Baldur - 31.12.1908, Qupperneq 1
STEFNA:
Að efla hreinskilni og eyða
hræsni í hvaða máli, sem fyrir
Kemur, án tillits til sjerstakra
flokka.
BALDUR.
AÐFERÐ:
Að tala opinskátt og vöflu-
laust, eins og hæfir því fólki,
sem er «f norrœnu bergi
brotið.
VI. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 31. DECEMBER iqoS.
Nr. 30.
i GIMLI.
verður messað sunnudaginn 10.
jan. næstkomandi, kl. 2 e. hád.
J. P. SóLMUNDSSON.
SAFNAÐARFUNDUR.
-m
í hinum únftariska Gimlisöfnuði
verður haldinn, að lokinni messu-
gjörð, sunnudaginn, þann 10. jan.
1909.
Allt safnaðarfólk áminnt um að
koma.
J. J. SóLMUNDSSON,
forseti.
Frjettir.
m
Frá I. jan. til 1. des. hafa 143,
745 innflytjendur komið tilCanada.
Skýrslur verkamáladeildarinnar
fyrir nóvember sýna, að þann mán-
uð hafa 124 menn farist í Canada
af slysutn. Af þeim fórust 56 við
járnbrautavirínu.
Hinn 22. þ. m. voru 600 land-
nemar bókaðir fyrirJreimilisrjettar-
löndum f landskrifstofunni f Moose
Jaw. Hæsta tala áður á einum
degi hafði verið 337 f haust hinn
17. scpt., og 334 daginn fyrir
þennan stóra dag. Margir land-
nemarnir eru frá Bandaríkjunum,
þar á meðal 35 f einum hóp frá
Bismarck f Norður-Dakota.
Eftir allt uppistandið, sem verið
hcfir á Balkanskaganum að undan-
förnu, er nú helzt búist við að ó-
samlyndið milli Tyrklands og Aust-
urrfkis verði á endanum útkljáð
með peningum. Það er talið upp
á að Austurrfki megi inna af
heudi til Tyrkja einar 20 milljónir
dollara fyrir það að slá f haust eign
sinni á fylkin Bosníu og Herzegó-
vfnu. Bæði Bretar og Rússar eru
þykkjuþungir til Austurríkis, og
því ekki til hlýtar útsjeð um síð
ustu málalyktir.
Ogurlegur jarðsk j álfti.
Kl. S að morgni hins 28. þ. m.
varð jarðskjálfti á Sikiley og Cala-
briaskaganum (“tánni á Italfu“).
Messfna, (90,000 íbúar), næst-
stærsta borgin á Sikiley, er eyði-
lögð. og yfir/Palermo gekk flóð-
bylgjaafhafinu. Talið er að 1 2,000
manns hafi farist f Messinuborg
einsamalli, þar á meðal 100 út-
lendir ferðamenn í einu gestgjafa-
húsi. Eldur geysar um rústirborg-
arinnar og gjöreyði'r þeim að lfk-
indum. Áætlað er að 75 til 100
þúsundir muni hafa farist allt yfir,
og 500 þús. eru húsvilltar Og alls-
lausar.
Sfðast er sagt að eldfjallið Etna
muni vera f aðsigi með að gjósa.
Jarðskjálfti þc^si var svo mikili,
að hans varð vart á mælirum vfs-
indamanna hjer vestur í Ottawa.
Yerkamannaforingjar
clæmdir í fangelsi.
Á Þorláksmessudaginn var þýð-
ingarmikill dómur felldur í Banda-
rfkjunum.
Hið stóra verkamannasamband,
“The American Fedcration oí
Labor“, heldur úti blaði, sem
nefnist “The American Federa-
tionist“. í því er stöðugt látin
standa skrá yfir þær verzlunar-
stofnanir, sem verkalýðurlnn á eitt
hvað,sjerstaklega illt upp að inna.
Fyrirsögnin yfir þeirri skrá, “We
Don’t Patronize“, ber f sjer hót-
andi yfirlýsingu um það, af hálfu
verkamanna, að þeir vilji ekki
verða þeim verzlunum, sem í
skránni eru nefndar, að neinni
fjármunalegri liðsemd.
