Dagblaðið - 29.12.1914, Qupperneq 1
Þriðjud.
29. des.
1914
Dagblaðið
1. árg.
51. tbl.
Ritstjóri Sig. Einarsson. Prentsrriðja Odds Björnssonar.
Skýrsla
um Bændaskólann á Hólum í Hjalta-
dal 1912 — 13 og 1913 — 14 hefir ný-
lega borist mjer í hendur. Er hún all-
myndarlega úr garði gerð og gefur
ágæta hugmynd um það, sem gerst
hefir á Hólum þau 2 skólaár. Hún
er laus við allar óþarfa orðalengingar
en skýrir blátt áfrarn frá allri tilhögun
skólans.
Kafli I. «Tilgangjir skólans, stofnun
hans Og þroski* er sögulegt yfirlit
yfir skólann þau 32 ár, sem hann
hefir starfað.
»Haustið 1912 komu 44 nemendur,
en haustið 1913 30 nemendur í skól-
ann. Reglugerð Hólaskóla frá 1908
gerir ráð fyrir að nemendur fái að
taka próf frá skólanum, en heimtar
eigi, að þeir geri það. Reglugerð sú,
sem stjórnarráðið gaf út 17. des. 1913
fyrir bændaskólann á Hólum og
Hvanneyn ákveður prófskyldu í þeim
báðum. Nemendur Hólaskóla hafa
tekið próf bæði árin, sem skyrslan er
fyrir.«
Vorið 1913 tóku 19 nemendur burt-
fararpróf, en vorið 1914 voru þeir 15,
sem tóku burtfararpróf.
Bændanámsskeið þafa verið haldin
báða veturna og stóðu þau yfir viku
hvort um sig. Voru þá fluttir fyrir-
lestrar um ýms búnaðarmál og haldnir
umræðufundir.
Skólinn á nú allmikið kensluáhalda-
safn og ágætt bókasafn í þeirri grein.
Alt bendir á það, að Hólaskóli
standi nú í mikluni blóma, enda er
’þar óefað rjetti skólastjórinn á rjettum
stað.
5. Einarsson.
Frá Vestmannaeyjum.
Á sunnudaginn var hjer voðalegt ofviðri,
sem olli stórskemdum.
Hafnargarðurinn, sem var vel á veg
kominn gjöreyðilagðist og er horfinn með
öllu eins og aldrei hefði verið byrjað á
^num.
Menn álíta að skaðinn lendi á forstjór-
a 'um Monberg.
Erlendar símfregnir.
Tilkynning frá bresku utanríkisstjórninni í
London.
London, 27. des.
Flotamálastjórnin kunngjörir, að 25. þ. m. hafi þýsk herskip
legið fyrir akkerum á Schilleghöfn fyrir framan Cuxhafen og
rjeðust 7 breskir loftbátar á þau. Árásin byrjaði í dögun og
lágt upp við Helgoland. Ljett beitiskip, tundurbátaspillar og
kafbátar fylgdu loftbátunum. Undir eins og Pjóðverjar á Helgo-
landi sáu þessi skip, rjeðust þeir á móti þeim á 2 Zeppilinsloft-
skipum, 3 eða 4 loftbátum og nokkrum kafbátum. Bresku skip-
in urðu að bíða þar í nánd, þangað til að flugmennirnir kæmu
aftur. Tókst nú sjóorusta milli allra nýjustu beitiskipanna ann-
arsvegar og loftbáta og kafbáta hinsvegar. Með því að sigla
hratt, tókst mönnum vorum að komast fram hjá kafbátunum og
veitti Ijett að stökkva Zeppilinsskipunum á flótta með fallbyssu-
skotum. Loftbátum óvinanna tókst að varpa sprengikúlum nálægt
skipum vorum, en hittu ekkert þeirra.
Bresku skipin biðu 3 kl.stundir við strendur óvinanna, þangað
til ráðist var á þau af herskipum, og tóku á móti 3 flugmönn-
um og loftbátum þeirra óskemdum; aðra 3 flugmenn tóku kaf-
bátar, er voru látnir bíða eftir þeim einsog ráð hafði verið gert
fyrir. Loftbátum þeirra var sökt. 6 flugmenn af 7 komust heil-
ir heim, en loftfararforinginn Francis Hewlett er ekki kominn
fram. Loftbátur hans sást nauðulega staddur nálægt 8 míl. frá
Helgolandi og vita menn ekki hver hafa orðið örlög þessa djarfa
og kæna loftfara.
Menn geta ekki metið þann skaða, sem sprengikúlur bresku
fluginannanna hafa gert, en þeim var öllum kastað niður á staði,
sem höfðu hernaðarlega þýðingu.
Síðastliðinn fimtudag fór flugsveitarforingi Davies til Brassel í
flugvjel til þess að kasta 12 sprengikúlum á loítskipaskýli, sem
sagt var að í væru þýsk Persiwal loftskip. 8 sprengikúlum var
kastað niður í byrjun og halda tnenn að 6 hafi hitt markið.
Ekki var hægt að sjá hve mikið tjón sprengikúlurnar unnu, með
því að reykjarmökkinn lagði upp af skýlinu.
London 28. des. kl. 12,05 siðd.
Frá aðalherstöðvum Rússa er tilkynt: Orustan í gær milli
Bzura og Rawka var eingöngu stórskotaliðsbardagi. Oss tókst
að hrinda af oss áhlaupum Pjóðverja.
Að kvöldi 25. þ. m. ráku Rússar Austurríkismenn úr Wislica-
hjeraði við Neðri Nida og yfir ána.
Að kveldi 25. þ. m. brutu Rússar Austurríkismenn á bak aft-
ur á rnilli Tuchow og Lupeni. Par tóku Rússar 10 vjelbyssur,