Baldur - 21.12.1903, Side 2
BALDUR, 21. DES. I903.
BALDUR
ergcfinn útáGIMLI, Manitoba.
Kemur út einu sinni f viku.
Kostar $1 um árið.
Borgist fyrirfram.
■Ctgefendur :
Nokkrir Ný-Íslendingar.
Ráðsmaður: G. TlIORSTEINSSON.
l’rentari: JóiIANNF.S VlGFtJSSON.
Utanáskrift til blaðsins:
BALDUR,
GiMLl, Man.
Verð á emáum auglýeingum er 25 cents
fyrir þumluDg dálkelengdar. Afaláttur er
gefion á stœrri auglýeÍDgum, sem birtast í
blaðinu yfir lengri tíma. Viðvikjandi
slikum afslætti, og öðrum f jármáHim blað<-
ios, eru menn beðoir að BDua sjer að ruðs-
manninum.
MÁNUDACINN, 21. DES. I9O3.
Þungar
sakargiftir.
Allir íslendingar, sem nokkuð
lesa, hafa heyrt nefndan hinn
rússneska speking, Leo Tolstoy.
,,Orð hans er þungt sem græðis-
gnýr er genguf að ofsaveður, “
mundi vera sannari staðhæfing um
þennan mikla mann heldur en um
flest iinnur bíirn jarðarinnar. Hann
hefir mælt svo þungum áminning-
arorðum til hins unga manns, scm
nú ræður Rússaveldi, að stjórn-
málamenn rfkisins urðu skelfdir.
Hann var gjðrður útlagi úr landinu,
en þegar til kom, dirfðist land-
stjórnin ekki að framfylgja skipun
sinni, af ótta við múginn, cins og
I'arisearnir forðum.
Ilann hefir nú ekki alls fyrir
l 'mgu skrifað ritgjörð með fyrir-
sögninni: ,,Þú skalt ekki mann
deyða". í þeirri ritgjörð var svo
þungum orðum bent til Vilhjálms
Þýzkalandskcisara, að keisarinn
bannaði útbreiðslu ritgjörðarinnar
innan takmarka sfns rfkis, og ljct
eyðileggja allt það af upplaginu,
sem fannst f ríki hans. Samt berst
nú þessi ritgjörð á vængjum vind-
anna um allan heim, og mannkyn-
ið hlustar með undrun og lotningu
á allan ofsann og frckjuna, sein
sjerhvcr ritgjörð þessarar göfugu
mannfjelagshetju er svo þrungin af.
Þannig ávarpar Tolstoy allt af
öðru hverju einn eða annan eða
inannkynið f hcild sinni. Meðal
hinna sfðustu ritgjörða hans cr á-
varp til kennilýðsins, og farast
honum þar orð á þessa leið :
,,Kenning kyrkjunnar er ekki
skaðleg vegna þcss einungis, að
hún er óskynsamlcg og ósiðferðis-
full, hcldur einkum vegna þess,
að fólkið, sem játar þcssa kenningu,
stendur í þeirri meiningu, að það
sje að lifa sannkristilegu lfferni,
þótt það finni ckki virkilega til
neins siðferðislögmáls til þess að
laga breytni sfna cftir.
,,Margir lifa f vitfirringslcgum
munaði, sjúgandi auðæfi sín út úr
handafla fátækra vcsalinga, og
verjandi sjálfa sig og fjárpyngjur
sínar með lögreglu, málssóknum,
og lögtökum, — og kennilvðurinn
samþykkir, helgar, og blcssar þetta
Iíferni f Krists nafni, og að eins
ráðleggur hinum rfku, að leggja
lítinn skerf þýfisins af mörkum
þeim til velferðar, sem allt af cr
haldið áfram að stela frá. — Með-
an þrælahald viðgekkst, var kenni-
lýðurinn alstaðar sffelldlega reiðu-
búinn til þess, að rjettlæta það og
sanna samræmi þess við kristin-
dóminn.
„Margir reyna með morðvopna-
ofbeldi, með manndrápum, að ná
augnamiði ágirndar sinnar, — og
kennilýðurinn flytur bœnir sínar
og blessunaröskir yfir strfðsáhöld-
unum og stríðinu sjálfu, og sam-
þykkir ekki einungis, heldur oft og
tfðum hvetur til slíkra athafna, og
telur styrjaldir — það er manndráp
— ekki f ncinu ósamrœmi við
kristindóminn.
„Margir, sem trúa slíkri kenn-
ingu, eru með þessum hætti leiddir
út í sinn illa lifnað, en þar á ofan
eru þeir gjörðir þess fulltrúa, að
sinn vondi lifnaður sje góður, og
að engin ástæða sje til þess, að
gjöra á honum nokkra breytingu.