Verzlunarfjelag eitt í borginni
St. Louis, “The Buck Stove &
Range Co.“, fór f mál við blaðið
út úr þvf að hafa sitt náfn á þess-
ari skrá, og fjekk dómarann til að
Ifta svo á, sem hjer væri um stór-
saknæma atvinnuspillingu að ræða,
og úrskurðurinn varð sá, að Mr.
Samuel Gompers, formaður verka-
mannasambandsins og ritstjóri
blaðsins, skyldi sæta 12 mánaða
fangelsisvist, Mr. John Mitchell,
varaformaðúr sambandsins, 9 mán-
aða fangelsisvist, og Mr. Frank
Morrison, skrifari sambandsins,
6 mánaða fangelsisvist. Vitan-
lega var dómi þessum tafarlaust á-
frýjað til hærri rjettar, og mönn-
unum sleppt gegn veði f bráðina.
Verkamannafjelögin eru að vissu
leyti allvel ánægð með þetta, telja
það góða auglýsingu um löghelgað-
an ofbeldisverknað gegn þeim sem
ekki geta komið fram gegti þeim
gróðastofnunum, sem illa breyta
við þá, öðrum refsingum en þvf
að forsmá þær. Á hinn bóginn er
sagt að Roosevelt forseta standi
stuggur af þessu, og nruni þess al-
búinn að neyta valds sfns til að
“náða“ þessa mcnn, enda furðar
ekki neinn á þvf, þar sem einn
þeirra, Mr. Mitchell, var í fyrra
talinn af forsetanum sjálfum einn
þeirra þjóðskörunga, sem saman
þyrfti að kaila, til að r^eða með
forsetanum um landsins gagn og
nauðsynjar.
Til þess að þessi “náðun“ geti
samt komist að. verða hinir sak-
felldu menn að hætta við að áfrýja
dóminum, og með því óbeinlínis
að viðurkenna sekt sína. Það þyk-
ir verkamannafjelögunum illt, og
að eins klækjabragð, því þá mætti
framvegis fella samskonar dóma,
án þess að eiga þá nokkra “náðun ‘
vfsa. Þykir þeim æskilegra að fá
mál þetta prófað til þrautar heldur
en að þarna nemi staðar.
Frá Argyle.
(Úr brjefi frá hr. Árna Sveinssyni).
Hjeðan úr byggð vorri er allt
bærilegt að frjetta. Heilsufar
manna fremur gott, og tfðin hin
hagkvæmasta. Hið hverfandi ár
var mjög arðsamt fyrir bændur f
Suður-Manitoba. Uppskeran í
meðallagi og nýting hin bezta,
svo mestallt hveiti, þar sem jeg
þekki til, var nr. 1 northern, og
hveitiprfsinn til bænda um 90 c.
bússjelið.
Við sveitarkosningarnar hjer f
byggðinni 15. þ. m., voru greidd
atkvæði um aukalög, sem fóru
framáað afnema “Local Option“,
sem hefir verið f gildi svo að segja
síð^jr byggðin myndaðist. — Um
314 atkvæði voru greidd móti
aukalögunum, en ekki nema 145
með þeim, og sýnir þetta Ijóslega
að brennivfnsmenn eru í miklum
minni hluta í Argyle, og sem bet-
ur fer, heldur “Local Option“ á
fram f byggð vorri, til ómetanlegs
gagns og blessunar fyrir byggðar-
búa, pg vona jeg þeir gefi Bakk-
usi aldrei griðland innan takmarka
Argyle-byggðar.
Á framtíðarvegi.
#
Einn af ungu mönnunum kemst
svo að orði f brjefi nú fyrir stuttu:
“Þar sem Baldur er hið eina fs-
lenzka blað, sem óháð er öllum
gömlpm hleypidómum, bæði and-
Iegum og veraldlegum, þá væri
núkill skaði fyrir okkur, ef hans
missti við".
