Baldur - 01.06.1907, Qupperneq 3
BALDUR, i. jíNi 1907.
3
GONGUMAÐURINN.
----:o:---
Jeg heyrði getið gamals manns
— var göngumaður uppi’ í sveit —.
Jeg skrifa ekki heiti hans,
en hann var fæddur uppi’ 1 sveit.
Um vor og haust, við fjúk og frost
á ferðalagi uppi’ í sveit,,
hann hlaut að lfða harðan kost
þ<5 hjálpi margur uppi’ í sveit.
Og poka bar hann baki á
á bognum herðum uppi’ f sveit;
með hár ógreitt og hrokkna brá
og hokin knjein. — Uppi’ f sveit.
En margur var þar greiðagjarn
við gamla ^nanninn, uppi’ f sveit;
sem tók við öllu eins og barn
frá öllum mönnum, frammi’ í sveit.
*'Og þú sem gafst og gladdir mig,
svo göngumóðan, frainmi’ 1 sveit,
svo blessi guð og gleðji þig
fyr’ göngumanninn uppi’ f sveit“.
Með slfkri kveðju kvaddi hann
þá kunningjana uppi’ f sveit,
sem höfðu mettað hungraðan
f harðindunum frammi’ f sveit.
Og fram og aftur fjölmörg ár
hann ferðaðist um þessa sveit.
Hvort hafi stundum hrunið tár
í harðindunum frammi’ f sveit ?
Það getur lftið göngumanns,
en grimmt er frostið uppi’ f sveit.
En hvernig urðu afdrif hans,
þeir einir vita frammi’ í sveit.
* *
*
Og enn er hrfð og bogin bök
& burðarmönnum uppi’ í sveit,
og færðin þung og fótatök
á ferðamönnum uppi’ f sveit.
Og “guð Iaun“ ómar enn sem fyr
ef einhver Ifknar fram í sveit;
það hljómar enn við allar dyr
á öllum bæjum frammi’ í sveit.
Sje nokkur guð f nánd við mann,
sje nokkur drottinn uppi’ f sveit,
svo sannarlega heyrir hann
þau helgu “guð Iaun“ uppi’ í sveit/
Ef sjerðu gamlan göngumann
sem gengur eftir þinni sveit,
þá eigðu tal við aumingjann
sem ennþá lifir frammi’ f sveit.
JóN JóNATANSSON.
!••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••■••••■■■'
ELDSÁBYRGÐ og PENINGALÁN.
Þeir sem þurfa að setja hús og aðrar eignir f eldsábyrgð, eða
fápeningalán út á fasteignir, geta snúið sjer til mfn.
EINAR ÓLAFSSON,
Skrifstofu ,,Baldurs,“ GIMLI, MAN.
ÓVIÐJ AFNANLEG KJÖRKAUP
Á BÓKUM
framlengd um nokkrar vikur.
30 til 60 prósent afsláttur.
Lesið eftirfylgjandi verðskrá:
Uncle Tom’s Cabin, eftir H. B. Stovve ioc.
Hidden Hand, eftir Mrs. E. D. E. N. Southworth ioc.
Self-Made, ,, tvær bækur 15C.
How Christianity Began, eftir William Burney ioc.
Advancement of Science, eftir Prof. John Tyndall 150.
Christianity and Materialism, eftir B. F'. Undenvood 1 5c.
Common Sense, eftir Thomas Paine I5C*
Age of Reason, h,fti.r Thomas Paine 15C.
Apostles of Christ, eftir Austin Holyoake 05C.
The Atonement, eftir Ch. Bradlaugh 05C.
Blasphemy and the Bible, eftir C. B. Reynolds 05C.
Career of Religious System, eftir C. B. Waitc 05C.
Christian Deity, eftir Ch. Watts 05C.
Christian Mysteries 05C
Christian Scheme of Redemption cftir Ch. Watts C5c.
Christianity— eftir D. M. Bennett c 5c.
Daniel in the Lions’ Den, eftir D. M. Bennett 05C.
Giordatio Bruno, æfisaga hans, kenningar og píslarvættisdauði 05C.
Last Link in Evolution, eftir Ernst Haeckel ojc.
Liberty and Morality, eftir M. D. Conway 05C.
Passage of the Red Sea, eftir S. E. Todd 05C.
Prophets and Prophesies, eftir John E. Remsburg 05C.