,,Svo er ekki svo sem allt sje
þar með búið. Aðalógæfan liggur
f þvf, að svona kenning er svo
meistaralega tvinnuð saman við
ytri siðavenjur kristindómsins, að
fjöldi þeirra, sem kristna trú játa,
halda að slfk kcnning sje sannar-
lcgur kristindómur, og ekkert ann-
að sje rjett, — ekkcrt geti verið
kristindómur, ef það cr öðruvfsi en
þetta. Þjcr, klcrkar, hafið ckki
einungis leitt athygli fólks frá lind
hins lifandi vatns, — ef það væri
allt og sumt, kynnu menn enn þá
að geta fundið hana, — heldur
hafið þjer citrað svo lindina sjálfa,
með kenningum yðar, að fóik get-
ur ekki fundið annan kristindóm
heldur en þann, scm þjer eruð
búnir að eitra með yðar setningum.
„Sá kristindómur, sem þjerprje-
dikið, er bólusetning úr fölskum
kristindómi, alvcg cins og bólu-
setning gegn sóttnæmum sjúkdóm-
um, og áhrif þeirrar bólusetningar
eru þau, að gjöra þá, sem fyrir
henni verða, ómóttækilcga fyrir
hinn sannarlega kristindóm.
„Fólk, sem frá kyni til kyns
hefir byggt framfcrði sitt á þeim
grundvallaratriðum, sem eru ósam-
rýmanleg við sannan kristindóm,
lifir í þeirri fullvissu, að líferni þess
sje kristilegt, og er svo ekki vaxið
þvf, að veita sönnum kristindómi
viðtökur“.
Svo mörg eru þessi ávítunarorð
hins rússneska spekings. Slíkum
sakargiftum er tekið með dauða-
Þögn, þegar það er Tolstoy sem
flytur þær. Sannleiksgildi þeirra
væri jafnmikið hver sem bæri þær
fram, en sá er munurinn, að hefði
einhver smælingi talað annað eins,
hefði rödd hans tafarlaust verið
niður kæfð með trumbum og sym-
fónum allra kristinna þjóða. Þegar
sá talar, scm keisaravaldið hcfir
ekki getað niðurbrotið, sjer kyrkju-
valdið það sjer einnig fyrir bcztu,
að humma allt fram af sjer með
þögninni.
Hvort sem þessar þungu sakar-
giftir eru rjettar eða rangar, eru
þær, eins og sjerhvað það, scm
þessi maður ritar, hið alvarlegasta
fhugunarcfni fyrir alla hugsandi
menn heimsins, og það væri ís-
lendingum lftill hagur, að fara á
mis við alla kynningu af skoðunum
þessa mikilsvirta manns.
Þó að hygginn maður hafi hnef-
ann fullan af sannleika, lætur hann
sjcr oft nægja að opna bara litla
fingurinn.
Œ, REYNDU NÚ.
Œ, reyndu nú að rýna eitthvað
meira,
— hve rökkrið fer að breiðast yfir
löndin,
og hvernig hönd og hálsa reyra
böndin,
og hcila velli stríðin lauga’ f
drcyra.
og hversu afllaus almúgans er
höndin,
ef eitthvað sjer til frelsis þarf að
vinna,
hve bljúgt hann þakkar fóður sfn
og sinna,
og sekkur þar sem blasir rjctt við
ströndin,
en vilji einhver áralagið kynna,
er undir hverjum hlummi svika-
brestur,
—svo kænlega var knör að morgni
hlesstur
að kvöldi skyldi’ ei nokkur lend-
ing finna. —
Sjá! sjerhver þykir maður vera
mestur,
scm miklast getur upp úr fjöldans
heimsku,
og orkar þvf, að aðrir falla’ f
gleymsku,
svo einn hann gjörist fólksins
æðstiprestur,
ef svo hann einn hjcr eigi tclst
sem gestur,
en útlendir og framandi’ allir
hinir,
þá býr hann veizlu, — veitir guða-
drcyra.
í slfkum klækjum vcrður síðsti
verstur,
cf viltú ei, að fram þjer taki synir
og reyni til að rýna vitund meira.
IIANN.
Erum við að gjöra okkar hlut
að þvf, að gjöra veröldina betri ?
Það er auðvitað þiirf á slfkri vinnu.
Við höfum möguleika og hæfileika
í okkar valdi. Hvernig höfum
við varið þeim síðustu viku ? Það
er skylda okkar að komast að sannri
raun um það. Það getur komið oss
til að gjöra meira næstu viku