Annar maður, um tvítugt, sendi
Baldri rjctt fyrir jólin áskriftar-
gjöld frá 10 nýjum kaupendum,
auk þess, sem hann innkallaði frá
fyrverandi kaupendum, og. $10
borgun fyrir tvo hluti f fjelaginu,
sem einn af velvildarmönnum
Baldurs afhenti honum.
Hinn þriðji, eldri að árum, en
samt enn þá einn af æskunnar
sterkustu meðlimum, sendi nýlega
$5° fyrir 10 hluti f prentfjclaginu.
Ekki megum við vera svo böl-
sýnir, að halda að allir vilji troða
fslenzka bersögli niður f forina svo
hún hverfi fyrir hinni ‘bissnisslegu'
uppgjörðarkurteisi þessa lands.
Það eru sýnilega nokkrir til, jafn-
vel í hópi ungu mannanna, sem
hjer eru upp aldir, sem ekki vilja
það.
Mitt f öllum óhöppunum er ó-
þarft að örvænta, “ef æskan vill
rjctta þjcr örvandi hönd
G. P. lAGll, (M
UMBODSMADUR FYRIR
LONDON MUTUAL Fire Insurance Co.
MONTREAL-CANADA Fire Insurance Co.
ANGLO-AMERICAN Fire Insurance Co.
EQUITY Fire Insurance Co.
*
* *
Tryggið hús og eignir yðar gegn eldsvoða, f einhverju af þess-
um fjelögum, scm eru sterk og áreiðanleg.
Þegar yður vantar sleða, vagna, sláttuvjelar, hrffur og önnur
jarðyrkjuverkfæri, þá sjáið mig þvf viðvíkjandi.
Verkf-ærin eru góð.
Verðið sanngjarnt.
Skilmálar fyrirtak.
G. P. MAGNUSSON.
GIMLI. ' MAN.
THE LIVERPOOL & LONDON &
GLOBE INSURANCE CO.
w « «
Eitt sterkasta og áreiðanlegasta lífsábyrgðarfjelag í heimi.
m m m
Tryggir hús fyrir eldsvoða, bæði í Gimlibæ og grenndinni,
* %
G. THORSTEINSSON, agent.
Gimli.-----------Man.
Lesið.
JÓNAS HALLDÓRSSON á
Gimli, smfðar STKAUBORD fyrir
kvennfólkið með fótum á lömum,
sömu tegund og brúkuð er á spft-
alanum f Selkirk, fyrir 40 cent.
Dregur á stein bitlaus skæri, svo
þau flugbfti, íyrir 5 cent, og gjörir
við ýmsa innanhuss hluti fyrir
litla borgun.
Hjer með auglýsist að uxi, lfk-
Iega á fjórða vetur, er hjer í van-
skilum ; horntekinn, rauður að lit
með hvítan flekk öðrumegin á möl-
um, hvítskrámóttur f krúnu og á
kvið. Rjettur eigandi getur vitjað
hans til mín gegn þvf að borga
allan áfallinn kostnað.
ÓLAFUR ÁRNASON.
Icel. River P.O.,—Man.
Umsjónarkonan: ‘En hvað
þetta er siðgóður piltur'.
Kona innbrotsþjófsins : ‘Já, það
J cr eðli sem hann hefir fengið f arf
frá pabba sfnum. Hegningartfmi
föður hans er ávallt styttur ‘sök-
urn góðs siðíerðis“.
ARIÐANDI SPOR.
Það er ekki eingöngu í dansin-
um, að fótabragð þitt sýnir sig.
Daglega, heima eða á strætum
kemur það f ljós. Kaupirðu skó
hjer, þarftu ekki að kosta til
meiru en þú ættir að gjöra, til að
gfá þá skó er þú ættir að nota.
KJORKAUP.
GULLSTÁSS. — 30 proc. af-
sláttur. Brjóstnálar, Nisti,
Skyrtuhnappar, Festar, Úr etc.
Allskonar að«jörðir
fljótt og vel.
C h. Goldatein.
Boot & Shoe Dcaler.
695 Wellington Ave. Winnipcg.
1