Baldur - 13.06.1904, Page 2
2
x BALDUR, 13. JÖNÍ I904.
BALDUR
ergcfinn útáGIMLI, MANITOBA.
Kemur út einu sinni í viku.
Kostar $1 um árið,
Borgist fyrirfram.
Útgefendur:
Nokkrir Ný-Íslendingar.
Ráðsmaður : G. THORSTEINSSON
Utanáskrift til blaðsins:
BALDUR,
Gimli, Man.
Verð á smáam auglýsingum er 25 oents
fyrir þumlung dálkslengdar. Afsláttur er
gefinn á stœrri auglýsingum, sem birtast í
blaðinu yfir lengri tjma. Viðvikjandi
elikiun afslustti og öðrum fjármátum blaðs-
ins, eru menn beðnir að snúa sjer að táðs-
manninum.
mánudaginn, i 3 • Jöní. 1904.
Pabbi kennir syni sín-
um stjórnfrœði.
,,Nú-hvað-því lætur þú svona
kjánaiega. Bansettur ’tossi* getur
þú verið, strákur. Sjerðu ekki
hversu það hefir aukið velmegun
landsins ?“
,,Jú, pabbi, en það sem jeg á
við cr: hvað hefir ’party-ið gjört
fyrir þig, og mömmu og okkur
krakkana ? Erum við líka vel-
mcgandi ?“
„Nú-ja-nú, ónei, ekki get jeg
nú eiginlega látið svo mikið af
vclmcgun okkar. Jeg gjöri samt
ráð fyrir að ef lukkan bregst ekki,
og ef jeg hefi stöðuga vinnu, og ef
ekkert okkar veikist, að jeg verði
orðinn skuldlaus eftir svo sem tvö
eða þrjú ár ?“ ,,Og því ert þú
ckki velmegandi, pabbi ?“
,,Af því jeg er ekki nema rjett-
ur og sljettur verkamaður, dreng-
ur minn“.
,,Eru þá allar verkamanna fjöl-
skyldur eins fátækar og við,
pabbi ?“ ,,Já, jeg hugsa að við
sjeum cins vel stödd cfnalega
cinns og almcnnt gjörist”. ,,Og
pabbi, greiða allir verkamenn at-
kvæði með ’liberal party-inu ?“
,,Já, flestir af verkamannastjett-
inni eru enn þá góðir og trúir
borgarar og svíkja ekki land sitt
nje fána“. „Hvaða aðrar stjettir
eru í þessu landi, pabbi ?“
„Hvað áttu við drengur ? Það
eru engar stjettir í þessu landi,
því þetta er jafnaðarins land“.
„Sagðirþú ckki rjett núna að
flestir f verkamannastjettinni væru
trúir borgarar ?“
nJeg býst við jeg hafi sagt
það“,
„Hvers vegna sagðir þú þá
’verkamannastjett,1 ef það eru
hjer engar srjettir?"
„Það-það, sko eru hjer tvær
sortir af fólki, nefnilega þeir sem
vinna og—og, nefnilega þeir sem
eiga vinnuvjelarnar og það allt“.
Ó, pabbi! Er þá þessi hin
sort af fólki eins og maðurinn sem
við sáum á sýningunni, með fjóra
handleggi og tvö höfuðj og allur
loðinn ?“
„Uss-uss-sussu drengur, hvaða
kjánaskapur. Þeir eru alveg eins
og við, bara þeir tilheyra ekki
verkamannastjettinni' ‘.
„En hvaða stjett tilheyra þcir
þá pabbi?“
„Nú-hjer-jeg trúi að sumir lcalli
það auðmannastjcttina' ‘.
„Þá höfum við stjettir 1 þcssu
landi, eða er ekki svo pabbi ?“
,,Nú-það-jeg-ja jeg býst við að
það megi kalla það svo, ef maður
lftur svoleiðis á það“. ,,Og eru
auðmennirnir góðir, trúir borgarar
Ifka ?“
,,Já, já. Þessir miklu auðmenn
eru traustir eins og stál í þvf að
sjá um hagsmuni þessa lands“.
„Hvers vegna kallar þú þá mikla
pabbi, eru þeir svo margir ?“
„Nei, nei drengur minn. I
samanburði við verkamennina cru
þeir fáir“. „Hvernig eru þeir
þá miklir ?“
„Nú þein—þeir hafa mikið
vald“. „Hvemig vald ?“ „Nú,
þeir—þeir hafa nóga peninga og
hafa ákaflega mikil áhrif á stjórn-
ina“. „Hvað er stjórnin, pabbi ?“
„Nú það er fólkið býst jcg
við“.