Science and thc Bible Antagonistic, eftir Ch. Watts 050.
Sciencc of thc Bible 05C.
Superstition Displayed, eftir William Pitt 05C.
Twelve Apostles, eftir Ch. Bradlaugh 05C.
What did Jesus Teach? eftirCh. Bradlaugh 05C.
Why don’t God kill the Devil? eftir M. Babcock ioc.
Allar þessar ofantöldu bækur ............................ $2.00
Jeg borga póstgjöld til hvaða staðar sem er., í Canada eða
Bandaríkjunum.
PÁLL JÓNSSON,
655 Toronto St., WINNIPEG, MAN.
HUGSANALESTUR.
Einhverju sinni var Cumber-
land, nafnkunnur hugsanalesandi,
á leið til Pjetursborgar frá Wien
ásamt nokkrum öðrum farþegum,
og skemmti samferðamönnunum
með þvf að geta hugsana þeirra.
Pólskur Gyðingur var með f for-
inni, og áloit hann gátur þessar að
eins heimsku, býður þvf Cumber-
land 50 rúblur, ef hann geti ráðið
hugsanir sfnar.
Cumberland var fús til þessa og
scgir brosandi: “Þú ferð nú ti!
markaðsins í Nischnij Nowgorod,
og ætlar þjer að kaupa þar vörur
fyrir 20,000 rúbla, þegar þvf er
lokið, kveðst þú vera gjaldþrota,
°g reynir að komast að samningi
við skuldheiintumcnn þfna, að
borga þeim þrjá af hundraði".
Gyðingurinn horfði með lotning-
arfullri aðdáun á Cumberland, dró
gamla vasabók upp úr stfgvjelsbol
sfnum orðalaust, opnaði hana og
rjetti Cumberland 50 rúblur.
“Jeg hefi þá getið hugsana yð-
ar,“ sagði Cumberland glaður.
“Nci,“ sagði Gyðingurinn þur-
lega, “en þjer gáfuð mjer ágæta
hugmynd*.
BATUR
til sölu.
Stór seglbátur með öllu tilheyr-
andi til sölu hjá undirrituðum.
Verð $200.
Báturinn stendur uppi hjer á
Gimli, og géta menn skoðað hann
hvenær sem vera vill.
E. Olatsson.
Frá Reykjavík.
Eftir Lögrjettu.
Friðun tugla í bœjar-
landinu.
Erindið átti hún til okkar að
deyja, álftin, sem settist á Tjörn-
ina laugardaginn var. Elztu menn
muna eigi, að sá fríði fugl hafi fyr
heimsótt oss Reykvíkinga. Skóla-
börnin rjeðu sjer ekíci fyrir kæti,
voru öll úti f gluggunum : “Sko
álftina! Skoálftina!“ Jafn fagra
sjón höfðu þau eigi litið. Þá reið
af skotið og aldan bar dauðan lfk-
amann að landi.
Skotmanninum verður ekkert
gjört, fram yfir þessa 2 kr. sekt,
sem friðunarlögin leggja við fyrsta
broti. En er nú ekki gremjan yf-
ir þessum viðtökum svo sár, að
þeir, sem völdin hafa til þess, friði
bæjarlandið algjörlega fyrir fugla-
drápi ? Slfkt ákvæði f lögreglusam-
þykkt mundi fá svo marga styrkt-
armenn að því yrði hlýtt.
Sennilega yrði Tjörnin innan
margra ára krökk af sundfuglum,
með algjörðri friðun bæjarlandsins,
viltir sundfuglar mundu hænast að
hinum tömdu. Og þá mundu mó-
fuglarnir eigi siður leita f skjólið.
Fuglavinur.
* * *
Það mætti merkilegt heita, ef
ekki væri ennþá búið að kveða nóg
inn í hjörtu íslendinga um álftir
og svanasöng, til þess að þeim
sárnaði svona frjett þótt f fjarlægð
búi. J.P.S.
Barnaskóiinn.
Þar var margmennt f gær frá
kl. 4—7 sfðdegis. Þá var þar til
sýnis handavinna barnanna í efri
bekkjunum, smfðisgripir, saumar
og teikningar, og þótti mönnum
gaman að skoða það og margt
furðanlega vel gjört. En ekki
höfðu menn sfður gaman af að lfta
inn f eldhús skólans, þvf þar voru
skólastúlkurnar úr efri bekkjunum
að matartilbúningi, ein við bakst-
ur, önnur að búa til kjötrjetti o. s.
frv., o. s. frv.
