Dagblaðið - 31.12.1914, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 31.12.1914, Blaðsíða 2
108 DAOBL. 53 tb. L O. Q. T. Stúkurnar Isafold-Fjallkoann nr. 1 og Brynja nr. 99 halda sameiginlegan fund í stóra sal Goodtemplarahússins 1, jan. 1915 kl. 6 e. h. Þetta tilkynnist hjer ineð fjelögum beggja stúknanna. Framhald frá fyrri síðu. fremur seint svo að grasspretta varð tæplega í meðallagi yfirleitt. Sjávarafli mun hafa verið fremur góður og verð á honum sjerlega gott. Vonandi verður næsta ár oss hag- stæðara að ýmsu leyti þótt útlitið sje all ískyggilegt. Fyrirspurn. Hvernig stendur á því að lítið eða ekkert er til þess að hefta útbreiðslu máttleysisveiki þeirrar á börnum (Börne- lammeise) sem nú gengur hjer í bæn- um ? Pað lítur út fyrir að veikin sje næm, og sje hún jafn illkynjuð og orð er á gert, því er sóttvörnum þá eigi beitt gegn henni? F*að er óhætt að segja að hjer í bænum er almenn hræðsla við veikina, og eftir læknunum eru hafðar ýmsar sagnir um hana, sem ekki er hægt að taka mark á. Virðist það því sjálf- sagt, að læknarnir fræði almenning um eðli veikinnar og hverrar varúðar menn geti gætt, til þess að verja börn sín fyrir henni. En sje ekkert að ótt- ast og hræðslan óþörf, væri gott að hún yrði kveðin niður sem fyrst. K. S. Ur bœnum ojí grendinni. Hr. Ragnar Ólafsson biður dagblaðið geta þess, að j ó I a t r j e, sem ákveðið hafði verið að hafa í Ooodtemplarahúsinu á Þrettándanum fyrir fátæk börn hefir orðið að hætta við samkvæmt umsögn læknanna, vegna sýkingarhættu á barna- sjúkdómum, sem um þessar mundir geisa í bænum. Ur Reykjavík. 30. des. Ráðherra verður baldið samsæti 2. jan- úar. Fundur er í fjelagi Sjáifstæðismanna í kvöld. Þar talar ráðherra. Uppboð lætur Garðar Gíslason halda á morgun á kampavíni og fleirum vínum. Búist við háu verði. Hátíðahöld°gdraumórar. Vort œskulíf er leikur, sem líður tra, la, la — Svo má og segja um þessi jól, þau eru bráðum á enda — þó ekki enn, — og með þeim líða hátíðahöldin og skemtanirnar, og draumarnir og von- irnar verða að óskum og verkum og eyðast eins og þoka fyrir upprenn- andi sól. Dagarnir eru þegar farnir að lengj- ast og með Ijósinu kemur nýtt líf og nýtt fjör og ný störf; sum þeirra hafa menn undirbúið á þessum hátíðadög- um; sum bíða nýársins. A þessum seinustu dögum hafa margir víst íhug- að þarfir sínar og kringumstæður, og þar næst þarfir bæjar þess og sveitar þeirrar, sem þeir byggja, og því næst þarfir landsins sjálfs, er vjer köllum ættjörð vora og fósturjörð, — og svo hafa menn fundið vini sína að máli á ýmsum samkomum og lesið blöðin og jólakortin, sem til þeirra hafa kom- ið, og þakkað forsjóninni fyrir að hún hefir lofað þeim að sjá þessi jól — þessa nýa árs sól — og byrja eina árs umferðina aftur. Eg fyrir mitt leyti er glaður að sjá Dagblaðið koma út rjett eftir 3 daga mók eða hvíld, og óska því vaxtar og viðgangs, svo mikils að ekki aðeins Akureyrarbúar, heldur alt Norður- land geti látið Suðurland og Aust- urland og Vesturland heyra til sín daglega, og geti sagt þeim það, sem almenningi hjer virðist heppilegast í öllum áhugamálum Islands. Allir vita hver þessi mál eru. Þau eru ekki nein útþvæld þrætu og hót- findnismál eða ofmetnaðar belgingur um flokkastefnu og nýjan fána, tvílitan eða þrílitan og nýja stjórnarskrá. Þau eru atvinnu- og búnaðarmál, og iðn- aðar- og verzlunarmál, og þar næst uppfrœðslumál og stjórnmál, er snerta einkum dómsvald og framkvæmdar- vald íslandsstjórnar, hér á íslandi. Af þessum málum er landbúnaður- inn og verzlun og viðskifti landsins langmerkust. Einkum er það áríðandi, að alþýða viti nokkurn veginn nákvæmt hversu fjárhagur þjóðarinnar stendur, hve mikið gjaldgengt fje hún á til, hve mikla peninga hún þarfnast á kom- andi ári og hversu bezt verði að afla þess. Um þetta efni hafa þeir E. H. og E B. ritað heillangar ritgerðir í blöð- unum Ingólfi og Lögrjettu og er von- andi að þær verði teknar til greina af þingskörungutn og hagfræðingum hjer norðanlands áður langt um líður, því bezt er að íhuga vel og vandlega all- ar áætlanir og alla reikninga áður far- ið er að byggja nýu brautirnar og rækta 50 millíón króna teigana, — og eins er ekki úr vegi að eiga ofurlítið af gulli í handraðanum, ef útlendir neita að taka íslenzka brjefpeninga- seðla upp í skuldir. Ekki er vert að apa útlendar þjóðir í því að sökkva almenningi í óþrjótandi skuldir og setja landið í pant. Það er glæfravegur, sem íslenzka þjóðin ætti helst að forðast. x. y. z. S m á v e g i s. 011 utn kröftutn stjórnendanna hefir verið varið til að efla velmegun þjóð- anna — að þær hugsuðu — allskon- ar umbótum, framfötum — öllum lilutum (nema andlegum), en alt fór öfuga leið, alt brást: ný vísindi, nýj- ar uppgötvanir, nýir sigurvinningar, óvenju auðsafn og frjáls samkeppni — nei, alt fór öfuga leið, hver blessan varð bölvun og alt lenti í uppnátni. Og nú eru heilar þjóðir — eins og Belgir — komnar eða eru að komast á vonarvöl, fyrir guðlausu hernaðar- æði á landi og sjó, neðan sjávar og í lofti. . . . Hvað eigum vjer aðgera? Vjcr eigum að bíða og bjargast með- an kostur er, og kraftarnir eru að brjótast um. Og eitt er óhjákvæmileg skylda vor í þessu landi: að opna hús vor og hjörtu fyrir öllum, sem á hurðir vorar knýja, meðan rúm er til og af nokkru að miðla. Og, guði sje lof! nógertil. Kærleikur og dreng- skapur skal sigra, því engin ósköp standa lengi. (»Víngarður«.) M. /. Meðferð ungbarna eftir Vald. Steffensen fæst hjá bóksölunitn1 Kr. Guðmundssyni, Sig. Sigurðssyni og ’ bókaforlagi Odds Björnssonar,

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.