hún mælir
bezt með sjer sjálf.
Upplýsingar fást hjá B. B. OLSON,
Gimli.
G. W. Donald, sec.
WINNIPEG.
9
8
* B. B. OLSON,
SAMNINGARITARI
OG
INNKöLLUNARMAðUR.
♦ GIMLI, MANITOBA.
$ f
BONNAR &
BARKISTERS Etc^
P. O. Box 223,
WINNIPEG, MAN.
Mr. B o N N A R er
hinn langsnjallasti málafærslu-
maður, scm nú cr í
þessu fylki.
Sá scm vill geyma kjöt alveg ó-
skemmt yfir allt sumarið, ætti ekki
að slátra skepnunni fyr en að haust-
inu. Það er óbrigðult ráð.
Heimili lögmanna eru byggð á
höfðum heimskingjanna.
■..... ........ "■ ■ ......' ■-*
Fyrir nokkrum árum gaf Emírinn
yfir Afghariistan Sháanum yfir
Persíu bók, sem án alls efa er sú
dýrasta bók sem til er. Bókin er
skrifað eintak af kóraninum, og
kostaði bandið eirigöngu $160,000.
Hvort innihaldið svarar til bands-
ins fer eftir því hvernig það er
metið, en handskrifaðar bœkur
hafa ávallt dýrar verið.
Spjöld og kjölur bókarinnar er
úr 60 centimetra (nærri 2% þuml.)
þykkri gullplötu, skreytt með 167
perlum, 182 rúbínum og 109 de-
möntum, allt af beztu tegundum.
Afghaniskur gullsmiður hefir bund-
ið bókina f þetta band, sem kvað
vera undurfagurt og á hvergi sinn
líka.
PR.: Hvernig þótti þjer þakk-
lætisræðan mín fyrir uppskeruna
Jón minn ?
JóN : Furðu góð, jafnlítið vit
og presturinn hefir á þess konar.
,,Það er bara bull að segja að
kossar sjeu hættulegir. Hvaða
skaða getur leitt af þeim ?“ sagði
frúin.
,,Giftingu!“ tautaði pipar-
sveinninn.
FOR TWENTY YEftBS IN THE LEAD
Automatic take-up; selt-r,etting needle; selí*
threading shuttle; antomatic bobbin winder;
quick-tension release; all-stecl nickeled attach-
incnta. Pat3ííted Ball-bsaring Stand.
QUPKRIOn TO ALL OTHER3
fíandsorriesfc. easiecfc runnlng, most nolsoloss,
mosfc durabíc. .......Aak your dcaler for tiio
and donot buv any machino un-
til you have soon the El&redKö “B.** Oom-
•'are irsquality and prlce, and ascortain itð
mForiortfcy.
Tf Jnterosted scnd for book about Eldrldgo
•'B." We will rnail it promptly.
Wholesale Dlstributors:
Merrick, Anderson & Co., Winnipeg.