Baldur - 18.04.1904, Side 4
4
BALDUR, l8. APRÍL. 1904.
Nýja ísland.
—:o.—
Jeg bið Mikleyinga afsökunar á
]þvf, að hafa ekki komið til þeirra
fyrir síðustu helgi. Kem svo fljótt,
sem jeg get.
J. P. SóLMUNDSSON.
BÆNDAFJELAGS-
FOTDUR
verður haldinn f húsi
hr. J. SlGURGEIRSSONAR á Gimli,
þriðjudaginn þann 26. þ. mán.
Áríðandi málefni fyrir fundi.
Fjelagsmenn beðnir að fjölmenna.
Gimli, 14. aprfl 1904.
B. B. Olson,
forseti.
Bændafjelagsfundir verða haldn-
ir á Geysir á fimmtudaginn 21.
(Sumardaginn fyrsta), og á Hnaus-
um föstudaginn 22. þ. mán.
B. B. Olson frá Gimli verður
staddur á báðum þessum fundum.
Fyrir nokkrum tfma settist hr.
Hjörtur Björnsson að hjer á Gimli
sem skósmiður. Fyrst um sinn
heldur hann til í húsi Benedikts
Jónassonar á Akri, rjett sunnan við
jaðarinn á bæjarstæðinu. Þetta er
byrjað á hentugum tfma fyrir þá,
sem þurfa að láta gera við skófatn-
að sinn áður en bleyturnar ganga
algjörlega f garð. Þeir, sem hafa
leitað til hans, láta mjög vel yfir
frágangi hans á verkinu, og ætti
hann því að verða hjeraðsbúum
kærkominn gestur að þessu starfi.
Það hefir verið tilfinnanlegur skort-
ur á þesskonar verkstofu hjer að
undanförnu.
Næsta fimmtudag er
SUMARDAGURINN FYRSTI.
Gimlibúar ætla að fagna sumrinu
með miklum hávaða. Unglingarn-
ir dansa. ,,Hornin blása“. (Sjá
auglýsingu hornleikaranna í búð-
unum hjer á Gimli. Þeir þurfa
ekki að biðja um hljóð. Þeir veita
það sjálfir).
Mjög mikið hefir kveðið að þvf
hjer í sveitinni síðara hluta vetrar-!
ins, að höggva skóginn niður, bæði
til sögunar og eldsneytis. Mest
hafa það verið Pólverjar, sem hafa
gefið sig við eldiviðarhögginu, og
hafa þeir flutt öll ósköp af brenni,
bæði að Gimli og Winnipeg Beach.
íslendingar hafa aftur á móti næst-
um eingöngu gefið sig við sögunar-
viðnum, enda fer hjer fram sögun
á byggingarvið á tíu stöðum að
minnsta kosti áþessu ári, — á hin-
um fyrri aðalstöðvum þeirra Tho-
mas’, Thompson’s, Millcr’s, og
Kristjóns Finnssonar ; ogaukþcss
að Lundi, sunnarlega f Víðiness-
byggð ; á Bólstað hjer skammt frá
Gimli; í Fagradal, sunnarlega í
Árnessbyggð; á Eyrarbakka, um
miðbik Breiðuvíkur; við íslend-
ingafljót; og á einum eða fleiri
stöðum í Árdals og Geysir
byggðum.
Hr. Bencdikt Jónasson hefir nú
að sögn selt gistihús sitt hjer á
Gimli og flytur sig bráðlega búferl-
um á land sitt sunnan við bæjar-
stæðið. Kaupandi gistihússins kvað
vera ensk ekkja vestan úr Rock-
vvoodsveit. Hún er væntanleg hing
að í vikunni.
Einnig hafa eigendaskifti orðið
á hótelinu hjer einusinni enn. Hr.
Guðmundur Christie ogfjelagi hans,
frá Winnipeg, hafa nú tekið við þvf.