„Og hverjir eru fólkið, pabbi ?“
,,Nú jeg er til dœmis einn af fólk-
inu“. „Og eru allir verkamenn
fólk eins og þú, pabbi ?“
„Auðvitað, fólkið meinar alla“.
Sew Yoek LiE’E
w er eitt af allra elztu og áreiðanlegustu lífsábyrgðarfjelögum (
* heimsins. Sjóður þess er nú yfir $352 milljónir. Lífs-(
W ábyrgðarskýrteini þess eru óhagganleg. Dánarkröfur borgaðar (
hvar og hvernig sem fjclagsmenn þess deyja. (
Til frekari upplýsingar má skrifa
C. OLAFSSON eð» CT. Gr MOHGA-NT
agent manager.
650 William Ave. Grain Exchange Building.
4 WINNIPEG. f
,,0g hafa þá auðmennirnir áhrif
á alla ?“
„Auðvitað hafa þeir það ekki.
Þvf spyrðu svona kjánalega dreng-
ur?“ ,,Nú, þú sagðir mjer að
þeir hcfðu mikið vald, og að þeir
hcfðu áhrif á stjórnina; svo sagðir
þú mjer að stjórnin væri allt fólkið,
og þá hljóta þcir eftir þvf að hafa
áhrif á allt fólkið“.
„Æ, skrambinn hafi þetta allt
saman, þú skilur ekkert strákur.
Það—það er nefnilega svona sko :
Þeir eiga allar stœrstu iðnaðar-
stofnanirnar og þeir sjá um að
lögin sje svoleiðis útbúin að þau
verndi sínar iðnaðarstofnanir“.
„Hvað eru lögin pabbi?“
„Lögin, drengur minn eru regl-
ur sem búnar cru til af góðum
mönnum handa slæmum mönnum
að hlýða“.
„Og er allt fátæka fólkið, scm
býr til lögin, gott fólk, pabbi ?“
„Nú-já„ ekki býst jeg nú við
því, drengur minn“. ,,Og verður
góða fólkið að hlýða lögunum
lfka?“
,,Já“. „Verða þcir að hlýða
lögunum sem vondir menn búa
til ?“ ,,Já, jeg býst við þvf“.
„Ogbúa þcssir vondu mcnn til
góð lög ?“ „Nú-ja, nei, jeghugsa
ekki“. „Þá vcrður gott fólk að
hlýða slæmum ltigum. Er ckki
svo, pabbi ?
».Jð, jeg hugsa það“.
Drengur hugsar sig um.
„Hafa þessir miklu auðmenn
’party1 út af fyrir sig, pabbi ?“
„Nei. nei, drengur minn, þcir
tilheyra allir hinu ’liberal party-i“.
„Og greiðir þú atkvæði sama
megin og þeir ?“
Pabbi, stoltlega :
„Já, sonur minn. Um sfðustu
kosningar, til dœmis kom banka-
stjóri til mín og sýndi mjer hvar
á seðilinn hann ætlaði að láta sitt
atkvæði og bað mig svo að gjöra
eins. Jeg náttúrlega gjörði það
undir eins, því Jón er býsna
’smart' maður, og vcit hvað cr
gott fyrir þetta land“.
„Og greiddu nokkrirflciri verka-
menn atkvæði þcim megin,
pabbi?".
„Ó, já, já ? Flestir verkamenn
greiða atkvæði eins og jeg“.
Drengur hugsar sig um aftur.
„Heyrðu, pabbi, auðmennimir
þurfa ekki ’party' út af fyrir sig,
eða hvað ?“ „Hvað meinar þú
drengur?"
„Jeg meina að ef þið ailir grcið-
ið atkvæði eins og auðmennirnir,
og þeir þafa svo mikla peninga að
geta ráðið gjörðum stjórnarinnar,
°g látið gott fólk hlýða slæmum
lögum, þá finnst mjer að ’liberal
party-ið‘ sje eimitt það sem þeim
hentar“.
Pabbi snýr sjer sjer vandræða-
á stólnum: „Nú, látum vera að
þetta sje svo“.
„Það sem jeg vil fá að vita er,
hvers vegna verkamennnirnir hafa
ekki ’party1 út af fyrir sig“.
Pabbi ákaflega reiður: „Heyrðu
strákóhræsi ! Það er auðíieyrt að
þú hefir verið að hlusta á þessi
sósíalista fífl og anarkista sem eru
að halda ræður á strætishornum.
Ef þú lætur mig nokkurntíma
framar heyra þctta anarkista tal
þá skal jeg ganga næst lífi þfnu.
Hjerna mamma ! Háttaðu stákinn
o’nf rúm, en gefðu honum duglega
híðingu fyrst “ Drcngur fer.
Pabbi hugsandi ; Þcssi strákur
á eftir að verða forcldrum sýnum
til skammar.