Smíðar hafa nú verið kenndar f
skólanum í nokkur ár og eins hann-
yrðir, en matartilbúningur hefir
ekki verið kenndur þar fyr en sfð-
astliðinn vetur og kennir hann frk.
Soffía Jónsdóttir Þórarinssonar
skólastj. f Flensborg. Smfðakenn-
arinn er St. Eiríksson tijeskurðar-
maður, hannyrðir kenna frú Jó-
hannesen og frk. Ingibjörg Er-
lendsdóttir, en teikningu frk. Lauf-
ey Vilhjálmsdóttir á Rauðará.
Börnin eru látin teikna myndir af
ýmsum hlutum, sem fyrir þau eru
settir, og er margt af þeim tcikn-
ingum vel gjört. Yfir höfuð mun
barnaskólinn hjcr vera f bezta lagi.
* * *
Það væri ekki úr vegi fyrir
Vestur-íslendinga að fhuga hvern-
ig skólarnir, sem börnin þeirra
ganga hjer á, muni standast sam-
anburð við barnauppfræðsluna
heima, þ. e. a. s. f þeim skilningi,
að búa til úr börnunum almenni-
legt fólk, sem virkilega kunni eitt-
hvað þegar til á að taka. J.P.S,
MEIEI
BŒKUR!
HEIMSPEKISLEGS,
VÍSINDALEGS,
STJÓRNFRŒÐISLEGS,
OG TRÚARBRAGÐALEGS
EFNIS.
WHAT IS RELIGION ? Sfð-
asta ræða Ingersolls. Vcrð ioc.
DESIGN ARGUMENT FAL-
ACIES,eftir E. D.Macdonald 25C.
WISDOM OF LIFE, eftir Arth-
ur Schopenhauer. - Verð 2 50.
RITVERK Charles Bradlaughs,
með mynd, æfis">gu, og sögu um
baráttu hans f enska þinginu.
Verð : f skrautbandi - - $1.10
f kápu - - - - 50C.
FORCE AND MATTER : or
Principles of the Natural Order
of the Universe, with a System of
Morality based tberon, eftir Prof.
Ludwig Buchner. Með mynd.
Verð:fbandi - - $1 10
MEN, WOMEN, AND GODS,
cftir Helen H. Gardcner. Með
formála cftir Col. R. G. Ingersoll,
og mynd höfunnarins. Þcssi bók
er hin langsnjallasta sem þessi
fræga kona hefir ritað.
Verð : f bandi $1.10, f kápu 50C.
PHILOSOPHY of SPIRITUAL-
ISM,
eftir Frederic R.Marviri. í bandi.
Verð: -..................50C.
PULPIT, PEW.and CRADLE,
eftir Helen H. Gardencr. í kápu.
Verð: ioc.
God and My Neighbour
eftir Robcrt Blatchford á Eng-
landi, sem er höfundur að ,,Merrie
England," ..Britain for British,**
o.fl. Bókin er 200 bls. á stærð,
prentuð með skfru letri á góðan
pappfr. Bókin er framúrskarand
vel rituð, eins öll ritverk Robert
Blatchfords. Verð:fbandi $1.00
f kápu 50C,
ADAM’S DIARY, eftir Mark
T wain $1.00
EVE’S DIARY, eftir Mark
Twain $1.00
EXAMINATION OF THE
PROPHECIES—Paine 15C.
Is thc God of Israel the Truc God?
eftir Israel W. Groh. 150.
Ritverk Voltaires:
VOLTAIhE’S ROMANCES.
Ný útgáfa f bandi $f-So
Micromegas. í kápu 25C.
Man of Forty Crowns 25C.
Pocket Theology 25C.
Letters on the Christian Religion,
með myndum af M.de Voltaire.
Francois Rabelais, John Locke,
Peter Bayle, Jean Meslier og
Bcnedict Spinoza. 250.
Philosophy of History 25C.
Ignorant Philosopher, með mynd-
um af Rcné Dcscartes og Bcnc-
dict Spinoza 2 5c.
Chinese Catecism 25C.
Sentið pantanir yðar til
PÁLS JÓNSSONAR,
655 Toronto St.
WINNIPEG, --- MAN.