Dagblaðið - 06.11.1914, Qupperneq 2
2
DAGBL.
1. tbl.
ýlrchimec/es
er mótor sem á þrem mín-
útum má setja á hvaða bát
sem vera skal. Hann hefir
hlotið ágætis meðmæli allra
þeirra sem hafa reynt hann,
en hér skal þó sérstaklega
bent á ummæli hr. J
Esphólins, sem er sérfræð-
ingur í öllu sem lýtur að nú-
tíma mótorgerðum.
Mótorinn fæst í tveim stærðum:
Tveggja hesta afl á kr: 400 —
og fimm hestaafl á kr: 600 —
Aðalumboð fyrir ísland hafa
Hinar sameinuðu íslenzku verzlanir.
Offo Tulinius
Akureyri.
—+>——<>♦—
Undirritaður
hefir halt tækilæri til aA reyna »Archimedes<-mótor og hefir hann þá ætíð
gengið jalnt og alveg áreiðanlega og þar sem hann hefir tvo »cylindra« sem
verka samtímis hver gagnvart öðrum og hefir þar að auki vatnsþétta »mag-
net«-kveikingu, ber að álíta þessa mótorgerð betri en allar aðrar I sinni röð
°g get eg þv< ráðlagt öllum sem þurla á þessum þægilegu og ódýru mótor-
um að halda að taka »Archimedes« Iremur öðrum mótorum af Hkri gerð.
Akureyri 10. ágúst 1914.
J. S. Esphólin.
Fólksfjöldi í ófriðarríkjunum.
í Evrópu eru 21 sjálfstætt ríki. Af
þeim eru átta komin í stríðið og er
íbúatala þeirra um 352 mill. þ. e. 4/s
af öllum íbúum álfunnar (sem eru
samtals 449 mill.). En af þessum 352
mill. eru Þjóðverjar og bandamenn
þeirra atens tæpur þriðjungur (í
Þýzkalandi eru 67 mill. og í Austur-
ríki og Uugverjalandi 51 mill ). Séu
nýlendur þjóðanna, sem í ófriði eiga,
taldar með, verður munurinn enn þá
rneiri, því Austurríki og Ungverjaland
eiga engar, og Þjóðverjar tiltölulega
litlar. Því þó lönd þau er þeir eiga í
Afríku sjeu víðlend, þá eru þau strjál-
bygð, enda eru í öllum þýzkum ný-
lendum til samans aðeins 153/í mill.
íbúa, eða viðlíka og í þeirri einu ný-
lendu er Belgía á (Kongo 15V2 mill.).
England á langstærstar nýlendur af
öllum ríkjum. Það eru samtals 374 ^/2
mill. íbúa í þeim, en í Englandi sjálfu
(ásamt Skotlandi, Wales og írlandi)
eru ekki nema 45'/4 mill. Næst í
röðinni er Frakkland, það eru 54 mill.
íbúa í nýlendum þess (í Frakklandi
sjálfu eru 39V2 mill. íbúa). í nýlend-
um Rússa eru 33 mill. og í Rússlandi
sjálfu 136 mill. Samtals eru því í
ríkjum þeim sem eru á móti Þjóð-
verjum 711 mill. eða þar um bil, þ.
e. nálega fimmföld tala allra íbúa
Þýzkalands, Austurríkis, Ungverjalands
og Tyrklands (sem nú eftir Balkanó-
friðinn hefir aðeins 17 mill. íbúa).
XXX
Gamla lagfiö.
Maður nokkur fór af landi brott.
Það var um haust, eitthvað mánuði
eltir að reknetaveiðar hættu. Það
síðasta sem hann heyrði menn ræða
um, áður en hann stje á skipsljöl,
var, að nógur væri afli, ef ekki vant-
aði beitu
Maðurinn dvaldi ( átta ár í útlönd-
um, og kam til íslands attur um
sama leiti árs og hann tór. Hann
gekk þar að sem nokkrir menn stóðu
og ræddust við, og hlustaði á tal
þeirra. Þeir voru að fárast um beitu-
leysið Nógur fiskur, sögðu þeir, ef
ekki vantaði beitu
Þetta var árið 1914
XXX
Nýleg hnakktaska
hefir fundist hjer á götunum Geymd
hjá
Dúa Benediktssyni.
Ur bœnum og grend
Opinbert uppboð var haldið í gær
á húsi og lóð Guðlaugs heitins Guð-
mundssonar bæjarfógeta.
Hæsta boð bauð Sigurður Fanndal,
gestgjafi, 9100 kr., en það boð býð-
ur skiftarjettar, sem verður innan 14
daga.
Bjarni skipasmiður Einarsson sendi
nýlega »Hrólf Kraka« vestur á Siglu-
fjörð til fiskiveiða, en aflann kemur
hann með jafnharðan til bæjarins til
sölu. Væri vel að vel tækist; á þessu
var brýn þörf.
Sagður er dágóður fiskafli út með
Firðinum sjerstaklega miili Litla-Skógs-
sands og Hríseyjar og svo við Siglu-
fjörð.
Stúdentafjelagið á Akureyri hjelt
fund í gærkvöldi. Var rætt um hvort
fjelagið ætti að gangast fyrir því, að
alþýðufyrirlestrar verði haldnir hjer í
vetur.
Eftir talsverðar umræður var svo-
feld tillaga samþykt: »Fjelagið telur
æskilegt að alþýðufyrirlestrar verði
haldnir á Akureyri í vetur, og til
undirbúnings málefninu felur fundur-
inn stjórninni að spyrja Stúdentafje-
lagið í Reykjavík hvort fjelagið geti
fengið hluta af fje því, sem veitt er
á fjárlögunum til alþýðufyrirlestra*.
Auk þess vóru lesnar upp stríðs-
rímur.
2 telpur duttu í dag niður um ís-
inn á Pollinum en varð bjargað.
Tveir h/endingar hafa verið teknir
fastir, annar í Stykkishólmi en hinn á
Sauðárkrók, fyrir fölsun á dönskumi
peningaseðlum. Nánar síðar.