Hjer mcð gef jeg til vitundar, öll-
um þeim bœndum, sem hafa
á löndum sínum þessar viðar-
tegundir, tamrak og birki, að
fara þegar f stað og drífa það niður
og koma þvf upp í cordvið tafar-
laust, því jeg er reiðubúinn að taka
inn allann þann við sem að jeg get
höndlað og gefa bezta verð fyrir
hann, en tek þó ekki nema þurran
við.
Gimli, 14. aprfl 1904.
Yðar einlægur
K. ValgarðSSoN.
ti'u heilbrigðisboðorð.
Farðu snemma á fætur, háttaðu
snemma og starfaðu á daginn.
Vatn og brauð viðheldur lífinu ;
hrcint loft og sólskin heilsunni.
Sparneytni og bindindi lengja
lffið.
Sú vjcl sem ávallt er hrein, end-
ist lengst.
Mátulegur svefn styrkif og eyk-
ur kraftana ; of mikill svefn eykur
dáðleysi og veikir líkamann.
Að vera skynsamlega klæddur,
er að vera þannig klæddur að allir
limirnir geti hreifst óhindrað, og f
svo hlýjum fötum að maður þoli
veðurbreyting.
Þar sem hreinlæti og fjör er, þar
er ánægjan.
Umbreytingar og skemmtanir
Iffga og efla lundernið, of mikið af
því tagi leiðir til lasta.
Glaðværð eykur ást til lifsins og
á lífsástinni byggist helmingur
heilsunnar.
Ef þú vinnur fyrir brauði þínu
með heilanum, láttu þá ekki limi
þína stirðna, en ef þú vinnur fyrir
því með exi og skóflu, láttu þá ekki
anda þinn bresta næringu, njc
hugsanalíf þitt sofna.
& fe
I WINlíIPEG
t BUSINESS
® COLLEGE. f
Æ port. ave.,
X WINNIPEG.
é —----------
4 NORTH END
4 BRANCH
4 A MÓTI C. P. R.
VAGNSTÖðINNI.
)p ---------------
W Sjerstakur gaumur gefinn
w að uppfrœðslu í cnska
W málinu.
# *
W Upplýsingar fást hjá
W B. B. Olson, —— Gimli.
W G. W. Donald,
scc.
WINNIPEG.
QROPA heitir jurt nokkur, stm
nýlega er fundin f Suður-Bra-
silíu, og hefir það til síns ágætis
að hún lýsir í myrkri, svo að lesa
má dagblöð við birtu hennar.
Grasafrœðingar eru þegar farnir að
rannsaka eðli hcnnar, svo innan
skamms fær maður að vita eitthvað
flcira um hana.
® WALTER
JAMES I/
&SONS.I
EOSSER, f
dvn_A-ZNr. $
/♦s
1
?
/fS Rækta og selja /ffS
^ stutthyrnings
nautgripi /jjl
°g 4\
% ensk Yorkshíresvfn. |
',V . * "
Sanngjarnt verð og væg-
ir skilmálar.
>ÍS * >
/j\ Skrifið þeim cftir frckari
/|\ upplýsingum.
0 GkEIflVETÆETb
0 COCHENT á|
# &OO. á
^ EldsAbvrgö,
lífsAbvrgs og J
^ PENINGAR til lAns. ^
Eftirlciðis geta menn fengið
kcypt allskonar BRAUÐ fyrirlágt
verð hjá undirrituðum, sem verzlar
með þess háttar í sölubúð hr. H.
Kristjánssonar á Gimli, Man.
Vinsamlegast,
PjETUR MAGNÓSSON.
▼WVwf • “ tWtWTWté m
B. B. OLSON,!
s SAMNINGARITARI
* •
• OG •
t •
J INNKöLLUNARMAðUR. •
• _____________•
I
• GIMLI, MANITOBA.
|§♦>••••»♦>«»«»♦*♦*♦*♦>*
i SELKIRK,
m
MAN.
Dr. O. STEPHENSEN
563 Ross St.
WlNNIPEG.
Telefonnr. 1498.